Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.2010, Qupperneq 24
24 FÖSTUDAGUR 29. janúar 2010 HELGARBLAÐ
Á sama tíma og fjöldauppsagnir eiga
sér stað hjá Ríkisútvarpinu, RÚV, og
boðaður er stórfelldur niðurskurður
á kaupum á innlendu sjónvarpsefni,
standa tólf milljón króna háskerpu
risasjónvarpsskjáir ónotaðir á göng-
um stofnunarinnar. Risaskjáirnir
eru enn í kössunum sem þeir voru
keyptir í en þá átti að nota í nýtt og
stærra fréttasett. Hætt var við settið
vegna niðurskurðar en skjáirnir dýru
engu að síður keyptir, þrír skjáir sem
fullyrt er við DV að kosti fjórar millj-
ónir króna stykkið.
Þetta þykir þeim álitsgjöfum sem
DV leitaði til dæmi um óskynsam-
lega ráðstöfun rekstrarfjár RÚV og
nefna jeppa Páls Magnússonar út-
varpsstjóra sem annað dæmi. Lúx-
usjeppinn, af tegundinni AUDI Q-7i,
hefur kostað stofnunina 200 þúsund
krónur á mánuði, eða því sem nemur
afnotagjöldum hátt í hundrað heim-
ila, en Páll hefur í ljósi niðurskurðar
lofað að skila jeppannum. DV ósk-
aði eftir upplýsingum um heildar-
kostnað RÚV vegna jeppans en þær
fengust ekki uppgefnar. Þá var beð-
ið um sundurliðun á fjármunum til
dagskrárkaupa en hún fékkst heldur
ekki uppgefin.
Bitnar á dagskrá
Ríkisútvarpið þarf að gæta hófs í fjár-
málum. Varðar það bæði almenn-
an rekstur, samkeppni og samskipti
við keppinauta og launakjör æðstu
stjórnenda. Þetta er mat þeirra full-
trúa starfshóps menntamálaráð-
herra sem fóru ítarlega ofan í rekst-
ur og hlutverk RÚV undanfarin ár.
Fréttalestur Páls útvarpsstjóra er
jafnframt gagnrýndur og völd hans
sögð allt of mikil.
Landsmenn koma til með að
greina niðurskurð RÚV með eig-
in augum því fram undan er beinn
niðurskurður í dagskrá Sjónvarps-
ins. Til dæmis stendur til að fella
niður Fréttaaukann, Viðtalið með
Boga Ágústssyni ásamt því að veru-
legar breytingar verða gerðar á tíu
fréttunum og Kastljósið þynnist með
fráhvarfi fjögurra dagskrárgerðar-
manna þess.
Brenglað og útþynnt
Laufey Guðjónsdóttir, forstöðu-
maður Kvikmyndamiðstöðvar Ís-
lands og einn fulltrúanna í starfs-
hópi menntamálaráðherra um RÚV,
starfaði eitt sinn hjá RÚV og er leið
yfir því hver staða stofnunarinnar er
í dag. Hún segir skuldir vera að sliga
RÚV. „Með breytingunum á RÚV
hefði mátt skipuleggja betur hlut-
verk stofnunarinnar. Að ýmsu leyti
er illa komið fyrir henni, til dæmis
samkvæmt þeim upplýsingum sem
liggja fyrir um fjármál en þau virðast
vera að sliga stofnunina og það kem-
ur vitanlega niður á dagskránni og
hlutverkinu,“ segir Laufey.
„RÚV hefur farið of geyst í mark-
aðsvæðingunni og fjármálunum
án þess að ég haldi að það hafi ver-
ið misfarið með fé. Dagskrárhugs-
un RÚV og hlutverkið virðist hafa
brenglast og þynnst út. Vissulega
hefur mjög margt verið vel gert
þarna og þar starfar fólk sem sinnir
störfum sínum af alúð.“
Skrítið rekstrarform
Það er ýmislegt sem Þorgrímur
Gestsson, blaðamaður og formað-
ur Hollvinafélags RÚV, er ósáttur við
í rekstri RÚV, til að mynda óráðsía í
fjármálum og rangar áherslur í dag-
skrármálum. Hann segir stofnun-
ina bastarð með of mörg dæmi um
bruðl. „Þarna er verið að segja upp
þeim eldri og reyndari og fullt af dag-
skrárgerðarfólki sem á að vera lyk-
illinn í starfseminni á meðan skrif-
stofufólkið fær að vera að mestu í
friði. Þessi áhersla stofnunarinnar
er kolröng því dagskrárin er það sem
allt snýst um. Það verður að lækka
laun toppanna og það eru auðvitað
dæmi um bruðl hjá RÚV,“ segir Þor-
grímur.
„Ég varaði við öllu því sem nú hef-
ur ræst. Nú er búið að segja upp fólki,
draga úr dagskránni, hækka laun
toppanna og útvarpsstjóri gat feng-
ið sér flottan bíl. Gríðarlegar skuldir
stofnunarinnar eru að kaffæra hana
og ég tel að stofnunin sé bastarður
með afskaplega skrítið rekstrarform.“
Fólki líður illa
Gunnar Magnússon, formaður
Starfsmannafélags RÚV, segir ljóst að
yfirmenn stofnunarinnar hafi þurft að
sníða sér stakk eftir vexti. Hann seg-
ir alltaf tregablandið andrúmsloft til
staðar eftir erfiðar uppsagnir. „Það
líður öllum illa. Þú getur rétt ímynd-
að þér hvernig hugur er í fólki eftir
að hafa gengið í gegnum þessar upp-
sagnir. Það er alltaf erfitt þegar verið
er að segja upp í kringum þig,“ segir
Gunnar.
Björn Malmquist, formaður Starfs-
mannasamtaka RÚV, segir starfsfólk
virkilega slegið yfir hópuppsögnun-
um. Aðspurður hefur hann áhyggjur
af RÚV og framtíðinni. „Auðvitað hef
ég áhyggjur af þróun RÚV. Við erum
búin að missa fullt af fólki og mörg-
um líður illa. Það eru allir slegnir fyr-
ir þessum uppsögnum og það er allt-
af erfitt að horfa á eftir góðu fólki sem
maður hefur starfað með í langan
tíma. Ég held hins vegar að uppsagn-
irnar hafi augljóslega verið hugsaðar
út frá því hvar var hægt að skera nið-
ur,“ segir Björn.
Erfitt andrúmsloft
„Því miður koma þessar uppsagnir
niður á dagskránni og mér finnst það
hræðilegt að RÚV sé í þeirri stöðu að
þurfa að segja upp öllu þessu fólki á
frekar skömmum tíma. Það er vont
fyrir stofnunina, fyrir þá starfsmenn
sem hafa orðið fyrir niðurskurðinum
og þeim sem eftir eru. Eftir stend-
ur veikari stofnun, það segir sig bara
sjálft,“ bætir Björn við.
Aðspurður telur Þorgrímur að Páll
útvarpsstjóri hafi ekki staðið sig vel í
því að móta og fylgja dagskrárstefnu
í þágu almennings. „Það á að stöðva
fréttalestur Páls hið snarasta því hann
er algjörlega út í hött og það er mjög
knýjandi að nýr maður sé ráðinn í
stöðu útvarpsstjóra. Páll rekur RÚV
eins og einkastöð og það á hann ekki
að gera. RÚV á ekki að vera að keppa
við einkastöðvar og Páll hefur ekki
staðið sig vel,“ segir Þorgrímur.
Beygt af leið
Laufey telur að á einhverjum tíma-
punkti hafi RÚV beygt af þeirri leið
sem stofnunni er ætlað að fara. Að-
spurð telur hún að hlutverk stofnun-
arinnar hafi brenglast og þynnst út á
undanförnum árum undir stjórn nú-
verandi útvarpsstjóra. „Mér finnst
mjög sárt að horfa upp á uppsagn-
irnar og hversu mikið þær beinast að
reynslumiklu fólki. Ég verð að treysta
því að uppsagnirnar séu faglega unn-
ar en þær eru mjög sársaukafullar.
Áhersla á markaðsvæðingu og rekstr-
arformið spilar vissulega inn í hvern-
ig komið er fyrir stofnunni í dag,“ segir
Laufey.
„Þetta snýst hins vegar ekki bara
Starfshópur menntamálaráðherra telur
að breyting RÚV yfir í opinbert hlutafélag
hafi brugðist að flestu leyti og það hafi fært
stofnunina frá almannahlutverki sínu.
Þorgrímur Gestsson, formaður Hollvina-
félags RÚV, er því sammála og segir mjög
knýjandi að skipt verði um útvarpsstjóra.
BRENGLAÐ HLUTVERK RÚV
TRAUSTI HAFSTEINSSON
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
Ég varaði við öllu því sem nú hefur ræst. Nú er búið að
segja upp fólki, draga úr dagskránni,
hækka laun toppanna og útvarps-
stjóri gat fengið sér flottan bíl.
Margir farnir Hátt í
hundrað stöðugildi hafa
verið skorin niður hjá RÚV á
innan við tveimur árum.
Burt með Pál Ragnari
líst illa á stjórnunartíð
núverandi útvarpsstjóra
þar sem greinilegt sé að
hann sé ekki menningar-
lega sinnaður.