Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.2010, Blaðsíða 26
26 FÖSTUDAGUR 29. janúar 2010 HELGARBLAÐ
HÁTT Í HUNDRAÐ FARNIR
Frá því í júní árið 2008 hefur ver-
ið fækkað um hátt í hundrað starfs-
menn hjá RÚV, að minnsta kosti. Í
júní 2008 var fækkað um 20 svoköll-
uð stöðugildi. Þá voru átta beinar
uppsagnir, ekki var ráðið í aðra átta
og einnig var ekki enduráðið í fjórar
afleysingastöður. Í nóvember 2008
var svo 21 starfsmanni sagt beint upp
og einnig 23 verktakasamningum.
Ein af þeim uppsögnum var dregin
til baka.
Nú síðast í janúar var svo fækk-
að um 29 stöðugildi og þar af 16
með beinum uppsögnum 17 starfs-
manna og 13 „með öðrum hætti“,
eins og það er orðað í fréttatilkynn-
ingu frá RÚV.
Séu þá þau stöðugildi talin sem
fækkað hefur verið um og þeir verk-
takasamningar sem sagt hefur ver-
ið upp hafa að minnsta kosti 92
starfsmenn verið látnir fara á þessu
tímabili. Þeir gætu þó verið töluvert
fleiri þar sem fleiri en einn starfs-
maður getur skipað eitt stöðugildi.
Til dæmis ef starfsmaður er í hluta-
starfi. Yfirstjórn RÚV vildi ekki gefa
upp nákvæmari upplýsingar um
uppsagnirnar sökum trúnaðar við
starfsmenn.
Af þeim starfsmönnum sem DV
ræddi við, núverandi og fyrrverandi,
virðist vera almenn óánægja með
hversu harkalega niðurskurðurinn
hefur lent á frétta- og dagskrárgerð-
arfólki í bæði sjón- og útvarpi. Með
því sé verið að skerða vöruna til við-
skiptavinar RÚV sem er almenn-
ingur. Á meðan hefði verið hægt
að endurskipuleggja fyrirtækið og
minnka yfirstjórn þess í staðinn.
Á tæpum tveimur árum hefur verið fækkað um að minnsta
kosti 92 starfsmenn hjá RÚV. Fækkað var um 20 stöðugildi í
júní 2008, 20 í nóvember 2008 og 23 verktakasamningum sagt
upp og svo núna síðast var fækkað um 29 stöðugildi. RÚV vill
ekki gefa upp fjölda starfsmanna sem hefur verið sagt upp en
fleiri en einn starfsmaður getur skipað í hvert stöðugildi.
ÞEIM VAR SAGT UPP STÖRFUM Í JANÚAR
Fréttastofa
Friðrik Páll Jónsson
Guðrún Frímannsdóttir
Jóhanna Margrét Einarsdóttir
Elín Hirst fréttamaður
Borgþór Arngrímsson
Kastljós
Jóhanna Vilhjálmsdóttir
Þóra Tómasdóttir
Elsa María Jakobsdóttir
Svæðisstöðvar
Karl Eskil Pálsson, fréttamaður
Akureyri
Guðrún Sigurðardóttir, fréttamaður Ísafirði
Ásgrímur Ingi Arngrímsson, fréttamaður Egilsstöðum
Hafdís Erla Bogadóttir, markaðsfulltrúi Egilsstöðum
Heiður Ósk Helgadóttir, tæknimaður Egilsstöðum
Gunnlaugur Starri Gylfason, tæknimaður Akureyri
Rás 1
Ólöf Sigursveinsdóttir, dagskrárgerðarmaður
Þulur
Katrín Brynja Hermannsdóttir
Matthildur Magnúsdóttir
Anna Rún Frímannsdóttir
Eva Sólan
Margrét Rós
Sigurlaug Jónsdóttir
UPPSAGNIR ÁRIÐ 2008:
Káta maskínan
Þorsteinn Joð Vilhjálmsson
Íþróttadeild
Valtýr Björn Valtýsson
Svæðisstöðvar
Hildur Jana Gísladóttir, fréttamaður Akureyri
Rás 2
Gestur Einar Jónsson
Fréttastofa
Guðfinnur Sigurvinsson
Berghildur Erla Bernharðsdóttir
Guðrún Sigurðardóttir, fréttakona á Ísafirði:
Líka gáfað fólk úti á landi
„Við vissum af uppsögnum en ég
hélt nú að svæðisútvörpin myndu
fá að lifa,“ segir Guðrún Sigurðar-
dóttir, fráfarandi fréttakona á Ísa-
firði og umsjónarmaður svæðis-
útvarps Vesturlands og Vestfjarða,
ásamt Gísla Einarssyni. „Maður
hélt að það væri nú ekki hægt að
skera meira niður hérna fyrir vest-
an.“ Guðrún segist ekki enn vera
búin að vinna úr uppsögninni og
áhrifum hennar á sig.
„Maður kveikir ekki strax á þess-
ari peru. Maður er bara ekki búinn
að vinna úr þessu öllu saman,“ seg-
ir Guðrún sem var í göngutúr þegar
blaðamaður DV náði af henni tali.
„Fyrst Þóra (Tómasdóttir) er að fara
til Noregs ætli ég fari þá ekki bara til
Grænlands,“ bætir hún létt við en
segist fyrst og fremst ætla nota tím-
ann á næstunni til þess að hvíla sig
og hugsa málin.
Að mati Guðrúnar hefur breyt-
ing RÚV í opinbert hlutafélag ekki
heppnast vel. „Ég veit ekki hvað er
búið að segja upp mörgum síðan að
RÚV varð ofh. Síðast var það febrú-
arslátrun og núna var það janúar-
slátrun.“ Að mati Guðrúnar hefur
metnaður innan RÚV farið minnk-
andi og það þykir henni miður. „Til
dæmis bara að halda uppi þessu
málfarsfasisma, að vernda íslenskt
mál. Mér finnst það mjög mikilvægt
og ekki eitthvað sem ætti að slaka á.
Svo er líka til gáfað fólk úti á landi.
Fólk sem getur gert góða útvarps-
þætti og notað þessi ódýru stúdíó
sem eru til staðar. Þó að ég missi
vinnuna þá er fjöldinn allur af öðru
fólki sem getur gert góða útvarps-
þætti.“
Þá segir Guðrún það almennt
áhyggjuefni hversu mikið af blaða-
og fréttafólki hefur verið sagt upp
undanfarin misseri. „Maður ótt-
ast bara að það verði ekki nægilega
margir eftir á vaktinni til að veita
nauðsynlegt aðhald í uppbygging-
unni.“
Elín Hirst fréttakona:
Taldi sig örugga
„Ég fékk uppsagnarbréf eins og all-
ir aðrir sem var sagt upp á frétta-
stofunni,“ segir Elín Hirst frétta-
kona og stjórnandi Fréttaaukans.
„Það eru þó ákveðnar viðræður í
gangi um dagskrárgerðarverkefni
á næstunni þannig að framtíðin er
nokkuð óljós eins og er,“ bætir Elín
við og því ekki ólíklegt að hún taki
aftur til starfa hjá RÚV. Elín, sem
er ein þekktasta og reynslumesta
fjölmiðlakona landsins, segist hafa
búist við niðurskurði hjá RÚV um
leið og fjárlögin fyrir árið 2010 voru
samþykkt. „Uppsögnin kom samt
sem áður mjög flatt upp á mig og
maður heldur alltaf að manni sjálf-
um verði ekki sagt upp.“