Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.2010, Síða 27
HELGARBLAÐ 29. janúar 2010 FÖSTUDAGUR 27
HÁTT Í HUNDRAÐ FARNIR
Þóra Tómasdóttir vildi ekki tjá sig
um uppsögn sína þegar blaðamaður
DV hafði samband við hana en hún
hefur ekki farið leynt með skoðanir
sínar á Facebook-síðu sinni. „Meira
bullið í Páli Magnússyni að nú sé ekki
hægt að kaupa íslenskar kvikmynd-
ir. Það er ekki ofurverðið á þeim sem
hefur dregið þessa stofnun í tækni-
legt gjaldþrot. Og nú er kominn tími
á nýjan útvarpsstjóra,“ segir Þóra sem
tilheyrir hópi íslenskra kvikmynda-
gerðarmanna.
Í nýlegu samtali við DV.is segir
Þóra, sem annast hefur dagskrárgerð
í Kastljósinu, uppsögnina ekki hafa
komið á óvart. Aðspurð hvað taki við
hjá henni segist hún vera að hugsa
um að flytja til Noregs. „Ég er að velta
því fyrir mér að flytja til Noregs. Er að
skipuleggja það, það tekur smátíma,
en ég get vonandi farið þangað sem
fyrst,“ sagði Þóra en hún vildi þó lít-
ið annað gefa upp um framtíðarplön
sín.
Þóra segir að það hafi lengi legið
fyrir að Kastljósþátturinn yrði skor-
inn niður. Hún segir það liggja fyrir
að fréttum af daglegu lífi fólks verði
fækkað en Þóra hefur lagt áherslu á
slíkar fréttir.
„Miðað við ástandið í samfélag-
inu þá er á einhvern hátt auðveldara
að rökstyðja það að „fréttaoríenterað“
fólk haldi áfram starfi sínu,“ sagði Þóra
í samtali við DV.is. Hún sagði sorglegt
til þess að vita að minni áhersla yrði
lögð á mannlegar fréttir.
„Það á að leggja starfið niður,“ segir
Katrín Brynja Hermannsdóttir þula
en þulurnar sem hafa fylgt RÚV frá
því að sjónvarpsútsendingar hófust
heyra nú sögunni til. Katrín ber barn
undir belti en það gera einnig tvær
starfssystur hennar, þær Anna Rún
Frímannsdóttir og Matthildur Magn-
úsdóttir. „Þegar það eru hópupp-
sagnir þá skiptir ekki máli hvort kon-
ur eru óléttar eða ekki,“ segir Katrín.
Katrín hefur starfað sem þula í
ein níu ár og segist munu sakna þess
mikið. „Ég átti níu ára starfsafmæli
núna í janúar. Þetta er frábært starf
og ég á eftir að sakna þess ofboðslega
mikið. Þetta er frábær vinnustaður
og maður hlakkaði alltaf til þess að
koma í vinnuna.“
Þulustarfið hefur oft verið deilu-
efni en mörgum þykir það tíma-
skekkja á meðan öðrum þykir vænt
um þulurnar og vilja alls ekki missa
þær af skjánum. „Það eru voðalega
misjafnar skoðanir á þessu. Maður
hefur heyrt bæði sjónarmið í mörg-
um fjölskylduboðunum til dæm-
is,“ segir Brynja en hún segir upp-
sögnina ekki hafa komið sér í opna
skjöldu. „Þetta hefur alltaf verið rætt
við og við. Að leggja starfið niður. Svo
þegar maður heyrir að uppsagnir
séu á annað borð þá setur maður sig
í stellingar.“ Þrátt fyrir að hafa verið
við öllu búin hafi henni engu að síð-
ur brugðið þegar uppsögnin barst.
Katrín er með meistaragráðu í
blaða- og fréttamennsku og hefur
sterkar skoðanir á þeim uppsögn-
um og hagræðingu sem fréttastofa
RÚV hefur orðið fyrir. „Ég hef veru-
legar áhyggjur af því að það sé ver-
ið að segja upp svona mörgu reyndu
fréttafólki. Ég verð bara pirruð þeg-
ar ég hugsa til þess. Það hefur sýnt
sig, sérstaklega undanfarið, hversu
miklu máli það skiptir að það sé al-
mennilegt fólk sem sinnir þessu
starfi. Ég er ekki að segja að fólk á
aldrinum 25 til 40 ára geti ekki sinnt
því starfi en fréttamenn eiga að end-
urspegla alla aldurshópa en ekki
bara einn.“
Þulustarfið heyrir sögunni til:
Þrjár þulur óléttar
„Þetta kom ekki mjög flatt upp á mig,“
segir Kastljósskonan Elsa María Jak-
obsdóttir um uppsögn hennar á
RÚV. „Andrúmsloftið hefur verið erf-
itt, enda búið að skera niður áður en
að þessum aðgerðum kom og mað-
ur þóttist nú vita að niðurskurðurinn
yrði meiri,“ segir hún en viðurkennir
að fjöldi uppsagnanna hafi komið sér
á óvart. „Já, hann gerði það. Það kom
mér svolítið á óvart hvernig staðið var
að þessu.“
Elsa segist vel skilja að RÚV hafi
þurft að skera niður. Hún er þó ekki
fullkomlega sátt við hvar hnífurinn
féll. „Auðvitað þarf að skera niður
alls staðar, það skil ég vel. Mér finnst
samt að það hefði mátt standa að
þessu með öðrum hætti. Mér finnst til
dæmis athyglisvert að það hafi enginn
millistjórnandi verið látinn fara. Þetta
er þriðji niðurskurðurinn á stuttum
tíma og alltaf er það fólkið á gólfinu,
fólkið sem hleypur, sem er látið fara
en enginn þar fyrir ofan,“ segir hún.
Skipulagið segir hún eitthvað sem
megi hagræða betur. „Það er engin
hagræðing í skipuritinu, þessu skipu-
riti sem hefur bólgnað út í þessu ohf.
sem hefur ekki gefist mjög vel. Það er
margt sem þarf að endurskoða þarna.“
Elsa María hefur starfað á RÚV frá
árinu 2004. Hún byrjaði sem skrifta í
Spaugstofunni og síðar í Kastljósinu.
Hún hefur undanfarin ár verið dag-
skrárgerðarkona í Kastljósinu og tón-
listarstjóri þar. Ásamt því hefur hún
starfað við ýmislegt í Sjónvarpinu,
bæði fyrir framan og aftan myndavél-
ina.
Þrátt fyrir uppsögnina ber hún
RÚV sem fyrirtæki vel söguna. „Vissu-
lega fann maður fyrir því síðastliðið ár
að það lægi eitthvað í loftinu. Það hef-
ur samt verið alveg ótrúlega gaman að
vinna þarna og verið frábær reynsla.
Ég hef átt stórkostlegt samstarfsfólk og
það var frábært að kynnast öllu þessu
fólki,“ segir Elsa sem ætlar að nýta
þessi tímamót til að taka upp gamlan
þráð.
„Heyrðu, ég er komin í nám í há-
skólanum,“ svarar hún glaðbeitt um
næsta skref í lífi sínu. „Ég er að fara að
klára BA-prófið í félagsfræði. Það er
eitthvað sem ég lagði til hliðar 2005 og
ætla að taka upp þráðinn í núna,“ segir
Elsa María Jakobsdóttir.
Elsa María Jakobsdóttir, Kastljósi:
Margt sem þarf að endurskoða
Karl Eskil Pálsson er öllum hlust-
endum RÚV að góðu kunnur.
Hann hefur verið rödd Akureyrar
í mörg ár, enda hefur Karl starfað
sem fréttamaður hjá RÚV í heil
nítján ár og mánuð til viðbótar.
Hann fékk, eins og svo margir aðr-
ir, uppsagnarbréf frá RÚV og lýk-
ur brátt farsælu samstarfi við sinn
miðil. „Já, það er alltaf þannig hjá
öllum, held ég, sem fá uppsagnar-
bréf,“ svarar hann aðspurður hvort
uppsögnin hafi komið flatt upp á
hann. „Uppsögn kemur alltaf við
mann. Það er bara eðlilegt. Það á
enginn von á uppsögn, svona al-
mennt séð, hvað þá þegar maður
er með flekklausan starfsferil.“
Þótt fjöldi uppsagnanna hjá
RÚV kæmi mörgum á óvart kom
hann Karli ekkert sérstaklega á
óvart. „Það var búið að boða að
það yrðu fjöldauppsagnir. Maður
vonaði auðvitað að svo yrði ekki
en maður gat samt alveg eins bú-
ist við því,“ segir Karl.
Aðspurður hvað honum finnist
um hversu mikið niðurskurðinn
bitnaði á fólkinu segir Karl: „Ég
veit ekki hve launakostnaðurinn
er mikill hjá stofnuninni en launa-
kostnaður er yfirleitt stór hluti af
kostnaði fyrirtækja. Það gerist oft
hjá fyrirtækjum sem eru í vanda
að skorið sé niður í launakostnaði.
En það er nú líka verið að skera
niður á fjölmörgum öðrum svið-
um.“
Karl segist hafa ákveðnar skoð-
anir um RÚV og það sem mætti
betur fara. Hann vildi þó ekk-
ert segja um þær að svo stöddu.
Hann er sallarólegur yfir sínum
málum þrátt fyrir uppsögnina.
„Ég er nú bara að ná áttum,
eins og staðan er. Samt er ég nú
alveg pollrólegur. Í því sem maður
hefur lesið sér til um svona stöðu
þá gildir það eitt að halda ró sinni.
Þetta eru nú ekki endalokin,“ segir
Karl Eskil yfirvegaður.
Karl Eskil Pálsson, fréttamaður á Akureyri:
„Þetta eru ekki endalokin“
Þóra Tómasdóttir, Kastljósi:
Vill nýjan útvarpsstjóra
Sjónvarpshúsið í
Efstaleiti Niðurskurður-
inn hefur ekki hvað síst
bitnað á landsbyggðinni.