Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.2010, Qupperneq 32
UMSJÓN: KJARTAN GUNNAR KJARTANSSON, kgk@dv.is
Gunnlaugur Valgarð
Ólafsson Briem
HÆSTARÉTTARLÖGMAÐUR Í REYKJAVÍK
Valgarð fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp. Hann lauk stúdents-
prófi frá VÍ 1945, embættisprófi
í lögfræði 1950, stundaði fram-
haldsnám í sjórétti og sjótrygg-
ingum í London 1950-51 og hefur
sótt ýmis námskeið í sjórétti.
Valgarð var lögfræðingur
BÚR 1951-59, jafnframt fram-
kvæmdastjóri umferðarnefnd-
ar Reykjavíkur 1955-59, forstjóri
Innkaupastofnunar Reykjavíkur-
borgar 1959-66 en starfrækti eig-
in lögmannsstofu í Reykjavík frá
1961 og með syni sínum, Garðari
Briem, 1991-2005.
Valgarð var formaður Mál-
fundafélags VÍ 1942, sat í stjórn
Heimdallar 1943-49, í stjórn
Nemendasambands VÍ 1946-
50 og 1967-73, formaður Vöku
1947-48, í stjórn Byggingasam-
vinnufélags starfsmanna Reykja-
víkurborgar 1954-67 og formað-
ur 1957-67, í Þjóðhátíðarnefnd
Reykjavíkur 1963-67 og formaður
1966 og 1967, formaður hverfa-
félags sjálfstæðismanna í Nes-
og Melahverfi 1969-71, formað-
ur Varðar 1972-73, í flokksráði
Sjálfstæðisflokksins 1972, vara-
borgarfulltrúi í Reykjavík 1974-
86, formaður umferðarnefnd-
ar Reykjavíkur 1974-78, í stjórn
Innkaupastofnunar Reykjavík-
urborgar 1974-82 og formaður
1974-78, formaður Umferðarráðs
1986-90 og í stjórn Hins íslenska
sjóréttarfélags frá 1986-90.
Fjölskylda
Valgarð kvæntist 14.3. 1950 Bentu
Margréti Jónsdóttur Briem, f. 6.5.
1925, húsmóður. Hún er dótt-
ir Jóns Steingrímssonar, sýslu-
manns í Borgarnesi, og k.h.,
Karítasar Guðmundsdóttur hús-
móður.
Synir Valgarðs og Bentu Mar-
grétar eru Ólafur Jón, f. 9.3. 1953,
skipaverkfræðingur hjá Siglinga-
málastofnun, var kvæntur Sess-
elju Margréti Magnúsdóttur sem
er látin; Garðar, f. 16.3. 1956, hrl. í
Reykjavík, kvæntur Elínu Magnús-
dóttur sjúkraþjálfara, en fyrri kona
hans var Áslaug Björg Viggós-
dóttir; Gunnlaugur, f. 27.8. 1960,
viðskiptafræðingur i Reykjavík,
kvæntur Hönnu Björgu Marteins-
dóttur húsmóður.
Systkini Valgarðs: Margrét
Þuríður Ólafsdóttir Briem, f.
24.12. 1912, d. 1994, húsmóðir
í Reykjavík; Guðrún Ólafsdóttir
Briem Björnsson, f. 9.4. 1915, nú
látin, lengst af húsmóðir í Borg-
arnesi; Gunnlaugur Friðrik Ólafs-
son Briem, f. 27.5. 1918, nú látinn,
framkvæmdastjóri í Reykjavík;
Ólafur Briem, f. 25.1. 1933, nú lát-
inn, deildarstjóri hjá Flugleiðum
í Reykjavík.
Foreldrar Valgarðs: Ólafur Jó-
hann Gunnlaugsson Briem, f.
14.7. 1884, d. 19.11. 1944, fram-
kvæmdastjóri í Reykjavík, og k.h.,
Anna Valgerða Claessen, f. 22.8.
1889, d. 8.5. 1966, húsmóðir.
Ætt
Ólafur var sonur Gunnlaugs
Briem, alþm. og verslunarstjóra
í Hafnarfirði, bróðir Páls amt-
manns, afa Sigurðar Líndal laga-
prófessors. Systir Gunnlaugs
var Kristín, amma Gunnars for-
sætisráðherra og Jónasar borg-
arfógeta og Sigríðar Thorodd-
sen, móður Jóns Tómassonar,
fyrrv. ríkislögmanns og borgar-
lögmanns. Gunnlaugur var son-
ur Eggerts Briem, sýslumanns
á Reynisstað, bróður Valdimars
sálmaskálds og Ólafs á Grund,
langafa Davíðs Stefánsson-
ar skálds og Odds læknis, föður
Davíðs, ritstjóra Morgunblaðsins.
Systir Eggerts var Jóhanna, móðir
Tryggva Gunnarssonar og Kristj-
önu, móður Hannesar Hafstein
ráðherra. Eggert var sonur Gunn-
laugs, ættföður Briemættar Guð-
brandssonar. Móðir Gunnlaugs
var Ingibjörg Eiríksdóttir, sýslu-
manns í Kollabæ Sverrissonar.
Móðir Ólafs framkvæmdastjóra
var Frederike C.J. Claessen, dóttir
Jean Jacobs Claessen, skrifstofu-
stjóra í Kaupmannahöfn, og k.h.,
Frederike Caroline Louise von
Hansen.
Anna Valgerða var dóttir Jean
Valgard Claessen, kaupmanns
á Sauðárkróki og landsféhirð-
is í Reykjavík, bróður Frederike
Caroline Jakobinu.
Móðir Önnu Valgerðu var
Anna Margrét Þuríður Kristjáns-
dóttir Möller, veitingamanns í
Reykjavík.
Valgarð heldur upp á daginn
með fjölskyldu sinni.
85 ÁRA Á SUNNUDAG 100 ÁRA Á FÖSTUDAG
Anna Pálmey Hjartardóttir
LENGST AF HÚSMÓÐIR Á STOKKSEYRI
Anna fæddist að Vatni í Haukadal í
Dalasýslu en ólst upp að Litla-Fjalli
í Borgarhreppi þar sem foreldrar
hennar stunduðu búskap. Hún lærði
saum er hún var tvítug og stundaði
saumaskap á saumaverkstæði Árna
og Bjarna við Bankastræti í Reykja-
vík. Hún flutti síðan aftur vestur og
bjó stuttan tíma á Brennistöðum í
Borgarhreppi þar sem hún eignað-
ist elstu dóttur sína.
Anna flutti á Stokkseyri 1933 og
varð ráðskona og síðan húsfreyja á
stóru heimli í Brautartungu. Eftir að
hún missti fyrri mann sinn bjó hún
með seinni manni sinum á Jaðri á
Stokkseyri i rúm tuttugu ár, i Eyja-
seli og loks í Íragerði.
Hún dvelst nú á hjúkrunarheim-
ilinu Sunnuhlíð í Kópavogi.
Anna var alla tíð húsfreyja á stóru
og mjög gestkvæmu heimili. Hún
tók fjölda barna í fóstur yfir sum-
artímann eða um lengri tíma. Tvö
barnabörn hennar eru alin upp hjá
henni og seinni manni hennar, dótt-
urdóttirin, Margrét Sæunn, sem þau
ættleiddu, og sonardóttirin, Anna
Pámey Hjartardóttir.
Anna var um skeið formaður
Kvenfélags Stokkseyrar og tók virk-
an þátt í félagsstörfum eiginmanns
síns sem sat i sveitarstjórn og var
oddviti.
Fjölskylda
Elsta dóttir Önnu Pálmeyjar var
Guðfríður Stefánsdóttir, f. 27.9.1932,
d. 7.9. 1998, húsmóðir á Álftanesi,
var gift Erlendi Sveinssyni.
Anna giftist 23.12. 1935, Sæ-
mundi Friðrikssyni, f. 27.6.1884, d.
10.5.1953, formanni Verkalýðsfélags
Akraness og siðar kennara og bónda
í Brautartungu á Stokkseyri.
Börn Önnu og Sæmundar eru
Áslaug Sæunn Sæmundsdóttir, f.
22.8. 1936, húsmóðir i Reykjavík,
en maður hennar er Guðmundur S.
Valgarðsson; Hjörtur P. Sæmunds-
son, f. 6.12. 1937, varðstjóri en kona
hans er Sigrún Gunnarsdóttir.
Anna giftist 6.6. 1954 Frímanni
Sigurðssyni, f. 20.10. 1916, d. 5.4.
1992, yfirfangaverði á Litla-Hrauni.
Kjördóttir Önnu og Frímanns
er Margrét Sæunn Frimannsdóttir,
f. 29.5. 1954, forstöðumaður fang-
elsisins að Litla-Hrauni., gift Jóni
Gunnari Ottóssyni.
Fósturdóttir Önnu og Frímanns
er Anna Pálmey Hjartardóttir, f. 7.7.
1963, hársnyrtir en maður hennar er
Víðir Ragnarsson.
Börn Guðfríðar og Erlends eru
Þorgerður Erlendsdóttir, f. 16.11.
1954, dómari, gift Kristjáni Sigur-
geirssyni og eru synir þeirra Erlend-
ur Kári Kristjánsson, f. 19.9. 1982, og
Friðrik Gunnar Kristjánsson, f. 15.9.
1989; Júlíana Erlendsdóttir, f. 17.2.
1956, kennari, gift Guðbirni Björns-
syni og eru dætur þeirra Þórunn
Guðbjörnsdóttir, f. 27.6. 1988, og
Júlía Guðbjörnsdóttir, f. 30.11. 1992;
Sveinn Erlendsson, f. 18.1. 1960,
lögreglumaður, kvæntur Soffíu Sæ-
mundsdóttur og er sonur þeirra Er-
lendur Sveinsson, f. 6.5. 1988; Hug-
borg Pálmína Erlendsdóttir, f. 11.4.
1968, leikskólasérkennari og eru
börn hennar Agnes Friða Gunn-
laugsdóttir, f. 28.11. 1986, Ásthild-
ur Gunnlaugsdóttir, f. 8.10. 1993, og
Guðfríður Selma Einarsdóttir, f. 4.1.
2000.
Börn Áslaugar Sæunnar frá fyrra
hjónabandi eru Margrét Sæunn, f.
29.5. 1954, kjördóttir Önnu Pálmeyj-
ar og Frímanns; Helga Anna Hann-
esdóttir, f. 7.12. 1955, en maður
hennar er Sævar Erlendsson; Inga
Hanna Hannesdóttir, f. 16.6. 1958,
ritari en maður hennar er Ómar Jó-
hannesson og eru börn þeirra Gréta
Björk Ómarsdóttir, f. 20.10.1976, en
maður hennar er Hermann Mark-
ús Svendsen og eru börn þeirra
Elísa Björt Bjarnadóttir, f. 14.4. 1997,
Alexander Ágúst, f. 15.6. 2000 og
Alma Hinrikka, f. 26.11. 2009, Ómar
Andri Ómarsson, f. 16.6. 1987; Haf-
dís Hannesdóttir, f. 4.4. 1963, verka-
kona og eru börn hennar Hann-
es Smárason, f. 21.5. 1985, Hákon
Traustason, f. 15.1. 1988, Óðinn Jó-
hannsson, f. 28.10. 2000, og Karen
Jóhannsdóttir, f. 8.1. 2003.
Dóttir Áslaugar Sæunnar og
Guðmundar Valgarðssonar er Íris
Guðmundsdóttir, f. 23.12. 1975,
kennari en maður hennar er Gestur
Sigurðsson og eru börn þeirra Sig-
urður Arthur Gestsson, f. 5.4. 1994,
og Telma Björk Gestsdóttir, f. 6.12.
2006.
Börn Hjartar eru Anna Pálmey,
f. 7.7. 1963, fósturdóttir Önnu Pálm-
eyjar og Frímanns; Helgi Hjartar-
son, f. 15.6. 1968, sálfræðingur en
kona hans er Helga Kristinsdótt-
ir og eru börn þeirra Sigrún Helga-
dóttir, f. 19.12. 1996; Kristinn, f.
8.3. 2001 og Valgerður, f. 2.8. 2003;
Margrét Hjartardóttir, f. 4.3. 1970,
sjúkraliði en sambýlismaður henn-
ar er Rúnar Þór Gunnarsson og eru
börn Margrétar Hjörtur Viðar, f. 3.1.
1990, María Ósk, f. 10.2. 1992, Ágúst
Aron, f. 3.12. 1999, Birgir Örn, f. 30.8.
2005,og Hugrún Lind, f. 15.3. 2007.
Börn Margrétar og Jóns Gunnars
eru Áslaug Hanna Margrétardóttir,
f. 30.11. 1972, nemi en maður henn-
ar er Jónas Sigurðsson og eru börn
þeirra Margrét Sól Jónasdóttir, f. 5.2.
1995, og Matthías Máni Jónasson,
f. 5.7.1999; Frimann Birgir Baldurs-
son, f. 24.6. 1974, lögreglumaður
en eiginkona hans er Arndís Tóm-
asdóttir; Auður Jónsdóttir, f. 30.3.
1973, rithöfundur en eiginmaður
hennar er Þórarinn Leifsson; Rann-
veig Jónsdóttir, f. 11.9.1978, kvik-
myndagerðarmaður en eiginmað-
ur hennar er Þorsteinn Backmann
en dóttir þeirra er Auður Drauma,
f. 16.11. 2008; Ari Klængur Jónsson,
f. 11.12. 1980, stjórnmálafræðingur
en eiginkona hans er Svanlaug Más-
dóttir.
Börn Önnu Pálmeyjar eru Sunna
Lind Svavarsdóttir, f. 20.2. 1987,
sjúkraliði og Sindri Svavarsson, f.
20.1. 1987, nemi.
Systkini Önnu Pálmeyjar: Þur-
íður Hugborg Hjartardóttir, f. 20.9.
1911, d. 10.5. 2000, verslunarmað-
ur; Guðmundur Hjartarson, f. 11.6.
1913, dó í bernsku; Guðmundur
Tómas Hjartarson, f. 1.11. 1914, d.
6.4. 2007, seðlabankastjóri; Guðrún
Hjartardóttir, f. 6.1. 1917, d. 22.3.
1999, matráðskona; Margrét Hjart-
ardóttir, f. 4.11. 1919, dó í bernsku;
Emil Hjartarson, f. 25.5. 1921, hús-
gagnasmiður.
Foreldrar Önnu voru Hjört-
ur Þorvarðarson, f. 22.11. 1876, d.
4.6. 1937, bóndi og Pálmína Sigríð-
ur Guðmundsdóttir, f. 26.3. 1890, d.
6.5. 1976, bóndi.
Anna Pálmey tekur á móti gest-
um í safnaðarheimili Kópavogs-
kirkju, laugardaginn 30.1. frá kl.
16.00.
KJARTAN GUNNAR KJARTANSSON rekur
ættir þjóðþekktra Íslendinga sem hafa verið í
fréttum í vikunni, rifjar upp fréttnæma
viðburði liðinna ára og minnist horfinna
merkra Íslendinga. Lesendur geta sent inn
tilkynningar um stórafmæli á netfangið
kgk@dv.is
32 FÖSTUDAGUR 29. janúar 2010 ÆTTFRÆÐI