Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.2010, Side 34

Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.2010, Side 34
34 FÖSTUDAGUR 29. janúar 2010 HELGARBLAÐ Ragna fæddist að Litlu-Brekku í Mýr- arsýslu í Borgarfirði og ólst þar upp. Hún var lengst af húsmóðir í Talla- hassee í Flórída. Ragna veiktist al- varlega fyrir fjórum árum er hún fékk slag með þeim afleiðingum að hún missti mál og mestalla hreyfigetu. Fyrir nokkrum dögum fékk hún svo aftur slag og lést skömmu síðar. Fjölskylda Eiginmaður Rögnu var Leonard Pepper, þekktur lögfræðingur í Talla- hassee í Flórída. Þau kynntust hér á landi á árum seinni heimsstyrjald- arinnar er hann kom til Íslands sem bandarískur hermaður. Þau giftu sig á Íslandi áður en Leonard fór af landi brott, en að stríðinu loknu flutti Ragna til eiginmanns síns í Flórída, ásamt dóttur þeirra hjóna og var síð- an búsett í Flórída. Börn Rögnu og Leonards eru Patricia, lögfræðingur í Flórída; Bertha Lynn, menntaskólakennari í Flórída; Jeffry lögfræðingur í Flór- ída; Rita verslunarkona í Flórída; Micheal, arkitekt í Flórída. Systkini Rögnu: Jóhannes, f. 28.10. 1916, lengst af bóndi að Ána- brekku í Borgarhreppi, nú búsettur á Dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi en eiginkona hans er Ása Ólafsdóttir og eignuðust þau eina dóttur; Helga Guðfríður, f. 28.10. 1916, húsmóðir í Borgarnesi og síðar í Reykjavík en eiginmaður hennar var Sigursteinn Þórðarson sem er látinn og eign- uðust þau fimm börn; Kristín Fan- ney Skagfield, f. 22.5. 1919, húsmóð- ir í Flórída en eiginmaður hennar er Hilmar Skagfield og eignuðust þau þrjú börn; Hjördís Þórhildur, f. 20.12. 1922, búsett í Reykjavík og á hún einn son; Ásta Jóhanna, f. 15.2. 1922, d. 1955 en maður hennar var Thorolf Smith og eignuðust þau þrjú börn; Óskar Guðmundur Þor- valds, f. 23.8. 1925, d. 1989, bóndi á Tungulæk lengst af en eftirlifandi kona hans er Ragnhildur a og eign- uðust þau fjögur börn; Valtýr Hauk- ur, f. 24.4. 1918, d. 28.10. 1927; Guð- fríður Ágústa, f. 23.8. 1925, d. 1927; Valtýr Haukur, f. 3.7. 1928, d. 4.7. 1928. Foreldrar Rögnu voru Guðmund- ur Þorvaldsson, f. 4.2. 1886, d. 1974, bóndi á Litlu-Brekku, og k.h., Guð- fríður Jóhannesdóttir, f. 10.4. 1884, d. 1980, húsfreyja og ljósmóðir. Ætt Guðmundur var sonur Þorvalds, b. á Hofsstöðum Erlendssonar, á Álftár- ósi Sigurðssonar. Móðir Guðmundar var Helga Sig- urðardóttir, frá Háhóli Jónssonar. Guðfríður var dóttir Jóhannesar, b. á Gufuá Magnússonar, á Gljúfurá Þorsteinssonar. Móðir Jóhannesar var Ásta Aðalsteinsdóttir. Móðir Guðfríðar var Elín Kristín Jónsdóttir, b. á Saurum í Helgafells- sveit Guðnasonar, og Steinunnar Sig- urðardóttur. Útför Rögnu fór fram frá heimili hennar í Tallahassee í Flórída að við- stöddum ættingjum hennar og vin- um í Flórída. Páll S. Pálsson HÆSTARÉTTARLÖGMAÐUR f. 29.1. 1916, d. 11.7. 1983 Páll fæddist í Sauðanesi í Torfalækjarhreppi.Hann var sonur Páls Jónssonar, bónda og búfræðings í Sauðanesi, og Sesselju Þórðardóttur frá Steindyrum. Páll eldri var sonur Jóns, b. í Sauða- nesi Jóns- sonar, og Helgu Gísla- dóttur, b. í Flatatungu Stefánssonar. Sesselja var dóttir Þórð- ar Jónssonar, b. í Steindyr- um í Svarfaðardal, ættföður Steindyraættar, og Guðrúnar Björnsdóttur frá Syðra-Garðs- horni. Páll átti ellefu systkini en meðal þeirra má nefna dr. Hermann, fyrrv. prófessor við Edinborgarháskóla, Gísla, fyrrv. oddvita, rithöfund og ættfræðing að Hofi í Vatnsdal, Þórunni menntaskólakennara og Ríkharð tannlækni. Eiginkona Páls var Guð- rún Stephensen en þau voru lengst af búsett í Skerjafirðin- um í Reykjavík. Meðal barna Páls og Guðrúnar eru hæsta- réttarlögmennirnir Stefán og Páll Arnór, Signý, menningar- málastjóri Reykjavíkurborgar, og Ívar forstjóri. Páll lauk kennaraprófi frá Kennaraskóla Íslands árið 1937, stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1940, stundaði nám í lögfræði við Háskóla Íslands og lauk þaðan embættisprófi í lög- fræði árið1945. Páll stundaði kennslu á árum áður, var barnaskóla- kennari við Barnaskólann í Mýrarhúsum, við Barnaskól- ann í Keflavík og Innri-Njarð- víkum og við Miðbæjarskól- ann í Reykjavík á árunum 1937-1942 og kenndi við Kvennaskólann í Reykjavík í tíu ár. Hann var framkvæmda- stjóri Félags íslenskra iðnrek- enda 1947-1956 en stundaði jafnframt málflutning með öðrum störfum og starfrækti siðan eigin málflutnings- stofu í Reykjavík frá 1956 og til æviloka. Páll var um langt skeið í hópi virtustu málflutnings- manna, gegndi ýmsum trún- aðarstörfum, s.s. formaður Húseigendafélags Íslands, Lögmannafélags Íslands og The World Peace Through Law Center, og sat í fjölda op- inberra nefnda, einkum um margvíslegar lagabreytingar. MINNING Ragnheiður Guðmundsdóttir Pepper HÚSMÓÐIR Í TALLAHASSEE Í FLÓRÍDA MERKIR ÍSLENDINGAR „Það var sólríkur sumardagur í Borgarfirði, þann 21. júlí 1920, nánar tiltekið á Litlu-Brekku í Mýrarsýslu, þar sem lítið stúlku- barn var að sjá dagsins ljós. Hann Ingólfur læknir var þar til að taka á móti barninu, en hann hafði unn- ið með móðurinni í mörg ár. Hún var aðalljósmóðir héraðsins, hún Guðfríður Jóhannesdóttir, en mað- urinn hennar, sem beið í eftirvænt- ingu, var stórbóndinn Guðmundur Þorvaldsson, annar fjárflesti bóndi landsins. Fæðingin gekk að óskum og á sínum tíma var barnið skírt Ragn- heiður. Hún var sú fimmta í röðinni af tíu börnum. Ragna, eins og hún var alltaf kölluð, ólst upp hjá ástrík- um foreldrum og var svo heppin að njóta aðgæslu elskulegrar ömmu í mörg ár. Ragna kynntist manni sínum, Leonard Pepper, í byrjun stríðsins en hann var sendur hingað á her- námsárunum þegar Bandaríkja- menn leystu Breta af hólmi. Þau giftu sig á Íslandi og eignuðust eina dóttur, Patriciu, lögfræðing, sem fór með móður sinni til föður síns, Leonards, í Flórída, að stríði loknu. Ragna var sérlega vel liðin og eignaðist fjölda vina, bæði vegna gestrisni þeirra hjóna, svo og fyrir hennar létta skap og samlyndi við borgarana í hinu nýja landi.“ Hilmar Skagfield og Kristín Fanney Guðmundsdóttur Skagfield Fædd 21.7. 1920 - Dáin 20.1. 2010 Jón Gísli Þórarinsson fæddist í Reykja- vík og ólst þar upp. Hann lauk söng- kennaraprófi frá Kennaraskóla Ís- lands 1953, stundaði nám í orgelleik við Söngskóla Þjóðkirkjunnar 1952- 54 og við Tónlistarskólann í Reykja- vík 1954-57, stundaði nám í kennslu- fræðum í Denver í Colorado 1957-58, stundaði nám í kennslu á blásturs- og slagverkshljóðfæri við University of Toronto 1959-60, stundaði nám í org- elleik við Staatliche Hochschule fur Musik Hamburg 1965 og 1967. Jón var til sjós á sínum yngri árum, sinnti sölumennsku og ýmsum öðr- um almennum störfum. Hann var söngkennari við Miðbæjarskólann 1953-69, kenndi við Álftamýrar- skóla og Laugarnesskóla 1969-71, við Kvennaskólann í Reykjavík 1958-65 og 1969-83, við Barnamúsíkskólann 1958-61 og var skólastjóri hans 1961- 62, og kenndi við Kennaraháskóla Ís- lands 1971-87. Jón var organisti Bústaðasóknar 1952-73 og organisti Grensássóknar 1973-82, auk þess sem hann starfaði við Kirkju Óháða safnaðarins og víðar. Jón var félagi í Karlakórnum Fóst- bræðrum og í Útvarpskórnum. Þá var hann stjórnandi Lúðrasveitarinnar Svans um langt árabil. Fjölskylda Jón kvæntist 18.12. 1943 Helgu Jóns- dóttur, f. 5.2. 1916, húsmóður. Foreldr- ar hennar voru Jón Sigurðsson, skip- stjóri og hafnarvörður á Akranesi, og Ragnheiður Þórðardóttir húsmóðir. Börn Jóns og Helgu eru Sigrún Stella, f. 7.4. 1940, húsmóðir; Þórar- inn, f. 5.8. 1955, tannlæknir; Magnús Þór, f. 24.11. 1961, grafískur hönnuður. Jón átti fjögur systkini sem eru öll látin. Þau voru Sigþór Karl; Gyða Þór- dís; Kristbjörn Borgþór og Hrefna Bryndís. Foreldrar Jóns voru Þórarinn Jóns- son, f. 24.5. 1894, d. 13.4. 1937, skip- stjóri og Sigríður Gísladóttir, f. 14.4. 1892, d. 10.8. 1980, húsmóðir. Ætt Bróðir Jóns var Sigþór Karl, hrepp- stjóri í Einarsnesi, faðir Þórarins, tannlæknis og laxveiðimanns, og Jó- hönnu, blaðamanns og fyrrv. frétta- stjóra á DV. Þórarinn var sonur Jóns, b. á Svarfhóli í Hraungerðishreppi og síðar ökumanns í Reykjavík Sigurðs- sonar, b. á Brekkum í Holtum Run- ólfssonar. Móðir Þórarins var Gyðríður Steinsdóttir, b. og skipasmiðs í Einars- höfn á Eyrarbakka Guðmundssonar, og Sólveigar Árnadóttur. Sigríður var dóttir Gísla, hús- manns á Flateyri Björnssonar, b. og búfræðings í Hlíð í Kollafirði á Ströndum Jónssonar. Móðir Gísla var Þórdís Guðmundsdóttir, b. á Kleifum á Selströnd, bróður Ásgeirs, alþm. og stórb. á Þingeyrum, föður Jóns, skálds á Þingeyrum. Annar bróð- ir Guðmundar var Magnús á Hvilft, langafi Hjálmars, forstjóra Áburð- arverksmiðjunnar, og Gunnlaugs alþm. Finnssona. Systir Guðmundar á Kleifum var Ragnheiður, langamma Snorra Hjartarsonar skálds og Torfa Hjartarsonar, ríkissáttasemjara og skattstjóra, föður Hjartar hæstaréttar- dómara og Ragnheiðar, fyrrv. rektors MR. Guðmundur var sonur Einars, dbrm. í Kollafjarðarnesi Jónssonar, b. í Miðdalsgröf í Steingrímsfirði Brynj- ólfssonar, á Heydalsá Guðmunds- sonar, af ætt Einars, prófasts og skálds í Heydölum. Móðir Sigríðar var Þórdís Jónsdótt- ir, b. í Álfadal á Ingjaldssandi Bjarna- sonar, og Guðrúnar Skæringsdóttur. Jón var jarðsunginn frá Fossvogs- kirkju í gær. MINNING Jón G. Þórarinsson ORGANISTI OG TÓNMENNTAKENNARI Fæddur 16.8. 1920 - Dáinn 17.1. 2010 Eftirmæli Smáauglýsingasíminn er smaar@dv.is 515 55 50

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.