Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.2010, Qupperneq 37
SAKAMÁL 29. janúar 2010 FÖSTUDAGUR 37
MORÐIÐ Á BLAÐBURÐARDRENGNUM Árið 1923
var Susan Newell hengd í Skotlandi. Fimmtíu ár voru þá liðin frá því að
kona hafði verið tekin af lífi í landinu. Susan var sakfelld fyrir að hafa
kyrkt blaðburðardreng sem neitaði að láta hana fá síðdegisblaðið án
greiðslu fyrir.
Við réttarhöldin bar Susan við geðveiki en tókst hvorki að sannfæra kvið-
dómara né dómara, og varð síðasta konan sem tekin var af lífi í Skotlandi.
Lesið um Susan Newell og morðið á blaðburðardrengnum í næsta helgarblaði DV.
SKAPBRÁÐI
STEPHANUS SWART
Til að koma í veg fyrir að vitnað yrði gegn honum tók Stephanus Swart lögin í sínar hendur. Nágrannar
hans í Charlestown í Suður-Afríku vissu um skapofsa hans og eftir árangurslausar samningaviðræður
umkringdi lögregla býli hans. Swart sýndi engan bilbug og fjöldi lögreglumanna féll í valinn. En Swart
átti eftir að koma fleirum fyrir kattarnef.
Stephanus Swart hafði alla tíð
hneigst til ofbeldis og hafði til
margra ára sýnt einkenni geð-
klofa og ofsóknarbrjálæðis. En
fáir hefðu getað séð fyrir atburð-
ina sem áttu sér stað í grennd við
Charlestown í Suður-Afríku í byrj-
un maí 1927.
Þegar þar var komið sögu var
Stephanus nýlega skilinn við eig-
inkonu sína sem var þrjátíu árum
eldri en hann og margir töldu að
hann hefði kvænst til fjár. Swart
var lítt menntaður maður en hafði
þó lærst á sínum þrjátíu og sjö
árum að réttlæti fyrirfyndist ekki í
dómsölum. Þá niðurstöðu byggði
hann meðal annars á máli sem
hann hafði tapað nokkrum árum
áður. Síðar hafði Swart fengið átj-
án fangelsisdóma fyrir að ganga í
skrokk á ættingja sínum. Swart var
þess fullviss að dómurinn hefði
byggt á persónulegri óvild dóm-
arans og tók þá ákvörðun að fram-
vegis myndi hann leysa sín vanda-
mál sjálfur.
Sakaður um kynferðisbrot
Þegar Swart losnaði úr fangelsi
snemma árs 1927 fór hann til
Potter’s Hill til eiginkonu sinn-
ar þrátt fyrir að þau væru skil-
in að lögum. Skömmu síðar var
hann ákærður fyrir kynferðisbrot
gegn dóttur fyrrverandi eiginkonu
sinnar og vitnaleiðslur áttu að
hefjast 4. maí.
Swart stóð frammi fyrir því að
eiginkona hans fyrrverandi, stjúp-
dóttir hans, frú Knight og Visser,
ráðsmaðurinn á býlinu, myndu
bera vitni gegn honum.
Swart ákvað að leysa þetta
vandamál á einfaldan og bein-
skeyttan hátt og hótaði að drepa
þau ef vitnisburður þeirra yrði
honum í óhag. Visser hafði unn-
ið nógu lengi á býlinu til að vita
að Swart stæði við hótanirnar og
sömu sögu var að segja um eigin-
konu hans fyrrverandi og þau lof-
uðu að þegja um brot hans gegn
stjúpdótturinni.
Swart fer á taugum
Undir lok apríl 1927 var Swart
sektaður um 10 skildinga fyrir
að aka óskráðu farartæki og varð
þetta litla atvik kornið sem fyllti
mælinn og í bræði ók hann til
næsta býlis og hóf skothríð á eig-
anda þess, án nokkurrar sjáan-
legrar ástæðu.
Lögreglan gaf út handtöku-
skipun á Swart en ekki voru öll
kurl komin til grafar og Swart hóf
að skipuleggja lokaatriðið. Hann
byrjaði á því að boða lögfræð-
ing sinn, Maasdorp, á sinn fund
á Potter’s Hill og sagðist vilja gera
hreint fyrir sínum dyrum.
Eftir að hafa ráðfært sig við lög-
regluna fór Maasdorp við annan
mann til Potter’s Hill 4. maí. Þang-
að kominn neyddist Maasdorp til
að hlusta á rausið í Swart langt
fram á nótt og að lokum skipaði
Swart honum að skrifa lokayfirlýs-
ingu sína. Í henni hótaði Swart að
skjóta niður óvini sína einn af öðr-
um og fremja síðan sjálfsmorð.
Eftir árangurslausar samninga-
viðræður ákvað Ashman lögreglu-
foringi að fátt væri til ráða ann-
að en umkringja býlið og helst ná
Swart á lífi.
Swart kemst undan
Tólf lögreglumenn undir forystu
Ashman skiptu liði við Potter’s
Hill, en áður en þeir réðust til at-
lögu kom verkamaður af býlinu
ríðandi og upplýsti Ashman um
að Swart væri að vígbúast og hefði
yfirgefið húsið og leyndist á ökr-
unum.
Sá fyrsti sem var skotinn var
lögreglumaðurinn Feucht. Hann
komst þó við illan leik til Ash-
man og var honum komið í lækn-
ishendur. Ashman var nú ljóst að
líkur á því að Swart næðist á lífi
voru engar og gaf út skipun um að
Swart skyldi drepinn ef færi gæfist.
Skömmu síðar skaut Swart tvo
lögreglumenn til bana, en gerði
sér þó grein fyrir því að hann yrði
á endanum handtekinn. Áður
en það yrði þurfti hann að ljúka
nokkrum erindum. Swart ákvað
að notfæra sér mistrið sem lá yfir
engjunum til að komast undan og
náði að skjóta enn einn lögreglu-
mann til bana.
Swart þurfti að komast til
Charlestown og varð því að koma
höndum yfir hest verkamannsins
sem varaði lögregluna við. Hest-
urinn var í vörslu Ashmans og
annars lögreglumanns og skaut
Swart þá báða til bana, hirti Web-
ley-skammbyssu Ashmans og
lagði af stað til Charlestown.
Hreykti sér af morðunum
Á leiðinni til Charlestown kom
hann við á Swanpoel-býlinu og
fékk sér kaffisopa. Hann lék á als
oddi, hreykti sér af því að hafa
myrt fimm manns og sagðist vera
á leið til Charlestown til að drepa
þrjár manneskjur í viðbót.
Swanpoel hlustaði á frásögn
Swarts og um leið og Swart yfirgaf
býlið hraðaði hann sér til lögregl-
unnar. Á leiðinni mætti Swanpoel
mönnum sem afhentu honum
orðsendingu frá Swart þar sem
hann fullvissaði Swanpoel um
að dagar hans væru einnig taldir.
Skömmu áður hafði Swart myrt
stjúpdóttur sína, frú Knight, og
ráðsmann af nálægu býli.
Þegar Swart kom til Charles-
town fór hann rakleiðis þangað
sem eiginkona hans fyrrverandi
hélt til og skaut hana tvisvar, einu
skoti í bringuna og öðru í ennið.
Síðasta skotið
Voðaverk Swarts voru nú á allra
vörum í grennd við Charlestown
og lögreglan og bændur á svæð-
inu skipulögðu leitarhóp til að
elta hann uppi og tókst það að
lokum rétt hjá Swanpoel-býlinu.
Einn úr hópnum skaut þremur
skotum í röð að Swart sem fleygði
sér niður á graslendi í vegarkant-
inum.
Örfáum andartökum síð-
ar ómaði fjórði skothvellurinn.
Steph anus Swart hafði efnt loforð
sitt og skotið sjálfan sig í höfuðið
með Webley-skammbyssu Ash-
mans lögregluforingja.
UMSJÓN: KOLBEINN ÞORSTEINSSON, kolbeinn@dv.is
Swart ákvað að notfæra
sér mistrið sem lá yfir
engjunum til að kom-
ast undan og náði að
skjóta enn einn lög-
reglumann til bana.
Webley-skammbyssa Swart
batt enda á eigið líf með Webley-
skammbyssu lögregluforingjans.