Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.2010, Síða 40
NÝ STÖÐ Á AKUREYRI Mörg okkar eru staðráðin í að komast
í form í janúar og í dag virðist allt tengt heilbrigðum lífsstíl vera
í tísku. Nú hefur ný og stór líkamsræktarstöð verið opnuð á Ak-
ureyri. Stöðin heitir Þrekhöllin og er staðsett alveg við Sundlaug
Akureyrar svo stæltir kroppar geta stungið sér út í og kælt sig í
lauginni eftir erfiðar æfingar. Flott viðbót við líkamsræktarflór-
una fyrir norðan.
Samkvæmt rannsókn virðast karl-
menn þurfa að vera sérlega aðlaðandi
til að eiga möguleika á einnar nætur
gamni á meðan þeir setja ekki háar
kröfur á útlit bólfélaga sinna. Vísinda-
menn sálfræðideildar Brunel-háskól-
ans í Bretlandi segja karlmenn líklegri
til að stunda einnar nætur gaman og
að konur setji kröfurnar hátt þegar
kemur að útliti hjásvæfna sinna.
Rætt var við 427 karlmenn og 433
konur í þremur löndum, Bandaríkj-
unum, Þýskalandi og Ítalíu. Fólkið var
beðið um að ímynda sér aðstæður þar
sem einstaklingur af gagnstæðu kyni
myndi stíga í vænginn við það og hvort
útlit viðkomandi hefði áhrif á útkom-
una. Í ljós kom að þýskir karlmenn
fara síður í rúmið með ókunnugum
en amerískir og ítalskir karlmenn og
Ameríkanar enn síður en Ítalir. Karl-
menn landanna þriggja voru líklegri
til að fara heim með huggulegum eða
ágætlega útlítandi konum en ómynd-
arlegum. Þá skiptir hins vegar ekki
máli hvort konan er afar aðlaðandi
eða sæmilega útlítandi. Hjá konunum
skiptir útlitið meira máli. Konur allra
landa myndu mun frekar fara í rúmið
með fjallmyndarlegum karlmönnum
en öðrum. Afar fáar vildu fara heim
með þeim sæmilegu eða ómyndar-
legu en enginn munur mældist þar á
milli.
Karlmenn gera minni útlitskröfur til hjásvæfna sinna en konur:
FALLEGIR KARLAR SOFA HJÁ
UMSJÓN: INDÍANA ÁSA HREINSDÓTTIR, indiana@dv.is
4 RÁÐ TIL
AÐ SOFA
BETUR
Undirbúðu líkamann
Krepptu tærnar og teldu upp að
sjö. Taktu hvern vöðvahóp fyrir,
frá tám upp að hálsi og sjáðu
hvort þú náir ekki að slaka á.
Taktu glósur
Dagleg rútína hefur áhrif á svefn.
Haltu skrá yfir fjölda kaffibolla,
hvort þú hafir verið dugleg í
ræktinni og hvað þú borðaðir.
Reyndu að komast að því hvaða
athafnir koma í veg fyrir góðan
nætursvefn.
Kældu herbergið
Flestir eiga auðveldara með að
sofna og sofa betur ef loftið í her-
berginu er í kaldara lagi. Opnaðu
glugga og hleyptu ferska loftinu
inn.
Tæmdu hugann
Ekki velta þér upp úr öllum
vandræðum heimsins einmitt
þegar þú leggst á koddann.
Reyndu frekar að sjá fyrir þér
einhverja paradís, líkt og sólríka
strönd með hvítum sandi.
FALLEGT FÓLK
BÝR Í BORGUM
Bandarískir vísindamenn hafa
komist að því að fallegt fólk er
líklegra til að eiga fleiri vini og
hafa betri félagslega stöðu. Það,
segja þeir, útskýrir af hverju við
eyðum milljónum í snyrtivör-
ur á hverju ári til að reyna gera
okkur meira aðlaðandi. Það sem
kemur líklega meira á óvart er að
búseta virðist einnig hafa áhrif
á útlit. Samkvæmt niðurstöðum
rannsóknar skipti meira máli
fyrir konur í þéttbýli að líta vel
út en konur í dreifbýli. Í borgum
sé litið á heilbrigt og aðlaðandi
útlit sem merki um góða and-
lega heilsu og æskilegt jafnvægi.
Í sveitum fari vinasambönd
minna eftir vali og meira eftir því
hverjir séu á staðnum.
Ingibjörg Egilsdóttir, fegurðardrottning og fyrirsæta, hefur nælt í flottan samning á módel-
skrifstofu í New York. Ingibjörg heldur sér í formi með hollu mataræði og reglulegri hreyf-
ingu en er á móti öllum öfgum. Ingibjörg segir leyndarmálið að vera aktíf í daglegu lífi en
sjálf er hún ekki feimin við að bresta í söng og dans á almannafæri ef hún heyrir flott lag.
40 FÖSTUDAGUR 29. janúar 2010 LÍFSSTÍLL
Einnar nætur gaman
Í rannsókninni kom í ljós
að ítalskir karlmenn eru
þeir lausgirtustu.
„Sem fyrirsæta verð ég að halda mér
í góðu formi. Ég hef alltaf haft mik-
inn áhuga á hreyfingu og var alltaf
í íþróttum sem barn og unglingur
og er svo heppin að þurfa aldrei að
spá í hvað ég set ofan í mig. Ég ólst
upp við hollan mat og var alltaf látin
taka víta mín og það hefur fylgt mér
út lífið,“ segir Ingibjörg Egilsdóttir,
fegurðardrottning og fyrirsæta, sem
hefur dvalið í New York upp á síð-
kastið þar sem hún er komin með
samning á módelskrifstofu.
Ingibjörg fór upphaflega til Amer-
íku eftir keppnina Ungfrú alheimur í
boði Donalds Trump og hans fólks
og leist vel á. „Ég kynntist mörgu
fólki og þannig opnuðust möguleik-
ar svo ég ákvað að prófa. Ég hef ver-
ið að fljúga heimshorna á milli til að
vinna að hinum ýmsu verkefnum
og flaug til að mynda til Nýju-Dehli
á Indlandi í byrjun síðasta mánað-
ar til að taka þátt í alþjóðlegri tísku-
viku. Prufurnar fyrir það fóru fram í
New York og tóku marga daga. Mjög
margar stelpur vildu næla í verkefn-
ið og ég var ein af fáum fyrirsætum
sem komust í gegn,“ segir Ingibjörg
sem heimsótti ungfrú Indland eftir
tískuvikuna og dvaldi hjá henni og
fjölskyldu hennar í nær tvær vikur.
„Þannig upplifði ég allt aðra hlið á
hinu daglega lífi á Indlandi sem var
yndilegt en skrítið um leið.“
Ingibjörg segist ávallt huga að
mataræðinu en að hún sé laus við
allar öfgar. „Ég borða alltaf morgun-
mat og þá er það hafragrautur sem
verður fyrir valinu. Svo er ég bara að
borða eins og aðrir. Ég er mikill sæl-
keri og forðast hvorki sykur né hvítt
hveiti en borða mikið af ávöxtum og
grænmeti og passa mig á að fá öll þau
næringarefni sem líkaminn þarfnast.
Við þurfum að fá ákveðna næringu
úr öllum fæðuflokkum og mitt besta
ráð er að borða fjölbreytta fæðu en
gæta hófs. Það verður enginn feitur
af einu súkkulaði eða af því að fá sér
pítsu við og við. Það er heildin sem
skiptir máli,“ segir Ingibjörg sem
þykir mikilvægt að vera heilbrigð og
góð fyrirmynd.
Ingibjörg stundar reglulega lík-
amsrækt og reynir að fara þrisvar í
viku í ræktina. „Í ræktinni nota ég
mest lóð til að tóna líkamann og fer
líka út að hlaupa eða synda. Marg-
ar konur eru hræddar við að lyfta en
sá ótti er byggður á misskilningi því
lóðin hjálpa þér að byggja upp flott-
an líkama. Svo á ég líka leyndarmál
sem er að taka dansspor þegar ég
heyri uppáhaldslagið mitt þegar ég
er heima að þrífa. Ég er ekkert feim-
in við að bresta í söng og dans á al-
mannafæri ef tónlistin er flott. Þetta
er ekki spurning um að púla í leið-
indum heldur að vera bara aktífur í
hinu daglega lífi.“
indiana@dv.is
TÓNAR LÍKAMANN
MEÐ LÓÐUM
Skiptu mjólkursúkklaðinu út fyrir dökkt
Leitaðu að minnsta kosti að 60% súkkulaði sem er fullt
af andoxunarefnum sem hjálpar frumunum að haldast
unglegum. Dökkt súkkulaði hækkar ekki kólesterólið.
Skenktu þér rautt í stað hvíts
Rauðvín, líkt og dökkt súkkulaði, er ríkt af andoxunar-
efnum frá húð vínberjanna. Hófsemi er lykilorðið.
Skiptu diet-gosinu út fyrir vatnið
Enginn drykkur í heimi er jafnmikilvægur og vatnið.
Sumir óttast gerviefnin í léttgosinu og til hvers að vera
að taka sénsinn? Vatnið er líka ókeypis.
Veldu fitulausa jógúrt
Mjólkurvörur eru ríkar af kalki og D-vítamíni sem held-
ur beinunum heilbrigðum. Passaðu bara sykurmagnið.
Fiskur í stað kjöts
Skiptu kjötmáltíðinni einstöku sinnum út fyrir fiskinn.
Fiskur er ríkur af prótíni og fullur af hollri fitu og
omega-3 fitusýrum.
VELDU HOLLARI KOSTINN:
Fitt og flott Ingibjörg
er stórglæsileg, enda
vinsæl fyrirsæta, en hún
tók meðal annars þátt
í tískuviku á Indlandi í
síðasta mánuði.
MYND ARNOLD BJÖRNSSON