Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.2010, Síða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.2010, Síða 44
Alexander Petersson „Hrikalega kynþokkafullur og hreinlega geislavirkur af sjarma. Hefur þetta strákslega útlit, hlédrægur og feiminn en samt svo mikill nagli á vellinum.“ „Sjóðheitur og með dass af „vonda stráknum“ útliti sem er stundum svo ómótstæðilegt.“ „Fáránlega hot!“ „Svakalega mikill töffari.“ „Myndarlegur, sýnilega óeigingjarn og flott hvað hann er í góðu jafnvægi - flottur karlmaður.“ „Sjúklega myndarlegur, rugl góður handboltamaður, meiriháttar að horfa á hann í leik. Mætti samt alveg syngja með þegar íslenski þjóðsöngurinn er spilaður.“ „Með flotta skeggrót og fríður í andliti. Mjög flottur kroppur.“ „Hefur eitthvað mikið við sig, sætur og góðlegur ásamt því að vera karlmannlegur og sexí.“ „Dökkur og dularfullur! Virðist vera hógværðin uppmáluð og það er kynþokkafullt.“ „Fjallmyndarlegur! Ég er frekar fyrir þá dökkhærða og skeg- grótin hans skemmir svo sannarlega ekki fyrir. Flottur inni á vellinum, alltaf svolítið dularfullur sem ég kann að meta.“ „Efstur á lista hjá mér! Algjör ofurkroppur, laus við allt yfirlæti og virðist vera heill í gegn.“ „Gæðin geisla af þeim manni um langan veg. Hann er glæsi- legur á allan hátt og virðist þar fyrir utan vera draumaeigin- maður. Það er ekkert tilgerðarlegt við hann. Fullkominn.“ „Svo einbeittur á EM, finnst það bara hot!“ „Það er eitthvað einstaklega sjarmerandi við þennan hávaxna, dökkahærða mann. Þokkinn skín sérstaklega úr augum hans.“ „Flottur handboltafoli, fallega stórskorinn í andliti, dökkur og svolítið suðrænn. Gæti leikið kynþokkafullan lækni í Grey’s sem allar kikna í hnjánum í kringum. Góðlegur og sexí, sem er sjaldgæf blanda.“ „Dulúðlegur, seiðandi og út úr kortinu myndarlegur!“ „Fáránlega myndarlegur og sjúklega getnaðarlegur.“ „Flottur, algjör töffari.“ „Hefur margt sem töfrar mann upp úr skónum. Sérdeilis formfagur maður með augnaráð sem er seiðandi og ógleymanlega fagurt.“ 1. sæti 44 FÖSTUDAGUR 29. janúar 2010 HELGARBLAÐ Helgarblað DV leitaði til hóps föngulegra kvenna í leitinni að kynþokkafyllsta handboltamanni landsins. Horna- mennirnir Alexander Petersson og Guðjón Valur Sigurðsson bera af að mati álitsgjafa en félagarnir háðu einvígi um fyrsta sætið. Guðjón Valur þykir minna á norrænan handboltavíking og er að mati álitsgjafa sá maður sem konur vilja helst eignast börn með. Hinn hlédrægi Alexander Petersson sigraði að lokum en yfir 70% álitsgjafa blaðsins völdu Alexander í fyrsta sæti. Alexander þykir í senn karlmannlegur og strákslegur með seiðandi augna- ráð og flottan kropp. Aðrir heitir eru meðal annars hinn yfirvegaði Ólafur Stefánsson, hinn villti Björgvin Páll og bangsinn Róbert Gunnarsson. HORNAMENNIRNIR ERU HEITASTIR Björgvin Páll Gústavsson „Óheflaður og grófur. Eitthvað mjög sexí við hann þarna í markinu. Það væri gaman að fá að temja hann aðeins.“ „Þessi með síða hárið er svolítið sexí.“ „Alveg með þetta. Traustur sem klettur í markinu. Unun að fylgjast með þessum tignarlega manni verja hvert skotið á fætur öðru.“ „Töffari sem minnir helst á Kurt Cobain. Þeir eru alveg skuggalega líkir. Hann virkar aðeins villtari en Guðjón Valur og þær eru margar meyjarnar sem falla fyrir þeirri týpu eða „óþekka stráknum“.“ „Alveg að skora stig hjá okkur vinkonunum. Mjög sætur, flottur strákur. Kemur sterkur inn þegar hann er ekki sveittur með hárbandið sitt í markinu.“ Logi Geirsson „Það er eitthvað við Loga, ætli það sé ekki þetta óbilandi sjálfstraust sem gerir hann kynþokkafullan þrátt fyrir hræðilegt hárið.“ „Brosið. Alltaf svo stutt í það.“ „Hvolpakrútt.“ „Geislandi. Með einstaklega fallegt bros. Held hann sé hrikalega skemmtilegur og fyndinn.“ 4. sæti 5-6. sæti Ólafur Stefánsson „Lumar á földum kynþokka sem glittir stundum svo skemmtilega í.“ „Virkar mjög jákvæður og krúttlegur, en kannski ekki sexí.“ „Flottur maður sem verður bara flottari með aldrinum.“ „Yfirvegaður, eitthvað spennandi við hann. Mjög fylginn sér - sem er ekkert nema kynþokkafullt!“ „Fallegur maður og laus við alla tilgerð.“ „Einn af mínum uppáhalds, er með forganginn á hreinu, það eitt gerir hann áhugaverðan og þokkafullan. Svo er hann einfaldlega glæsilegur íslenskur karlmaður!“ „Yfirvegaður, traustur og mjög sexí.“ 3. sæti

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.