Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2010, Qupperneq 2
Eigendur Leonard-verslananna, Helga Daníels-
dóttir og Sævar Jónsson, eru að reisa sér risahús í Garðabæn-
um í skugga gjaldþrots en hann var í síðustu viku úrskurðaður
gjaldþrota. Af þeim sökum er húsið alfarið í eigu Helgu sem og
verslanirnar sem nú eru á hennar nafni.
HITT MÁLIÐ
ÞETTA HELST
- ÞESSAR FRÉTTIR BAR HÆST Í VIKUNNI
ENGIN MISKUNN
Guðrún Andrea Einarsdóttir
missti manninn sinn í janúar
síðastliðnum og berst nú ein við
að halda fjárhag heimilisins í
lagi. Eftir nákvæma útreikninga
bað hún bankann sinn um aðstoð
til að geta komist af hvern mánuð. Því
synjaði Íslandsbanki og ekkjan situr sár
eftir. „Sjálf er ég búin að reikna nákvæm-
lega út greiðslugetu mína og því leitaði
ég til bankans með þessa beiðni. Ég fékk
neitun til baka,“ segir Guðrún Andrea,
ekkja og þriggja barna móðir úr Vog-
um á Vatnsleysuströnd. Guðrún missti eiginmann sinn af slysförum
í janúar síðastliðnum. Hún sér nú ein fyrir þremur börnum sínum og
á erfitt með að láta enda ná saman. Hún ákvað að setjast niður með
reiknivélina og fann út leið til að geta boðið börnum sínum upp á
eitthvað annað en að vera föst heima hjá sér. Þeirri leið, sem fól í sér
að Guðrún myndi borga upp höfuðstól tæplega fimm milljóna króna
láns og fá um það bil 1,5 milljóna verðbætur niðurfelldar, hafnaði Ís-
landsbanki alfarið.
FÉKK BORGAÐ FYRIR AÐ HÆTTA
Bankastjóri KB banka, Sólon Sigurðsson,
fékk góðan starfslokasamning þegar hann
hætti í bankanum 2004. Var 200 milljón-
um dreift á fjögurra ára tímabil.
Fordæmislaus starfslokasamn-
ingur, segir fyrrverandi starfs-
maður KB banka. Verið var að
greiða Sóloni fyrir að hætta í
góðu í bankanum en þá var hann
valdalítill þrátt fyrir starfstitilinn. Sólon
lét af störfum þar í árslok 2004. Sólon
hafði þá verið starfsmaður Búnaðarbank-
ans í 21 ár og KB banka frá sameiningu
þess banka og Kaupþings árið 2003. Eftir
einkavæðingu Búnaðarbankans í ársbyj-
un 2003, og sameiningu hans við Kaupþing nokkrum mánuðum síðar,
hélt Sólon áfram að starfa sem bankastjóri í rúmt eitt og hálft ár. Þann
31. desember 2004 lét hann svo af störfum í bankanum. Engin ákvæði
um starfslokagreiðslur var að finna í ráðningarsamningi hans.
LEIKIÐ MEÐ LEONARD
Sævar Jónsson, eigandi Leonards og
fyrrverandi landsliðsmaður í fótbolta,
hefur fært rekstur skartgripa-
og úraverslunar sinnar yfir á
nýja kennitölu. Nafni gamla
félagsins var breytt skömmu
áður, Sævar segir það gert til
að slíta tengslin við Baug. Í
hinu nýja félagi afsalar hann sér öllum
völdum til eiginkonu sinnar. Nóvember-
mánuður síðastliðinn var viðburðaríkur
hjá Sævari Jónssyni, eiganda Leonards
og fyrrverandi knattspyrnuhetju, en þá
færði hann rekstur skartgripa- og úra-
verslunar sinnar yfir á nýja kennitölu
og gerði kaupmála við eiginkonu sína
þannig að verslunin fluttist yfir á hana í hinu nýja fyrirtæki.
Í síðustu viku var hann sjálfur úrskurðaður gjaldþrota. „Ég er búinn að
missa húsið og ég hef engan áhuga á því að missa fleira. Ég átti raun-
verulega engan annan kost. Ég get ekki sett þetta á kennitöluna mína
ef bankinn setur mig í þrot,“ sagði Sævar í viðtali við DV.
2
3
1 MÁNUDAGUR OG ÞRIÐJUDAGUR 8. – 9. mars 2010 DAGBLAÐIÐ VÍSIR 28. TBL.100. ÁRG. – VERÐ KR. 395EKKJAN
SKAL
BORGA
GUÐRÚN BAÐ BANKANN UM SVIGRÚM:
AUÐMENN FÁ AFSKRIFAÐ
ÓLAFUR
ÓLAFSSON
FINNUR
INGÓLFSSON
MAGNÚS
KRISTINSSON
BJARNI
ÁRMANNSSON
JÓN ÁSGEIR
JÓHANNESSON
88
milljarðar
4
milljarðar
50
milljarðar
800
milljónir
30
milljarðar
n GUÐRÚN MISSTI
MANNINN SINN Í
SLYSI Í JANÚAR
n SÉR EIN FYRIR
ÞREMUR BÖRNUM
n BAÐ UM AÐ LÁN
LÆKKAÐI TIL BAKA
„Ég bauð
bankanum
allt sem ég á“
ÓDÝRAST
Í SÓLINA
VÍTISENGLAR
ÓGNA VITNUM
ÓSANNUR
ÁRÓÐUR
UM HEILSU
NEYTENDUR
FRÉTTIR
ÚTTEKT
SÓLON SIGURÐSSON:
FÉKK 200
MILLJÓNIR
FYRIR AÐ
HÆTTA
FRÉTTIR
n HAGSTÆTT TIL
TYRKLANDS OG
PORTÚGAL
n EKKI BORÐA
EFTIR ÁTTA!
STJÓRNIN
VERÐUR
AÐ LIFA
FRAM AÐ
SKÝRSLU
n JÓHANNA
BERST GEGN
UPPLAUSN
RÍKISSTJÓRN-
ARINNAR
FRÉTTIRÍSLENSK MORÐ
Í DANMÖRKU
4 MÁNUDAGUR 8. mars 2010 FRÉTTIR
Sólon R. Sigurðsson, fyrrverandi
bankastjóri Búnaðarbankans og
KB banka, fékk 200 milljónir króna
í starfslokagreiðslur frá KB banka
þegar hann lét af störfum þar í
árslok 2004. Sólon hafði þá verið
starfsmaður Búnaðarbankans í 21
ár og KB banka frá sameiningu þess
banka og Kaupþings árið 2003.
Eftir einkavæðingu Búnaðar-
bankans í ársbyrjun 2003, og sam-
einingu hans við Kaupþing nokkr-
um mánuðum síðar, hélt Sólon
áfram að starfa sem bankastjóri í
rúmt eitt og hálft ár. 31. desember
2004 lét hann svo af störfum í bank-
anum.
Stjórn KB banka tók ákvörð-
un um að greiða Sóloni þessar 200
milljónir og olli ákvörðunin nokkr-
um deilum meðal ráðamanna
bankans þegar hún var tekin. Ýms-
um þótti tilgangslaust að gera sér-
stakan starfslokasamning við Sólon
þar sem ákveðið var að greiða hon-
um svo háa upphæð þrátt fyrir að í
ráðningarsamningi hans væri ekk-
ert kveðið á um slíkar greiðslur.
50 milljónir á ári
Greiðslunni til Sólons var dreift á
fjögurra ára tímabil og fékk hann
því 50 milljónir á ári næstu fjög-
ur árin eftir að hann lét af störfum
í bankanum. Því má reikna með að
Sólon hafi fengið síðustu greiðsluna
af þessum fjórum árið 2008, árið
sem íslenska bankahrunið átti sér
stað.
Sólon var 62 ára þegar gengið
var frá starfslokum hans og voru því
nokkur ár í að hann kæmist á eft-
irlaun. Sólon hafði rúmlega 40 ára
starfsreynslu í bankakerfinu þeg-
ar þetta var. Áður en hann hóf störf
hjá Búnaðarbankanum hafði hann
unnið í Landsbankanum í 20 ár.
Fyrir sameininguna við Kaup-
þing árið 2003, þegar Búnaðar-
bankinn var enn þá í eigu íslenska
ríkisins, var það þekkt staðreynd í
fjármálalífinu að þrátt fyrir að Sólon
og Árni Tómasson væru bankastjór-
ar bankans hefðu þeir í reynd ekki
stýrt honum. Sá sem það gerði hefði
verið Sigurjón Árnason, þáverandi
framkvæmdastjóri rekstrarsviðs
Búnaðarbankans og síðar banka-
stjóri Landsbankans, sem hætti
störfum í bankanum 2003 og tók
fjölmarga starfsmenn hans með sér
yfir til Landsbankans þegar hann
tók við honum.
Hafði lítil völd
Eftir sameininguna við Kaupþing
minnkuðu völd Sólons enn frekar
í hinum sameinaða banka. Enda
var það svo að starfsmenn Kaup-
þings tóku yfir stjórn bankans eft-
ir sameininguna. Brottför Sigur-
jóns til Landsbankans með marga
af helstu lykilstarfsmönnum Bún-
aðarbankans auðveldaði yfirtöku
starfsmanna Kaupþings á stjórn
bankans.
Heimildir DV herma að fljót-
lega eftir þetta hafi Sólon, sem var
bankastjóri KB banka á þessum
tíma ásamt Hreiðari Má Sigurðs-
syni, orðið nær óþarfur í bankanum.
Hreiðar Már hafði þar tögl og hagld-
ir, meðal annars vegna þess að hann
kom úr Kaupþingi og hafði því unn-
ið með þeim starfsmönnum sem
teknir voru við stjórnendastöðun-
um í bankanum eftir brottför Sigur-
jóns og annarra fyrrverandi starfs-
manna Búnaðarbankans. „Hann
passaði ekki alveg inn í KB banka á
þessum tíma og var í raun ekkert að
gera þarna,“ segir einn af heimild-
armönnum DV innan úr KB banka
sem ekki vill láta nafns síns getið.
Starfslokasamningur
fordæmislaus
Fljótlega hafi því orðið ljóst að Sól-
on var óþarfur í KB banka og því var
ákveðið að hann þyrfti að hætta þar.
Lendingin hafi því verið sú að til að
Sólon myndi hætta í góðu var ákveð-
ið að hann fengi góðan starfsloka-
samning frekar en að honum yrði
sagt upp. „Það var enginn á starfs-
lokasamningi í bankanum; menn
voru bara með sinn uppsagnarfrest
og því olli þetta kergju á meðal ann-
arra starfsmanna,“ segir heimildar-
maður DV. Ef Sóloni hefði verið sagt
upp hefði það þýtt að hann hefði að-
eins fengið greitt samkvæmt ráðn-
ingarsamningi sínum og því aðeins
laun í nokkra mánuði auk þess sem
það hefði litið illa út fyrir KB banka
og Sólon sjálfan.
Því var látið líta út eins og Sól-
on hefði tekið þá ákvörðun sjálfur
að hætta og tilkynnti hann þessa
ákvörðun sína á aðalfundi bankans
í lok mars 2004: „Í lok þessa árs verð
ég búinn að starfa í bankageiran-
um í 42 ár, fyrstu 20 árin hjá Lands-
banka Íslands og nú næstum 21 ár
hjá Búnaðarbanka Íslands og eftir
það hjá KB banka. Þetta er langur
tími í starfi sem á stundum er erf-
itt og krefjandi. En ég hef þó notið
hverrar mínútu á þessum 42 árum.
Þrátt fyrir það hef ég ákveðið að láta
af störfum hjá KB banka í lok þessa
árs.“ Heimildir DV herma hins veg-
ar að þetta hafi verið stílfærð út-
gáfa af sannleikanum enda ólíklegt
að rúmlega sextugur maður myndi
hætta í vel launuðu stjórnendastarfi
í bankageiranum af sjálfsdáðum.
DV náði ekki í Sólon við vinnslu
fréttarinnar en hann var staddur í
Flórída þar sem hann dvelur lang-
dvölum.
Bankastjóri KB banka, Sólon Sigurðsson, fékk góðan starfslokasamning þeg
ar hann
hætti í bankanum 2004. 200 milljónum var dreift á fjögurra ára tímabil.
Fordæmislaus
starfslokasamningur, segir fyrrverandi starfsmaður KB banka. Sóloni var
greitt fyrir að
hætta í góðu í bankanum en þá var hann valdalítill þrátt fyrir starfstitilin
n.
SÓLON FÉKK
200 MILLJÓNIR
Hann passaði ekki alveg inn í KB
banka á þessum tíma.
INGI F. VILHJÁLMSSON
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
Fékk góðan starfslokasamning Sólon R. Sigurðsson
fékk 200 milljóna króna starfslokasamning þegar hann
hætti hjá hinum nýja sameinaða KB banka árið 2003.
Þjóðaratkvæði
um kvótakerfið
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráð-
herra viðraði þá skoðun sína í Silfri
Egils á sunnudag að henni þætti
eðlilegt að leggja hina áratugalöngu
deilu um kvótakerfið fyrir þjóðarat-
kvæðagreiðslu.
Þetta sagði Jóhanna í Silfri Egils
þar sem formenn og forsvarsmenn
flokkanna hafa tekist hart á um Ice-
save-málið, þjóðaratkvæðagreiðsl-
una og stöðu Íslands.
Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, mátti ekki heyra
á það minnst. „Um hvað ætti að
kjósa?“ spurði Bjarni og hafði uppi
miklar efasemdir um að kosið væri
um kvótann.
Stefán efstur í
Fljótsdalshéraði
Stefán Bogi Sveinsson hreppti
fyrsta sætið í prófkjöri framsókn-
armanna á Fljótsdalshéraði sem
fram fór á laugardag. Stefán Bogi
hafði mikla yfirburði í prófkjörinu
og hlaut alls 71 prósent atkvæða
í sætið. Enginn annar frambjóð-
andi fékk jafnhátt hlutfall í önnur
sæti listans.
Eyrún Arnardóttir lenti í öðru
sæti og Páll Sigvaldason í því
þriðja. Gunnhildur Ingvarsdóttir
er í fjórða sæti.
Minni virkni
Skjálftavirkni undir Eyjafjallajökli
hefur minnkað síðustu tvo sólar-
hringa. Skjálftum hefur fækkað
og enginn þeirra hefur verið stór.
Almannavarnadeildin fylgist
náið með framvindunni í sam-
vinnu við jarðvísindamenn. Um
leið og talið er að hætta sé liðin
hjá verður óvissustigi Almanna-
varna aflétt í samráði við lög-
reglustjóra umdæmisins og vís-
indamenn.
Haldið sofandi
eftir eldsvoða
Maðurinn sem lenti í eldsvoða í
íbúð í Sóleyjarrima í Reykjavík á
laugardag lá enn þungt haldinn á
gjörgæsludeild Landspítalans sam-
kvæmt upplýsingum frá vakthafandi
lækni um kvöldmatarleytið á sunnu-
dag. Honum var haldið sofandi í
öndunarvél.
Allt tiltækt lið slökkviliðsins á
höfuðborgarsvæðinu var kallað út
eftir að tilkynning barst um að reyk
legði frá íbúð í fjölbýlishúsi í Sól-
eyjarrima í Reykjavík á laugardag.
Slökkvistarf gekk vel.
MIÐVIKUDAGUR OG FIMMTUDAGUR 10. – 11. mars 2010 DAGBLAÐIÐ VÍSIR 29. TBL.100. ÁRG. – VERÐ KR. 395 n Á HVERJU ÁRI
n KRABBAMEIN ER ÞÓ EKKI DAUÐADÓMUR
KNATTSPYRNUHETJAN SÆVAR JÓNSSON:
LÖGREGLUSTJÓRAR:
BÖNNUM VÍTISENGLA
VIÐSKIPTAMAÐUR
ÁRSINS STÓR-
SKULDUGUR
ÖGMUNDUR
NÁLGAST
STJÓRNINA
n FLUTTI SKARTGRIPAVERSLUNINA LEONARD
YFIR Á KONUNA FYRIR GJALDÞROTIÐ
n SEGIST VERA AÐ FLÝJA BAUG
n „ÉG ER BÚINN AÐ MISSA HÚSIГ
n „ÁTTI ENGAN ANNAN KOST“
FLUTTI
BÚÐINA
Á KONUNA
KARLAR
DEYJA
FREKAR
EN KONUR
ÚTT
EKT
MEÐ 640
MILLJÓNA
KÚLULÁN
n RÁÐINN TIL LANDSVIRKJUNAR
FRÉTTIR
FRÉTTIR
FRÉTTIR
22 LEIÐIR
TIL AÐ
SPARA
MILLJÓN
2 FÖSTUDAGUR 12. mars 2010 FRÉTTIR
„Það eru kröfuhafar sem ráða ferð-
inni. Ef þarna hefur verðmætur
rekstur verið færður undan, án end-
urgjalds, þá eru það vissulega hags-
munir fyrir búið. Ég mun spyrja Sæv-
ar sérstaklega út í það,“ segir Grétar
Dór Sigurðsson, skiptastjóri þrotabús
Sævars Jónssonar knattspyrnuhetju.
Sævar færði í nóvembermánuði
rekstur skartgripa- og úraverslunar
sinnar, Leonard, yfir á nýja kenni-
tölu þar sem stjórnartaumarnir voru
færðir yfir á hendur eiginkonu hans,
Helgu Daníelsdóttur. Í stað þess sem
áður var, í hinu gamla rekstrarfé-
lagi, kemur nafn Sævars hvergi fyrir
á pappírunum en hann hefur sjálfur
verið úrskurðaður gjaldþrota. Í sam-
tali við DV sagði hann kennitölu-
breytinguna ekki hafa verið gerða til
að skilja eftir skuldir þó svo að með
henni hafi hann viljað forðast að
missa fyrirtækið.
Grétar Dór segir vinnuna við
þrotabúið vera rétt að byrja þar sem
innköllum krafna hafi verið auglýst
og næsta skref verði að meta eigna-
söguna. Aðspurður segir hann hugs-
anlega útlit fyrir að þannig sé verið
að koma eignum út úr þrotabúinu.
„Jú, það kann að vera og við eigum
eftir að fara yfir þetta. Ég á eftir að
taka skýrslu af Sævari og þar verður
farið yfir þennan gjörning út frá lög-
um um gjaldþrotaskipti. Ef þessar
ráðstafanir eru riftanlegar er hugs-
anlegt að sú krafa verði lögð fram
og það verður skoðað þegar allar
kröfur hafa komið fram,“ segir Grét-
ar Dór. trausti@dv.is
Kennitölubreyting Leonard verður skoðuð hjá skiptastjóra:
Íhugar riftun hjá Sævari
MIÐVIKUDAGUR OG FIMMTUDAGUR 10. – 11. mars 2010 DAGBLAÐIÐ VÍSIR 29. TBL.
100. ÁRG. – VERÐ KR. 395 n Á HVERJU ÁRI
n KRABBAMEIN ER ÞÓ EKKI DAUÐADÓMUR
KNATTSPYRNUHETJAN SÆVAR JÓNSSON:
LÖGREGLUSTJÓRAR:
BÖNNUM VÍTISENGLA
VIÐSKIPTAMAÐURÁRSINS STÓR-
SKULDUGUR
ÖGMUNDUR
NÁLGAST
STJÓRNINA
n FLUTTI SKARTGRIPAVERSLUNINA LEONARD YFIR Á KONUNA FYRIR GJALDÞROTIÐn SEGIST VERA AÐ FLÝJA BAUGn „ÉG ER BÚINN AÐ MISSA HÚSIГn „ÁTTI ENGAN ANNAN KOST“
FLUTTI
BÚÐINA
Á KONUNA
KARLAR
DEYJA
FREKAR EN KONUR
ÚTT
EKT
MEÐ 640
MILLJÓNA
KÚLULÁN
n RÁÐINN TIL LANDSVIRKJUNAR
FRÉTTIR
FRÉTTIR
FRÉTTIR
22 LEIÐIR
TIL AÐ
SPARA
MILLJÓN
Knattspyrnuhetjan og stofnandi
skartgripa- og úraverslunarinnar
Leonard, Sævar Jónsson, og eigin-
kona hans, Helga Daníelsdóttir, eru
að reisa sér glæsihöll í Garðabæ sem
samanlagt er tæpir 500 fermetrar að
stærð. Húsið er alfarið skráð á Helgu,
enda var Sævar nýverið úrskurðaður
gjaldþrota.
Glæsieignin er við götuna Mos-
prýði í Garðabæ, nýju hverfi úti í
hrauni þegar ekið er í átt að Bessa-
stöðum. Óhætt er að segja að stað-
setning eignarinnar sé glæsileg og
útsýnið ekki af verri endanum. Sjálft
húsið er 420 fermetrar á þremur
hæðum og á jarðhæðinni er að finna
60 fermetra bílskúr. Af efstu hæð
er ómetanlegt útsýni yfir hraunið,
Álftanesið, höfuðborgina og Esjuna.
Misstu hitt húsið
Í nóvembermánuði síðastliðnum
misstu hjónin húsið sitt við Súlunes
16 í Garðabæ á nauðungaruppboði í
hendur Arion banka. Í sama mánuði
færðu hjónin rekstur Leonard yfir á
nýja kennitölu þar sem verslunin
færðist alfarið yfir á Helgu og nafn
Sævars kemur þar hvergi fram, ólíkt
því sem áður var. Þar sem knatt-
spyrnukappinn fyrrverandi er nú
gjaldþrota varð þessi leið fyrir val-
inu því hann segist ekki hafa viljað
missa fleira en húsið. Nýja höllin er
alfarið í eigu Helgu og er Sævar þar
ekki skráður fyrir neinum eignar-
hlut.
Fram í nóvember 2009 var rekst-
ur Leonard undir félagi sem hét
Leonard ehf. þar sem Sævar var
skráður í stjórn, sem framkvæmda-
stjóri og með prókúruumboð fyrir-
tækisins. Þá var nafni fyrirtækisins
skyndilega breytt í Ince ehf. en sam-
kvæmt ársreikningi 2008 hvíldu þá
á félaginu talsverðar skuldir. Í þess-
um sama mánuði, nóvember 2009,
var síðan stofnað nýtt fyrirtæki,
Leonard ehf., sem heldur utan um
rekstur búðanna en sú breyting er á
nýja fyrirtækinu að þar er eiginkona
Sævars, Helga Daníelsdóttir, komin
með öll völd, bæði í stjórn og með
prókúruumboð.
Allt á fullu
Samkvæmt fasteignaskrá var nýja
húsið skráð á Helgu í lok febrúar í
fyrra. Samkvæmt heimildum DV
eru iðnaðarmenn að störfum við að
standsetja höllina í Mosprýði fyrir
Leonard-hjónin.
Í samtali við DV staðfestir Sævar
að verslunarreksturinn sé kominn
undir nýtt félag en segir engar skuldir
hafa verið skildar eftir í gamla félag-
inu. Hann bendir á að breytingin hafi
ekki bara verið til að bjarga rekstrin-
um heldur líka til að slíta tengslin við
Baug. Kristín Jóhannesdóttir, fram-
kvæmdastjóri Gaums og fyrrverandi
stjórnarmaður í Baugi, vill líka slíta
tengslin við Sævar og ítrekar í yfir-
lýsingu til DV að hún hafi ekki kom-
ið nálægt kennitölubreytingunni þar
sem hún hafi löngu áður sagt sig úr
stjórn fyrirtækisins.
Við vinnslu fréttarinnar voru
gerðar tilraunir til að fá svör hjá Sæv-
ari vegna byggingar hússins í Mos-
prýði en án árangurs.
BYGGJA SÉR 500
FERMETRA HÖLL
TRAUSTI HAFSTEINSSON
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
Flott hús Stórhýsið í Mosprýði er tæpir
500 fermetrar á fallegum stað og með
ómetanlegu útsýni. Bara bílskúrinn er 60
fermetrar og húsið er á þremur hæðum.
MYND RAKEL ÓSK