Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2010, Side 13

Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2010, Side 13
STYÐUR SKOÐUN n Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðis- flokksins og fulltrúi í allsherjarnefnd, segist mjög fylgjandi því að rýmkun á heimildum lögreglu til forvirkra rannsóknaraðgerða verði skoðaðar. „Við höfum séð skýr dæmi um alþjóðlega glæpa- starfsemi hér á landi og vísbendingar eru um að meira sé í gangi. En það þurfa að vera skilyrði um að það sé fyrir hendi óháð eftirlitskerfi í formi utanaðkomandi aðila eða þingnefndar sem hefur með höndum það hlutverk að tryggja að heim- ildum af þessu tagi sé ekki misbeitt. Eftirlitið þarf að vera mjög gott.“ TREYSTA Á ALÞINGI gerða þarf að grípa til þess að svo megi verða,“ segir Róbert. Auknar heimildir lögreglu til forvirkra rannsóknaraðgerða þurfa að fara fyrir Alþingi þar sem tekist verður á um málið. Þeir þingmenn ferðum verði beitt til að Hells Ang- els nái sem sterkastri stöðu á fíkni- efnamarkaðnum. Aðild í haust Talið er að MC Iceland eigi aðeins örfá skref eftir til að hljóta fulla að- ild að Hells Angels og er því hald- ið fram að þegar það gerist verði ógerningur að snúa þeirri þróun við. Hells Angels sé þá komið til að vera á Íslandi og þar með hefjist stóraukin skipulagning á glæpum á Íslandi með alþjóðlegum tenging- um – í krafti nafnsins. Í dag er talið að MC Iceland telji um 20 meðlimi og að áhangendur séu á bilinu 20 til 30 í tveimur mótorhjólaklúbb- um. Austurevrópskar glæpaklíkur Í fyrrahaust gerði lögreglan mikið átak í að rannsaka innbrot sem tal- in voru framin af erlendum glæpa- hópum. Hátt í tuttugu manns voru handteknir og kom í ljós að um þrjú pólsk þjófagengi var að ræða. Taldi lögreglan að mennirnir hefðu verið sendir hingað til lands gagn- gert til að brjótast inn og koma þýf- inu á öruggan stað. Þýfið átti svo að senda úr landi og hefur mikið af þýfi frá Íslandi fundist á mörkuð- um í Póllandi og Litháen. Ljóst er að þessi starfsemi er mjög skipu- lögð og þeir menn sem eru sendir hingað eru miklir kunnáttumenn þegar kemur að þjófnaði og inn- brotum. Það hefur einnig tíðkast að er- lendir glæpahópar hér á landi fái íslenska eiturlyfjaneytendur til að brjótast inn í skiptum fyrir lítilræði af fíkniefnum. Góssið er þá selt á svörtum markaði, sent utan eða notað af meðlimum glæpahópanna. Vinna saman Samkvæmt áhættugreiningu Evrópu lögreglunnar frá árinu 2009 á skipulögðum glæpahóp- um kemur fram að smyglleiðir fíkniefna séu mjög skipulagðar og glæpahópar víða um Evrópu vinni saman að því að koma fíkniefnum á áfangastað. Þar er meðal annars smyglleiðum kókaíns, sem fram- leitt er í Suður-Ameríku lýst ítar- lega og sérstaklega tekið fram að vöxtur sé á smygli í gegnum Brasi- líu. Þaðan liggur smyglleiðin til Spánar og annarra Evrópulanda, en smygl í gegnum Vestur-Afríku sé að aukast. Í dag sitja þrír Íslending- ar í fangelsi í Suður-Ameríku svo vitað sé, en nýlega var fjórði mað- urinn látinn laus úr haldi. Fimm svæði Í áhættugreiningunni er Evrópu skipt upp í fimm svæði. Eitt þeirra er norðaustursvæðið þar sem eru meðal annars baltnesku löndin. Í skýrslunni er þess sérstaklega get- ið að litháískir glæpahópar smygli ólöglegum fíkniefnum úr austri til vesturs, meðal annars amfeta- míni og efnum til amfetamínfram- leiðslu til Norðurlandanna. Þetta kemur heim og saman við fréttir af litháískum mönnum sem hafa verið stöðvaðir í Leifsstöð með amfeta mínvökva sem notaður er til amfeta mínframleiðslu. Sérstaklega er tekið fram í skýrslunni að glæpa- hópar í Austur-Evrópu hafi komið sér upp kerfi þar sem hópar manna séu sendir á hvert „markaðssvæði“ fyrir sig og sjái um dreifingu fíkni- efnanna í hverju landi fyrir sig. Skipulagðir glæpahópar Í sænskri skýrslu sem fjallar um skipulagða glæpastarfsemi í balt- nesku löndunum kemur fram að glæpahópar í þessum lönd- um séu mjög vel skipulagðir, þeir hafi skýr markmið og séu ávallt að leita að nýjum leiðum til útrásar á glæpabrautinni. Þar segir einn- ig að glæpahópunum megi skipta í þrennt; þá sem eru með fleiri en 75 meðlimi, þá sem eru með 25–75 meðlimi og að síðustu þá sem hafi 25 eða færri meðlimi innanborðs. Tindátarnir neðst Það sem sameinar flesta glæpahópa, hvort sem um er að ræða austur- evrópska eða meðlimi mótorhjóla- samtakanna Hells Angels, er að efst tróna „foringjarnir“, þá koma skipu- leggjendurnir og fyrir neðan þá eru þeir sem stjórna neðsta lagi hópsins; tindátunum svokölluðu en þeir eru sagðir vinna „skítverkin“ fyrir glæpa- hópana. Með „skítverkum“ er átt við sölu fíkniefna, innheimtu skulda með handafli, innbrot, auðgunar- brot og aðra glæpastarfsemi. Illa stödd fyrirtæki fengin til að koma peningum í umferð Í mati greiningardeildar ríkislög- reglustjóra á alþjóðlegri glæpastarf- semi, sem kom út fyrir um ári, er efnahagshruninu gefinn sérstakur gaumur og hvaða þýðingu það hafi á starfsemi skipulagðra glæpahópa hér á landi. Glæpahóparnir nýti sér ástandið og leggi ágóða af fíkniefna- sölu og öðrum glæpum í fasteignir og fyrirtæki. Kemur fram í skýrslunni að greiningardeild ríkislögreglustjóra búi yfir upplýsingum um að slík þró- un sé nú þegar hafin. Heimildarmenn DV fullyrða einnig að nú sé tækifæri fyrir glæpahópa að leita til íslenskra fyrirtækja sem eru illa stödd fjárhags- lega og fá þau til að koma fíkniefna- peningum í umferð, fyrir dágóðar upphæðir.Helstu forsprakk ar mótor- hjólaklúbbsins MC Ice- land buðu fyrirtækjaeig- endum í Hafnarfirði upp á öryggisgæslu á nóttunni síðastliðið haust, stuttu áður en þeir urðu vænt- anlegir félagar í Hells Angels. Í bréfi sem eigendur fyrirtækjanna fengu í hendur kemur fram að þjónustan felist í því að fyrirtæki séu könnuð tvisvar á klukkustund með óreglu- legum hætti þó, svo innbrotsþjófar eigi erfiðara með að athafna sig. Verð þjónustunnar átti að vera 3500 krón- ur á mánuði og var um 12 mánaða samning að ræða. Lögreglan í Hafn- arfirði hafði veður af þessum fyrir- ætlunum og stöðvaði starfsemina, þar sem þeir höfðu ekki leyfi til að reka öryggisþjónustu. Hjá Hells Ang- els á Norðurlöndum er verndarþjón- usta ein af tekjuleiðum samtakanna. Óttinn hreiðrar um sig Þeir sem gerst þekkja til segja að nú haldi meðlimir MC Iceland sig til hlés á meðan umsókn þeirra um fulla aðild að Hells Angels sé til meðferðar. Þeir megi ekki koma sér í vandræði af ótta við viðbrögð yf- irvalda, en Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri hefur sagt opin- berlega að hann vilji banna Hells Angels hér á landi. Nú þegar er ótti farinn að hreiðra um sig í undirheimunum á Íslandi, jafnvel þótt MC Iceland sé ekki formlega orðinn hluti af Hells Angels. Þeir sem eru í fíkniefna- sölu í undirheimunum eru logandi hræddir við framhaldið og hvernig þeim sjálfum muni reiða af í þess- um harða heimi þegar MC Iceland fái fulla aðild og geti merkt sig sam- tökunum. Þá muni koma til upp- gjörs í undirheimunum sem leiði annaðhvort til þess að Hells Angels nái undir sig fíkniefnasölu eða fái ákveðna prósentu af sölu annarra fíkniefnasala. Þessu uppjöri muni fylgja aukin harka og öllum að- 16 FÖSTUDAGUR 5. mars 2010 FRÉTTIR FRÉTTIR 5. mars 2010 FÖSTUD AGUR 17 LOGANDI HRÆDD VIÐ VÍTISENGLA ALÞJÓÐLEG GLÆPASTARFSEMI Á ÍSLANDI 1. hluti Ísland hefur að geyma marga harðsvíraða glæpamenn, bæði innlenda og e rlenda. Starf- semi ýmissa glæpahópa er mjög skipulögð og flokkast undir alþjóðlega glæ pastarfsemi. Í þessum fyrsta hluta úttektar DV er staðan á íslenska glæpamarkaðnum s koðuð. JÓHANNES KR. KRISTJÁNSSON blaðamaður skrifar: johanneskr@dv.is Foringjanum snúið við Leif Ivar er foringi Hells Angels í Noregi. Fyrir stuttu var hann stöðvaður á leið til landsins. Einn hinna handteknu í Pólstjörnumálinu Lögregla handtók fimm menn vegna smygls á 60 kílóum af amfetamíni með skútu til Fáskrúðsfjarðar. MYND SIGTRYGGUR ARI JÓHANNSSON   Merkið Merki samtakanna vekur ótta hjá mörgum. Ásgeir Karlsson er yfirmaður grein- ingardeildar ríkislögreglustjóra en starfaði áður um 10 ára skeið sem yfirmaður fíkniefnadeildar lögreglu höfuðborgarsvæðins. Hvernig myndirðu segja að Ís- land tengist inn í alþjóðlega glæpa- starfsemi í dag? Helstu merki sem við sjáum um alþjóðlega glæpastarfsemi eru mál sem tengjast fíkniefnaviðskiptum. Og einnig hafa verið að koma upp mál sem tengjast mansali, ásamt erlend- um þjófagengjum sem hér eru starf- rækt. Þetta eru helstu merkin sem við sjáum sem stendur. Greiningardeild ríkislögreglustjóra hefur gefið út sér- stakt hættumat þar sem skipulögð glæpastarfsemi er greind. Í þessum greiningum höfum við reynt að styðj- ast við skilgreiningar Europol. Því hefur stundum verið haldið fram að Ísland standi um 10 árum á eftir Norðurlöndunum þegar kemur að glæpastarfsemi. Er það raunin? Það hefur lengi verið talið svo að það sem er að gerast á hinum Norð- urlöndunum komi á endanum til Íslands. Hvort það séu nákvæmlega 10 ár er ekkert hægt að segja um. Það virðist vera að við fáum allt það sem er að gerast út í heimi hingað til lands. Nú hefur MC Iceland sótt um að- ild að Hells Angels. Hvaða afleiðing- ar hefur það fyrir íslenskt samfélag verði þeir fullgildir meðlimir? Það hefur verið mat ríkislög- reglustjóra í um 10 ár að það sé ógn við öryggi almennings hér á landi nái þeir að skjóta rótum. Það hefur verið lögð mikil áhersla á að sporna við þessari þróun eins og frekast er unnt. Hvaða glæpahópar eru afkasta- mestir á Íslandi? Eins og staðan er í dag eru það Íslendingar sem ráða hér ferð- inni, en þó í samvinnu við erlenda glæpahópa. Við höfum séð merki þess í seinni tíð að Austur-Evrópu- menn komi æ oftar við sögu í af- brotum hér á landi. Nota austurevrópsku glæpa- hóparnir aðrar aðferðir en þeir ís- lensku? Harkan hefur aukist í þessum glæpaheimum í seinni tíð. Menn eru orðnir harðsvíraðri í því sem þeir eru að gera. Við höfum séð mun meira magn flutt inn af fíkni- efnum en áður og þetta gefur vís- bendingar um að þessir hópar séu í betri samböndum erlendis og hafi um leið meira fjármagn milli hand- anna. Telurðu að hræðslu gæti hjá ís- lenskum lögreglumönnum að tak- ast á við austurevrópska glæpa- hópa? Ég myndi ekki segja að menn séu hræddir við að taka á þess- um mönnum. Lögreglumenn vilja hins vegar hafa vaðið fyrir neðan sig þegar farið er í þessa menn og það er vitað hverju hægt er að bú- ast við. Dæmin hafa sýnt að þessir menn svífast einskis þegar til átaka kemur. Íslendingar ráða enn ferðinni en eru oft í samvinnu við erlenda glæpahó pa: „Menn eru orðnir harðsvíraðri“ Ísland aðeins eftir á Ásgeir segir að íslenski glæpaheimurinn þróist í takt við þennan heim á Norðurlöndum. Ekki fór að bera á skipulagðri al- þjóðlegri glæpastarfsemi hér á landi fyrr en eftir 1994 þegar EES- samningurinn var samþykktur hér á landi en þá opnaðist Ísland fyr- ir mörgum Evrópuþjóðum. Helgi Gunnlaugsson, prófessor í afbrota- fræði við Háskóla Íslands, segir að innganga Íslands í EES árið 1994 sé táknræni vendipunkturinn þegar kemur að alþjóðlegri glæpastarf- semi – þá hafi Ísland opnast. Í kjöl- farið hafi útlendingum fjölgað hér á landi, sérstaklega eftir aldamót- in. Helgi segir þó nauðsynlegt að hafa í huga að langflestir hafi kom- ið hingað í atvinnuleit og hafi ver- ið drifkraftur framkvæmda og hag- sældar landsins. Helgi telur að með opnun landsins hafi löggæsluyfir- völd ekki verið tilbúin að takast á við breyttan heim, aðra siði fólks- ins sem kom til landsins, önnur tungumál og aðra menningu. Helgi segir það athyglisvert þeg- ar litið sé til þróunarinnar síðustu ár að þrátt fyrir mikla umferð út- lendinga hér á hverju ári sjáist það ekki í aukningu á brotatilkynning- um til lögreglu. „Í raun hefur ekki orðið aukning brota hjá lögreglu í auðgunar- og ofbeldisbrotum á síðustu árum þrátt fyrir aukn- ingu útlendinga og mörg brotamál tengd þeim. Aukningin er í kyn- ferðisbrotum og fikniefnabrotum en útlendingar skýra þá aukningu ekki nema að litlu leyti.“ Hann segir að ekki sé hægt að fullyrða hvort útlendingar séu í sérstökum brotum eða sérhæfi sig á einverju brotasviði. „Það sem við höfum í höndunum er ástæða fangavistar útlendinga í íslensk- um fangelsum og hún virðist mjög svipuð og meðal íslenskra fanga. Það var þannig í upphafi aldamót- anna að útlendingar voru meira inni fyrir fíkniefnabrot en þetta hefur breyst á allra síðustu árum,“ segir Helgi. Alþjóðlegu glæpagengin byrjuðu fyrst að starfa hér að einhverju ráði á s íðustu tveimur áratugum: Skipulagið hófst með samningnum um EES Ekkert hægt að fullyrða Helgi segist ekkert geta fullyrt um hvort útlendingar séu í sérstökum eða sérhæfðum afbrotum hér á landi. MYND STEFÁN KARLSSON Helgi telur að með opnun landsins hafi löggæslu- yfirvöld ekki verið til- búin að takast á við breyttan heim. Þjónusta boðin Bréfið sem eigendur nokkurra fyrirtækja í Hafnarfirði fengu í hendurnar frá Fáfnismönnum síðasta haust. FRAMHALD Á NÆSTU SÍÐU Á Norðurlöndum er að finna alla flóru alþjóðlegrar glæpastarfsemi. Í skýrslum Evrópulögreglunnar er aðferðum, uppbyggingu og sam- starfi þessara glæpasamtaka lýst að nokkru leyti. Reyndir lögreglumenn segja þumalputtaregluna vera þá að það sem sé að gerast í undirheim- unum á Norðurlöndum taki 10 ár að koma til Íslands. Og frá Bandaríkj- unum taki það sem þar er að gerast í glæpaheiminum 10 ár að berast til Norðurlandanna. Jökull Gíslason lögreglumað- ur var í níu vikur í skiptidvöl hjá dönsku lögreglunni í Kaupmanna- höfn. Jökull varð áþreifanlega var við átök glæpagengjanna þar í borg, en þann tíma sem hann var úti voru skotárásir í borginni að meðaltali annan hvern dag. „Það sem gerir þetta flókið og erfitt viðureignar er að þarna eru Vítisenglar og Bandi- tos að berjast um fíkniefnamarkað- inn við mörg gengi innflytjenda af þriðju kynslóðinni. Þetta eru marg- ar sellur og hver þeirra inniheld- ur 10 til 15 manns. Þær eru lítillega tengdar og standa saman í stríðinu gegn Vítisenglum.“ Að sögn Jökuls eru danskir lög- reglumenn ekki mjög bjartsýnir á mikinn árangur af starfi þeirra eins og staðan er núna. „Það er hugs- anlega hægt að eiga við skipulögðu glæpastarfsemina en jaðaráhrifin af þessu gengjastríði eru mikil sem hefur áhrif á störf lögreglunnar. Það fer mikill mannafli í rannsóknir sem tengjast skotárásunum og þetta er tímafrekt.“ Norski veruleikinn Júgóslavnesk glæpagengi og aðr- ir hópar alþjóðlegrar glæpastarf- semi stjórna höfuðborginni Ósló, en Vítisenglar hafa náð undirtök- unum í stærstu borgum Noregs úti um allt land. Í Brennpunkt- þættinum, sem fjallað er um ann- ars staðar á opnunni, kemur fram að áhangendaklúbbar Vítisengla í Noregi séu nálægt sextíu. Í þeim klúbbum eru tindátarnir svo- kölluðu sem vinna skítverkin og fremja glæpina. Hrædd vitni Í fjölmörgum líkamsárásarmálum og jafnvel morðmálum reynist erfitt fyr- ir norsk lögregluyfirvöld að fá fólk til að bera vitni í réttarhöldum. Meðlim- ir Vítisengla sem ákærðir eru mæta í réttarsal í fullum skrúða – í kirfilega merktum vestum sem hræða vitnin og þau muna oft ekki neitt eða breyta frásögn sinni. Leiðtogi Vítisengla í Noregi, Ís- landsvinurinn Leif Ivar Kristiansen, hefur einnig vanið komur sínar í rétt- arsal þar sem meðlimir samtakanna eru ákærðir – það vekur enn meiri ótta hjá vitnunum. Meðlimir stofna fyrirtæki Norskir Vítisenglar hafa undan- farið komið undir sig fótunum í hefðbundnum atvinnugreinum. 2 MÁNUDAGUR 8. mars 2010 FRÉTTIR FRÉTTIR 8. mars 2010 MÁNUDAGUR 3 FÓLK ÞORIR EKKI AÐ BERA VITNI 2. hluti Skipulögð glæpastarfsemi er mikið og stórt vandamál á öllum Norðurlöndunum. Fréttir af skotárásum milli glæpagengja í Danmörku hafa reglulega verið í fréttum síðasta árið. Vítisenglar hafa náð fótfestu í öllum löndunum og er Ísland að bætast í þann hóp. Í öðrum hluta úttektar DV um alþjóðlega glæpastarfsemi er horft til Norðurlandanna og hvernig brugðist er við vandanum þar. JÓHANNES KR. KRISTJÁNSSON blaðamaður skrifar: johanneskr@dv.is Algeng sjón í dómsölum Foringi norskra vítisengla svaraði fyrir íslenska vonbiðla þegar nálgaðist að þeir fengju viðurkenningu sem Vítisenglar. Hann mætir oft í dómsal þegar Vítisenglar eru ákærðir. Þáttur um Vítisengla var sýndur í norska ríkissjónvarpinu í byrjun mán- aðarins. Margra mánaða rannsóknar- vinna lá að baki þættinum og er farið ítarlega ofan í saumana á starfsemi Vít- isengla í Noregi, starfsháttum þeirra og sýnt fram á hvernig komið hefur verið á tengslum inn í norskt viðskiptalíf. Vibeke Haug, ritstjóri rannsóknar- fréttamennsku og heimildaþáttagerð- ar við Brennpunkt í norska ríkissjón- varpinu NRK, segir að almenningur í Noregi hafi alls ekki áttað sig á stærð og umfangi Vítisengla þar í landi. „Við finnum fyrir þakklæti almennings fyr- ir að hafa gert þennan þátt og sagt frá þessari starfsemi. Það skiptir máli að lögregla og fjölmiðlar vinni saman að því að segja frá skipulagðri glæpastarf- semi,” segir Vibeke en þessi þáttur var unninn í samvinnu við norsk lögreglu- yfirvöld. Hafa vaxið hratt Hin norsku Vítisenglaglæpasamtök hafa stækkað verulega mikið á síð- ustu tveimur árum, en á þessum tíma bættust 25 nýir meðlimir við samtökin sem telja nú um eitt hundrað manns. „Það eru um sextíu mótorhjólaklúbb- ar í Noregi sem eru áhangendaklúbb- ar Vítisengla og þeim hefur farið fjölg- andi. Það sem kemur almenningi mest á óvart er að samtökin eru mjög skipulögð. Starfsemi þeirra hefur ver- ið að færast til borga og bæja í Noregi. Þar hafa samtökin náð fótfestu og náð tökum á glæpastarfseminni á þessum landsvæðum. Við sýnum einnig fram á það í þættinum að Vítisenglar í Noregi eru með mjög sterkar tengingar við al- þjóðlegu samtökin,” segir Vibeke. Byrjað of seint Spurð um stöðu MC Iceland hér á Ís- landi og þá staðreynd að í haust fái þeir hugsanlega aðild að Vítisengl- um segir Vibeke. „Það er alveg ljóst að lögreglan og íslenska samfélag- ið þarf að fást við þetta vandamál. Hér í Noregi var byrjað allt of seint að berjast við þessi samtök og skipu- lagða glæpastarfsemi yfir höfuð,“ seg- ir Vibeke og bætir við. „Það skiptir líka máli hvernig sveitarstjórnir í samráði við lögregluyfirvöld á hverju svæði taka á málunum hér í Noregi. Það er fyrst núna sem norska lögreglan hefur hafið markvissa baráttu í baráttunni við samtökin. Hér áður fyrr voru yfir- völd að vinna hver í sínu horni, en nú hafa þessar stofnanir tekið höndum saman í rannsóknum mála. Það hefur verið horft til þess hvernig sænsk lög- regluyfirvöld takast á við vandamálið og þeirra aðferða sem þau nota.“ Fréttamenn Brennipunkts sem unnu að gerð þáttarins hafa ekki enn fengið hótanir að sögn Vibeke. „Við erum mjög meðvituð um að það gæti gerst og því höfum við farið mjög vel yfir öryggismál starfsmanna þáttar- ins og erum við öllu búin,“ segir Vi- beke, en unnið er að fleiri fréttum um Vítisengla í Noregi. Samtök Vítisengla í Noregi hafa stækkað mikið síðustu tvö árin og fært starfsemi sína út á landsbyggðina: Eitt hundrað Vítisenglar í Noregi Í Svíþjóð eru Vítisenglar stærstu glæpasamtökin sem koma að skipulagðri glæpastarfsemi. Meðlimir Vítisengla eru á bil- inu 100 til 120 talsins. Fjölmargir áhangendaklúbbar fylgja samtök- unum og þegar þeir eru taldir með eru meðlimirnir á bilinu 500 til 600 talsins. Að auki eru fjölmörg önn- ur glæpasamtök með alþjóðlegar tengingar, svo sem frá Balkanskaga, Eystrasaltsríkjunum og Evrópu. Borga mánaðargjald Tommy Hydfors segir að það sé auð- velt að komast inn í raðir Vítisengla – en mjög erfitt að losna úr samtök- unum. „Einstaklingur í áhangenda- klúbbi Vítisengla þarf að greiða fé- lagsgjald til Vítisengla sem er um 18 þúsund krónur á mánuði. Ef mað- urinn hins vegar vill losna þarf að borga tæpar tvær milljónir til Vít- isenglanna – bara til að komast út. Það segir sig sjálft að mjög fáir hafa efni á því að borga þessa upphæð. Lögreglan bendir ungu fólki sem hefur áhuga á að gerast meðlimir í þessum klúbbum að það sé mjög hættulegt og að það ætti að hugsa sig tvisvar um áður en það sækir um aðild.” Sextíu prósent afbrota í skipu- lagðri glæpastarfsemi í Svíþjóð tengjast fíkniefnum, að sögn Tomm- ys. „Það er einnig talsvert um fjár- kúganir og rán. Þá tengjast þessi alþjóðlegu glæpasamtök vændi og mansali,“ segir Tommy en verndar- þjónusta á vegum glæpasamtaka til fyrirtækja er ekki mjög algeng í Svi- þjóð þótt hún sé vissulega til staðar. Koma sér vel fyrir Aðalmeðlimir Vítisenglanna lifa góðu lífi. Eiga fína bíla og búa í glæsihúsum, að sögn Tommys. „Þeir eru með mikla peninga á milli handanna og nýta öll ráð til að koma peningum í umferð. Þeir hafa stofn- að fyrirtæki um alls kyns starfsemi og þeir nota þau til að þvo peninga, sem þeir nota svo til fjárfestinga, til dæmis í fasteigna- og byggingariðn- aðinum.” Allt snýst um dópið Þegar Tommy er spurður hvaða áhrif það hafi á Íslenskt samfélag að MC Iceland verði fullgildir með- limir Hells Angels svarar hann. „Ég hef hugsað talsvert um það hvað þessi glæpasamtök séu að vilja til Ís- lands þar sem einungis búa um 300 þúsund manns. Um sextíu prósent af starfsemi Hells Angels í Svíþjóð snúast um fíkniefni og það ætti ekk- ert að verða öðruvísi á Íslandi. Það verður án efa barátta milli glæpa- hópanna um yfirráð á fíkniefna- markaðnum.” Mikill vilji til aðgerða Sænska ríkisstjórnin ákvað í fyrra að setja á fót sérsveit sem berst gegn skipulagðri glæpastarfsemi í Svíþjóð, en sveitin hóf störf 1. júlí í fyrra. Í sérsveitinni eru um 200 manns sem rannsaka mál og koma rannsóknum í farveg er viðkoma alþjóðlegri og skipulagðri glæpa- starfsemi í Svíþjóð. Yfir þessari sveit er samræmingarhópur þar sem Tommy gegnir formennsku. „Í þess- ari sveit eru aðallega lögreglufor- ingjar sem hafa mikinn vilja til að berjast gegn þessu vandamáli. Sam- ræmingarhópurinn hittist reglulega til að ákveða hvaða mál sveitin á að rannsaka.” Eigur gerðar upptækar Sérsveitin vinnur mjög náið með saksóknaraembættinu, tollayfir- völdum, skattayfirvöldum og landa- mæraeftirlitinu. „Samstarf þess- ara stofnana hefur gefið mjög góða raun. Ef ekki er hægt að koma þess- um glæpamönnum í fangelsi er mikill möguleiki, með samstarfinu, að gera eigur þeirra upptækar sama hvort um peninga, mótorhjól, bíla eða aðrar eignir að ræða. Síðustu átta mánuði höfum við gert mikið magn peninga upptækt ásamt öðr- um eignum. „Follow the money” Aðspurður segir Tommy að vissulega sé þetta þekkt aðferð; að elta pen- ingana. En það sé ekki nóg. „Auðvit- að þarf að elta peningana en við vilj- um einnig koma þessum mönnum í fangelsi – koma þeim úr umferð. Um leið og við förum að elta slóð pening- anna finnum við fleira fólk sem teng- ist inn í þessa heima og eltum það einnig uppi. Í samræmingarhópnum sitja fulltrúar þessara stofnana sem við vinnum með og þar eru tekn- ar ákvarðanir um hvernig mál skuli meðhöndluð – það vinna allir saman að settu markmiði og ákvarðanir eru teknar á skjótan hátt.“ Mikill árangur Frá því sérsveitin var sett á laggirnar hafa fjölmargar ákærur verið gefn- ar út. „Bara í einu máli voru 25 að- ilar handteknir og einhverjir þeirra ákærðir. Það hefur mikið magn pen- inga verið gert upptækt, fíkniefni og eignir. Lögreglan getur ekki unnið ein að þessum málum. Það verður að vinna að rannsókn á skipulagðri glæpastarfsemi í samvinnu við tolla- og skattayfirvöld því þannig náum við að púsla heildarmyndinni saman. Hjá hverri stofnun eru upp- lýsingar sem við getum nýtt okkur í rannsókn mála og þannig náum við að púsla öllu saman.” SVÍAR LEITA AÐ SLÓÐ PENINGANNA Ef maðurinn hinsvegar vill losna þarf að borga tæpar tvær milljónir til Vítisenglanna. Sænska ríkisstjórnin ákvað í fyrra að koma á fót sérsveit yfirmanna í lögregluliði Svíþjóðar og yfir sveitinni er samráðshópur sem í sitja fulltrúar ákæruvaldsins, skattayfirvalda, tollayfirvalda og landamæraeftirlitsins, auk lögreglunnar. Yfir-maður hópsins hefur mikið velt fyrir sér hvað Vítisenglar vilji til Íslands og telur að það snúist að mestu um fíkniefnasölu. Bregðist strax við Viðmælendur DV leggja allir áherslu á að koma verði í veg fyrir að Vítisenglar nái að skjóta rótum með starfsemi sína. Annars verði mjög erfitt að eiga við þá. MYND NRK BRENNPUNKT Stjórnar rannsóknum Tommy Hydfors er yfirmaður samráðshóps lögreglunnar í Svíþjóð sem fer með rannsókn skipulagðrar glæpastarfemi þar í landi. MYND SÆNSKA LÖGREGLAN NÆST Hvernig íslensk lögregluyfirvöld standa gegn alþjóðlegri og skipu- lagðri glæpastarfsemi. Þeir þurfa sífellt að finna leiðir til að koma peningum úr fíkniefna- heiminum í umferð og eru farnir að nota viðskiptalífið til þess. Norska lögreglan hefur fundið slóð pen- inga Vítisengla inn í fasteigna- og byggingariðnaðinn, sem og inn í veitingahúsarekstur og aðra hefð- bundna atvinnustarfsemi. Margir meðlima Vítisengla í Noregi hafa búið til fyrirtæki á þeirra eigin nöfnum sem þeir nota til að kaupa eignir og koma þannig „svörtum” peningum samtakanna í umferð – með öðrum orðum; að þvo pening- ana. Samstarfið nauðsynlegt Í Svíþjóð, Danmörku og Noregi er mikil samvinna milli skatta- og tollayfirvalda við lögregluyfirvöld. Lögreglumenn sem DV hefur rætt við á Norðurlöndunum segja að samstarf sem þetta sé nauðsyn- legt í baráttunni við alþjóðlega glæpastarfsemi. Þarna sé tryggt að allar upplýsingar berist fljótt við rannsókn mála. Þannig sé hægt að koma því fólki sem er í fram- varðasveitum glæpastarfseminnar í mikil vandræði og hefta för þess og að lokum koma því á bak við lás og slá. Ógnandi tilburðir Meðlimir Vítisengla sem ákærðir eru mæta í réttarsal í fullum skrúða – í kirfilega merktum vestum sem hræða vitnin og þau muna oft ekki neitt eða breyta frásögn sinni. MYND NRK BRENNPUNKT Allt gert til að koma þeim úr bænum Íslendingur sem býr í fremur litlum bæ fyrir utan Ósló segir sveitarstjórn og lögreglu berjast af miklu afli gegn Vítisenglum. Hann vill ekki koma fram und- ir nafni. „Vítisenglarnir byggðu sér klúbbhús hér í bænum og reistu varnarvegg í kringum húsið. Yfirvöld hérna breyttu þá reglum og létu fjarlægja girð- inguna. Lögreglan í bænum er einnig mjög dugleg við að stöðva meðlimi Vítisengla hvar sem þeir eru og reyna að trufla starfsemi þeirra á allan mögu- legan máta. Íbúarnir eru lang- þreyttir á þessu ástandi og vilja fá þessa starfsemi burt úr bæn- um – og þetta er að gerast um allan Noreg.“ Stækka hratt Vítisenglar í Noregi hafa skipulagt sig og starfsemin aukist hratt. Hér er eitt klúbbhúsa þeirra í Noregi. MYND NRK BRENNPUNKT Brugðust of seint við Vibeke Haug, ritstjóri Brennpunkt, segir Norðmenn hafa brugðist of seint við hættunni af Vítisenglum. 10 MIÐVIKUDAGUR 10. mars 2010 FRÉTTIR FRÉTTIR 10. mars 2010 MIÐVIKUD AGUR 11 Sigríður Björk Guðjónsdóttir lögreglustjórinn á Suðurnesjum vill auknar rannsókn arheimildir: Bönnum Vítisengla á Íslandi Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lög- reglustjóri á Suðurnesjum, segir ís- lensk lögregluyfirvöld standa ágæt- lega þegar kemur að baráttunni gegn alþjóðlegri glæpastarfsemi. „Boðleiðirnar á milli okkar og annarra lögregluliða erlendis hafa styst verulega þannig að tím- inn sem fer í að rannsaka mál sem teygja anga sína til annarra landa hefur minnkað,“ segir Sigríður og er þar að vísa í starf Arnars Jenssonar sem er fulltrúi íslenskra lögregluyf- irvalda hjá Evrópulögreglunni. Og Sigríður bætir við: „Við erum einn- ig með mjög öfluga rannsóknarlög- reglumenn sem eru vel menntaðir, hafa víðtæka þekkingu og eru dug- legir að afla sér endurmenntunar.“ Það sem helst vanti séu forvirk- ar rannsóknarheimildir sem geri lögreglu kleift að fara í rannsókn- ir á fólki sem talið er að tengist skipulagðri glæpastarfsemi. „Við þurfum að geta hafið rannsókn og hleranir á einstaklingum sem við teljum líklegt að tengist skipulagðri glæpastarfsemi án þess að hafa rökstuddan grun um það og fá úr- skurð dómara um hleranir byggðan á okkar ástæðum. Þetta fyrirkomu- lag yrði alls ekki eftirlitslaust og ég sé fyrir mér einhvers konar eftir- litsnefnd sem myndi fara í gegnum okkar aðgerðir þannig að eftirlitið yrði mjög mikið,“ segir Sigríður. Aðspurð hvort leggja þurfi meira fjármagn til lögreglunnar segir Sig- ríður að það fari eftir því hvern- ig málin þróist þegar kemur að al- þjóðlegri glæpastarfsemi. „Við í lögreglunni teljum okkur auðvitað alltaf þurfa meiri peninga og fleira fólk og þannig hefur það alltaf ver- ið. Varðandi skipulagða glæpa- starfsemi þá höfum við séð það erlendis að mál sem tengjast Vít- isenglunum og vélhjólagengjun- um hafa verið mjög mannfrek fyrir lögregluna. Í Danmörku er til dæm- is nýbúið að ráða inn 180 lögreglu- menn sem hafa það eina verkefni að fylgjast með og rannsaka vél- hjólagengin og þá eru þeir ótald- ir sem þar voru fyrir. Það er alveg ljóst að ef það sama gerist hér og hefur gerst á hinum Norðurlönd- unum, að það komi til átaka á milli glæpagengja, þá verða aðgerðir til að sporna við því gríðarlega kostn- aðarsamar. Rannsóknir sem tengj- ast alþjóðlegri glæpastarfsemi eru bæði mannafls- og tímafrekar og auðvitað kostnaðarsamar.“ Sigríður segir nauðsynlegt að skoðað verði til hlítar hvort hægt sé að banna Vítisengla á Íslandi. „Það á klárlega að kanna þann mögu- leika – allavega að banna að merki samtakanna sé notað. Það eru mjög mörg lönd að berjast við þennan vanda. Hér á Íslandi er vandamálið ekki orðið eins stórt og við verðum að reyna að hindra að svo verði.“ Yfirtollvörður segir meginhlutverkið að koma í veg fyrir smygl á fíkniefn um inn í landið: Búum á eyju og eigum að gera betur Kári Gunnlaugsson, yfirtollvörður á Keflvíkurflugvelli, segir að mikilvæg- asti tíminn til að takast á við alþjóð- lega og skipulagða glæpastarfsemi sé núna. „Við sjáum hvað er að ger- ast á Norðurlöndunum í dag og lít- um kannski sérstaklega til Danmerk- ur. Þar eru um og yfir tvö hundruð lögreglumenn, starfsmenn tolls- og skattayfirvalda sem eru bara að sinna málum sem tengjast skotárásunum á milli glæpagengjanna. Það var byrjað of seint að vinna skipulega í þessum málum og það er búið að missa alla stjórn á þessu.“ Kári segir að greiningarstarf tolls- ins sé mjög mikilvægt. Meginhlut- verk starfsmanna tollsins sé að varna því að einstaklingar komist með fíkniefni inn í landið. „Við söfnum saman upplýsingum og þær eru nýtt- ar til eftirlitsins. Það er okkar hlut- verk að vernda samfélagið fyrir því að fíkniefni og óæskilegir einstaklingar komi til landsins. Upplýsingar eru grunnur allrar löggæslu,“ segir Kári og nefnir dæmi. „Það er að koma vél frá útlöndum og starf tollvarðarins er að greina þá út sem eru að brjóta af sér frá þeim sem koma hingað til lands sem ferðamenn. Það sama á við um vöruinnflutninginn. Grein- ingarvinna er ein af máttarstoðum tollgæslunnar. Það eru kannski um tvö þúsund manns að fara hér í gegn- um flugstöðina á tveimur klukkutím- um. Við erum kannski að stoppa 10 til 20 manns af þessum tvö þúsund farþegum og með enn dýpri grein- ingu fækkar í hópnum sem verður skoðaður. Með þessari vinnu höfum við náð miklu magni af fíkniefnum.“ Tollgæslan er í miklu samstarfi við tollayfirvöld víða um heim og íslensk tollayfirvöld hafa aðgang að gagna- bönkum sem hafa að geyma upplýs- ingar um brotamenn og annað er við- kemur rannsóknum mála. „Erlend samvinna er mjög mikilvæg og eyk- ur okkar möguleika á að ná árangri til muna. Samstarf innlendra aðila er einnig mjög mikilvægt, svo sem toll- gæslu, lögreglu, landhelgisgæslu og skattsins,“ segir Kári og hann vill sjá enn frekara fjármagn sett í tollgæslu- mál. „Starfsmenn tollsins vinna sitt starf mjög vel, en við náum ekki að komast yfir allt það sem við myndum vilja. Við búum á eyju og við eigum möguleika á að gera enn betur.“ Fagnar dómi Sigríður Björk stóð í ströngu ásamt starfsfólki sínu við rannsókn mansalsmálsins. Hún fagnar dómi héraðsdóms yfir mönnunum. MYND KRISTINN Skannar farþega Kári Gunnlaugsson yfirtollvörður stjórnar öllu leitarstarfi tollsins á Keflavíkurflugvelli. MYND KRISTINN Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, hefur um árabil talað fyrir heimildum lög- reglu til forvirkra rannsóknarað- gerða. „Það sem ég hef bent á lengi og tel að skorti er að lögreglan hafi skýrari heimildir, til dæmis til for- virkra rannsóknaraðgerða þegar um skipulagða brotastarfsemi er að ræða. Íslensk lögregluyfirvöld hafa talað fyrir þessu lengi og ekki fengið þá áheyrn á Alþingi sem ég tel að þurfi að vera fyrir hendi. Við erum einfaldlega að fást við brotastarfsemi sem teygir anga sína til allra landa og ef við höfum ekki sömu tæki og tól til að fást við þessa starfsemi og félagar okkar í nágrannalöndunum, þá verðum við veikasti hlekkurinn í keðjunni og bjóðum hættunni enn frekar heim.“ Aukið fé til löggæslu Spurður hvort ekki sé hætta á að slíkar heimildir séu misnotað- ar segir Stefán að það sé eðlilegt að fólk velti þeim hlutum upp. „Lögreglan er undir mjög stífu og miklu eftirliti í dag. Það eftirlit er meðal annars hjá ríkissaksókn- ara, hjá dómsmálaráðuneytinu, umboðsmanni Alþingis og dóm- stólum. Við þurfum að bera und- ir dómstóla kröfur um húsleitir, símhleranir og annað í þeim dúr. Samhangandi tillögum okkar um forvirkar aðgerðir er að auka enn frekar þetta eftirlit. Ég sé fyrir mér að það verði skipuð sérstök nefnd þingmanna eða nefnd skipuð af þinginu sem hafi eftirlit með öllu því sem lögreglan er að gera. Það er gríðarlega mikilvægt að lögregl- an fari vel með þessar heimildir sínar.“ Aukið fé til löggæslu sé eitt af þeim atriðum sem auki líkurnar á því að lögreglu takist að berjast af alefli við þessa tegund af glæpa- starfsemi. „Eitt af því sem þarf að skoða sérstaklega, svo við séum eins vel í stakk búin og kostur er, er að efla og styrkja löggæslu. Það gerist bæði með því að tryggja gott og öruggt starfsumhverfi en líka með því að hafa öflugan og fjölmennan mannskap til að tak- ast á við þetta allt saman. Ég held að það hafi gengið bærilega að halda þessari þróun í skefjum en við megum ekki sofna á verðinum og verðum að herða á baráttunni svo við lendum ekki í sömu stöðu og Norðurlöndin,“ segir Stefán og leggur mikla áherslu á að enginn megi sofna á verðinum, hvorki lögregla, almenningur, né löggjaf- arvaldið. Vill banna Vítisengla Stefán er harður á því að banna eigi starfsemi Vítisengla á Ís- landi. „Ég tel að það eigi að banna öll glæpasamtök – alveg sama hvað þau heita. Ég tel að slíkt bann rúmist innan þeirra heimilda sem stjórnarskráin og mannréttindasáttmálinn setja okkur. Við treystum okkur sam- kvæmt lögum til að banna áfeng- isauglýsingar og við hljótum því að geta bannað starfsemi glæpa- samtaka.“ Aðspurður hvort hann telji að þingmenn skilji í raun og veru hvað ástandið geti orðið slæmt hér á landi verði slegið slöku við segir Stefán marga þeirra hafa ágætis skilning á málinu. „Þegar lögreglan bendir mönnum á leið- ir sem hjálpa lögreglu í barátt- unni gegn alþjóðlegum og skipu- lögðum glæpasamtökum þá eiga þingmenn sérstaklega að leggja við hlustir. Ef þingmenn hafna til- lögum lögreglu varðandi bann við skipulögðum glæpasamtökum og heimildir til forvirkra rannsókn- aragerða, þá þurfa þeir að hafa til þess mjög skýr rök.“ Stefán Eiríksson lögreglustjóri segir nauðsynlegt að lögregl- an fái heimildir til forvirkra rannsóknaraðgerða. Ísland megi ekki vera veikasti hlekkurinn í keðjunni þegar kemur að rannsóknum mála sem tengjast alþjóðlegri glæpastarfsemi. Ég tel að það eigi að banna öll glæpasamtök – alveg sama hvað þau heita. JÓHANNES KR. KRISTJÁNSSON blaðamaður skrifar: johanneskr@dv.is TEYGJA SIG TIL ALLRA LANDA Lögreglu- stjórinn Stefán Eiríksson hefur um árabil talað fyrir nauðsyn þess að íslensk lögregluyf- irvöld fái heimildir til forvirkra rann- sóknaraðgerða. MYND GÚNDI   VILJA RÝMRI HEIMILDIR TIL HLERANA Í dag þarf lögregla að leita til dóm- ara til að fá heimild til símhlerana og þarf rökstuddur grunur lögreglu að liggja fyrir þeim beiðnum sam- kvæmt 84. grein sakamálalaga. Ef dómari metur það svo að sá sem á að hlera standi í einhvers kon- ar brotastarfsemi, byggt á gögnum lögreglu, þá heimilar hann hleran- ir með úrskurði. Það sem forvirku heimildirnar ganga hins vegar út á er að lögregla þurfi ekki rökstudd- an grun til að hlera eða rannsaka einstakling með hefðbundnum eða óhefðbundnum hætti. Tökum dæmi: Hér á landi býr útlendingur sem hefur enga löglega atvinnu, en þiggur atvinnuleysisbætur. Hann ekur um á dýrum bíl og býr í stóru einbýlishúsi. Lögreglan telur all- ar líkur á því að þessi einstakling- ur standi að einhvers konar brota- starfsemi – þótt hún hafi ekki rökstuddan grun um það. Lögreglan leitar þá til dómara og óskar eftir því að fá að hlera og rannsaka þennan einstakling með þeim aðferðum sem til þarf. For- virkar rannsóknarheimildir virka þá þannig að lögregla getur hafið rann- sókn á manninum án þess að fyrir liggi rökstuddur grunur. Með þess- um aðferðum væri hægt að koma upp um einstaklinga hér á landi sem stunda alþjóðlega og skipulagða glæpastarfsemi. Í dag eru þessir einstaklingar tiltölulega óhultir þar sem þeir hafa mörg lög af undir- mönnum í vinnu hjá sér sem fremja glæpina. Það eru þeir sem nást með fíkniefnin, við innbrotin og í öðrum glæpum. Það hefur reynst erfiðara að ná til þeirra sem eru efst í virð- ingarstiganum. Brottvísun glæpamanna mikilvæg Annað sem nefnt hefur verið sem mikilvægur hlekkur í baráttunni gegn alþjóðlegri glæpastarfsemi er að koma erlendum einstakling- um úr landi þegar þeir hafa feng- ið á sig dóma eða eru byrjaðir að brjóta af sér. Um leið og útlending- ur er dæmdur til fangelsisvistar á Íslandi kannar Fangelsismálastofn- un hvort unnt sé að flytja fangann til heimalands síns til afplánunar. Þetta á einungis við um lönd sem eru að- ilar að Evrópusamningi um flutn- ing dæmdra manna. Ef það úrræði á ekki við afplánar fanginn refsing- una hér heima. Jafnframt þessu til- kynnir Fangelsismálastofnun það til Útlendingastofnunar þegar erlend- ur einstaklingur er dæmdur til fang- elsisvistar hér á landi og óskar eftir svörum um hvort viðkomandi ein- staklingi verði vísað úr landi að af- plánun lokinni. Ef Útlendingastofnun ákveður að vísa eigi fanganum úr landi er hon- um veitt reynslulausn eftir að hafa af- plánað helming refsitímans og hann fluttur úr landi daginn sem reynslu- lausnin hefst. Öðru máli gegnir um fanga sem koma frá löndum utan Schengen-svæðisins. Lögreglan eigi frumkvæði Í skýrslu vinnuhóps um möguleika stjórnvalda til að efla eftirlit og við- brögð við brotastarfsemi útlendinga hér á landi er lagt til að lögreglan eigi frumkvæði að því að óska eftir brott- vísun glæpamanna úr landi. Mikil- vægt sé að erlendir glæpamenn sem hér búa geti ekki safnað brotum án þess að gripið sé inn í af hálfu lög- reglunnar og annarra yfirvalda. Lög- reglan sjái þá um gagnaöflun varð- andi einstaklinginn og komi fram með óskir um að honum skuli vísað af landi brott. Slík afgreiðsla mála hafi mikil varnaðaráhrif. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur nú þegar beitt þessu úrræði í máli pólska inn- brotagengisins og hefur nokkrum þeirra sem voru dæmdir til fangels- isvistar nú þegar verið vísað úr landi. Snýst allt um peninga Glæpaheimurinn er háþróaður í dag. Allt snýst um að ná í peninga – hvern- ig sem það er gert - og aðferðirnar eru sífellt að breytast og aðlagast hverju samfélagi fyrir sig. Þeir sem hafa unnið hvað mest í greiningarvinnu á skipulagðri glæpastarfsemi segja að það þurfi að nálgast glæpahóp- ana eins og fyrirtæki. Þekkingin til að framkvæma hluti sé aðkeypt og sér- fræðingar sem sérhæfa sig í ákveðn- um afbrotum séu notaðir til verka. Miklu fjármagni sé eytt í undirbún- ing því ávinningurinn af brotinu sé margfalt hærri. Það sé þó tilhneigin- gin að glæpahóparnir fari inn á þau svið afbrota sem mest gefa með sem minnstum tilkostnaði. Þegar bara er litið til fíkniefnanna er ávinningurinn mikill. Samkvæmt stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar sem ber heitið „Ráðstafanir gegn innflutningi ólög- legra fíkniefna“ frá því í nóvember 2007 kemur fram að götuvirði hald- lagðra fíkniefna árið 2006 hafi numið tæpum fimm milljörðum króna sem gera um 16 þúsund krónur á hvern einasta Íslending. Aðferðir smyglaranna breytast Samkvæmt sömu skýrslu kemur fram að starfsmenn tollayfirvalda hér á landi séu mun fleiri á hvern íbúa en á Norðurlöndum. Það hlýtur að teljast styrkur tollgæslunnar, auk þess sem tiltölulega fáar hafnir og flugvellir eru umhverfis landið þar sem reynt er að smygla fíkniefnum. Að sama skapi breytast aðferðir dópsmyglaranna við að smygla fíkniefnum til landsins og nægir þar að horfa til skútumálsins svokallaða. Þar að auki er strandlengja Íslands löng og starfsmenn tollgæslu um 110 talsins. Samkvæmt orðum yfirmanna stærstu embætta lögreglunnar hér á Íslandi er menntun lögreglumanna al- mennt góð og endurmenntun þeirra einnig. Tækjabúnaður lögreglu til rannsókna sé yfirhöfuð góður og nýt- ist vel. Hvað varðar mannafla sé ljóst að lögreglan þurfi meiri mannskap til að standa að rannsóknum mála sem tengjast alþjóðlegri glæpastarfsemi. Þetta séu mál sem teygi anga sína út fyrir landsteinana og geti verið flókin og tímafrek í rannsókn. Allir þeir sem koma að þessum málum eru sammála um að yfirvöld þurfi að setja meira fjármagn í þennan málaflokk. Samræmingarhópur nauðsyn Samstarf milli stofnana hér á Íslandi virðist nokkuð gott og hefur lög- regla leitað til meðal annars skatt- rannsóknarstjóra og tollayfirvalda um aðstoð við rannsókn mála. Með- al annars tók embætti skattrann- sóknarstjóra þátt í rannsókninni á mansalsmálinu sem dæmt var í á mánudag. Þó er ekki um eiginleg- an samræmingarhóp að ræða sem hefur ákveðið verksvið eða reglur að styðjast við. Það er þó talið nauðsyn- legt til að gera samstarfið árangurs- ríkara í baráttunni við alþjóðlega og skipulagða glæpastarfsemi. 3. hluti Lögregluyfirvöld telja nauðsynlegt að fá leyfi fyrir svokölluðum forvirku m rannsókn- arheimildum til að auðvelda baráttuna gegn alþjóðlegri glæpastarfsemi. Þessar heim- ildir eru til staðar í öllum Evrópulöndunum utan Íslands og eru rannsók nir þá fram- kvæmdar af leyniþjónustum eða öryggislögreglu viðkomandi landa. JÓHANNES KR. KRISTJÁNSSON blaðamaður skrifar: johanneskr@dv.is Í dag eru þessir einstaklingar tiltölulega óhultir þar sem þeir hafa mörg lög af undirmönnum í vinnu hjá sér sem fremja glæpina. Dópið innvortis Einstaklingar leggja það á sig að gleypa fíkni- efnin sem getur verið stórhættu- legt. Hér sjást nokkrir pokar af kókaíni í maga burðardýrs. MYND TOLLGÆSLAN KEFLAVÍKURFLUGVELLI Burðardýr Ýmsar aðferðir eru notaðar við að koma fíkniefnum til landsins. MYND TOLLGÆSLAN KEFLAVÍKURFLUGVELLI NÆST Vilja stjórnvöld fara eftir tillögum lögreglu um rýmkaðar heimildir til rannsókna? Ítarleg umfjöllun DV hefur fjallað ítarlega um alþjóðlega glæpastarfsemi á Íslandi. sem DV hefur rætt við segja að þeir vilji að málið komi á dagskrá þings- ins þar sem það verði rætt. Huga þurfi sérstaklega að eftirlitshlut- verkinu með þessum auknu heim- ildum og hefur bæði lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins og dóms- málaráðherra sagt að eftirlitið sé mjög mikilvægt. Í umfjöllun DV hafa yfirmenn löggæslumála í land- inu sagt að þessar heimildir séu einna mikilvægastar í baráttunni gegn alþjóðlegri glæpastarfsemi. Hætta á frekari glæpum Yfirmenn íslensku lögreglunnar segja að verkefnum tengdum skipu- lögðum glæpahópum muni fjölga og sérstaklega ef Hells Angels ná fótfestu á Íslandi. Dómsmálaráð- herra, auk lögreglustjóra stærstu lögregluembættanna, vill láta á það reyna hvort hægt sé að banna sam- tökin hér á landi. Lögregluyfirvöld í Svíþjóð, Noregi og Danmörku eiga í mikilli baráttu við Vítisengla og er ástandið einna verst í Danmörku. Skilaboðin frá lögreglumönnum í þessum löndum til Íslendinga eru þau að Ísland verði að bregðast hart við í baráttunni gegna skipulagðri glæpastarfsemi. Starfsmenn lög- gæslu á Íslandi hafa í gegnum tíð- ina haldið því fram að það sem ger- ist á Norðurlöndum komi hingað til lands tíu árum síðar, en nú sé þessi tími að styttast. Dæmdir Í löndum Evrópu hefur gengið erfiðlega að fá skipuleggj- endur mansals dæmda. Tímamóta- dómur var kveðinn upp á mánudag þegar fimm Litháar voru dæmdir til fimm ára fangelsisvistar. Þeim dómi hefur nú verið áfrýjað. MYND RÓBERT REYNISSON Félags- og tryggingamálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna Evrópuárs 2010 sem er tileinkað baráttunni gegn fátækt og félagslegri einangrun. Til ráðstöfunar eru 35 milljónir króna. Verkefni og rannsóknir verða að jafnaði styrkt um að hámarki 80% af heildarkostnaði verkefnis. Mótframlagið getur verið í formi vinnuframlags eða fjármagns. Verkefnum og rannsóknum skal ljúka á árinu 2010. Sérstök áhersla verður lögð á að styrkja verkefni sem auka fjölbreytni við úrræði og námskeið til að bæta aðstæður tekjulágra hópa og fjölskyldna, atvinnulausra og fólks með skerta starfsgetu, verkefni sem vinna gegn fordómum sem einstaklingar upplifir vegna aðstæðna sinna og sem ýta undir félagslega virkni fólks sem hætt er við einangrun vegna langtímaatvinnuleysis eða bágra aðstæðna. Verkefni geta til dæmis verið í formi rannsókna, átaksverkefna, námskeiða, fræðslu og kynningarherferða. Umsóknir um verkefni sem fjalla einnig um mismunun á grundvelli aldurs, kyns, fötlunar, kynþáttar og uppruna, kynhneigðar eða trúar eru litnar jákvæðum augum. Styrkir verða almennt veittir félögum, samtökum og opinberum aðilum. Einstaklingum verða að jafnaði einungis veittir styrkir til rannsókna. Umsóknarfrestur er til og með 2. apríl næstkomandi. Sótt skal um styrk á sérstöku umsóknareyðublaði sem unnt er að nálgast í afgreiðslu félags- og tryggingamálaráðuneytisins eða á heimasíðu þess www.felagsmalaraduneyti.is Þar eru einnig birtar úthlutunarreglur sjóðsins. Nánari upplýsingar eru veittar hjá félags- og tryggingamálaráðuneytinu í síma 545 8100, á heimasíðu þess eða með tölvupósti á postur@fel.stjr.is Auglýst eftir styrkumsóknum til verkefna tengdum Evrópuári 2010 gegn fátækt og félagslegri einangrun Borgartúni 25 | Reykjavík | Sími 570 4000 | raudakrosshusid@redcross.is | www.raudakrosshusid.is | Opið virka daga kl. 12-17 Ókeypis námskeið og ráðgjöf Mánudagur 15. mars Miðvikudagur 17. mars Fimmtudagur 18. mars Qi – Gong - Viðar H. Eiríksson kennir fólki að a a, varð- veita og dreifa orku um líkamann. Tími: 12.00-13.00. Gönguhópur - Klæddu þig eftir veðri. Tími: 13.00 -14.00. Íslenskuhópur - Ertu búin/n að læra íslensku en þarft að æfa þig í að tala? Tími: 13.00 -14.00. Markmiðasetning - að láta draumana rætast - Ingrid frá Þekkingarmiðlun †allar um leiðir til að láta draumana rætast. Tími: 13.30-14.30. Vinnum saman - Ný viðhorf (Bý†ugurnar) - Vertu með í skapandi hópi atvinnuleitenda. Tími: 14.00-16.00 Baujan sjálfstyrking - Fullt! Tími: 15.00 -17.00. Skiptifatamarkaður - Barnaföt - Tími: 16.00 -18.00. Fluguhnýtingahópur - Komdu með uguhnýtinga- stand ef þú getur. Tími: 12:00 -13.30. Saumasmiðjan - Breytt og bætt. Tími: 13.00-15.00. Ísgerð - Lærðu að gera gómsætan ís. Tími: 13:30 -14.30 Þýskuhópur - Við æfum okkur í þýsku. Tími: 14.00-14.45. Frönskuhópur - Við æfum okkur í að tala á frönsku um hús og híbýli. Tími: 15:00 -15.45. Jóga - Viltu prófa jóga? Tími: 15.00-16.00. Art of living - Sunil frá Indlandi kennir öndun, hug- leiðslu og listina að lifa í núinu. Tími: 12.30-13.30. Gönguhópur - Klæddu þig eftir veðri. Tími: 12.30 -13.30. Spurningakeppni - Keppt í liðum sem myndast á staðn- um. Sýndu hvað þú kannt! Tími: 14.00 -15.00. Hláturjóga - Viltu losa um spennu? Tími: 15.30-16.30. Föstudagur 19. mars Allir velkomnir! Tölvuaðstoð - Persónuleg aðstoð. Komdu með fartölvu ef þú getur. Tími: 13.30-15.30. Páskahátíðin - Árni Björnsson þjóðháttafræðingur †all- ar um hvaðan hinir ýmsu siðir koma. Tími: 14.00 -15.00. Áhugasviðsgreining - Könnun og fagleg ráðgjöf. Skráning nauðsynleg. Tími: 14.00 -16.00. Ráðgjöf fyrir inn†ytjendur - Sérsniðin lögfræðiráð- gjöf og stuðningur við inn ytjendur. Tími: 14.00 -16.00. Briddsklúbbur - Hefur þú gaman af bridds? Langar þig að læra bridds? Tími: 14.00-16.00. Líðan atvinnuleitenda - Umræður og vinnuhópar Félagsvinir atvinnuleitenda stjórna. Tími: 15.30-16.30. Þriðjudagur 16. mars Rauðakrosshúsið Inn í hvaða leikrit fæddist þú? - Kolbrún frá Þekking- armiðlun †allar um leiksvið lífsins og hvernig við getum aðlagað okkar hlutverk. Tími: 12.30 -13.30. Er þetta ekki eitthvað fyrir þig? Hvernig stöndumst við álag - Hvað fær okkur til að pirrast og reiðast yœr smámunum? Tími: 12.30 -14.00. Prjónahópur - Komdu og prjónaðu. Tími: 13.00 -15.00. Enskuhópur - Æfðu þig í að tala ensku. Tími: 14.00 -15.00. EFT og djúpslökun - Innleiddu EFT tæknina (Emotional Freedom Techniques) inn í daglegt líf þitt og umbreyttu heftandi viðhorfum. Tími: 15.00 -17.00. Skákklúbbur - Komdu og te du. Tími: 15.30 -17.00.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.