Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2010, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2010, Síða 14
14 FÖSTUDAGUR 12. mars 2010 FRÉTTIR Lögreglustjórar stærstu lögregluum- dæma landsins eru sammála um að heimildir til forvirkra rannsóknar- aðgerða sé mjög mikilvægur þáttur í starfi lögreglunnar til að berjast við alþjóðlega og skipulagða glæpastarf- semi. Ragna Árnadóttir dómsmála- ráðherra segir að þessar tillögur verði skoðaðar innan ráðuneytisins. „Að mínu mati er mjög varasamt að ein- blína á eina lausn og því skiptir máli að vinna að fleiri lausnum á þessum vanda. Ég hef rætt það við lögreglu- stjóra að gerður verði heildstæður aðgerðapakki sem nýtist í baráttunni gegn alþjóðlegri glæpastarfsemi. Ég stefni að því að þessi áætlun verði til- búin í vor, því við verðum að vinna nokkuð hratt í þessum málum.“ Vill banna Vítisengla Til að fylgja þessu eftir hefur dóms- málaráðherra óskað eftir því að fá sér- staka kynningu á alþjóðlegri glæpa- starfsemi frá lögregluyfirvöldum. „Ég tel það einnig mjög gagnlegt að alls- herjarnefnd alþingis fái slíka kynn- ingu. Það er brýnt að lögreglan segi okkur frá hættunni, að því marki sem hún getur því það verða allir að gera sér grein fyrir alvarleikanum. Þetta er enginn leikur og við erum ekkert að tala um einhverja menn á mótorhjól- um sem eru að skemmta sér á þjóð- vegum,“ segir Ragna og á þar við Vít- isengla. „Í stjórnarskránni er ákvæði sem segir að það megi leysa upp fé- lög sem hafi ólögmætan tilgang, en að sama skapi er hér félagafrelsi sem eru grundvallarmannréttindi þannig að þetta er flókið. Stjórnvöld geta því leyst upp félög sem hafa ólögmætan tilgang en það er ekkert sem segir til um það hvernig eigi að gera það. Við erum því að athuga hvort það þurfi löggjöf þegar að þeim degi kemur að það þurfi að grípa til þessa ákvæðis. Ég á von á greinargerð um þetta at- riði 15. mars um þann part sem lýtur að banni. Danir hafa komist að þeirri niðurstöðu að það sé ekki hægt að beita þessu ákvæði en við viljum gera okkar eigin athugun á því.“ Eftirlit nauðsynlegt Ragna segir brýnt að umræða um for- virkar rannsóknarheimildir lögreglu eigi sér stað. „Lögreglan hefur ósk- að eftir heimildum til forvirkra rann- sóknaraðgerða lengi en þessar óskir hafa ekki hlotið hljómgrunn hjá lög- gjafanum. Ég tel að við getum ekki farið í þessa umræðu nema við sjá- um það alveg skýrt fyrir okkur í hvaða tilvikum slíkar forvirkar rannsóknar- heimildir ættu að gilda. Ég tel líka að það verði að skoða hvaða eftirlit eigi að vera með því að lögregla misnoti ekki þessar heimildir. Lögreglu er vel treystandi og hún hefur mikið traust, en ásýndin þarf að vera þannig að þessar aðferðir séu undir eftirliti og að þær sé ekki hægt að misnota. Ég tel að það komi vel til greina að skoða þetta í aðgerðapakkanum. Þessar heimild- ir eru til staðar í nágrannalöndunum og því má spyrja af hverju Íslending- um ætti ekki að vera treystandi fyrir þeim.“ Embætti ríkislögreglustjóra til skoðunar Jóhanna Sigurðardóttir forsætis- ráðherra hefur sagt opinberlega að leggja ætti kalt mat á það hvort leggja ætti embætti ríkislöreglustjóra niður. „Hvað varðar embætti ríkislögreglu- stjóra og umræðu um niðurlagningu þess liggur fyrir ráðuneytinu tillaga þess efnis að færa löggæsluverkefni frá ríkislögreglustjóra til lögreglu- embættanna eftir því sem hagkvæmt þykir – þetta kemur fram í áliti starfs- hóps sem vann tillögur um stækkun og fækkun lögregluumdæma nú fyrr í vetur. Ekki hefur verið tekin endanleg ákvörðun um málið.“ Nauðsynlegt að vinna hratt Til dómsmálaráðherra hefur leit- að fólk sem hefur kynnst alþjóðlegri glæpastarfsemi af eigin raun. „Sumar af þeim sögum, sem eru þó ekki mjög margar, eru mjög óhugnanlegar. Það sem ég hef fengið að heyra er sumt alveg ótrúlegt, að hér séu menn sem tengist skipulagðri glæpastarfsemi, lifi hátt og séu einhvers konar toppar í einhverjum glæpahópum. Ég tel að almenningur átti sig ekki á þessu, en auðvitað er þjóðin meðvituð um að þessi starfsemi er til staðar í samfélag- inu. Möguleikarnir eru góðir sem við höfum til að berjast við þessa starf- semi af alefli, en ég tel að við verð- um að spýta í lófana og vinna hratt að þessum hlutum.“ Það sem ég hef fengið að heyra er sumt alveg ótrú- legt, að hér séu menn sem tengist skipulagðri glæpastarfsemi, lifi hátt og séu einhvers konar toppar í einhverj- um glæpahópum. EKKI BARA MENN Á MÓTORHJÓLUM Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra hefur talað mjög opin- skátt um að nauðsynlegt sé að bregðast við alþjóðlegri glæpa- starfsemi á harðan hátt. Hún vill að gerður verði aðgerðapakki þar sem fram koma leiðir sem gera lögreglu auðveldara að berj- ast við þessa vaxandi ógn í íslensku samfélagi. Dómsmálaráðherra Ragna Árnadóttir vill að það verði skoðað að Vítisenglar verði bannaðir hér á landi. Hún segir nauðsynlegt að vinna aðgerðarpakka gegn alþjóðlegri glæpastarfsemi sem verði tilbúinn í vor. MYND RAKEL ÓSK Jóhann R. Benediktsson, fyrrver- andi sýslumaður á Keflavíkurflug- velli, segir nauðsynlegt að huga að tvennu til að hægt sé að berjast gegn skipulagðri glæpastarfsemi. „Það þarf að hafa einangraða hópa innan lögreglu og tollgæslu sem hafa það verkefni eitt að berjast við þessa starfsemi. Eins og skipan lögreglu er í dag þá er ekki til fjár- magn til að skipa slíka hópa sem einbeita sér að þessu verkefni ein- göngu. Í öðru lagi er lagaramminn ófullnægjandi. Forvirkar rannsókn- arheimildir sem leyniþjónusta eða öryggislögregla nota í öðrum lönd- um vantar. Ég hef lengi haldið því fram að það þurfi þessar heimildir til að fylgj- ast með starfsemi sem talin er hættu- leg fyrir þjóðarhagsmuni. Þessar heimildir höfum við ekki eins og öll önnur Vesturlönd og það eitt að við séum ekki með forvirkar rannsókn- arheimildir gerir það að verkum að þessum hópum mun vaxa fiskur um hrygg hér á landi,“ segir Jóhann og bætir við: „Ég sem sagt tel að aukið fjármagn sem geri lögreglu kleift að mynda teymi sem rannsaka hópa eða einstaklinga um langan tíma og forvirkar rannsóknarheimildir séu það mikilvægasta sem þarf í barátt- una gegn skipulagðri glæpastarf- semi.“ Stjórnmálamenn læri Áður hefur verið reynt að koma heimildum til forvirkra rannsóknar- heimilda í gegnum Alþingi. „Björn Bjarnason, fyrrverandi dómsmála- ráðherra, sýndi þessum málum mjög mikinn skilning og ég tel núverandi dómsmálaráðherra gera það einn- ig. Ég held hins vegar að það hafi ekki náðst pólitísk sátt vegna þess að stjórnmálamönnum var ekki sýnt nógu mikið fram á nauðsyn þess að lögregla fengi þessar rýmri heimildir. Það er augljóst að stjórnmálamenn skortir ákveðinn skilning á þessum málum. Lögregla og dómsmálayfir- völd verða að fræða stjórnmálamenn um það hvers vegna þessi þörf er fyr- ir hendi.“ Svartur heimur Jóhann telur að almenningur átti sig engan veginn á því hvað sé að gerast í undirheimunum. „Ég held að það skorti talsvert upp á það. Ég held að við sem höfum unnið í þessum mál- um sjáum að þessi heimur er bæði svartari og verri en við höfðum sjálf- ir ímyndað okkur – hvað þá almenn- ingur,“ segir Jóhann og í gegnum tíð- ina leitaði fólk til hans með mál sem tengdust undirheimunum. „Við höfum oft fundið fyrir ákveðnum vanmætti og viljað gera meira í ýmsum málum en við höfð- um getu til. Hins vegar er grunn- skylda yfirmanna í lögreglu að skapa traust og búa ekki til ótta og þess vegna er það þannig að lögreglu- stjórar almennt, sem standa fremst- ir í flokki, eiga erfitt með að tjá hug sinn allan því þeir vilja ekki skapa ótta. Þeir telja almenningi trú um að þeir ráði við þessa hluti og gefa kurt- eislega í skyn að eitt og annað gangi á, en auðvitað eru lögreglustjórar í erfiðri stöðu þegar þeir tjá sig um þessi mál.“ Lögreglustjórum fækkað Þegar Jóhann er spurður hvað hon- um finnist um skipan lögreglumála á Íslandi svarar hann því til að hann vilji sitja á friðarstóli þar sem hann sé hættur sem lögreglustjóri á Suður- nesjum. „Ég ætla því hvorki að gagn- rýna menn né embætti. Ég er hins vegar almennt hlynntur því að emb- ætti séu stækkuð og lögreglustjórum verði fækkað. Ég held að það verði að gera allt sem hægt er, til að nýta betur það fjármagn sem er til staðar í löggæslu til að reyna að efla öryggi borgaranna,“ segir Jóhann og þeg- ar hann er spurður nánar út í þetta svarar hann: „Ég tel að það megi vel skoða það að hnýta betur sam- an embætti ríkislögreglustjóra við embætti lögreglustjórans á höfuð- borgarsvæðinu. Ég hef löngum verið þeirrar skoðunar að sumar starfsein- ingar hjá ríkislögreglustjóra séu bet- ur geymdar annars staðar. Á sama hátt vil ég taka það fram að hjá emb- ætti ríkislögreglustjóra vinnur frá- bært starfsfólk.“ Verður að fræða stjórnmálamenn Jóhann R. Benediktsson, fyrrverandi sýslumaður á Keflavíkur- flugvelli, stóð framarlega í baráttunni gegn alþjóðlegri glæpa- starfsemi þann tíma sem hann sat í embætti. Hann er þeirrar skoðunar að sumar starfseiningar ríkislögreglustjóra eigi að vera annars staðar í kerfinu. Hann segir forvirkar heimildir skipta miklu máli fyrir lögregluna. Vill teymi Jóhann R. Benediktsson telur nauðsynlegt að sérstök teymi einbeiti sér að rannsóknum á skipulagðri og alþjóðlegri glæpastarfsemi. Hann telur fjármagn vanta. MYND RAKEL ÓSK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.