Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2010, Síða 32
32 FÖSTUDAGUR 12. mars 2010 VIÐTAL
Ég er svo ung og er ekki tilbúin í alvarlegt samband með börn-um og öðru sem því fylgir,“ segir fyrirsætan Kristrún Ösp
Barkardóttir en blöðin hafa fjallað mik-
ið um Kristrúnu og samband hennar
við knattspyrnuhetjuna Dwight Yorke.
Aldur er afstæður
Kristrún er tvítug Akureyrarmær og
kynntist fótboltamanninum þegar hún
fór sem au pair til Englands fyrir tveim-
ur árum. Í dag er hún komin heim og
starfar á elliheimili fyrir norðan og lík-
ar vel. Hún er þó alltaf með annan fót-
inn úti hjá Yorke enda afar góðir vinir.
Þegar hún er spurð hvort þau séu par
hikar hún.
„Ég veit eiginlega ekki hverju ég á
að svara. Hann vill að ég flytji út og ég
er mjög hrifin af honum. Hann er heill-
andi, flottur og skemmtilegur en ég
held að ég sé ekki ástfangin. Allavega
ekki enn þá,“ segir Kristrún og bætir
við að hún finni stundum fyrir aldurs-
muninum á milli þeirra en Yorke er 38
ára. „Stundum fer í taugarnar á mér að
hann sé svona miklu eldri en ég finn
sjaldnast fyrir því enda er aldur afstæð-
ur. Það er bara spurning um að vera á
sama stað í lífinu og kannski er hann
núna til í fjölskyldupakkann og verð-
ur orðinn of gamall þegar ég er tilbúin
í það.“
Lét hafa fyrir sér
Kristrún hefur kynnst hinu ljúfa lífi. Á
Englandi dvaldi hún hjá afar efnaðri
fjölskyldu í ríkra manna bænum Alder-
ley Edge. Hjónin sem hún bjó hjá eru í
fjárfestingabraski og á meðal nágranna
þeirra voru Beckham-hjónin, áður en
þau fluttu til LA, auk þess sem knatt-
spyrnumaðurinn og kyntáknið Ron-
aldo á hús í hverfinu.
„Þetta er yndisleg fjölskylda sem
tók mig með sér í ferðalög um alla Evr-
ópu og þar á meðal í tvær skíðaferðir í
frönsku Alpana,“ segir hún og viður-
kennir að það hafi verið viðbrigði að
koma heim aftur til Íslands.
„Það er samt alltaf gott að koma
heim og ég er mjög náin foreldrum
mínum og systkinum. Mamma og
pabbi styðja mig í öllu því sem ég tek
mér fyrir hendur og vita að þau þurfa
ekki að hafa áhyggjur af mér. Ég var
ekkert rólegasti unglingurinn og hef
látið þau hafa fyrir mér en þau vita að
ég er sjálfstæð og ábyrgðarfull. Ef ég er
hamingjusöm og glöð eru þau það líka.
Ég veit samt alveg að ef þau gætu val-
ið mann fyrir mig þá væri hann ekki 38
ára,“ segir hún en Kristrún Ösp á yngri
bróður og eldri systur sem mun eignast
sitt fyrsta barn á næstum dögum.
Allt snýst um útlit
Kristrún fer reglulega út að hitta Yorke
og veit sjaldnast í hvaða ævintýrum
hún mun lenda áður en hún fer af stað.
Fótboltamaðurinn á hús úti um allt
og hefur líka boðið henni í skemmti-
siglingu á skemmtiskipi þar sem þau
dvöldu ásamt knattspyrnumanninum
Andy Cole og hans eiginkonu. Krist-
rún segir margt til í sjónvarpsþáttun-
um Footballers’ wives um lífsstíl þeirra
frægu og ríku. „Þetta snýst rosalega
mikið um útlit og að líta vel út. Þessar
konur eru flestar miklu eldri en ég en
hafa tekið mér ótrúlega vel. Við náum
mjög vel saman, kannski er ég bara
svona gömul sál,“ segir hún og bætir við
að þessum hópi fylgi ekki dóp og rugl.
„Ég hef aldrei prófað eiturlyf en þegar
við erum á flottum skemmtistöðum í
kringum ríkt fólk sem hefur efni á slíku
er manni stundum boðið en ég hef allt-
af sagt nei.“
Lifir sem prinsessa
Kristrún segir vinnuna á elliheimilinu
hjálpa sér við að halda sér á jörðinni
og það sé gaman og gefandi að hugsa
um gamla fólkið. „Ætli ég sé samt ekki
með smá dívustæla þegar ég er nýlent
heima eftir að hafa dvalið úti í prins-
essulífinu mínu. Annars er ég algjör
prinsessa heima líka,“ segir hún hlæj-
andi og bætir við að hún skilji stundum
ekkert í af hverju leigubílstjórar opni
ekki fyrir hana bíldyrnar.
„Ég er hoppandi á milli þessara
tveggja heima og er oft hneyksluð á að
fá ekki betri þjónustu. Ég reyni samt að
fela það nema heima fyrir en mamma
og pabbi eru vön þessum stælum enda
kunna þau á mig.“
Lét hann ganga á eftir sér
Kristrún vissi ekki hver Yorke væri þeg-
ar hann gaf sig á spjall við hana á veit-
ingahúsi í litlum bæ á Englandi. „Við
vinkonurnar vorum á leiðinni yfir á
annan stað þegar hann og félagar hans
komu og þeir eltu okkur yfir og buðu
okkur í glas. Ég lét hann ganga á eftir
mér og ekki batnaði það þegar stelp-
urnar sögðu mér hver hann væri. Þeg-
ar við erum saman þarf hann nánast að
slá kvenfólkið af sér en ég hef alltaf ver-
ið mjög róleg og yfirveguð yfir honum
og hans frægð og það er kannski það
sem hann hrífst af,“ segir hún.
Yorke á barn með glamúrmódel-
inu Katie Price, öðru nafni Jordan. Þau
tvö hafa rifist mikið í fjölmiðlum um
drenginn en Jordan sakar hann um af-
skiptaleysi en hann hana um að leyfa
sér ekki að hitta soninn. Kristrún seg-
ist aldrei hafa hitt Jordan. „Yorke talar
voðalega lítið um hana og hló bara þeg-
ar hún gifti sig um daginn. Hann talar
hins vegar reglulega um son sinn og
sagði mér frá honum fyrsta kvöldið sem
við hittumst. Ég heyri náttúrulega bara
hans hlið en ég held að hann vilji vera
í sambandi við barnið sitt. Jordan er
bara erfið við hann. Þau eru ekki vinir.“
Afþakkaði háar upphæðir
Í fyrra tók Kristrún tók þátt í Ungfrú
Norðurland og hafnaði í fimmta sæti.
Hún afþakkaði keppnisrétt í Ungfrú Ís-
Fyrirsætan Kristrún Ösp Barkardóttir hefur
verið mikið á milli tannanna á fólki vegna sam-
bands hennar við knattspyrnuhetjuna Dwight
Yorke. Kristrún kynntist Yorke þegar hún var au
pair á Englandi. Nú hefur hún kynnst hinu ljúfa
lífi og viðurkennir að það sé erfitt að koma heim
í hversdagsleikann á Íslandi. Hér lýsir Kristrún
Ösp glamúrnum í heimi hinna frægu og ríku,
baktalinu og vinnunni á elliheimilinu sem held-
ur henni niðri á jörðinni.
Hann er heill-andi, flottur og
skemmtilegur en ég held
að ég sé ekki ástfangin.
Falleg Kristrún Ösp reyndi
fyrir sér í fegurðarsamkeppni
en segist betur eiga heima sem
glamúrmódel.
MYND ÞÓRHALLUR PEDRÓMYNDIR
HRÆDD VIÐ AÐ ELDAST