Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2010, Síða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2010, Síða 37
Hvað er að gerast um páskana? Hátíðin Aldrei fór ég suður hefur verið haldin á hverju ári síðan 2004. Feðgarnir Örn Elías Guð-mundsson, Mugison, og Guðmundur Magnús Kristjánsson, Papamug, fengu hugmyndina að hátíðinni yfir bjórglasi árið 2003. Þeim datt það varla til hugar að hátíðin yrði enn þá hald- in sex árum síðar og yrði eins vinsæl og raun ber vitni. Há- tíðin er þekkt fyrir að blanda saman öllu því ferskasta úr íslensku tónlistarlífi við eldri reynslubolta. Hún er haldin föstudag og laugardag fyrir páska. Fólk þarf ekki að hafa áhyggjur af því að verða sér úti um miða á hátíðina því ókeypis er inn á hana. Guðmundur Magnús Kristjánsson segir að upphaf- lega hafi aðeins verið lagt upp með að halda hátíðina í eitt skipti. „Þetta hefur því undið skemmtilega upp á sig. Það hefur gengið vel að fá styrki sem halda þessu gangandi og sömuleiðis gengið vel að fá listamenn til að koma fram á hverju ári.“ Hann segir aðsóknarmet vera slegin á hverju ári og sjáist það best ef litið sé til gistirýmis á Ísafirði. „Það er alltaf uppbókað á hverju ári. Það sama má segja um nágrannabyggðirnar. Á síðasta ári var boðið upp á gist- ingu á Núpi í Dýrafirði og það fylltist allt. Að sama skapi er ekki langt í að allt gistirými verði upptekið í ár,“ segir Guð- mundur sem á von á stórglæsilegri hátíð í ár. Dagskráin Búið er að staðfesta tíu atriði á hátíðina. Þar á meðal eru vinsælustu hljómsveitir landsins, Hjaltalín, Dikta og Blood- group. Athyglisverðasta hljómsveitin er þó eflaust Sólinn frá Sandgerði. Ekki hefur heyrst mikið til þeirrar sveitar en aðdáendur Vaktaþáttanna muna kannski eftir því að Ólafur Ragnar Hannesson var umboðsmaður sveitarinnar í þátt- unum og frændi hans Kiddi Casio, eða Halldór Gylfason leikari, er söngvari og aðalsprauta sveitarinnar. Heimamenn eru þó eflaust spenntastir fyrir að heyra í ísfirsku rokksveitinni Urmul. Urmull á nokkra slagara sem nutu töluverðra vinsælda á sínum tíma en hljómsveitin gaf út plötuna Ull á víðavangi árið 1994. Aðrir sem hafa verið staðfestir á hátíðina eru Morðingj- arnir, trúbadorinn Rúnar Þór, uppistandararnir í Mið-Ís- landi, grallararnir í Pollapönki, Ólöf Arnalds og Hudson Wayne og BiggiBix. Um þrjátíu atriði verða á hátíðinni í ár og er ráðgert að dagskráin samanstandi fjörutíu prósent af heimaböndum og sextíu prósent aðkomuböndum. Fyrir hverja? Aldrei fór ég suður er sannkölluð rokkhátíð alþýðunnar. Þar má finna fólk úr öllum kimum þjóðfélagsins. Latté-drekk- andi listafólk úr borginni unir sér þar vel í kringum heima- fólk. Fjölskyldufólkið veit ekkert skemmtilegra en að rölta þar um með barnavagnana. Rapparar og rokkarar hafa fall- ist í faðma undanfarnar hátíðir og yngra fólkið mænir með aðdáunaraugum á stjörnur hátíðarinnar. Rokkbærinn Ísafjörður Tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður verður haldin í sjöunda sinn: Mögnuð Mývatnssveit Árleg píslarganga Ódýrast að aka Hvað kostar að fljúga um páskana? Annasamt á Akureyri Nýr skemmtistaður og vegleg dagskrá U M SJ Ó N B A LD U R G U Ð M U N D SS O N

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.