Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2010, Síða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2010, Síða 38
38 FÖSTUDAGUR 12. mars 2010 FERÐALÖG UM PÁSKANA 9 spennandi valmöguleikar á Akureyri SKÍÐI OG BRETTI Hlíðarfjall er eitt besta skíðasvæði landsins og þótt víðar væri leitað. Brekkur, brautir og lyftur fyrir alla fjölskylduna, sama hvort um snjóbretta- og skíðafólk er að ræða. Fjallið er aðeins í nokkra mínútna aksturs- fjarlægð og áður en þú veist af ertu kominn í skíðaparadís sem býður upp á veitingastaði og frábært útsýni yfir Akureyri. SKELLTU ÞÉR Í SUND Sundlaugin á Akureyri verður opin yfir páskana. Þar eru tvær stórar útilaugar, innilaug, fjöldinn allur af pottum, barnalaug og skemmti- legar rennibrautir. Sundlaugin er staðsett í miðjum bænum og um að gera að skella sér í sund eftir góðan dag í Hlíðarfjalli. Aðrar sundlaugar eru innilaugin í Glerárskóla og sundlaugarnar að Hrafnagili og á Þelamörk. JÓLAGARÐURINN Jólahúsið er staðsett í um tíu km fjarlægð frá Akureyri. Jólalög, jólaskraut og hangikjöt, gerist ekki betra á páskahátíðinni. KEILA Hér áður fyrr fóru Akureyringar ávallt í keilu þegar þeir heimsóttu í höfuðborgina. Í dag spila þeir heima fyrir í glæsilegum keilusal í Hafnarstrætinu. Á staðnum er einnig girnilegur ísbar og margar aðrar veitingar. MENNINGIN Stanslaus dagskrá verður hjá Leikfé- lagi Akureyrar um páskana. Barna- og unglingasýningin Horn og höfði höfðar til allrar fjölskyldunnar en einnig verða sýningarnar 39 þrep og Fúlar á móti sýndar yfir hátíðina. Fjölda listasafna og -sýninga er einnig að finna í höfuðstað Norðurlands. Má þar nefna Listasafnið, Iðnaðarsafnið, Flugsafnið og Minjasafnið. GOTT AÐ BORÐA Á Akureyri er fjölbreytt útval veitingastaða. Þeir gerast varla norðlenskari en Bautinn og að sama skapi stendur fjölskyldustaðurinn Greifinn alltaf fyrir sínu. Önnur veitingahús eru t.d. Strikið, pizzustaðurinn Bryggj- an og sushistaðurinn Rub 24. Fjöldi kaffihúsa er einnig í bænum og á Bláu könnunni í göngugötunni er boðið upp á rétt dagsins í hádeginu. Pizzan í Bakaríinu við brúna klikkar heldur aldrei. DJAMMIÐ Fyrir þá hörðustu er ýmislegt í boði þegar kvölda tekur. Skemmtistaðaflóra bæjarins er fjölbreytt og nú hefur Pósthúsbarinn bæst í hópinn. Á meðal annarra staða eru Kaffi Akureyri, Sjallinn, Cafe Amor og Vélsmiðjan. ÍS OG NAMMI Brynjuísinn stendur alltaf fyrir sínu. Veitingaskálinn Vín er líka sniðugur valmöguleiki en Vín er staðsett í um það bil tíu mínútna fjarlægð frá bænum. KJARNASKÓGUR Útivistarsvæðið í Kjarnaskógi er vel sótt á öllum tímum ársins bæði hjá fjölskyldufólki sem vill sleppa börnunum lausum í leiktækjum og duglegum göngugörpum sem vilja ganga af sér steikurnar í fallegri náttúru. Skautahöllin á Akureyri verður opin alla páskana: Krakkarnir kunna að detta „Við höfum fengið mun fleiri gesti í ár en á sama tíma í fyrra. Helsta skýringin er að fólk er að ferð- ast innan lands og kemur norð- ur á skíði og skellir sér á skauta í leiðinni,“ segir Viðar Jónsson, for- stöðumaður Skautahallarinnar á Akureyri, og bætir við að veturinn hafi verið frekar harður og því hafi tjörnin við hlið hallarinnar ver- ið mestmegnis frosin. Viðar segir þó svellið ekki veita höllinni sam- keppni. „Alls ekki, það er frekar að tjörnin styrki okkur og við fær- um æfingar reglulega út. Þannig sjá fleiri okkur og smitast af bakt- eríunni svo þetta er bara ódýr aug- lýsing.“ Aðspurður segir hann börn geta byrjað að skauta fljótlega eft- ir tveggja ára aldurinn. „Þeir allra hörðustu flytja sjálfir inn skauta handa sínum börnum en við bjóð- um upp á minnstu stærðirnar í 26. Það er ekki skylda að vera með hjálm en við mælum eindregið með því og sér í lagi fyrir fullorðna fólkið. Krakkarnir kunna að detta en ekki við gamla liðið. Það er samt ótrúlegt hvað það er oft erf- itt að fá foreldrana til að setja upp hjálm þótt þeir hleypi ekki sínum börnum út á svellið án hjálms.“ Skautahöllin á Akureyri Samkvæmt forstöðumanni hallarinnar eiga foreldrar oft erfitt með að setja upp hjálma. MYND BJARNI „Við fórum til Boston til að skoða vin- sælustu staðina og lögðum eftir það línurnar,“ segir Sigurður Jóhanns- son veitingamaður á Akureyri en hann og Heba Finnsdóttir í félagi við aðra hafa opnað nýjan skemmtistað. Staðurinn ber nafnið Pósthúsbarinn og er í gamla húsnæði Pósts ins í mið- bæ Akureyrar. Sigurður og Heba reka einnig veitingastaðinn Strikið og pizzustaðinn Bryggjuna. „Við sáum svigrúm í okkar rekstri til að stækka og þjónusta þannig fleiri. Strikið er mjög vinsæll staður sem hefur ekki pláss fyrir alla þá hópa sem vilja komast að svo nú getum við tekið á móti fleirum stórum hópum. Póst- húsbarinn er hér við hliðina og verð- ur þannig framhald af Strikinu og til- valinn áfangastaður eftir að búið er að borða,“ segir Sigurður en 25 ára aldurstakmark er á skemmtistaðinn. Nýtt og ferskt Lokun Friðriks V og væntanleg lok- un Græna hattsins hefur verið áber- andi í umræðunni upp á síðkast- ið. Sigurður segist ekki geta talað fyrir hönd annarra veitingamanna en að straumur gesta á þeirra staði hafi aldrei verið meiri. „Lokunin er að öðrum ástæðum því uppsveiflan í ferðaþjónustu hér í bænum hefur verið mikil undanfarið árið og aukn- ingin er stöðug. Okkur finnst mjög leiðinlegt að heyra svona fréttir og þetta kom okkur á óvart. Veitinga- menn á Akureyri eru í góðu sam- bandi og hér tala allir um aukningu. Hins vegar er það svo að þegar einn staður lokar opnar annar með nýjar hugmyndir og ferska strauma. Ég er því viss um að það er bjart framund- an.“ Spennandi páskar Sigurður segir páskahelgina spenn- andi og að margt verði um að vera í bænum. „Akureyri er ekki á leiðinni að verða ferðamannabær heldur er bærinn orðinn ferðamannabær. Hér áður fyrr var sumarið álagstími en nú koma hingað ferðamenn allt árið um kring og við tölum ekki lengur um niðursveiflu í janúar og febrúar. Auk þess erum við að sjá meiri lausatraff- ík túrista. Þeir eru að koma kannski fjórir, fimm saman í stað þess að koma í stórum hópum og svo eru Akureyringar sjálfir duglegir að kíkja út að borða og út á lífið. Bærinn hef- ur upp á margt að bjóða og sér í lagi Hlíðarfjall sem er í dag afskaplega vel skipulegt. Pósthúsbarinn er ný- tískulegur staður og kærkomin við- bót í skemmtistaðaflóruna. Þetta er fínn staður og við leggjum mikið upp úr góðum kokteilum og vinsælustu drykkjunum hverju sinni. Um pásk- ana koma Biggi í Maus og félagar og spila fyrir okkur sem og Íslenzka sveitin sem er skipuð þeim Svenna í Lúxor og Lísu úr Idolinu. Páska- helgin verður því skemmtileg og þeir sem kíkja í bæinn ganga beint inn í spennandi dagskrá.“ indiana@dv.is Pósthúsbarinn er nýr skemmtistaður á Akureyri. Sigurður Jóhannsson,einn eigenda, segir lokanir ann- arra veitingastaða í bænum koma sér mjög á óvart enda sé mikil uppsveifla í ferðaiðnað- inum í bænum. Pósthúsbarinn býður upp á spennandi dagskrá um páskana, þar sem Biggi í Maus og Íslenska sveitin troða upp. MIKIL uppsveifla Á AKUREYRI Pósthúsbarinn Þau Sigurður og Heba segja skemmtistaðinn flotta viðbót í skemmtanaflóru Akureyrar en Pósthúsbarinn er fínn staður og aldurstakmark 25 ár. Okkur finnst mjög leiðinlegt að heyra svona fréttir og þetta kom okkur á óvart. Veitingafólk Lokanir veitingastaða á Akureyri koma Sigurði á óvart enda hefur aldrei verið meira að gera á hans stöðum. MYNDIR BJARNI EIRÍKSSON

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.