Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2010, Qupperneq 42

Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2010, Qupperneq 42
40 FÖSTUDAGUR 12. mars 2010 FERÐALÖG UM PÁSKANA Nóg er um að vera norður í Mývatnssveitinni um páskana. Þar fer fram hin árlega píslarganga, tónleikar eru í boði og margt fleira má finna sér til dundurs í heimkynnum jólasveinsins. Hægt er að taka fallegar myndir, njóta útiverunnar og skola svo af sér skítinn í hinum rómuðu jarðböðum. MÖGNUÐ Mývatnssveit Dimmuborgir Dimmuborgir eru einstæðar hraunmyndan- ir og gríðarlegur fjöldi heimsækir borgirnar á ári hverju. Hraunið sem rann þegar Dimmu- borgir mynduðust kom frá eldgosi í Lúdents- borgum og Þrengslaborgum fyrir um 2000 árum og er það mesta hraungos sem orðið hefur á Mývatnssvæðinu eftir ísöld. Sumar hraunmyndanir í Dimmuborgum eru þekkt- ari en aðrar. Þeirra þekktust er tvímælalaust Kirkjan, hraunhvelfing sem opin er í báða enda. Þar var frægt atriði í Nonna og Manna tekið upp. Mývetningar byggðu þjónustumiðstöð við Dimmuborgir sem nefnist Kaffi Borgir og fékk veitingastaðurinn góða dóma í Gest- gjafanum. Í Dimmuborgum eru einnig heim- kynni íslenska jólasveinsins. Grjótagjá Grjótagjá er lítill hellir í Mývatnssveit. Inni í hellinum er heitt vatn og var hann vinsæll baðstaður á áttunda áratugnum en vegna eldgosa frá árunum 1975 til 1984 jókst hiti vatnsins svo að lengi var ekki hægt að baðast þar. Hiti vatnsins hefur þó lækkað með tím- anum og fara Mývetningar sem aðrir í bað í gjánni þótt hún sé um 43 gráðu heit. Píslarganga Píslargangan er árleg ganga umhverfis Mý- vatn en hún er samtals um 32 kílómetr- ar. Töluverð þátttaka hefur verið í göngunni undanfarin ár, rúmlega þrjú hundruð manns hafa gengið leiðina á hverju ári. Markaðurinn Þar er hægt að fá heimaprjón og fleira föndur frá húsfreyjum í Mývatnssveit. Meðal annars má þar sjá peysur eftir Brynju Björk sem seldi sjálfum Kiefer Sutherland hönnun sína. Jarðböðin Mývetningar hafa notið þess að stunda heit jarðböð sér til heilsubótar allt frá landnáms- öld enda eru náttúrugæði sveitarinnar ein- stök. 2004 voru Jarðböðin í Mývatnssveit opnuð og hafa þau slegið í gegn og koma þangað rúmlega 80 þúsund manns á hverju ári. Það kostar reyndar 2.000 krónur fyrir 16 ára og eldri en það er eini mínusinn. Krafla Við Kröfluvirkjun er fínasta skíðasvæði, ekk- ert á heimsmælikvarða en dugar samt vel. Í kring eru hins vegar afar fallegar gönguskíð- aleiðir. Einnig má skoða Kröfluvirkjun sem hefur mikla og merkilega sögu. Vestur af Kröflu er Leirhnjúkur en þar má sums stað- ar enn þá finna hitann í nýjasta hrauninu, en þar eru jafnframt miklar brennisteinsnámur og litadýrð víðast hvar mikil. Tónleikar Laufey Sigurðardóttir hefur haft veg og vanda af Músík í Mývatnssveit, hátíð sem haldin er um hverja páska. Þar er spiluð klassísk tón- list í tvo daga og hefur verið fullt út úr dyrum enda Mývetningar og nærsveitungar tónelsk- ir með eindæmum. Hverfjall Hverfjall er stór, hringlaga sprengigígur, um 140 metra djúpur og um 1000 metrar í þver- mál. Hverfjall/Hverfell er í röð fegurstu og reglubundnustu sprengigígamyndana sem getur að líta á Íslandi og talið í röð þeirra stærstu sinnar tegundar á jörðinni. Telja má víst að gígurinn sé myndaður við sprengigos og er aldur fjallsins áætlaður 2500 ár. Vinsælt er að ganga á Hverfjall/Hverfell en auðveld og aflíðandi leið liggur upp að norðvestan. Að sunnan er hins vegar allbrött leið á fjallið. Námafjall Jarðhitasvæðið við Námafjall er eitt fjölsótt- asta hverasvæði á Íslandi. Þétt sprungubelti liggur yfir allt Námafjallssvæðið og er meg- inuppstreymið austan við fjallið. Það hefur á síðari árum gengið undir nafninu Hvera- rönd. Mikil hveravirkni er á Hverarönd, bæði gufu- og leirhverir, en engir vatnshverir. Leir- hverirnir eru áberandi stórir og vekja yfirleitt mikla athygli ferðalanga. Gufuhverirnir eru hins vegar margir hverjir ekki annað en bor- holur sem búið er að hlaða grjóti yfir. Ástæða er til að vara fólk við ótraustum jarðvegi og háum hita. Vindbelgjarfjall Séu menn áhugaljósmyndarar er vert að klifra upp á Belgjarfjall eins og það heitir í munni Mývetninga. Þaðan er besta útsýnið yfir alla sveitina. Fjallið er 529 metra hátt og tekur rúman klukkutíma að ganga upp á það. Höfði Höfði er nú í eigu Mývetninga, gefinn af erf- ingjum Héðins Valdimarssonar eins af for- ystumönnum íslenskrar verkalýðshreyfing- ar. Þar hefur fallegur skógur verið ræktaður og er þar nú útivistarsvæði sem gríðarlega skemmtilegt er að ganga um. Fuglasafn Sigurgeirs Heimamaðurinn Sigurgeir Stefánsson lést af slysförum 1999. Hann átti gríðarlegt magn af eggjum og uppstoppuðum fuglum sem að- standendur Sigurgeirs hafa nú byggt fallegt safn utan um.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.