Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2010, Qupperneq 45
Fræði
Hönnun
„Ég er mjög ánægður og þakklátur með þessa viðurkenn-
ingu, menningarverðlaun. Það er gott fyrir fræðirit sem
falla auðvitað inn á hið víða svið menningarinnar. Lang-
ur tími hefur liðið síðan við hófum rannsóknina og það
er því gaman að sjá að afraksturinn falli í góðan jarðveg,
segir doktor Gavin Lucas en hann er aðstoðarforstjóri
Fornleifafræðistofnunar Íslands. Hann ritstýrði bókinni
„Hofstaðir - Excavations of a Viking Age Feasting Hall
in North-Eastern Iceland“, en í henni er sagt frá rústum
víkingabæjar á Hofstöðum í Mývatnssveit. Gavin og Forn-
leifastofnun Íslands hljóta Menningarverðlaun DV fyrir
þessa bók.
„Uppgröfturinn sjálfur tók um tíu ár en síðan þá hafa nið-
urstöður hans verið rannsakaðar. Það er auðvitað nokkuð
langt síðan, en rannsóknir á þessu sviði taka ávallt lang-
an tíma og ég er mjög ánægður með árangurinn,“ segir
Gavin Lucas. „Bókin sem nú er komin út er afrakstur átta
ára rannsóknarvinnu, sem hefur gengið ákaflega vel.“
Gavin Lucas lærði í London og Cambridge, en hefur frá
árinu 1989 sinnt rannsóknum hér á landi. „Ég lærði í
London með Adolf [Friðrikssyni, fornleifafræðingi], hann
plataði mig með sér hingað til Íslands til að taka þátt í
rannsóknum á sínum tíma en svo hef ég komið aftur og
aftur og er í raun fastur hér,“ segir Gavin Lucas og hlær.
helgihrafn@dv.is
Rökstuðningur dómnefndar:
Langt er síðan fyrst var grafið eftir fornleifum í bæjarrúst-
um á Hofstöðum í Þingeyjarsýslu, en 1992 hófst þar mjög
ítarleg rannsókn sem Fornleifastofnun Íslands tók að sér
að annast. Í áratug var grafið þar af mikilli nákvæmni og
nú í árslok 2009 komu niðurstöðurnar út í mjög vand-
aðri skýrslu á ensku, en með langri íslenskri samantekt
í lokin. Auk þess sem þessi rannsókn var í sjálfu sér afar
vönduð fræðilega hefur hún skilað að mörgu leyti nýjum
og nýstárlegum niðurstöðum um byggð á Íslandi á land-
námsöld.
Fornleifarannsóknin á Hofstöðum í
Mývatnssveit í stórglæsilegri bók:
Veislusalur frá víkingaöld
„Þessi verðlaun hafa bara mjög mikla þýðingu fyrir okkar og
eru mikil hvatning í því sem við erum að gera,“ segir Bryn-
hildur Pálsdóttir, einn fimm hönnuða á bak við merkið Vík
Prjónsdóttir, en hún er sú eina af þeim sem stödd er á landinu
og tók því ein við verðlaununum.
Fimm ár eru liðin síðan merkið var stofnað í þeim tilgangi að
búa til framleiðslu fyrir verksmiðjuna Víkurprjón í Vík í Mýr-
dal og frumsýndi hönnunarhópurinn nýja línu á hönnunar-
viku í Svíþjóð á dögunum. „Það má segja að seinni línan okk-
ar sé þroskaðri en sú fyrri en þá einbeittum við okkur meira
að svæðinu í kringum Vík og var hún því afmarkaðri, “ segir
Brynhildur en vörurnar hafa vakið mikla athygli meðal fólks.
„Núna með seinni línunni förum við meira inn á við og finn-
um hinn innri frið, eins og má kalla það. Línan er fimm ólík
teppi og hefur hvert teppi sína sögu. Sögurnar eru jafnólíkar
og teppin en samt er ákveðin heild.“
Brynhildur er á því að það sé fullt af góðum hlutum að gerast
í íslenskri hönnun í dag. „ Þetta er fag sem er mjög ungt enn-
þá hérna en er alltaf að verða stærra og stærra og það þarf að
styrkja það. Við Íslendingar þurfum að fá tækifæri til að vinna
meira út á við. Það er að segja að vera í takt við það sem er að
gerast í útlöndum,“ segir hún.
Rökstuðningur dómnefndar:
Vík Prjónsdóttir varð til fyrir fimm árum þegar hönnuðirnir
Egill Kaleví Karlsson, Þuríður Rós Sigurþórsdóttir, Brynhildur
Pálsdóttir, Guðfinna Mjöll Magnúsdóttir og Hrafnkell Birg-
isson komu saman til að búa til framleiðslu fyrir verksmiðju
Víkurprjóns í Vík í Mýrdal. Hópurinn hafði að leiðarljósi að
nýta þekkingu og vélarkost Víkurprjóns og sameina hann
hugviti og framsýni hönnuðanna.
Þarna urðu til frábærar vörur eins og Selshamurinn og Skegg-
húfan sem hafa vakið athygli út um allan heim fyrir frumleika
og gæði. Ný og glæsileg vörulína Víkur leit síðan dagsins ljós
um daginn og er ljóst að framtíð þessa verkefnis er björt.
asdisbjorg@dv.is
Katrín Ólína Pétursdóttir hefur um
áraraðir verið að þróa sitt eigið myndmál
sem hún nýtir sér við ýmsa hönnun.
Fimm ólík teppi
HELGARBLAÐ 12. mars 2010 FÖSTUDAGUR 45
Brynhildur Pálsdóttir
Mætti fyrir hönd hópsins
Vík Prjónsdóttir sem fékk
Menningarverðlaunin í
flokki hönnunar.
MYND SIGTRYGGUR ARI
Gavin Lucas Ritstýrði bók um
niðurstöður ítarlegs fornleifa-
uppgraftar sem hófst árið 1992.
MYND SIGTRYGGUR ARI