Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2010, Blaðsíða 47

Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2010, Blaðsíða 47
Myndlist „Þetta er mikil hvatning fyrir listasafnið og gefur okkur færi á að halda áfram að styðja við unga listamenn og fá þá til að sýna hjá okkur. Svo er náttúrlega alltaf gaman að fá verðlaun,“ segir Soffía Karlsdóttir, kynningarstjóri Lista- safns Reykjavíkur, en hún tók við verðlaununum fyrir hönd listasafnsins ásamt deildarstjóra sýningardeildar, Yean Fee Quay, sem einnig á stóran þátt í verkefninu. „Það má segja að sýningin Pakkhús postulanna, árið 2006 í Hafnarhúsinu, hafi markað upphafið að þessu verkefni. Þar voru að sýna ungir listamenn sem höfðu verið að sýna á opinberum stöðum áður og ungir sýningarstjórar voru ráðnir til að stýra sýningunni. Með því vildum við stimpla okkur inn sem samtímalistasafn. Þessir listamenn stóðu sig afar vel og sýningin vel heppnuð svo við ákváðum að halda áfram með þetta og þá kom hugmyndin með D-salinn,“ segir Soffía. „Við teljum það afar gott fyrir ungu listamenn- ina að fá það á ferilskrána sína að hafa sýnt í viðurkenndu opinberu safni.“ Soffía metur unga listamenn í dag vera óhrædda að fara sínar eigin leiðir. „Mér finnst þeir vera hverfa út úr vídeó- verkum og stórum innsetningum og sýna okkur málaralist- ina í allri sinni dýrð. Og sýna það í nýrri og frumlegri mynd þar sem þau sækja í sína hefð, teiknimyndir og graffítí. Svo taka þau þetta enn lengra og mála jafnvel á eitthvað annað en hinn hefðbundna striga. Það sem þau eru að gera lofar bara mjög góðu,“ segir Soffía. Rökstuðningur dómnefndar: Í febrúar 2007 hleypti Listasafn Reykjavíkur af stokkun- um sýningaröð í D-sal Hafnarhússins. Þar hefur ungum og efnilegum myndlistarmönnum, sem ekki hafa áður haldið einkasýningar í söfnum, verið gefið tækifæri til að sýna, vinna með sýningarstjórum safnsins og ná til þess breiða hóps gesta sem í safnið kemur. Dómnefnd telur þetta framtak safnsins hafa heppnast ákaflega vel og verið lyftistöng fyrir unga listamenn og fyrir myndlistarlífið í landinu yfirleitt. Það er ungum listamönn- um mikilvægt að kynnast því að vinna í faglegu safnaum- hverfi og ekki síður mikilvægt að gestir fái að skoða verk ungra og metnaðarfullra listamanna í aðgengilegu rými borgarlistasafnsins. Þá hefur safnið gefið út yfirlitsrit um sýningaröðina. asdisbjorg@dv.is Listasafn Reykjavíkur hleypti af stokkun- um fyrir þremur árum sýningaröð í D-sal Hafnarhússins þar sem ungum og efnilegum listamönnum gefst færi á að sýna verk sín. Ungir óhræddir listamenn Þetta er bara viðurkenning á því sem maður hefur verið að gera og á sama tíma hvatning til að gera vel. Það er mjög gam- an að hljóta verðlaun á borð við þessi og mikill heiður, segir Daníel Bjarnason tónskáld. Daníel kom víða við á árinu og vann með mörgum ólíkum tónlistarmönnum. Hann segir að samvinnan hafi verið mjög gefandi. „Ég hef verið að vinna með fólki úr ólíkum áttum og notað mismunandi þætti sem ég hef lært og þróað mig í. Mað- ur getur prófað hinar ýmsu hliðar í samvinnu við aðra, sem er mjög skemmtilegt og heldur manni ferskum. Það er mjög insp- írerandi og maður fær áhrif víða að.“ Daníel stjórnaði Sinfóníuhljómsveit Íslands á tónleikum í febrúar á síðasta ári. „Það er auðvitað frábær hljómsveit og það var mjög gaman að vinna með því góða fólki sem hana skipar.“ Hann segir erfitt að segja hvað hafi verið eftirminnilegast á síðustu misserum, enda hefur hann unnið að mörgum verk- efnum á síðustu misserum. „Það sem stóð upp úr á árinu var líklega frumflutningurinn á píanókonsertinum mínum og frumraun mín með Sinfó. Tónleikarnir með Hjaltalín á þessu ári voru mjög eftirminnilegir og sömuleiðis sýningarnar á Ástardrykknum sem var mjög skemmtilegt verkefni. Síðast en ekki síst var samstarfið við listamennina sem léku á plötunni minni alveg frábært,“ segir Daníel. „Næstu skref verða að fylgja eftir plötunni minni, skrifa nýja tónlist og halda áfram í samvinnu við tónlistarfólk. Svo fer ég að leggja drög að nýrri plötu,“ segir tónskáldið að lokum. helgihrafn@dv.is Rökstuðningur dómnefndar: Árið 2009 var einstaklega fjölbreytt og viðburðaríkt hjá tón- skáldinu og hljómsveitarstjóranum Daníel Bjarnasyni. Í febrúar stjórnaði hann Sinfóníuhljómsveit Íslands á sínum „debut“ tónleikum á Myrkum músikdögum þar sem píanó- konsert hans, Processions, var frumfluttur fyrir fullu húsi. Í kjölfarið fylgdu: Útsetningar fyrir Ólaf Arnalds, upptökur með Nordic Affect á verki Huga Guðmundssonar, tónlist við dansverk Gunnlaugs Egilssonar, Styggðarstjórnun, á Reykja- vik Dance Festival, upptökur og tónleikar með Sinfóníuhljóm- sveit Íslands, tónleikar á Icelandic Airwaves með eigin verk og tónleikar á Listahátíð Reykjavíkur og Icelandic Airwaves með Hjaltalín, tónlistarstjórn í uppfærslu Íslensku óperunnar á Ástardrykknum og margt fleira. Undir lok ársins kom út fyrsta sólóplata Daníels, Processions, sem fór svo í dreifingu erlendis í febrúar á þessu ári og hefur platan fengið frábæra dóma. Árið 2009 var fjölbreytt hjá tónskáldinu Daníel Bjarnasyni: Gefandi að vinna með ólíkum tónlistarmönnum Tónlist HELGARBLAÐ 12. mars 2010 FÖSTUDAGUR 47 Byrjaði í postulapakkhúsi Soffía Karlsdóttir, kynningar- stjóri Listasafns Reykjavíkur, sagði Pakkhús Postulanna, sýningu frá árinu 2006, hafi markað upphafið að sýninga- röðinni D-sal Hafnarhússins. MYND SIGTRYGGUR ARI Daníel Bjarnason Tónskáldið unga hefur komið víða við að undanförnu og gaf út hljómskífuna Processions undir lok nýliðins árs. MYND SIGTRYGGUR ARI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.