Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2010, Page 54
54 FÖSTUDAGUR 12. mars 2010 VERÖLD
KIRKJUGARÐABORGIN Í bænum Colma, í nágrenni San Francisco í
Kaliforníuríki í Bandaríkjunum, er þúsund sinnum fleira látið fólk en lifandi. 17 stórir
kirkjugarðar eru í Colma en þar búa hins vegar aðeins um 1200 manns, sem flestir
vinna í kirkjugörðunum. Talið er að um ein og hálf milljón manna sé grafin í kirkju-
görðunum. Colma hefur af þessum sökum verð uppnefnd „borg þagnarinnar“. „Það
er gott að vera á lífi í Colma,“ er frægt grínslagorð bæjarbúa.
Á meðal þekktra manna sem grafnir eru í kirkjugörðum Colma eru Wyatt Earp, fjöl-
miðlakóngurinn William Randolph Hearst og hafnaboltamaðurinn Joe DiMaggio.
UMSJÓN: HELGI HRAFN GUÐMUNDSSON, helgihrafn@dv.is
Hæsti turn heims er í Dúbaí en hvar er stærsta kirkjan, fótboltavöllurinn og styttan?
STÆRSTGAGNSÆI GEORGÍSKU LÖGREGLUNNARn Mikheil Saakashvili, forseti Kákakus-ríkisins Georgíu, hefur skorið upp herör gegn spillingu og skipulagðri glæpa-
starfsemi í landinu. Til að leggja áherslu á
hina breyttu tíma, sem hann boðar, hefur
Saakashvili breytt ásýnd lögreglunnar
í landinu. Í forsetatíð Edúards Shevard-
nadze, forvera hans, voru lögregluyfir-
völd fræg af endemum fyrir mútuþægni,
ósanngirni og jafnvel grimmd. Saaka-
shvili hefur svarað kalli þjóðar sinnar um
aukið gagnsæi í löggæslunni með því
að reisa nýjar lögreglustöðvar um allt
land með stórum og miklum gluggum
á öllum hliðum. Georgíska lögreglan
starfar því í gagnsæjum byggingum, í
glerkubbum. Þegar Mikheil Saakashvili
opnaði nýja gagnsæja lögreglustöð
á dögunum sagði hann: „Georgía býr
yfir einni nútímalegustu, gagnlegustu,
heiðarlegustu og minnst spilltu lögreglu
í heiminum. Veggir þessarar nýju
byggingar eru gagnsæir – og við erum
að byggja upp gagnsæja lögreglu.“
FRÍSNESKI
FÁNINN
n Frísland
er hérað í
Hollandi
er nýtur
nokkurrar
sérstöðu
í ríkinu
því þar er
töluð vestur-frísneska sem er nokkuð
ólík hollensku þó náskyld tungumál
séu. Frísland var til forna áhrifasvæði
víkinga sem þangað herjuðu. Fríslend-
ingar eru um 600 þúsund talsins
og búa um 100 þúsund í Ljouwert
(Leeuwarden á hollensku), höfuðstað
héraðsins.
Héraðsfáninn er athyglisverður, á hon-
um eru þrjár hvítar rendur og fjórar
bláar. Á hvítu röndunum eru sjö hjarta-
laga tákn, rauð að lit. Það eru hjartalaga
vatnaliljur sem tákna byggðirnar sjö á
strönd Fríslands er sameinuðu heri sína
í baráttunni við víkinga á miðöldum.
Búningar frísneska knattspyrnuliðsins
SC Heerenveen eru hannaðir í anda
fánans. Liðið leikur í hollensku úrvals-
deildinni og spila Íslendingarnir Arnór
Smárason og Björn Jónsson með liðinu.
BOLLINN SEM
VERNDAR
MOTTUNA
n Á Viktoríutímanum í Bretlandi á
nítjándu öld skörtuðu flestir heldri menn
myndarlegu yfirvaraskeggi sem þeir
mökuðu sumir með vaxi til að það héldist
stíft. Það gat valdið nokkrum skakkaföllum
þegar heldri mennirnir lyftu bollum með
rjúkandi tei eða kaffi að vörum sínum.
Yfirskeggin myndarlegu áttu til að fara á
bólakaf í heitum drykkjum bollans sem
var ákaflega niðurlægjandi fyrir alla heldri
menn. Breski leirkerasmiðurinn Harvey
Adams hjó eftir þessu. Hann fann upp
„mottubollann“ sem leysti þetta vand-
ræðamál farsællega. Á bollanum er áföst
hálfhringlaga sylla þar sem yfirskeggið
hvílir þurrt í skjóli frá heita drykknum
sem flæddi þó jafnþægilega ofan í vit
te- eða kaffiunnandans og áður. Sagt er
að John Lennon hafi drukkið teið sitt úr
mottubollum þegar hljómplata Bítlanna
Sgt. Pepper‘s Lonely Hearts Club Band var
hljóðrituð í Abbey Road í Lundúnum.
Dúbaí-turninn er langhæsta mannvirki heims eða um 818 metrar og var vígður á dögunum, þrátt fyrir að óvíst sé hvort einhver not séu fyr-ir hann. Fjármálamiðstöðin Dúbaí hefur orð-
ið fyrir samdrætti vegna alþjóðlegu fjármálakreppunnar
og telja sumir að hin gríðarstóra bóla er blásin var upp
í furstadæminu muni springa með látum á næstunni. Í
Dúbaí hafa stjórnvöld og stórfyrirtæki lagt allt kapp á að
byggja sem hæst, stærst og lengst. Það er liður í að gera
nafn Dúbaí frægt um allan heim. Hafa margir bent á að
gríðarstórar framkvæmdir í Dúbaí, þar á meðal Dúbaí-
turninn, Dúbaí-verslunarmiðstöðin (sú stærsta í heimi)
og skemmtigarðurinn Dúbaíland (stærstur í heimi), hafi
ekkert notagildi í sjálfu sér og séu því ekkert annað en
tilgangslaust tákn um völd sem kostað hafi gríðarlegar
fjárhæðir.
Dúbaí er ekki eini staðurinn á jörðinni þar sem menn
hafa keppst um að byggja hæst og stærst á undanförn-
um áratugum. Á síðustu árum hafa nýir ofurskýjakljúfar
sprottið eins og gorkúlur víða um lönd, til dæmis í Taí-
van, Kína og Malasíu og hafa löndin tekið við af Banda-
ríkjamönnum sem á árum áður reistu hæstu skýjakljúfa
heims. En hér á eftir er litið á nokkur mannvirki af öðru
tagi sem eru stærst á sínu sviði.
í heimi
STÆRSTU STYTTUR HEIMS ERU AF BÚDDA
Búddastytta Vorhofsins í Lushan-héraði í Henan í Kína var reist árið 2002. Hún
er stærsta stytta heims, 153 metrar að hæð með stöplinum, sem er rúm tvöföld hæð Hallgrímskirkju. Byggingarefnið er kopar en sagt er að um 1000 tonn af
málminum séu í styttunni. Kínverjar ákváðu að byggja styttuna eftir að fréttist
að talíbanar hefðu sprengt Bamiyan Búddastytturnar fornu í Afganistan í loft
upp, en Kínastjórn fordæmdi þær aðgerðir harkalega. Önnur stærsta stytta
heims er í Mjanmar og sú þriðja stærsta er í Japan og báðar eru Búddastyttur.
STÆRSTI FÓTBOLTAVÖLLURINN
ER Í NORÐUR-KÓREU
Leikvangur „Rungrado-maí dagsins“ í Pyong Yang í
Norður-Kóreu er stærsti íþróttaleikvangur heims. Hann
tekur 150.000 áhorfendur í sæti og er aðallega notaður
fyrir knattspyrnuleiki en hefur einnig verið vettvangur
ýmissa flokkshátíða kommúnistastjórnarinnar. Völlurinn
var vígður hinn 1. maí árið 1989. Knattspyrnulandslið
Norður-Kóreu, sem leikur á HM í Suður-Afríku í sumar,
leikur heimaleiki sína á vellinum. Í júní árið 2002 var
gríðarlega umfangsmikil fimleikasýning haldin á vellinum
en þátttakendur voru um hundrað þúsund manns og var
því mannfjöldinn á vellinum um kvartmilljón. Sýningin var
haldin til að draga athygli frá HM í knattspyrnu sem haldin
var á sama tíma í Suður-Kóreu og Japan.
STÆRSTA KIRKJA HEIMS ER
Á FÍLABEINSSTRÖNDINNI
Yamoussoukro er stjórnsýslusetur og höfuð-
borg Fílabeinsstrandarinnar. Í borginni búa
um 200.000 manns. Byggðin er strjál og lág,
en stjórnvöld hafa reist nokkrar byggingar á
síðustu áratugum sem skaga yfir íbúabyggðinni í
Yamoussoukro. Stærsta byggingin er Frúarkirkjan
en hún er stærsta kirkja heims. Frúarkirkjan er
byggð í anda Péturskirkjunnar í Róm en er hærri
og stærri. Gólfflötur kirkjunnar er um 30 þúsund
fermetrar og hvolfþakið 158 metra hátt. Kirkjan var
byggð á árunum 1985-1989 og blessaði Jóhannes
Páll II páfi hana þegar hún var vígð árið 1990.