Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2010, Síða 56
LEYNDARMÁL GÖMLU MYLLUNNAR Hin gamla
Tranche-mylla, með aðeins fjórar naktar stangir sem ekkert segl er lengur á,
líkist mest einmana könguló þar sem hún stendur yfir Loire-dalnum í Mont-
soreau í Frakklandi. Áður fyrr var myllan vinsæll staður þar sem krakkar úr ná-
grenninu hittust, þrátt fyrir að hún væri rækilega merkt „Aðgangur bannaður“.
Eftir að lík ungrar táningsstúlku fannst í myllunni hættu krakkar og unglingar að
leita þangað og sneiddu frekar vel fram hjá.
Lesið um leyndarmál gömlu myllunnar í næsta helgarblaði DV.
MORÐ Í MYRKUM SKÓGI
Djöfladýrkendur í Yaroslavl í Rússlandi myrtu fjóra unglinga sumarið 2008 með því að stinga þá 666 sinnum.
Fórnarlömbin, þrjár stúlkur og einn drengur á aldrinum 16 til 17 ára, voru síðan elduð og einhverjir líkams-
hlutar þeirra snæddir. Leiðtogi djöfladýrkendanna kallaði sig dr. Got.
„Velkomin á samkunduna okk-
ar,“ tónaði dr. Got og horfði á ung-
lingsstúlkuna og -strákinn. Þau
voru stödd við garð inni í skógi í
Yaroslavl í Rússlandi og hlýtt júní-
kvöldið gaf spennandi fyrirheit um
það sem í vændum var. „Þetta er
Karla, kærastan mín, og ykkur er
boðið að vera viðstödd innvígslu
hennar,“ sagði dr. Got og benti á
allsnakta stúlku sem stóð við hlið
hans.
Strangt til tekið höfðu ungling-
arnir tveir, Varya Kuzmina og And-
rei Sorokin, ekki hugmynd um hvað
stóð til og hvaða hlutverk þau áttu
að leika í vígsluathöfninni, en sex-
menningarnir sem stóðu að baki
dr. Got virtust hinir vingjarnleg-
ustu, jafnvel þó dr. Got hefði kynnt
þá til sögunnar sem djöfladýrkend-
ur. Þeir voru íklæddir svörtum leð-
urfatnaði, voru með svartar grímur,
svartlakkaðar neglur og með gadda
í nefi og eyrum.
Forvitnin varð kisu að fjörtjóni
Þegar dr. Got var búinn að kynna fé-
laga sína var Varyu og Andrei boðið
upp á öl sem þau þáðu. Þau höfðu
komið sjálfviljug á þennan afskekkta
stað. Varyu, sextán ára, hafði verið
sagt að eitthvað sérstakt myndi eiga
sér stað og hún hefði komið af nán-
ast hvaða ástæðu sem var. Hún sótti
tónleika af nánast öllu tagi og var fé-
lagslyndið uppmálað, og þótti afar
vænt um Andrei sem tók hana með
sér í reifpartí og önnur sem stóðu
oftar en ekki alla nóttina.
Án efa hefur viðburðurinn í
skóginum komið henni spánskt fyr-
ir sjónir. Úr útvarpstæki sem hengt
hafði verið á trjágrein ómaði hávær
bárujárnsmúsík, einn af fylgjend-
um dr. Got tók kött upp úr poka,
skar hann á háls og festi á kross
sem var stungið öfugum í jörðina
og hópurinn dansaði sönglandi í
kring.
Undrun og ótti
Varya fylltist fyrst í stað undrun, en
ótti fylgdi fljótlega í kjölfarið og Var-
ya hringdi í vin sinn og sagði sínar
farir ekki sléttar. „Þettar er allt sam-
an hálfskrítið. Þetta er ekki það sem
okkur var talin trú um að yrði,“ las
Varya inn á talhólf vinar síns.
„Bindið þau,“ skipaði dr. Got
skyndilega og áður en Varya og
Andrei vissu hvaðan á sig stóð veðr-
ið var búið að binda hendur þeirra
fyrir aftan bak.
Dr. Got hóf að söngla eitthvert
óskiljanlegt bull og einn félagi hans,
sem kallaðist Graf, sveiflaði al-
blóðugum hnífi yfir höfðum dauð-
skelfdra ungmennanna. „Satan, við
bjóðum Körlu velkomna með því
að bjóða þér þessi tvö líf,“ tónaði dr.
Got, og Graf stakk hnífnum á kaf í
bringu Andreis. Við hverja stungu
töldu djöfladýrkendurnir einn,
tveir, þrír, og hættu ekki að telja
fyrr en þeir voru komnir upp í 666,
en þá var líkami Andreis orðinn að
blóðugum hrærigraut.
Sest að snæðingi
Með reglulegu millibili gerði Got
skál úr höndum sínum, safnaði
blóði Andreis í hana og smurði á
Körlu. Fylgisveinarnir skáru höfuð-
leðrið af Andrei, skáru úr honum
hjartað, fleiri innri lífæri og kynfær-
in og að lokum skáru þeir af honum
útlimina. Síðan settust þau niður
við eldinn og gerðu sér mat úr lík-
amsleifunum.
Doktorinn og fylgjendur hans
hnigu til jarðar líkt og í álögum og
af vörum þeirra hraut óskiljanlegt
bull. Þegar bráði af þeim snéru þau
sér að Varyu sem eðli málsins sam-
kvæmt var nær dauða en lífi af skelf-
ingu og móðursjúk.
Í þessum dimma skógi tókst Var-
yu, öskrandi en samt hálfmeðvit-
undarlausri, að losa sig úr fjötrun-
um og hlaupa sem fætur toguðu inn
í myrkviðinn, en gengið var fljótt að
ná henni. Þrjú úr genginu skáru
hana á háls en hin tóku myndir með
farsímum af dauðastríði hennar.
Það hryllilega var að kvöldið
áður hafði dr. Got með fulltingi fylg-
ismanna sinna lokkað tvær stúlkur,
Önyu Gorokhova og Olgu Pukhova,
með svipuðum hætti inn í skóginn.
Báðar voru stúlkurnar myrtar með
svipuðum hætti og Andrei og Varya.
Umbreyttir sakborningar
Í fyrstu höfðu foreldrar fjórmenn-
inganna engar áhyggjur þótt þeir
skiluðu sér ekki heim, en að þrem-
ur dögum liðnum höfðu foreldrarn-
ir samband við lögregluna. Það eina
sem ungmennin virtust eiga sam-
eiginlegt var, að sögn foreldranna,
að þau höfðu öll kynnst einhverjum
félagsskap sem kallaði sig Djöfla-
dýrkendurna.
Þegar lögreglan kannaði far-
símanotkun krakkanna kom í ljós
að allir höfðu hringt í eitt og sama
númerið. Það númer tilheyrði
Niko lai Ogolobyak, sem gekk undir
nafninu dr. Got í vinahópi. Við leit
á heimili hans fundust persónulegir
munir sem tilheyrðu ungmennun-
um sem saknað var, og móðir hans
vísaði lögreglunni á staðinn úti í
skógi sem Nikolai fór gjarna til. Þar
beið lögreglunnar nöturleg sjón;
kattarhræ á krossi, rotnandi hunds-
hræ undir runna og hola með húð-
tægjum af mönnum.
Þess var skammt að bíða að
dr. Got og félögum yrði komið fyr-
ir á bak við lás og slá. Öll nema dr.
Got litu þá út eins og venjulegt fólk.
Enginn svartur leðurklæðnaður,
fylgihlutir úr stáli, svartar neglur
eða grímur. Dr. Got hafði hins veg-
ar engum breytingum tekið. Hann
dvelur nú á öryggisgeðsjúkrahúsi,
en fylgismenn hans bíða dóms.
UMSJÓN: KOLBEINN ÞORSTEINSSON, kolbeinn@dv.is
56 FÖSTUDAGUR 12. mars 2010 SAKAMÁL
Satan, við bjóð-um Körlu vel-
komna með því að
bjóða þér þessi tvö líf,“
tónaði dr. Got, og Graf
stakk hnífnum á kaf í
bringu Andreis.
Nikolai Ogolobyak Dr. Got gekk
ekki alveg heill til skógar andlega.
Fórnarlömbin fjögur (F.v.) Andrei
Sorokin, Olga Pukhova, Varya
Kuzmina og Anya Gorokhova.
Kattarhræ á krossi Varyu hætti
að lítast á blikuna þegar köttur var
skorinn á háls.