Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2010, Side 60
FUNDUR UM LEGSLÍMUFLAKK Nú er í gangi sérstök átaksvika
Samtaka kvenna með endómetríósu eða legslímuflakk. Sjúkdómur-
inn lýsir sér í því að legslímhúð, sem almennt finnst eingöngu innan
legsins, finnst á öðrum stöðum í kviðarholinu og veldur þar bólgum og
blöðrumyndun en sjúkdómurinn getur valdið ófrjósemi. Á laugardag-
inn verður fræðslufundur í Hringsal Landspítalans við Hringbraut þar
sem læknar fjalla um sjúkdóminn og konur flytja sínar reynslusögur.
Fundurinn hefst kl. 11 og er opinn öllum.
Samkvæmt amerískri rannsókn er
ekki jafnerfitt að jafna sig eftir sam-
bandsslit og segir í væmnu ástartext-
unum. Sálfræðingar fylgdust með
hópi para og létu þau svara spurn-
ingalistum yfir margra mánaða skeið.
Í ljós kom að þeir ástföngnustu voru
mest hræddir við sambandsslit og
gátu ekki ímyndað sér lífið án mak-
ans. Vísindamennirnir komust hins
vegar að því að sá hópur átti auð-
veldast með að jafna sig eftir ástar-
sorg. Í niðurstöðum rannsóknarinn-
ar kemur fram að útkoma hennar
styrki aðrar svipaðar rannsóknir sem
bendi til þess að fólk eigi afar erfitt
með að segja til um líðan sína við til-
teknar ímyndaðar aðstæður. Í tilfelli
ástarsorgarinnar gleymdu þeir ást-
föngnustu að taka það góða við sam-
bandsslitin með í reikninginn, líkt
og kostina við að vera á lausu. „Við
mannfólkið erum mun sterkari en
við höldum þegar kemur að tilfinn-
ingalegu uppnámi,“ sagði Eli Finkel
prófessor í sálfræði við Northwest-
ern’s Weinberg-háskólann og annar
höfundur skýrslu um rannsókn-
ina. „Það er enginn að halda því
fram að það sé gaman að hætta
með einhverjum en okkar nið-
urstaða er sú að fólk jafnar sig
mun betur og fyrr en
það heldur.“
Ástsjúkir jafna sig fyrst eftir sambandsslit:
ÁSTARSORG ER OFMETIN
UMSJÓN: INDÍANA ÁSA HREINSDÓTTIR, indiana@dv.is
5 ALGENG
MISTÖK Í PEN-
INGAMÁLUM
1. Ég á það skilið!
Þér finnst þú hafa unnið baki
brotnu fyrir lífstílnum og veist að
fátt kætir þig jafnmikið þegar þú
ert langt niðri og gott dekur og
verslunarferð. Geðþóttaákvarð-
anir í fjármálum geta verið afar
hættulegar. Þótt þú þarfnist hlut-
arins hefurðu kannski ekki efni
á honum.
2. Ég er þess virði!
Skiptir þig miklu máli að vera
ávallt í nýjustu gallabuxunum á
markaðnum? Færðu kikk út úr
því að keyra flotta dýra bíla eða
láta sjá þig með Fendi-tösku?
Eru eignir þínar sönnun þess að
þú hafir „meikað“ það? Þegar þú
kaupir hluti en veist að þú hefur
ekki efni á því er það þá eitthvað
annað en þjófnaður?
3. Er lífstíllinn á lánum?
Notaðu seðla! Ef þú setur allt
á kreditkortið gæti það komið
í bakið á þér. Þú eyðir ekki um
efni fram ef þú notar einungis
peninga.
4. Kaupirðu frið fyrir sam-
viskunni?
Býst barnið við nýjustu Xbox-
leikjatölvunni í átta ára afmælis-
gjöf? Ekki láta uppeldið stjórnast
af samviskubiti. Þitt starf er að
undirbúa barnið fyrir lífið og líf-
ið er ekki alltaf leikur. Stundum
eru einfaldlega ekki til pening-
ar. Barnið þarf að læra að það er
hægt að komast í gegnum erfiða
tíma standandi.
5. Áttu engan varasjóð?
Millifærirðu hluta launanna á
annan reikning eða eyðirðu öllu
um leið og þú færð útborgað?
Þótt upphæðin sé ekki há sem
þú tekur til hliðar um hver mán-
aðarmót getur hún skipt sköpum
þegar harðnar á dalnum.
Góð og sönn vinátta er gulls ígildi. Bandaríska kvennatímaritið Glamour tók saman
lista yfir sjö gerðir vinkvenna sem allar konur verða að eiga.
60 FÖSTUDAGUR 12. mars 2010 LÍFSSTÍLL
7 VINIR SEM ALLAR
KONUR ÞARFNAST
Ástfangin Samkvæmt niðurstöðum
rannsóknarinnar er ekki jafnerfitt að
jafna sig eftir sambandsslit og allir
væmnu söngvararnir halda fram.
Æskuvinkona
Hún man enn eftir villtu strákaóðu
stelpunni sem lét engan segja sér
hvernig hún ætti að gera hlutina.
Hún þekkti þig og fjölskyldu þína
þegar þú varst að vaxa úr grasi og
þið deilið eflaust mörgum minning-
um. „Æskuvinir minna þig á að þú
sért sama manneskjan og þú hefur
alltaf verið,“ segir Rebecca G. Adams
sálfræðingur í háskólanum í Norður-
Karólínu. „Haltu í gömlu vinina. Þið
þurfið ekki að vera í daglegu sam-
bandi en notaðu tæknina og taktu
upp þráðinn.“
Ný vinkona
Ólíkt krökkunum sem voru með
þér í barnaskóla hefur nýja vinkona
engar fyrir fram ákveðnar skoðanir
á þér. „Mörg okkar festast í fari þeg-
ar við eldumst,“ segir Pamela McLe-
an sálfræðingur frá Santa Barbara.
„Með nýjum vinum kynnumst við
nýjum hugunarhætti og nýjum að-
stæðum. Þar að auki kynnumst við
nýju fólki í gegnum aðra. Reyndu að
kynnast nýjum vinum í vinnunni eða
vingastu við foreldra vina barnanna
þinna. Ef lítið gengur skaltu prófa
nýtt áhugamál.“
Æfingavinur
Vinkonan sem þú æfir með dreg-
ur þig út að skokka þegar þú vild-
ir frekar hanga í sófanum heima í
stofu. Sérfræðingar eru sammála um
að líkamsrækt, sama hvort það er
ganga, golf, salsa dans eða eitthvað
allt annað, sé það mikilvægasta fyrir
andlegt og líkamlegt heilbrigði. Góð-
ur vinur sem aðhyllist heilbrigðan
lífsstíl gæti verið það sem þig vantar
til að þú takir á þig rögg í ræktinni. Í
rannsókn sem framkvæmd var af há-
skólanum í Connecticut kom í ljós að
góður félagslegur stuðningur skiptir
mestu máli þegar kemur að heilsu-
rækt. Finndu vinkonu sem er í góðu
formi og spurðu hvort þú megir slást
í hópinn.
Yngri vinkona
Hvernig tekst þér að sameina stórt
heimili, börn og langan vinnudag?
Yngri vinkonur vilja læra af þér.
Rannsóknir sýna að við viljum öll
hjálpa öðrum - með því að elda eða
með því að leiðbeina. „Sumar kon-
ur fá útrás fyrir þessa þörf í upp-
eldi barnanna en að leiðbeina öðr-
um fullorðnum einstaklingi getur
verið virkilega gefandi,“ segir Rose-
mary Blieszner prófessor við Virg-
inia Tech-háskólann. „Til að ná sem
mestu út úr slíkri vináttu verður at-
hyglin að vera í báðar áttir. Leyfðu
yngri vinkonu að kynna fyrir þér nýja
strauma og farðu með henni út á líf-
ið.“
Vinir hans
Samkvæmt Kenneth Leonard, próf-
essor í klínískri sálfræði við SUNY-
háskólann í Buffalo, er afar mikil-
vægt að tengjast vinum maka okkar.
Í rannsókn Leonards kom í ljós að
því betur sem fjölskyldur og vinir
kynnast því hamingjusamari verða
makarnir. „Til að eiga hamingjuríkt
hjónaband er næstum jafnmikilvægt
að leggja áherslu á að hleypa mak-
anum inn í vinahópinn og að hleypa
honum inn í fjölskyldu þína,“ segir
Leonard.
Mamma þín
Yfir 85% kvenna sögðust eiga í góðu
sambandi við móður sína í könn-
un sem gerð var í Bandaríkjunum.
Þar kom enn fremur í ljós að þótt oft
slettist upp á vinskapinn milli mæðra
og dætra væri samband þeirra yfir-
leitt afar sterkt. „Samband mæðgna
skiptir miklu máli því þeim þykir svo
vænt hvorri um aðra,“ segir Karen L.
Fingerman, höfundur rannsóknar-
innar, sem á ráð fyrir konur sem vilja
eiga betra samband við mæður sín-
ar:
*Ef þú átt í erfiðleikum með að njóta
tímans með mömmu þinni: „Hættu
að reyna að breyta henni og ein-
beittu þér að því sem þið hafið báðar
gaman af,“ segir Fingerman.
*Ef þið rífist endalaust um sömu
hlutina: „Þær konur sem eru bundn-
ar mæðrum sínum sterkum böndum
taka rifrildin ekki persónulega. Þær
líta frekar á gagnrýnina sem speglun
af vana mömmu sinnar.“
*Ef þér finnst sambandið of mikið:
„Dætur sem stóðu sig best í þessu
voru þær sem vildu eyða enn meiri
tíma með mömmu sinni. Í stað þess
að segja alltaf nei þegar mamma þín
stingur upp á einhverju finndu þá
eitthvað annað sem þið hafið báðar
áhuga á,“ segir Fingerman.
Þú sjálf
Ef þú ert eins og flestar okkar þá
hendirðu öllu frá þér til að hjálpa
nauðstöddum vini - en hugsarðu
jafn vel um sjálfa þig? Pamela Peeke,
prófessor í klínískri sálfræði við há-
skólann í Maryland, segir að til að við
getum verið góðir vinir okkar sjálfra
verðum við að þekkja okkur. „Ímynd-
aðu þér hvernig þér líður þegar þú
verður ástfangin; hreinleikinn, heið-
arleikinn, ástúðin, skilyrðislausa ást-
in sem þú upplifir. Ættirðu ekki að
hugsa þannig til sjálfrar þín?“ spyr
Peeke sem vill að við endurtökum
fallegar setningar um okkur sjálfar.