Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2010, Blaðsíða 8
8 föstudagur 4. júní 2010 fréttir
Kveðjuveisla
Ásmundar
n Ásmundur Stefánsson, fráfar-
andi bankastjóri Landsbankans,
lét af störfum fyrir skömmu eftir
að hafa stýrt
Landsbankan-
um á erfiðum
tímum frá því í
fyrra. Heimild-
ir DV herma að
Ásmundur hafi
ekki látið það
ógert að kveðja
með pompi og
pragt því hann hafi blásið til mikill-
ar kveðjuveislu þar sem hvergi var
til sparað. Til veislunnar var meðal
annars boðið lykilstarfsmönnum
Landsbankans og mökum þeirra
auk annarra gesta. Herma heimild-
ir DV að veisla Ásmundar hafi verið
með miklu 2007-sniði og að það
hafi komið þeim á óvart sem hana
sóttu hversu vel var veitt í henni á
krepputímum.
Þorvald langar í
sparisjóð
n Ein af ástæðunum fyrir því að
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson,
forstjóri fjárfestingabankans Saga
Capital á Akur-
eyri, mun hafa
ráðið þá Guð-
mund Ólason
og nafna hans
Hjaltason, fyrr-
verandi starfs-
menn Milestone,
til bankans er að
hann hafi hug á
að reyna að eignast Sparisjóð Norð-
lendinga. Til stendur að aðskilja
sparisjóðinn frá sparisjóðnum Byr
sem hann sameinaðist árið 2008 og
sameina hann Sparisjóði Dalvík-
ur en Byr var tekinn yfir af Fjár-
málaeftirlitinu fyrir skömmu. Þeir
Milestone-nafnar hafa reynslu af
vinnu fyrir sparisjóðina en þeir tóku
meðal annars þátt í endurskipu-
lagningu sparisjóðsins í Keflavík.
Þátttaka þeirra nafna mæltist hins
vegar misvel fyrir innan sparisjóðs-
ins og var þeim tvímenningunum
ýtt til hliðar að lokum út af vafa-
samri fortíð sinni. En nú eiga þeir að
aðstoða Þorvald Lúðvík við að ná til
sín sparisjóðnum fyrir norðan.
tengslin við
steingrím
n Þorvaldur Lúðvík er ótrúlega seigur
að ná sínu fram og til að mynda vakti
það athygli í fyrra þegar ríkissjóður
tók yfir 15 milljarða króna skuld Saga
Capital við Seðlabanka Íslands. Með
láninu var lífinu haldið í Saga Capital
en góð kjör voru á láninu, einungis
tvö prósent. Um það var rætt á þeim
tíma að tengsl Þorvaldar Lúðvíks við
Steingrím J. Sigfússon hefðu átt þátt
í að lánið var veitt en Akureyri er í
kjördæmi fjármálaráðherrans. Nú
velta menn því fyrir sér hvort þessi
tengsl við Steingrím muni hugsanlega
aðstoða Saga Capital við að eignast
Sparisjóð Norðlendinga út úr Byr.
BuBBi er margir
n Bubbi Morthens tónlistarmað-
ur hefur gengið í gegnum marg-
ar breytingar á skrautlegum ferli
sínum. Ein sú
róttækasta er
hvernig hann
hefur sveiflast
frá því að vera
farandsöngv-
ari verkalýðs-
ins, yfir í að vera
útrásarpoppari
á Range Rover
í íslenska góðærinu meðan allir
græddu og svo aftur yfir í að vera
kyrjandi kreppukarl á búsáhalda-
samkomum í miðbæ Reykjavíkur
eftir hrunið. Þessir persónuleikar
Bubba komu til tals meðal manna
í vikunni þegar helgarforsíða DV
frá árinu 2007 var rifjuð upp en það
kom fram að Bubbi teldi að það væri
ekkert að því að græða. Enginn veit
því neitt fyrir hvað Bubbi stendur
í raun: Er hann auðvaldssinni og
málpípa þeirra eða baráttumaður
kúgaðrar alþýðu?
sandkorn
Leigusalinn Tómas Boonchang þurfti
að hóta því að siga lögreglu og lög-
mönnum á leigjendur sína til að
koma þeim út úr leiguíbúð í sinni
eigu á Hverfisgötunni. Þegar leigjend-
urnir voru loks farnir út komu í ljós
stórfelldar skemmdir á íbúðinni, svo
miklar að hún er metin fokheld í dag.
Leigjendur Tómasar hafa vald-
ið skemmdum á öllu innbúinu og
þannig skemmt húsgögn og innrétt-
ingar. Þá hafa gólfefni verið eyðilögð
og veggir. Leigjendurnir höfðu þá ver-
ið í íbúðinni í átján mánuði og skiluðu
henni af sér nánast fokheldri að sögn
Tómasar. Iðnaðarmenn og matsmenn
tryggingafélags hafa metið skemmd-
irnar og talið er að það kosti að lág-
marki þrjár milljónir króna að koma
íbúðinni aftur í íbúðarhæft ástand.
Tómas veit sjálfur ekki hvað hann
á til bragðs að taka þar sem trygging-
arnar bæta ekki tjónið. Hann segir
hvorki hafa efni á viðgerðum né mála-
ferlum gegn leigjendunum.
Rosalega óheppinn
„Tryggingarnar borga ekkert því þetta
eru skemmdir af völdum leigjend-
anna. Hún er núna mjög mikið í rúst
og rosalega miklar skemmdir. Íbúð-
in er alveg fokheld núna og ég á ekki
þrjár milljónir til að laga. Þess vegna
get ég ekki leigt íbúðina út aftur og
tapa meiri peningum á því. Kannski
næ ég að gera eitthvað smá til að geta
leigt hana út,“ segir Tómas.
Aðspurður segir Tómas að leigu-
samningur hafi verið útrunninn en
að leigjendurnir hafi iðulega komið
fram með beiðnir um að vera áfram.
Á sama tíma leyfðu þeir leigusalanum
ekki að skoða íbúðina. „Það er eigin-
lega allt ónýtt og þarf meira að segja
að gera nýja veggi. Ég margbað um að
fá að koma inn og sjá íbúðina en fékk
það aldrei. Ég vildi bara sjá hvort allt
væri í lagi. Á endanum sagði ég þeim
að ég kæmi með löggu og lögmann
með mér og þá fóru þeir út loksins. Ég
var rosalega óheppinn með leigjend-
ur og mér finnst rosalega ömurlegt
að lenda í þessu. Þetta eru erfiðir tím-
ar og þetta kostar mjög mikið að laga
þetta. Svo kostar líka rosalega mikið
að fara með þetta fyrir dóm og þarf ég
að safna peningum núna til að fara í
mál. Ég er mjög leiður yfir þessu,“ seg-
ir Tómas.
Kæruleysi algengt
Sigurður Helgi Guðjónsson, formað-
ur Húseigendafélagsins, er hryggur
yfir stöðu Tómasar og segist reglulega
heyra slíkar hryllingssögur. Hann bið-
ur húseigendur umfram allt að fara
varlega og huga fyllilega að rétti sín-
um þegar húsnæði er leigt út. „Lög-
in um húsaleigasamninga eru í raun
mjög góð, ef að menn fara eftir þeim
og ganga vel frá öllum tryggingum.
Þannig eiga menn ekki að lenda í
skakkaföllum. Fjárhagsleg áhætta
leigusalans er mjög mikil og því verð-
ur viðkomandi að gæta sín vel. Því
miður eru margir leigusalar ótrú-
lega kærulausir í þessum málum og
treysta ókunnugu fólki í blindni,“ seg-
ir Sigurður Helgi.
„Þá er algengt að maður heyri orð-
in „en hann kom svo vel fyrir“. Það
er enginn vandi að gæta sinna hags-
muna og leigja út með fullum trygg-
ingum. Þá er of algengt að fólk bíði of
lengi eftir að grunsemdir koma upp
að ekki sé allt í lagi hjá leigjendum.
Samkvæmt lögum á að skila húsnæði
í því ástandi sem það var í og leigusal-
inn hefur rétt að leita til dómstóla ef
svo er ekki. Því miður koma reglulega
upp svona hryllingssögur en því mið-
ur er oftast hægt að rekja þær til fyr-
irhyggjuleysis. Mér finnst hryllilegt að
heyra sögurnar.“
„Við teljum okkur vera með nokkuð
skýra mynd af því sem gerðist og hafa
réttan mann grunaðan um verknað-
inn,“ segir Jóhannes Jensson, yfir-
maður rannsóknardeildar lögregl-
unnar á Suðurnesjum. Þarna á hann
við Ellert Sævarsson, 31 árs gamlan
íbúa í Reykjanesbæ, sem grunaður er
um að hafa banað Hauki Sigurðssyni,
íbúa í Sandgerði, í síðsta mánuði.
Ellert var handtekinn á heimili
sínu að morgni dags 8. maí síðast-
liðinn eftir vitnisburði sjónarvotta
sem sögðu af ferðum hans alblóð-
ugum nærri þeim stað sem Haukur
fannst látinn um morguninn. Báð-
ir voru þeir á heimleið úr sitthvor-
um gleðskapnum þegar þeir hittust á
gangi en eftir því sem DV kemst næst
þekktu þeir hvorki hvor annan né
áttu sökótt við hvor annan. Heimildir
eru fyrir því að blaðberar hafi fundið
Hauk með mikla áverka á höfði eftir
barefli.
Vandi Jóhannesar og félaga í rann-
sóknardeildinni snýr að því að sé Ell-
ert sá seki, sem lögreglan gengur
vissulega út frá, þá er hann einn til frá-
sagnar af samskiptum mannanna og
aðdraganda hins örlagaríka atburðar.
Sökum rannsóknarhagsmuna
verst Jóhannes fregna af gangi rann-
sóknarinnar. Aðspurður staðfestir
hann að Ellert sé haldið í einangr-
un og aðspurður viðurkennir hann
að það tengist því að játning hafi enn
ekki komið fram. „Það eru náttúrlega
rannsóknarhagsmunir sem ráða því
að hann er enn í einangrun og við
höfum verið að yfirheyra hann um
þetta. Það er ekki óeðlilegt að álykta
sem svo að hann er enn í einangr-
un þar sem játning liggur ekki fyrir.
Hluti málsins er að hann er einn til
frásagnar um hvað átti sér stað. Án
þess að ég gefi upp hvað hann hafi
verið að segja okkur getum við ekki
aflétt einangrun á meðan bein játn-
ing liggur ekki fyrir,“ segir Jóhannes.
trausti@dv.is
Á vettvangi Ellert býr steinsnar frá staðnum sem Haukur fannst látinn á. Hann var
sofandi á heimili sínu þegar lögreglan handtók hann og hann er enn í eingangrun.
Ellert Sævarsson hefur ekki játað á sig manndráp í Reykjanesbæ:
Hinn grunaði enn í einangrun
Þegar samningi Tómasar Boonchang við leigjendur hans lauk nýverið komu í ljós
stórfelldar skemmdir á leiguíbúðinni. Skemmdirnar eru metnar á yfir þrjár milljónir
króna og veit hann ekki hvað hann á til bragðs að taka þar sem tryggingarnar bæta
ekki tjónið. Tómas segist hvorki hafa efni á viðgerðum né málaferlum.
Leigjendur HÖFÐu
rústAÐ íbúÐinni
TRauSTi HafSTEinSSon
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is Ég margbað um að fá að koma
inn og sjá íbúðina en
fékk það aldrei.
Kæruleysi Sigurður Helgi heyrir
reglulega hryllingssögur leigusala og
biður fólk um að tryggja sig fyllilega.
Stórskemmd
Eins og sjá má
er íbúðin nánast
fokheld eftir að
leigjendur Tóm-
asar skemmdu
hana gífurlega.