Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2010, Qupperneq 14
14 föstudagur 4. júní 2010 fréttir
Ábending þingmannanefndar Alþingis til setts saksóknara um athugun á málum Davíðs Oddssonar,
Jónasar Fr. Jónssonar og tveggja annarra fyrrverandi embættismanna, er að mati ríkissaksóknara
ígildi kæru. Embættið hefði einnig getað tekið málið upp að eigin frumkvæði á grundvelli skýrslu rann-
sóknarnefndar Alþingis sem telur að Davíð, Jónas Fr., Eiríkur Guðnason og Ingimundur Friðriksson
hafi sýnt af sér vanrækslu í embættisstörfum sínum fyrir bankahrun.
KÆRÐIR Í KJÖLFAR
EMBÆTTISMISSIS
Þingmannanefnd, sem fjallar um
skýrslu rannsóknarnefndar Al-
þingis og viðbrögð við henni,
sendi á dögunum ábendingu til
embættis ríkissaksóknara um þá
embættismenn sem í skýrslunni
eru taldir hafa sýnt af sér van-
rækslu. Atli Gíslason, formaður
nefndarinnar, segir að þetta hafi
verið gert á grundvelli samhljóða
ákvörðunar allra nefndarmanna.
Málið snertir fyrrverandi
seðlabankastjóra, þá Davíð Odds-
son, Eirík Guðnason og Ingimund
Friðriksson, og auk þess Jónas
Fr. Jónsson, fyrrverandi forstjóra
Fjármálaeftirlitsins. Í skýrslu
rannsóknarnefndarinnar eru þeir
taldir hafa sýnt vanrækslu í emb-
ættisstörfum sínum.
„Við vekjum athygli ríkissak-
sóknara á umfjöllun í skýrslu
rannsóknarnefndarinnar um
embættismennina en það er vit-
anlega hann sem tekur afstöðu til
þess hvað gert er með ábendingar
okkar,“ segir Atli.
Valtýr Sigurðsson ríkissak-
sóknari taldi sig vanhæfan varð-
andi mál sem snerta bankahrunið
og vék sæti. Valtýr segir að venju-
lega byggist rannsókn og málatil-
búnaður á kærum og líta megi á
ábendingu þingmannanefndar-
innar til embættisins sem ígildi
kæru.
Þess má geta að Björn L. Bergs-
son, settur saksóknari varðandi
bankahrunið, gat tekið málið upp
að eigin frumkvæði og án þess að
þingmannanefndin hefði nokkuð
um það að segja.
Hafa má í huga að þingmanna-
nefndin fjallar áfram um mál
nokkurra ráðherra og telur sig
ekki endilega bundna af þeim
nöfnum þeirra manna sem rann-
sóknarnefndin taldi hafa sýnt
vanrækslu í störfum sínum.
Vanrækslusyndum mótmælt
Áður en skýrsla rannsóknarnefnd-
ar Alþingis kom út hafði notkun
nefndarinnar á hugtakinu „van-
ræksla“ verið andmælt. Það á með-
al annars við um lögfræðing Jónas-
ar Fr. Jónssonar. Í andmælaskjali
hans er löggjafinn og rannsókn-
arnefndin talin túlka orðið „van-
ræksla“ á nýjan og rýmri hátt en
venja er. „Umbjóðandi minn telur
það stangast verulega á við grund-
vallarreglur um afturvirkni laga og
almennt réttaröryggi ef löggjaf-
inn gæti breytt skilgreiningum á
þessum hugtökum með afturvirk-
um hætti.“ Telur lögfræðingurinn
að skilgreiningar laga um rann-
sóknarnefndina á orðunum „mis-
tök“ og „vanræksla“ skorti laga-
stoð og verði ekki beitt um atburði
sem urðu áður en lögin tóku gildi.
„Önnur nálgun brýtur gegn grund-
vallarsjónarmiðum stjórnarskrár
og alþjóðlegra mannréttindasátt-
mála.“
Í skýrslu rannsóknarnefndar-
innar er sérstaklega fjallað um hug-
tökin mistök og vanrækslu. Tekið
er fram að nefndin lúti þeirri laga-
skyldu að taka afstöðu til þess hvort
einstakir menn verði taldir ábyrg-
ir fyrir mistökum eða vanrækslu
„þar sem fyrirliggjandi upplýsing-
ar hafi ekki verið metnar með rétt-
um hætti, ákvarðanir teknar á ófull-
nægjandi forsendum eða þar sem
látið hafi verið hjá líða að bregðast
við upplýsingum um yfirvofandi
hættu á viðeigandi hátt. Nefndin
verður, hvað sem framangreindum
óvissuþáttum líður, að taka afstöðu
til þess hvernig stjórnvöld höguðu
viðbúnaði sínum í ljósi fyrirliggj-
andi upplýsinga og aðstæðna á
hverjum tíma.“
Lint eftirlit?
Rannsóknarnefnd Alþingis tel-
ur að stjórn Seðlabanka Íslands og
fyrrverandi forstjóri Fjármálaeft-
irlitsins hafi sýnt vanrækslu í starfi
samkvæmt lögunum um rannsókn-
arnefndina frá árinu 2008. Til álita
koma einnig möguleg brot gegn
lögum um Seðlabanka Íslands og
brot gegn stjórnsýslulögum. Í tilviki
forstjóra FME er talið mögulegt að
hann hafi brotið lög frá 1998 um eft-
irlit með fjármálastarfsemi.
Niðurstaða rannsóknarnefnd-
ar Alþingis um Jónas Fr. fyrrver-
andi forstjóra FME er nokkuð af-
dráttarlaus. Eftirlit með stórfelldum
áhættuskuldbindingum bankanna
hafi verið mætt með fortölum,
bréfaskriftum og linkind þegar efni
voru til að fylgja málum fast eftir
og beita þá hörðu. „Þetta hefur haft
í för með sér að eftirlitsskyldir að-
ilar hafa í sumum tilvikum komist
upp með það í framkvæmd að stór-
ar áhættuskuldbindingar hafa ver-
ið færðar í bækur þeirra í andstöðu
við lög að mati Fjármálaeftirlitsins,
ýmist til lengri eða skemmri tíma
[...] Sýndi Jónas Fr. Jónsson, forstjóri
Fjármálaeftirlitsins, þannig af sér
athafnaleysi gagnvart því verkefni
að koma nægilega traustu skipulagi
á daglega starfsemi stofnunarinn-
ar. Verður þetta athafnaleysi hans
talið honum til vanrækslu [...] Með
því verklagi sem viðhaft var í starf-
semi Fjármálaeftirlitsins gagnvart
fjármálafyrirtækjunum og lýst er
hér að framan, skorti nauðsynlegan
slagkraft í störf stofnunarinnar við
að halda fjármálafyrirtækjunum að
lögum á markvissan og fyrirsjáan-
legan hátt...,“ eins og segir í skýrsl-
unni. Um þetta eru svo tekin dæmi
meðal annars af því hvort skuld-
bindingar Actavis hefði átt að telja
til áhættuskuldbindinga Björgólfs
Thors Björgólfssonar.
Seðlabankastjórarnir
Rannsóknarnefnd Alþingis fer ít-
arlega yfir athafnir og athafnaleysi
fyrrverandi bankastjórnar Seðla-
banka Íslands. Þau tengjast einkum
viðbrögðum Seðlabankans við al-
varlegri stöðu Landsbankans sem
upp var komin síðustu vikurnar og
mánuðina fyrir fall hans. „Rann-
sóknarnefnd Alþingis telur að í ljósi
þeirra upplýsinga sem samkvæmt
framangreindu voru komnar fram
innan Seðlabanka Íslands í ágúst
2008 um alvarlega stöðu Lands-
banka Íslands hf. og um afstöðu
breska fjármálaeftirlitsins í málefn-
um bankans hafi verið nauðsynlegt
að gerðar yrðu viðhlítandi ráðstaf-
anir af hálfu bankastjórnar Seðla-
bankans til að ganga úr skugga um
hver væri í reynd staða Landsbank-
ans á þeim tíma með tilliti til áhrifa
hennar á fjármálastöðugleika í land-
inu. Það er niðurstaða rannsókn-
arnefndar Alþingis að meta verði
framangreint athafnaleysi Davíðs
Oddssonar, Eiríks Guðnasonar og
Ingimundar Friðrikssonar svo að
þeir hafi þar látið hjá líða að bregð-
ast við yfirvofandi hættu á viðeig-
andi hátt og grípa til viðhlítandi
ráðstafana og með því sýnt af sér
vanrækslu,“ segir í skýrslunni.
Stjórn Seðlabankans sinnti að
mati nefndarinnar ekki rannsókn-
arskyldum sínum varðandi stöðu
Glitnis áður en bankinn var yfirtek-
inn af ríkinu. Þá var bankakstjórn-
inni skylt að tilkynna ráðamönnum
Glitnis að Seðlabankinn ætlaði ekki
að verða við erindi bankans um um-
beðna aðstoð.
Andmæli Davíðs
Snemma á þessu ári sendi rann-
sóknarnefndin Davíð Oddssyni
spurningar og gaf honum, líkt
og öðrum embættismönnum og
ráðherrum, kost á að andmæla.
Davíð svaraði á nærri 50 blaðsíð-
um. Hann gaf lítið fyrir málatil-
búnað rannsóknarnefndarinnar
og taldi að allmörg „athugunar-
efni“ nefndarinnar væru byggð á
að hægt væri að teygja verkefni
Seðlabankans um fjármálastöðug-
leika langt út yfir lögbundið hlut-
verk hans.
Í lok greinargerðar sinnar seg-
ir Davíð: „Þegar þetta tvennt er
skoðað saman, að ekkert „athug-
unarefnanna“ er tilkomið vegna
brota á hinum tilgreindu lögum,
sem Alþingi hefur falið nefndinni
að huga sérstaklega að og hitt sem
nefndin gefur sér sem forsendu,
að þau skuli „öðru fremur“ hafa
haft þýðingu fyrir fall bankanna,
getur niðurstaðan aðeins orðið
ein. Eina málefnalega og sann-
gjarna niðurstaðan sem hægt er
að komast að er að bankastjórnin
þáverandi hafi hvergi gerst sek um
mistök eða vanrækslu sem hægt er
að fella undir þessi skilyrði. Reyn-
ir nú aðeins á manndóm nefnd-
armanna og að þeir séu ráðnir í
að láta ekki annað en málefnaleg
sjónarmið hafa áhrif á orð sín og
gerðir.“
JóhAnn hAukSSOn
blaðamaður skrifar: johannh@dv.is
Verður þetta at-hafnaleysi hans
talið honum til van-
rækslu...
Ritstjóri Morgunblaðsins Davíð
Oddsson er ritstjóri Morgunblaðsins.
Þeirri spurningu er ósvarað hvort
hann stígi til hliðar meðan mál hans er
til meðferðar hjá ríkissaksóknara.
undanlátssemi við bankana?
Rannsóknarnefndinni þótti
slagkrafturinn lítill í eftirliti Jónasar Fr.
Jónssonar og FME með bönkunum.
Ábending Atli Gíslason og aðrir
þingmenn í nefndinni voru sammála
um að senda ábendingu til ríkissak-
sóknara um meintar vanrækslusyndir
fjórmenninganna.
Ígildi kæru Valtýr Sigurðsson
ríkissaksóknari telur að ábending
þingmannanefndarinnar sé ígildi
kæru.
hæstiréttur Mál Davíðs Oddssonar gæti
endað fyrir Hæstarétti þar sem einn vinur
hans og annar frændi eru dómarar.
MynD kARL PEtERSSOn