Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2010, Side 18
18 FÖSTUDAGUR 4. júní 2010 helGARblAð
Blaðamenn mæta á svæðið klukkan
ellefu. Þá er fjöldi kvenna mættur til
starfa, og jú tveir ungir strákar um
tvítugt sem eru hér í sjálfboðastarfi.
Það eru vinasamtök sem senda þá til
að hjálpa til við að bera þunga hluti.
Flestar konurnar starfa í kvenfélög-
um sem skipa sína fulltrúa í Mæðra-
styrksnefnd. Margar þeirra hafa
starfað hér í fjölda ára án þess að
þiggja nokkur laun fyrir.
Einir og einmana
Um leið og við göngum inn í portið
bera konurnar kennsl á okkur. Hing-
að koma fáir sem ekki eiga erindi.
Kallað er á Ragnhildi G. Guðmunds-
dóttur, formann nefndarinnar, sem
tekur á móti okkur með björtu brosi
og þéttu handtaki. Hún leiðir okk-
ur um starfsemina og sýnir okkur
helstu atriði.
Við byrjum úti í porti þar sem fólk
er yfirleitt farið að tínast í röð um
einum og hálfum tíma fyrir opnun.
Yfirleitt eru það karlmenn af erlendu
bergi brotnir sem mæta fyrstir, allt-
af þeir sömu. Hér tekst oft vinskapur
með fólki, sem er jafnvel eitt og ein-
mana heima hjá sér. Hingað kemur
það vikulega og hittir annað fólk, og
sumir mæta oft á sama tíma í hverri
viku. Mæðrastyrksnefnd gegnir því
líka félagslegu hlutverki fyrir þá sem
ekkert eiga og eiga enga að.
Portið þykir einstaklega hentugt
því þar er fólk alveg í hvarfi frá öðrum
og getur því staðið frjálst og óhikað í
röð án þess að þurfa að óttast um-
tal annarra. Áður var Mæðrastyrks-
nefnd inni í íbúðarhverfi og það þótti
mörgum óþægilegt. Hér má heldur
ekki taka myndir á meðan á úthlut-
un stendur. Hingað eiga allir að geta
komið án þess að eiga það á hættu á
að lenda í fjölmiðlum eða á netinu.
Fæstir sem hingað koma eru stoltir
af því að þurfa aðstoð. Aftur á móti
er algengt að fólk upplifi skömm eða
sært stolt. Þess vegna er mikilvægt að
fólk haldi reisn sinni og ráði ferðinni
sjálft.
Eiga einbýlishús en ekki mat
Tveir Securitas-verðir eru á svæð-
inu á meðan úthlutun stendur yfir og
passa upp á að allt gangi vel fyrir sig.
Konurnar sem starfa fyrir mæðra-
styrksnefnd passa líka upp á að
halda ró í húsinu. Til þess nota þær
ákveðna tækni, tala lágt og rólega og
æsa sig aldrei. Ekki einu sinni þeg-
ar aðrir reiðast og láta svívirðingar
dynja á þeim. Enda segir Ragnhildur
að þó að það komi vissulega stund-
um fyrir að fólk láti ljót orð falla séu
uppsteyt sjaldgæf. Hingað kemur
veikt fólk og stundum andlega veikt.
Sumum líður illa og aðrir eru und-
ir áhrifum. Þá eru þeir beðnir vin-
samlega um að koma ekki aftur í
slíku ásigkomulagi. Það er þó enginn
sendur burtu matarlaus en hún segir
fólkið yfirleitt taka þessum tilmælum
vel og mæti ekki aftur í sama ástandi.
Flestir sem hingað koma eru þó
einstæðar mæður, einstæðingar,
öryrkjar og erlendir karlmenn. Frá
hausti 2007 hefur fjölgað jafnt og
þétt í hópnum og nú er svo komið að
allt að 550 einstaklingar koma hing-
að til þess að sækja aðstoð í lok hvers
mánaðar. Sumir þeirra eru með fjöl-
skyldu á framfæri og algengt er að
einstæðar mæður sem sækja aðstoð
hingað séu með mörg börn á fram-
færi. Þannig að það eru mun fleiri
einstaklingar sem búa við fátækt en
þessar tölur gefa til kynna.
Á síðasta mánuði hefur Ragnhild-
ur merkt breytingu á hópnum sem
hingað kemur því það hefur dregið
töluvert úr komum einstæðra karl-
manna sem eru af erlendu bergi
brotnir. Hún hefur einnig séð fjölgun
í hópi þeirra sem höfðu það gott fyrir
hrun en búa núna við mikla fátækt.
Hingað kemur jafnvel fólk sem býr í
fínum einbýlishúsum og ekur um á
flottum bílum en á ekki fyrir mat.
Maturinn mismikill
Strangar reglur gilda um úthlutun-
ina. Fólk verður að sýna skilríki og
það verður að vera á þjóðskrá. Ein-
stæðir karlar mega bara fá úthlut-
að einu sinni í mánuði en einstæðir
foreldrar og fjölskyldur mega koma
vikulega. Ástæðan fyrir að einstæðir
karlar fá bara mánaðarlega úthlutun
er sú að þær telja þá eiga auðveldara
um vik með að fá aðstoð. Þeir geti
fengið mat hjá kaffistofu Samhjálpar
og Hjálpræðishernum. Konur með
börn fara ekki þangað til að fá mat.
Einstæðingar fá einn poka, fjöl-
skyldur annan og þyngri. Það er
meira í honum. Og ef fólk hefur mörg
börn á framfæri er bætt enn meira í
hann.
Ekki er reiknað með því að matur-
inn dugi alla vikuna en hann ætti að
duga til þess að drýgja vikuskammt-
inn verulega. Misjafnt er hvað er í
pokunum. Fer það eftir því hverju
Mæðrastyrksnefnd hefur áskotnast í
það skiptið og hvað þær hafa keypt,
en megnið af matnum þarf nefndin
að kaupa. Áhersla er lögð á að það sé
allavega ein grunnmáltíð, kjötbúð-
ingur í dag, mjólk og brauð. Stund-
um fylgir kaffi og kex er alltaf vinsælt.
Inni á lager eru svo til aukabirgðir
af allskonar mat sem er sett í poka
ef hinir klárast allir áður en röðin er
búin.
Gjafir fyrir nýbura
Konurnar eru allar í óðaönn við
að setja í poka þegar við göngum
um svæðið. Ein er að sópa, önnur
að þrífa lagerinn. Húsnæðið er allt
fullt af vörum, aðallega matvöru en
blaðamenn reka augun líka í nokkr-
ar skólatöskur og dót. Þær eru ætl-
aðar barnmörgum fjölskyldum sem
standa illa, þær vita núna af einni
einstæðri sex barna móður sem á að
fá þessar skólatöskur.
Inni af lagernum er líka leyni-
herbergi sem ein konan sýnir okkur
stolt. Hún er yfir barnadeildinni og
þarna er heilt herbergi fullt af barna-
fötum. Búið er að pakka í nokkra
poka sem innihalda þrjú sett fyrir ný-
fædd börn, galla, samfellur og annað
slíkt. Þetta eiga nýbakaðar mæður að
fá. Vandinn er bara sá að allar sam-
fellurnar sem Mæðrastyrksnefnd á
eru í sama númeri og það hefði verið
Á hverjum miðvikudegi er matarúthlutun í Mæðrastyrksnefnd. Í blíðskaparverði á fyrsta miðvikudegi mán-
aðarins fengu blaðamenn DV að fylgjast með starfi Mæðrastyrksnefndar, ræða við konurnar sem þar starfa,
Elínu Hirst og fólkið sem þangað leitar. Aðsóknin er misjöfn og fer eftir því hversu langt er liðið frá mánaða-
mótum, en yfirleitt mæta aldrei færri en 330 í upphafi mánaðar og allt að 550 í lok hans. Margir þeirra höfðu
það ágætt fyrir hrun.
Velkomin í fátækt
Mæðrastyrksnefnd
úthlutaði mat til:
100 einstaklinga á viku árið 2005.
125-150 einstaklinga á viku
árin 2006 og 2007.
250-300 einstaklinga á viku árið 2008.
350-400 einstaklinga á viku árið 2009.
350-550 einstaklinga á viku árið 2010.
Elín Hirst setur í poka. Síðustu vikur hefur Elín mætt alla miðvikudaga og fyrir
vikið hefur hún eignast fjölda Facebook-vina. Hún fékk líka koss frá skjólstæðingi
Mæðrastyrksnefndar.
Mjólk og brauð Maturinn er aðeins hugs-
aður til þess að drýgja vikuskammtinn en
ekki til þess að framfleyta fólki alla vikuna.
InGIbjörG DöGG KjartansDóttIr
og VIKtoría HErMannsDóttIr
blaðamenn skrifa: ingibjorg@dv.is og viktoria@dv.is