Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2010, Qupperneq 21

Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2010, Qupperneq 21
helgarblað 4. júní 2010 föstudagur 21 Ali reykt medisterpylsa: 397 kr Ali malakoff: 360 kr Ávaxtasafi í fernum 9 stk: 717 kr eða 79 kr stk Brauð: 198 kr Kaffi: 279 kr Mjólk: 102 kr Tvíbökur: 265 kr Pasta sósa: 239 kr Stjörnu hrásalat: 238 kr Sólberjasaft: 470 kr Súrmjólk: 148 kr 2 appelsínur: 198 kr kg Samtals: 3.611 kr ( ath. verð er miðað við verð í Krónunni 3.6.2010. Ef varan var ekki til þá var miðað við sambærilega vöru) 42 ára tveggja barna móðir. Hún er öryrki og á tvo stráka, 21 árs og 17 ára. Þeir búa báðir hjá henni. Yngri strákurinn hefur ekki getað tekið bílpróf því þau hafa ekki efni á því. Strákarnir hennar eru báðir atvinnulausir, sá yngri er í skóla en fékk enga vinnu í sumar. Sá eldri missti nýverið vinnuna. Hún er á örorkubótum sem hún segir þó engan veginn duga þeim. Hún fær úthlutað mat vikulega hjá Mæðrastyrksnefnd. Maturinn dugar þó ekki út vikuna fyrir þau öll en hún segir það þó hjálpa töluvert. Hún leyfir sér ekkert aukalega og segir lífið oft á tíðum vera mikið basl. Það bjargar þeim að fá þá hjálp sem þau fá hjá Mæðrastyrksnefnd. Hún segist einnig hafa fengið úthlutað fötum hjá Mæðrastyrksnefnd fyrir sig og son sinn. Hún segir mikla skömm fylgja því að geta ekki séð almennilega fyrir fjölskyldu sinni. Sonur hennar veit ekki hvert hún fer að ná í mat og hún vill ekki segja honum það. Hann veit samt að hún fer alltaf á miðvikudögum og nær í mat en hann veit ekki hvaðan hann kemur. 23 ára tveggja barna móðir. Er í sambandi en kærastinn hennar er með óstöðugar tekjur. Hún á tvö börn, eitt tveggja ára og eitt mánaðar gamalt. Hún tók sér árs fæðingarorlof með fyrsta barnið og og varð ólétt stuttu seinna. Hún hefur því verið án atvinnu í ákveðinn tíma og á því einungis rétt á fæðingarstyrk í fæðingar- orlofinu sem hún er í núna. Það eru í kringum 50 þúsund krónur á mánuði. Hún kemur vikulega í Mæðrastyrksnefnd og fer yfirleitt samferða móður sinni sem þiggur líka aðstoð frá nefndinni. Hún segir að þar sem hún og kærasti hennar fái samtals um 200 þúsund krónur í tekjur á mánuði fái hún ekki bætur frá félagsþjónustunni. Þess vegna sjái hún sér þann eina kost í stöð- unni að þiggja mataraðstoð. Hún segir þó matinn engan veginn duga en hann hjálpi þeim áleiðis. Þau borga um hundrað þúsund krónur í leigu á mánuði og eiga því lítið afgangs þegar búið er að ganga frá öllum reikningum. Hún hefur að mestu fengið gefins föt fyrir börnin hjá ættingjum og er þakklát fyrir þá hjálp sem hún fær. Bleiur fyrir börnin séu þó dýrar en það er eitthvað sem þau verði að kaupa og verði því að láta annað sitja á hakanum á meðan. Matarpokinn sem var úthlutað Henni var bent á að leita til Mæðra- styrksnefndar en fannst ansi erfitt að stíga það skref. „Ég var lengi að koma mér hingað fyrst. Mér fannst eitthvað leiðinlegt við það að þurfa að koma hingað. En svo endaði með því að ég lét til leiðast, af því að ég neyddist til þess. Og mér finnst þetta alveg ómetanleg hjálp.“ Upplifði höfnun Hafdís er öryrki og tekjur hennar rétt duga til þess að endar nái sam- an, svo lengi sem hún þiggur þessa aðstoð. „Þetta hjálpar mér að halda bílnum og bjargar mér fjárhagslega. Maturinn sem ég fæ hér er mjög góður og af því að ég er ein er hann ansi drjúgur. Ég þarf alltaf að kaupa einhverja smá viðbót en þetta dug- ir mér ótrúlega vel. Það eina sem fer illa með mig er bensínið og því reyni ég að taka strætó þegar ég get til þess að spara það.“ Níu ár eru liðin frá því Hafdís fór fyrst á örorkubætur í kjölfarið á ýmsum áföllum. Hún fékk blóð- tappa í litla heila sem truflar jafn- vægisskynið, blóðtappa í bæði lung- un og hjartalokurnar biluðu. „Þetta er svona sitt lítið af hverju sem hrjá- ir mig. En ég upplifði mikla höfnun þegar ég hætti að vinna af því að ég er lærður sjúkraliði.“ Bíllinn verstur Síðan Hafdís hætti að vinna hafa fjármálin alltaf staðið tæpt. „En þeg- ar krónan veiktist hækkaði bílalán- ið svakalega og ég sem skuldaði ekki nema rétt um hálfa miljón í bílnum sit nú uppi með lán sem slagar hátt upp í tvær miljónir. Ég fékk styrk hjá Tryggingastofnun til þess að kaupa bílinn en nú er allt farið í vaskinn. Bíllinn er það sem hefur farið verst með mig. Ég fer ekki mikið en ég er kom- in með göngugrind og er orðin vön þannig að ég get farið stundum í strætó. Ég reyni líka að gera það til þess að hreyfa mig aðeins. Ég gæti samt ekki komið hingað með strætó, því ég get ekki haldið á svona þung- um vörum.“ Lætur hvern dag líða Yfirleitt er það að koma í matarút- hlutun hjá Mæðrastyrksnefnd eini fasti punkturinn í hverri viku. „Það er mjög gott að koma hingað. Ég er svo þakklát af því að þær leggja sitt af mörkum til þess að láta manni líða vel. Þær eru svo hlýjar og ynd- islegar að maður alveg dýrkar þær.“ Hún hefur líka kynnst þessum konum aðeins. „Einu sinni kom í ljós að ein sem vinnur hér er hjúkr- unarfræðingur og var að vinna á Landakoti á sama tíma og ég. Ég er náttúrlega sjúkraliði.“ Nú styttist í að Mæðrastyrks- nefnd fari í sumarfrí og þá þarf Haf- dís að bjarga sér með öðrum leiðum. „Ég fer þá kannski í Fjölskylduhjálp. Ég geri það allajafna ekki heldur læt þetta duga. En ég geri það örugglega þegar það lokar hér. Annars á ég eitthvað í frysti sem ég geymi þar til ég þarf á því að halda. Annars reyni ég að horfa ekki fram í tímann held- ur láta hvern dag líða. Þannig líður mér ágætlega.“ Hún vill ekki að við birtum mynd af henni, þar sem hún er enn svolítið viðkvæm fyrir því að þurfa aðstoð. „Ennþá. En ég er samt að lagast með það. Ég var lengi svo sjálfstæð og ætlaði að bjarga mér sjálf. Svo ég tók þetta mjög inn á mig.“ Sneri við fyrir utan „Í fyrsta skipti sem ég ætlaði að koma gekk ég að húsinu og sneri svo við. Labbaði í burtu.“ Þá var Mæðra- styrksnefnd á Sólvallagötu. Hún fór aldrei þangað. Það var ekki fyrr en Mæðrastyrksnefnd var flutt í Há- túnið sem hún treysti sér til þess að þiggja aðstoð þeirra. „Það hjálpar mér.“ Sigríður á fjögur börn og tíu barnabörn. Hér fær hún Svala fyr- ir barnabörnin og brauð. „Ég get skrimt af því sem ég hef en ég þoli engin aukaútgjöld, eins og trygging- ar af bílnum. Ég er mjög blönk. Bæt- urnar duga rétt fyrir leigu og spar- semi, og það sleppur af því að ég borga lága leigu í Hátúninu. Svo lifi ég ódýrt, ég fer aldrei út að skemmta mér, ég kaupi aldrei bjór eða neitt svoleiðis. En ég passa mig á því að einangrast ekki með því að heim- sækja börnin mín.“ Skilningurinn eykst Hún finnur líka fyrir því að þetta er ekki eins mikið feimnismál í þjóðfé- laginu. „Það eru svo margir að lenda í einhverju. Núna er hægt að tala um þetta og það er ekki litið eins mikið niður á mann. Fólk skilur þetta bet- ur, skilur náungann betur.“ Í Mæðrastyrksnefnd er líka tek- ið vel á móti henni. „Þetta eru góð- ar konur. Svo reyni ég líka að spara svolítið. Ég leyfi mér ekki neitt af því að ég er að reyna að koma mér upp varasjóði svo ég eigi fyrir því ef eitt- hvað kemur upp á, ísskápurinn bil- ar eða eitthvað. En ég tek alltaf eitt- hvað af honum, ég þoli ekki mikið. Bensín og matur hafa hækkað svo svakalega. En ég vona að vöruverð fari að lækka þegar evran lækkar.“ Játaði sig sigraða Þrjú ár eru liðin frá því að Sigríður fór að venja komur sínar til Mæðra- styrksnefndar, og þá eftir skilnað. Á meðan hún var í sambúð var hún ekki eins illa stödd fjárhagslega. En hún er búin að vera öryrki í tíu ár, eftir að hryggurinn gaf sig. Þá var hún 49 ára, bjó í einbýlishúsi og var búin að starfa í Búnaðarbankan- um í 30 ár. Hún var löngu farin að finna fyrir óþægindum en reyndi að hunsa þau. „Svo varð ég að játa mig sigraða. Ég versnaði alltaf og þegar ekkert er hægt að gera verður maður að játa sig sigraðan.“ Sært stolt Sigríður Guðmundsdóttir varð öryrki fyrir tíu árum eftir að hafa starfað í þrjátíu ár fyrir Búnaðarbankann. Hún sótti fyrst aðstoð til Mæðrastyrksnefndar fyrir þremur árum eftir að hún skildi við manninn sinn. Þótt það hafi bjargað henni er stoltið samt sært. Í fyrsta skipti sem ég ætlaði að koma gekk ég að húsinu og sneri svo við. Labbaði í burtu. Hafdís Hafsteinsdóttir hefur komið vikulega til Mæðrastyrksnefndar í tvö ár. Hún er menntaður sjúkraliði en varð öryrki eftir blóðtappa. Reynir að hugsa ekki fram í tímann Það er mjög gott að koma hingað. Ég er svo þakk- lát af því að þær leggja sitt af mörkum til þess að láta manni líða vel. Þær eru svo hlýjar og yndislegar að maður alveg dýrkar þær. Hafdís Hafsteinsdóttir Ég upplifði mikla höfnun þegar ég hætti að vinna af því að ég er lærður sjúkraliði. Skjól fátækra Mæðrastyrksnefnd hjálpar þeim sem þurfa á aðstoð að halda. Þangað geta allir komið, líka þeir sem Félagsþjónustan telur að séu ekki hjálparþurfi en sendir í matarúthlutun. Fyrir úthlutun Ragnhildur G. Guðmundsdóttir formaður Mæðrastyrksnefndarinnar sést hér lengst til hægri að ræða við stöllur sínar. Þær hjálpa allt að 550 einstakling- um á viku.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.