Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2010, Síða 25
„Ég held að hann verði öðruvísi
borgarstjóri. Öðruvísi er alltaf gott.“
ANGELA ÁRNADÓTTIR
22 ÁRA SÖNGNEMI
„Mjög líklega, já. Ég myndi trúa því.“
BJÖRN HLYNUR PÉTURSSON
23 ÁRA NEMI
„Já, ég hef mjög mikla trú á honum.“
STEFÁN ÖRN EINARSSON
21 ÁRS NEMI
„Já, ég hef trú á því.“
KRISTJÁN BERGMANN
24 ÁRA NEMI
„Hann verður alveg toppurinn. Þetta
verður grín og gaman.“
HEIÐA HRÖNN JÓHANNSDÓTTIR
20 ÁRA NEMI
VERÐUR JÓN GNARR GÓÐUR BORGARSTJÓRI?
DR. GUNNI er eins og alltaf dómari
og spurningahöfundur í Popppunkti
en þeir gífurlega vinsælu þættir
hefjast aftur á laugardaginn. Þá
mætast HLH og KK bandið.
LANGAR AÐ SJÁ
BÍTLANA Á SVIÐI
Í Hvítu bókinni lýsir Einar Már því
þegar hann sá 10 ára sígaunastrák
drepa í sígarettu og fá sér svo sopa af
heitri mjólk úr brjósti móður sinnar.
Fyrsta hugsunin sem flaug í gegn-
um huga Einars var: „Er rithöfund-
ur hérna? – Sá þetta einhver ann-
ar?“ Rithöfundar munu alltaf vera
að safna svona augnablikum. Ég hef
aldrei skrifað leikrit en ef ég myndi
gera slíkt, þá myndi ég skrifa leikrit
um Vilhjálm Þór Vilhjálmsson fyrr-
verandi borgarfulltrúa. Það er eins
og hann hafi stokkið út úr óbirtu
„stykki“ eftir nafna sinn Shake-
speare. Ég geri ráð fyrir því að leik-
skáld þjóðarinnar hafi fyrir löngu
komið auga á hið dramatíska í fari
„gamla, góða Villa“ eins og hann er
kallaður því þjóðin öll hefur fylgst
með honum en ekki bara nokkrir
farþegar í lestarvagni eins og í dæmi
Einars og sígaunastráksins með síg-
arettuna.
Fylgifiskur hirðarinnar
Vilhjálmur er nefnilega maður
númer tvö. Maður númer tvö sem
þráir ekkert annað en að vera núm-
er eitt. Fylgifiskur hirðarinnar sem
þráir ekkert heitar en að komast
inn í klíkuna. Þetta eitt er nógur
efniviður fyrir flott drama, en bíð-
ið við. Veruleikinn er dramatískari
en allt það sem færustu leikskáld
gætu skáldað. Ef ferill Vilhjálms er
skoðaður skýrist málið enn frekar.
Vilhjálmur Þór hefur verið viðloð-
andi borgarmálin lengur en elstu
menn muna, inngróinn í Sjálfstæð-
isfélag Reykjavíkur og öllum hnút-
um kunnugur og þá meina ég öllum
hnútum. Hann var einn af fylgispök-
ustu jábræðrum Davíðs Oddssonar.
Þegar Davíð var borgarstjóri var Villi
númer tvö. Þegar Davíð hætti, þá
treysti foringinn honum ekki fyrir
oddvitasætinu og upp var dubbaður
Markús Örn Antonsson. Bak við þil
beið Villi með blæðandi hjarta. Ekki
dugði Markús því allt stefndi í stór-
sigur R-listans sem þá var og hét.
Náð var í Árna nokkurn Sigfússon
og honum stillt upp á móti hinum
hvæsandi Galluptölum sem virtust
ætla að rífa Sjálfstæðisflokkinn á
hol. Foringinn treysti Villa ekki frek-
ar en fyrri daginn. Tómum augum
horfði Villi á kött ganga kæruleysis-
lega innan um órólegar endur fyrir
utan Iðnó.
Vindarnir snúast
Allt kom fyrir ekki. R-listinn rústaði
þessu og hið óskaplega gerðist. Sjálf-
stæðisflokkurinn „tapaði“ borginni.
Nú þurfti að velja oddvita til að stýra
minnihlutanum í borgarstjórn. Villi
taldist líklegastur enda maður núm-
er tvö og tveir misheppnaðir oddvit-
ar búnir að reyna sig og mistakast.
En aftur var gengið framhjá Villa.
Inga Jóna Þórðardóttir var valin
oddviti. Villi litli var alltaf númer
tvö. Svo leið og beið. R-listinn gekk
bara bærilega og stýrði borginni af
röggsemi eftir því sem best verð-
ur séð. Svo fyrir einhvern fléttuleik
örlaganna sprakk R-listinn í háaloft
og kosningar lágu fyrir. Nú var allt
til reiðu fyrir Villa. Davíð Oddsson
kominn í Seðlabankann og Haarde
skipti sér lítið af borgarmálum. Eft-
ir snarpa prófkjörsbaráttu við Gísla
Martein (sem fjármögnuð var meira
og minna af Baugi) varð maður
númer tvö skyndilega maður núm-
er eitt.
Ekki sá eini
Til að gera langa sögu stutta þá vann
Villi kosningarnar og borgina fyrir
flokkinn sinn og varð borgarstjóri.
– Loksins. Þar sem hann þekkti
hvernig flokkurinn hugsaði og í von
um að styrkja stöðu sína sem mað-
ur númer eitt, reyndi Villi að einka-
væða Orkuveitu Reykjavíkur eins og
stóru strákarnir á Alþingi sem ætl-
uðu að einkavæða Landsvirkjun.
Þetta sprakk með þvílíkum ósköp-
um að ekki sér enn fyrir endann á
þessari atburðarás. Þetta er sagan
um manninn sem alltaf var núm-
er tvö og þegar hann fékk tækifæri
á því að sanna sig brást hann með
bravúr. Fyrirlitinn af eigin flokks-
mönnum og fæð lögð á hann af
íbúum Reykjavíkur. Á þriðjudag-
inn hætti Villi afskiptum af borgar-
málunum og það er vel. Það eina
sem Villi skilur eftir sig er þó brjóst-
mynd á veggnum í Ráðhúsinu. Ann-
að er þess efnis að hvíslað er um
það innan steypugrárra veggjanna
úti í Tjörninni. Villi er þó ekki eini
dramatíski stjórnmálamaðurinn
á Íslandi. Annað dæmi er af Ólafi
Ragnari Grímssyni, forseta Íslands,
sem breyttist í manninn sem hann
sjálfur fyrirleit sem ungur maður.
Maður númer tvö
UMRÆÐA 4. júní 2010 FÖSTUDAGUR 25
MYNDIN
Hver er maðurinn? „Gunnar Lárus
Hjálmarsson, kallaður Dr. Gunni. “
Hvar ertu uppalinn? „Á Álfhólsvegi
í Kópavogi. Flutti að heiman upp úr
tvítugu og hef búið í Reykjavík síðan, í
101 og 107.“
Hver er þín fyrsta minning sem
tengist tónlist? „Ég man skýrt eftir
laginu Raindrops keep falling on my
head úr útvarpinu á sama tíma og ég
gróf upp Matchbox-bíl úr blómabeði
(líklega gráan Jagúar með opnanlegu
húddi).“
Hvað drífur þig áfram? „Eitthvert
undarlegt sambland af maníu og leti,
sjálfsöryggi og feimni. Samt aðallega sú
hugsun að ég sé ekkert verri en aðrir!“
Hvert ætlarðu í frí í sumar? „Út um
allt innanlands! Vestur, norður, austur
og vonandi Fimmvörðuháls í þriðja
sinn. Langar líka til að hjóla eitthvað
almennilegt, allavega Hvalfjörðinn og
kannski til Akureyrar.“
Hver er uppáhaldsmaturinn þinn?
„Ég ætla nú bara að vera það hallærisleg-
ur að segja sushi, en annars er eiginlega
flest æðislega gott. Til dæmis líbanskur
fingramatur.“
Hvernig hafa tökur gengið á
Popppunkti? „Óaðfinnanlega og eins
og smjör á ristabrauði.“
Er þetta alltaf jafngaman? „Já, því við
erum alltaf með nýtt fólk í keppninni á
hverri önn.“
Hvaða nýjungar verða í ár? „Það er
nokkrar nýjungar. Ég bið áhorfendur
sérstaklega að gefa keppnisliðnum
„Rokk-kastinu“ gaum, en í þeim lið eiga
keppendur að henda sjónvarpi út um
hótelglugga.“
Ferðu ekkert að verða uppiskroppa
með spurningar? „Nei, ég held bara
svei mér þá ekki. Þetta er botnlaus
brunnur.“
Hvaða hljómsveit eða tónlistar-
mann, lifandi eða dauðan, myndi
þig langa til að sjá á sviði? „Að
sjálfsögðu bestu hljómsveit allra tíma,
Bítlana. Ég hef séð Paul sem var magnað
og ætli maður verði ekki að reyna að sjá
Ringo næst, fyrst hinir tveir voru að flýta
sér svona í burtu.“
MAÐUR DAGSINS
DÓMSTÓLL GÖTUNNAR
KJALLARI
VALUR GUNNARSSON
rithöfundur skrifar
„Vilhjálmur er nefni-
lega maður númer
tvö. Maður númer
tvö sem þráir
ekkert annað en að
vera númer eitt.“
Ófeiminn borgarstjóri Jón Gnarr, sem að líkindum verður borgarstjóri í Reykjavík innan fárra daga, kom fram á tískusýningu Hjálpræðishersins á Austurvelli í gær, fimmtu-
dag. Jón tók sig vel út, eins og glöggt má sjá. MYND RÓBERT REYNISSON