Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2010, Síða 28
LeirskúLptúrar
á báti
Sýning á list Guðrúnar Halldórs-
dóttur verður opnuð hjá Reykjavík
Art Gallery, Skúlagötu 30, á laugar-
dag kl. 14. Á sýningunni gefur að líta
leirskúlptúra en yfirskriftin er „Eru
ekki allir á sama báti?“. Guðrún nam
og starfaði að list sinni í Bandaríkj-
unum frá 1990 til 2005. Verk hennar
hafa verið valin á fjölda sýninga vítt
og breitt um Ameríku, þar sem hún
hefur sýnt ein og með öðrum lista-
mönnum. Hér heima hefur Guðrún
haldið nokkrar einkasýningar og tek-
ið þátt í samsýningum.
um heLgina
moso mongo memory mix Snorri Ásmundsson verður
með sýningaropnun í Listasal Mosfellsbæjar á laugardag kl. 14 til 16. Snorri
ætlar að koma á óvart og vill ekkert gefa upp hvað hann ætlar að sýna,
en sýninguna nefnir hann Moso Mongo Memory Mix. Snorri hefur verið í
samræðum við samfélagið, lífið og dauðann í verkum sínum og í þessari
sýningu ætlar hann að varpa fram hinni stóru spurningu. Sýningin stendur
til 3. júlí.
bók um eyja-
fjaLLajökuL
Bók um Eyjafjallajökul, sem ber
einfaldlega nafn jökulsins með
undirtitlinum Stórbrotin náttúra,
kemur út í dag, föstudag. Höf-
undar eru Ragnar Th. Sigurðs-
son ljósmyndari og Ari Trausti
Guðmundsson, jarðeðlisfræð-
ingur og rithöfundur, og verða
þeir í Eymundsson Austurstræti
í dag klukkan 11.30 til að kynna
og sýna bókina. Bókin er bæði á
ensku og íslensku og fjallar um
eldsumbrotin í Eyjafjallajökli, allt
frá fyrstu stundu til dagsins í dag.
Einnig er vikið að eldvirkni al-
mennt á Íslandi og að systureld-
fjallinu Kötlu.
28 föstudagur 4. júní 2010
Fimmta árið í röð fara Stofutónleikar Gljúfrasteins fram á sunnudögum í sumar:
haLda stofutónLeika
hátíð sjóara
Hátíðardagskrá í tilefni sjómanna-
dagsins á sunnudaginn verður hald-
in víða um land um helgina. Þar á
meðal er Hátíð hafsins í Reykjavík
sem fer reyndar fram bæði á laug-
ardag og sunnnudag. Hátíðarhöld
með fjölbreyttri dagskrá fara fram á
Granda og teygja sig yfir á Ægisgarð,
þar má nefna fjölbreyttar smiðj-
ur eins og módelsmiðjuna, flösku-
skeytasmiðju, hnútasmiðju, leiktæki
fyrir börnin, siglingar um sundin,
nýr og ferskur fiskmarkaður verður
opnaður á hátíðinni og fleira. Nánar
á hatidhafsins.is og upplýsingar um
aðrar hátíðir á landinu má finna á
ýmsum vefsíðum sjávarþorpa lands-
ins.
Fimmta stofutónleikaröð Gljúfra-
steins hefst á sunnudaginn, 6. júní.
Tónleikarnir hafa undantekningar-
lítið verið fjölsóttir síðustu sumur
og er dagskrá sumarsins fjölbreytt
að vanda.
Halldór Laxness var mikill
áhugamaður um tónlist og tón-
listarflutning. Hann var prýðilegur
píanisti sjálfur og rómaður fagur-
keri á því sviði. Tónlistarflutningur
og tónleikahald er því afar mikil-
vægur þáttur í þeirri uppbyggingu
sem Gljúfrasteinn stefnir að í fram-
tíðinni, að sögn umsjónarmanna
safnsins.
Það eru þau Hulda Björk Garð-
arsdóttir sópran, Kjartan Valde-
marsson píanó, Ásgeir Ásgeirsson
gítar og Ólafur Stolzenwald kontra-
bassi sem ríða á vaðið í tónleika-
röð sumarsins 2010 með tónleik-
um á sunnudaginn. Þar flytja þau
nokkur vel valin lög eftir George
Gershwin.
Innlifun Dúóinn Stemma spilaði á
stofutónleikum Gljúfrasteins í fyrrasumar.
ekki með sama metnað og bó
„Þetta er svona eins og konseptlista-
verk held ég hjá okkur. Kannski með
smá íhaldssemi í bland,“ segir Ár-
mann um ástæðu þess að allar plöt-
ur Ljótu hálfvitanna hingað til bera
einfaldlega nafn hljómsveitarinnar.
Og ekki bara það heldur eru plötu-
umslögin afar lík; öll með teikningu
af hljómsveitarmeðlimum framan á
og svo nafn bandsins, og þá um leið
plötunnar, fyrir ofan myndina. Skýr-
asti munurinn er litur bókstafanna.
Að þessu sinni er hann grænn, síð-
ast var hann blár og þar áður bleikur,
hvað svo sem lesa má í það.
„Þetta er vinkona okkar sem
teiknar myndirnar og okkur lang-
ar líka bara að nota þær. Svo verður
þetta voðalega flott þegar við erum
búnir að gefa út tuttugu plötur. Þá
verður þetta afskaplega fallegt safn,“
bætir Ármann við. Svo því sé hald-
ið til haga heitir drátthaga vinkonan
Tiina Elina Turpeinen. Eins og nafn-
ið gefur vísbendingu um er hún af
finnskum ættum en Tiina hefur búið
hér á landi undanfarin ár.
Ekki var ákveðið þegar fyrsta plat-
an kom út að hafa þetta svona; hug-
myndin kom hins vegar fram þeg-
ar önnur platan var í bígerð. „Við
þurftum ekkert að ákveða þetta með
fyrstu plötuna. Hana bar líka mjög
brátt að, við gerðum hana alveg í
spreng,“ segir Ármann. „En þegar við
fórum að huga að plötu númer tvö
komust menn að þeirri niðurstöðu
að það væri skemmtilegt að hafa
þetta svona. Einhver nefnd sem feng-
in var til að meta flottustu og ljótustu
plötuumslögin í fyrra var reyndar
ekki jafn hrifin. Við komumst ekki á
listann hjá henni, hvorki yfir þau fal-
legu né ljótu, en við heyrðum af því
að einhver í nefndinni á að hafa sagt
að plötuumslögin okkar væru við-
bjóður,“ segir hann og hlær.
Engin stórkostleg breyting
Spurður hvort Ljótu hálfvitarnir
séu að feta einhverja nýja slóð á nýju
plötunni, það er tónlistarlega, segir
Ármann það í raun bæði og. „Þetta
eru lög eftir okkur eins og á hinum
plötunum þannig að það er hefur
ekkert stórkostlegt breyst þannig. En
við semjum allir, og lögin eru mjög
ólík heilt yfir, þannig að allar plöt-
urnar bera höfundareinkenni hvers
og eins okkar að einhverju leyti.“
Aðalmuninn á eldri plötunum
tveimur og þeirri nýju segir Ármann
líklega felast í því að annar upptöku-
stjóri var á tökkunum. Þetta sinnið
var það Flex Árnason í Stúdíói ReFlex
en áður voru það Guðmundur Krist-
inn Jónsson og Sigurður Guðmunds-
son, betur þekktir sem Kiddi og Siggi
í Hjálmum.
„Við ákváðum að breyta til vegna
þess að við töldum það vera hollt
og gott fyrir okkur. Við vorum mjög
ánægðir með plöturnar sem við
gerðum með þeim Hjálmabræðrum,
en maður hefur ekki gott af því að
gera alltaf sömu hlutina í sama um-
hverfi. Síðan unnum við líka eitt lag
í fyrra með Flex, lag sem við gerðum
fyrir Unicef, og vorum mjög ánægðir
með það sem hann gerði þar og okk-
ur langaði því að vinna meira með
honum.“ Þess má geta að Unicef-lag-
ið á plötunni, heitir Hætt´essu væli.
Spilað á bjór
Sjaldgæft hefur verið að sami mað-
ur spili á sama hljóðfærið tvö lög í
röð hjá Hálfvitunum. Ármann seg-
ir þetta nánast enn vera lensku. „En
ég segi kannski ekki að þetta sé sjald-
gæft lengur af því að við erum komn-
ir með það mörg lög. Það gerist til
dæmis alveg að sami maður spili á
bassa tvö lög í röð, merkilegt nokk.
En þetta er mjög „advanced“ hjá okk-
ur á tónleikum hvernig menn rétta
hljóðfærin með annarri hendi í átt að
einum manni og taka við öðru hljóð-
færi með hinni. Þetta var mjög kaót-
ískt til að byrja með, en þetta lærist.
Þetta verða viðbrögð, svona reflex.“
Hvorki fleiri né færri en níu
manns eru í hljómsveitinni. Í sam-
bandi við þann fjölda, og hljóðfæra-
notkun bandsins, fræðir Ármann
blaðamann um orðatiltæki sem orð-
ið hefur til hjá Hálfvitunum um með-
lim sem ekki spilar á neitt hljóðfæri í
tilteknu lagi. Það gerist við og við þar
sem ekki er þörf á níu hljóðfærum í
hverju einasta lagi. Þá er sagt að við-
komandi spili á bjór í laginu, með
vísan til þess að hann geti setið slak-
ur á hliðarlínunni og vætt kverkarnar
á meðan hinir láta tónana óma.
„Reyndar er svolítið mótsagna-
kennt að eini maðurinn í hljómsveit-
inni sem drekkur ekki lendir oftast
í þessu. Það er af því að hann spilar
ekki á hljóðfæri heldur syngur aðal-
lega,“ segir Ármann og hlær.
30 tonna lestarhleri notaður á
plötunni
Hljómsveitin Ljótu hálfvitarnir gaf á dög-
unum út sína þriðju plötu á fjórum árum.
Allar heita þær Ljótu hálfvitarnir með
teikningu af Ljótu hálfvitunum framan
á umslaginu. Einhverjir gætu sagt að það
sé ljóti hálfvitaskapurinn að rugla fólk
þannig í ríminu. Ármann Guðmundsson,
einn meðlima hljómsveitarinnar, svar-
ar hér fyrir þá félaga. Og segir um leið
frá bindindismanni bandsins sem spilar
oftast á „bjórinn“, gestahlutverki KK og
niðurskrúfuðum tónlistarlegum metnað-
inum.
Ármann Guðmundsson „Einhver í nefnd-
inni á að hafa sagt að plötuumslögin okkar
væru viðbjóður.“ MYND SIGtrYGGur ArI
6. júní Hulda Björk Garðarsdóttir,
sópran, Kjartan Valdemarsson, píanó,
Ásgeir Ásgeirsson, gítar, og Ólafur
Stolzenwald, kontrabassi
13. júní Íris Ólöf Sigurjónsdóttir og
Hjörleifur Hjartarson, alþýðusöngvar
20. júní Sigríður Thorlacius, söngur/
vocals, og Högni Egilsson, gítar/guitar
27. júní Árni Heiðar Karlsson, píanó,
Gunnar Hrafnsson, kontrabassi, og
Matthías Hemstock, slagverk
4. júlí Kristinn H. Árnason, gítar
11. júlí Matthías I. Sigurðsson,
klarínetta, og María Arnardóttir, píanó
18. júlí Gunnhildur Daðadóttir, fiðla
25. júlí Davíð Þór Jónsson, píanó
1. ágúst Ólafur Elíasson, píanó
8. ágúst Signý Sæmundsdóttir, sópran,
og Þórarinn Sigurbergsson, gítar
15. ágúst Hallveig Rúnarsdóttir, sópr-
an, Sólveig Samúelsdóttir, mezzósópr-
an, og Hrönn Þráinsdóttir, píanó
22. ágúst Sesselja Kristjánsdóttir,
mezzósópran, og Anna Guðný
Guðmundsdóttir, píanó
29. ágúst Ástríður Alda
Sigurðardóttir, píanó
Aðgangseyrir á alla tónleikana er 1.000
krónur.
dagskráin í sumar