Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2010, Qupperneq 29
...myndinni
Youth In
Revolt
Klassa gam-
anmynd sem
allir ættu að hafa
gaman af.
...tölvu-
leiknum
Red Dead
Redemtion
Frábær og
öðruvísi
skemmtun.
...bókinni Missi
eftir Guðberg
Bergsson
Sönn, sorgleg og
fyndin lýsing á
ellinni og áhrifum
hennar.
...myndinni
Cop Out
Vonandi vinna
Tracy Morgan
og Bruce
Willis ekki oftar
saman.
4. júní 2010 FÖSTUDAGUR 29
Skyggir á New York-búann
FÖSTUDAGUR
n Tattúrokk á Sódómu
Um helgina fer hið árlega tattoofestival
fram á Sódómu Reykjavík. Fjölmargir
listamenn, bæði innlendir og erlendir,
sýna listir sínar á daginn meðan á
hátíðinni stendur. Í kvöld mun rokkið
hins vegar ráða ríkjum þar sem fram
koma The 59´ers, Cliff Clavin og Ultra
Mega Technobandið Stefán. Tónleikarnir
hefjast stundvíslega á miðnætti, 500
krónur inn.
n Skosk gleði í Havarí
Skoski söngvarinn Alasdair Roberts
kemur fram í Havarí við Austurstræti í
dag kl. 16.30. Alasdair kynnir nýtt efni
af væntanlegri plötu sinni, Too Long In
This Condition, sem kemur út hjá Drag
City síðar í mánuðinum. Alasdair er hér
á landi vegna tónleika hans og Benna
Hemm Hemm á Listahátíð og fannst lítið
mál að heiðra Havarí með nærveru sinni
og tónum.
n Ibiza-partí á Rúbín
Útvarpsstöðin Flass 104,5 fagnar fimm
ára afmæli sínu með Ibiza-ferð í sumar.
Stór hópur af dansþyrstum Flass-hlust-
endum er á leiðinni út og er ætlunin að
hita upp fyrir ferðina með svakalegu
Ibiza-partíi á Rúbín í kvöld. Breski
plötusnúðurinn Will Atkinson heldur
uppi stuðinu á aðalsviðinu ásamt Dj
Frigore. Frítt inn fyrir þá sem eru að fara
til Ibiza með Flass 104,5, fyrir aðra kostar
1.045 kr í forsölu en 1.450 við hurð.
n Stórvirki í Óperunni
Íslenski tónlistarhópurinn Njúton og
bandaríski strengjakvartettinn The
Formalist Quartet frumflytja á Íslandi eitt
af stórvirkjum tónlistarsögu 20. aldar,
Vortex Temporum eftir franska tónskáld-
ið Gérard Grisey, í Íslensku óperunni í
kvöld. Á tónleikunum verður jafnframt
frumflutt nýtt verk eftir Atla Ingólfsson.
Tónleikarnir eru hluti af Listahátíð í
Reykjavík. Miðaverð 2.900 kr.
LAUGARDAGUR
n Greifarnir í Hvíta húsinu
Nú er komið sumar samkvæmt
almanakinu og því nauðsynlegt að fá
svolítið meira sumar í mannskapinn.
Greifarnir mæta í Hvíta húsið á Selfossi
á laugardagskvöldið og sjá um að halda
uppi frábærri sumarstemningu. Lög eins
og Útihátíð, Frystikistulagið, Sumarnótt,
Þyrnirós, Jóhannes, Draumadrottningin
og fleiri og fleiri ættu að duga til þess að
kveikja í hverjum sem er.
n Atli og Erpur á 800 Bar
Atli og Erpur ætla að láta öllum illum
látum á 800 Bar á Selfossi í kvöld. Allar
stúlkur sem vilja dick og allir strákar sem
vilja drykk eiga heimangengt þarna og
gestur númer 800 fær frítt að drekka
og 800 óskalög í röð. Hvort sem þú ert
sjóari, sídrykkjumaður eða sultupardus
mátt þú ekki missa af þessu kvöldi.
n Myndlistarsýning í Gallerí Tukt
Sigrún Erna & Birna Styff opna samsýn-
ingu í Gallerí Tukt í Hinu húsinu í dag
á eigin verkum sem eru meðal annars
málverk og teikningar. Í boði verða
veitingar og skemmtilegar uppákomur
og verða verkin til sölu. Opnunin verður
á milli kl. 16 og 18.
n Sálin á NASA
Ball af dýrari gerðinni fer fram á Nasa í
kvöld þar sem Sálin hyggst troða upp.
Húsið opnað kl. 23.59, miðaverð 2000 kr.
Forsala á NASA föstudag milli kl. 13 og
17. Aldurstakmark 20 ár.
n Lærðu að smíða myndavél
Smiðja í tengslum við sýningarverkefnið
Ljós&mynd fer fram á Kjarvalsstöðum
milli kl. 13 og 16 í dag þar sem fólki
er kennt að smíða eigin myndavél og
framkalla myndir. Ljósmyndarinn Pétur
Thomsen aðstoðar börn og fjölskyldur
þeirra við að smíða kassamyndavél
(pinhole-myndavél) sem er mjög einföld
myndavél án linsu. Allt sem þarf til er
kassi með örlitlu gati og ljósnæmur
pappír eða filma til að fanga fyrir-
myndina, en hið síðarnefnda fá gestir á
staðnum sér að kostnaðarlausu.
Hvað er að
GERAST?
Fimmta árið í röð fara Stofutónleikar Gljúfrasteins fram á sunnudögum í sumar:
HALDA STOFUTÓNLEIKA „Ég lagðist undir feld og fór að
hugsa um einhvern „outstand-
ing“ íslenskan blúsleikara sem
hefur kannski ekkert mikið verið
að koma fram. Þá flaug Jói G. mér
í hug, enda er hann einn af okkar
allra flottustu blúsleikurum,“ segir
Björn Thoroddsen, forsvarsmað-
ur Jazz- og blúshátíðar Kópavogs
sem fram fer í Salnum um þessa
helgi, nánar tiltekið föstudag og
laugardag. Hápunktur hátíðar-
innar er óneitanlega blústónleik-
ar sem fara fram í kvöld þar sem
aðalgesturinn er tónlistar- og
myndlistarmaðurinn Jóhann G.
Jóhannsson.
Jóhann hefur ekki spilað opin-
berlega í mjög langan tíma og það
var því ekki nóg að nefna þessa
hugmynd við hann svo hann slægi
til, segir Björn. „Það þurfti að tala
hann aðeins til. Hann hefur ekki
komið fram í tuttugu ár.“ Jóhann
mun taka sérstaklega fyrir tíma-
bilið þegar hann var í hljómsveit-
inni Óðmenn seint á sjöunda ára-
tugnum. Þó mun hann einnig fara
að miklu leyti yfir feril sinn, allt frá
því hann söng Cream-lögin Suns-
hine of Your Love og White Room
og þar til hann samdi megahittar-
ann Don´t Try to Fool Me.
Með Jóhanni kemur fram
hljómsveitin Joe´s Band sem ekki
hefur verið til lengi; reyndar er hún
bara að fæðast í tilefni tónleikanna
en hana skipa Björn, sem spilar að
vanda á gítar, Gunnar Hrafnsson
bassi, Jóhann Hjörleifsson tromm-
ur, Dagur Sigurðsson söngur og Ri-
chard Gillis trompet.
Björn reiknar ekki með að
framhald verði á spileríi hjá Joe´s
Band. „Það er raunverulega bara
tjaldað til einnar nætur í þetta
skiptið. En það er gríðarlegur
áhugi fyrir tónleikunum, varð
uppselt mjög fljótt þannig að við
erum búnir að setja á aukatón-
leika á laugardaginn.“
Sérstakur heiðursgestur há-
tíðarinnar er New York-búinn
Miles Griffith. Hann er skattari
af guðs náð og hefur sungið með
stórstjörnum á borð við Wynton
Marsalis. Björn segir hann vera
með tónleika á laugardeginum,
en reyndin sé sú að seinni tón-
leikarnir með Jóhanni G. skyggi
eiginlega á skattarann að vestan.
„Planið var að Miles yrði aðalgæ-
inn á laugardagskvöldinu, en það
hallast allt að því að Jói verði aðal-
gæinn. Hann er bara stjarna.“
kristjanh@dv.is
...myndinni
Snabba Cash
Mjög góð
glæpamynd með
sterka raunveru-
leikatengingu
...myndinni
Prince of
Persia: The
Sands of
Time
Hálfgerður
Pappírs-Persi.
Jóhann G. Kemur fram í fyrsta sinn
í 20 ár.
EKKI MEÐ SAMA METNAÐ OG BÓ
Eitt af því sem spilað er á á nýju
plötunni er fræsari sem starfsmenn
Byko tóku að sér að gera, loftskröll
sem starfsmenn Toyota-þjónustunn-
ar í Kópavogi þeyttu og svo hvorki
meira né minna en 30 tonna lestar-
hleri af Helgafellinu. Löndunarkrani
var notaður til þess arna.
„Við viljum alltaf gera eitthvað
svona skemmtilegt á hverri plötu. Á
síðustu plötu hentu menn sér til að
mynda á vegg til að fá það hljóð,“
segir Ármann og hann og blaða-
maður hlæja. Metnaðurinn er aug-
ljóslega mikill í „spilamennskunni“,
eða kannski öllu heldur „hljóðsköp-
uninni“. „Þetta heyrðist reyndar ekki
mjög greinilega. Fyrir þá sem ekki
vissu hvað þarna var að gerast hljóm-
aði þetta bara eins og það væri verið
að lemja eitthvað stórt.“
Hljóðið sem myndaðist við að
hlerinn þungi skall niður var svo
spilað aftur á bak því þá hljómaði
það eins og brim, segir Ármann.
KK til í tuskið
Margir gestaspilarar eru á nýju plöt-
unni - auk áðurnefndra starfsmanna
Byko, Toyota og kranamanns - þar
á meðal brasstríó og sjálfur KK sem
leggur bandinu lið í tveimur lögum.
Ármann segir það einfaldlega hafa
komið þannig til að Hálfvitana lang-
aði að prófa að láta einhvern annan
syngja eitt lagið, lag sem heitir Eftir-
mæli, til að fá annan karakter í það.
„Og við spurðum KK og hann var al-
veg til í það. Það varð svo úr að hann
syngur dúett með Oddi Bjarna [Þor-
kelssyni] í laginu. Svo úr því að hann
var kominn í stúdíóið langaði okkur
að fá munnhörpusóló í eitt lagið og
hann bara taldi í.“
Ármann skortir nánast orð til
að lýsa ljúfmennsku KK, af þessum
stuttu kynnum sínum af kappan-
um að dæma. „Það er vandfundinn
gæðalegri maður held ég. Hann er
ekkert nema elskulegheitin og hæfi-
leikarnir.“
Ekki með metnað Bjarkar, Bó
og Sigur Rósar
Eins og flestir vita sem þekkja á ann-
að borð eitthvað til Ljótu hálfvitanna
eru allir meðlimir bandsins ým-
ist fæddir, uppaldir eða ættaðir frá
Húsavík og sveitunum þar í kring.
Núna búa þeir allir hins vegar í 101
eða 105 Reykjavík. Út frá því er ekki
erfitt að fá allan hópinn til að mæta
á æfingar, en erfiðara gæti verið að
fá það í gegn með hliðsjón af fjöld-
anum.
„Við erum með fastan æfingatíma
tvisvar í viku þannig að menn skipu-
leggja sig í kringum það þegar hægt
er,“ segir Ármann. „En svo eru menn
í öðrum hljómsveitum, í leiklistar-
verkefnum í tengslum við áhugaleik-
hópa og fleiru þannig að það geng-
ur ekki alltaf upp. En það er yfirleitt
hægt að gera eitthvað þótt einn eða
tvo vanti.“
Ljótu hálfvitarnir eru gjarnan
flokkaðir með þeim hljómsveitum
landsins sem þykja nokkuð léttar á
bárunni, eins og Baggalúti, Hvann-
dalsbræðrum og fleirum, og margir
kannski telja sig skynja að séu starf-
andi innan tónlistarheimsins fyrst
og fremst af því að hljómsveitarmeð-
limir hafi svo gaman af því. Spurð-
ur hvort það sé aðallega gleðin sem
fylgir tónlistarsköpuninni sem haldi
Hálfvitunum við efnið, frekar en
metnaður og löngun til þess að vera
farsælir tónlistarmenn, segir Ár-
mann gleðina og samkenndina sem
þetta veiti þeim vissulega mikilvæg-
asta þáttinn.
„Þetta er náttúrlega fyrst og
fremst félagsskapurinn og við tökum
okkur ekki mjög alvarlega. Um leið
og þetta verður leiðinlegt er þetta til-
gangslaust. Það held ég að sé alveg
samdóma álit allra í hljómsveitinni.
Auðvitað höfum við metnað og allt
það, og við viljum gera hlutina vel, en
við höfum kannski ekki alveg sama
metnað og Björk, Sigur Rós eða Bó
Halldórs,“ segir Ármann léttur á því.
Agalegt stuð
Útgáfutónleikar í tilefni nýju plöt-
unnar verða tvennir, fyrst í Íslensku
óperunni núna á laugardaginn og
svo á heimaslóðum, í Ýdölum í Að-
aldal, laugardaginn 12. júní. „Það
verður agalegt stuð. Brasstríóið sem
spilaði með okkur á plötunni verð-
ur þarna og fleiri gestaspilarar plöt-
unnar,“ segir hann. KK kemst þó því
miður á hvoruga tónleikana. Frek-
ari spilamennska er svo fyrirhuguð
seinna í sumar til að fylgja eftir Ljótu
hálfvitunum - Part III. kristjanh@dv.is
Ljótu hálfvitarnir Notuðust við lestarhlera á skipi á nýju plötunni.