Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2010, Síða 32
32 föstudagur 4. júní 2010 nærmynd
Björgólfur Thor Björgólfsson fjár-
festir stendur á tímamótum í kjölfar
íslenska efnahagshrunsins. Íslenska
efnahagsundrið sem hann átti þátt
í að hefja með kaupunum á Lands-
banka Íslands árið 2002 tók snögg-
an enda með hruninu og með því
gerbreyttust skoðanir almennings á
honum. Björgólfur fór frá því að vera
hampað sem viðskiptasnillingi yfir
í að vera úthrópaður ásamt hinum
auðmönnunum sem kennt hefur ver-
ið um að hafa komið Íslandi á hlið-
ina.
Síðustu mánuðina hefur hann
staðið í skuldauppgjöri við lánar-
drottna sína sem væntanlega mun
skera úr um hvernig framtíð hans
í viðskiptalífinu verður háttað.
Skuldauppgjör Björgólfs snýst fyrst
og fremst um framtíðareignarhald
á samheitalyfjafyrirtækinu Actavis
sem og um aðrar minni eignir. Eftir
að þessu skuldauppgjöri hans lýkur
mun fyrst verða hægt að meta stöðu
hans í kjölfar hrunsins.
Björgólfur dvelur að mestu í
London þar sem hann er búsettur
og vinnur í sínum málum og nánast
ekkert hefur spurst til hans en þó er
vitað að hann heldur enn úti einka-
bílstjóra hér á landi sem sinnir auk
þess ýmsu snatti fyrir hann: „Það er
eins og jörðin hafi gleypt hann,“ seg-
ir kunningi og fyrrverandi samstarfs-
maður Björgólfs Thors en fjárfest-
irinn á ennþá umtalsverðar eignir á
Íslandi, svo sem eins og stóran hlut
í Actavis og tölvuleikjaframleiðand-
um CCP, símafyrirtækið Nova og hlut
í gagnaveri Verne Holding sem verið
er að reisa í Reykjanesbæ.
Björgólfur setti reyndar gott for-
dæmi með því að senda frá sér afsök-
unarbréf til íslensku þjóðarinnar fyrir
nokkru sem og bréf um skuldastöðu
sína. Enginn annar íslenskur auð-
maður hefur verið eins hreinskilinn
að þessu leytinu til.
Aldarspegill
Út úr persónusögu Björgólfs á síðast-
liðnum tíu árum má lesa vissan ald-
arspegil um ris og fall íslensks efna-
hagslífs og um leið samfélagsins.
Björgólfur fór til Rússlands og auðg-
aðist á bjórverksmiðju en kom svo
heim til Íslands og keypti elsta banka
landsins, Landsbankann, sem hann
stýrði svo í þrot ásamt föður sínum á
einungis nokkrum árum. Björgólfur
var táknmynd útrásarinnar og þess
góðæris sem því fylgdi.
Einkavæðingarferli Landsbank-
ans hófst með bréfi sem Björgólfur
Thor sendi til einkavæðingarnefndar
sumarið 2002 og íslenska efnahags-
kerfið hrundi eftir að umræður sem
hann tók þátt í við ráðherra í ríkis-
stjórn Íslands sigldu í strand en líta
má á viðræðurnar sem dauðateygj-
ur íslenska efnahagskerfisins fyrir
hrun. Á milli þessara tveggja atburða,
þegar Björgólfur sendi bréfið og við-
ræðna Landsbankans, Kaupþings og
ráðherranna í ríkisstjórninni, áttu sér
stað þeir atburðir sem gert er upp við
í skýrslu rannsóknarnefndar Alþing-
is. Ljóst er að þáttur Björgólfs Thors í
þessari sögu er allnokkur.
Frá því skýrsla rannsóknarnefnd-
ar Alþingis kom út hefur hins vegar
verið minna rætt um ábyrgð þeirra
Björgólfsfeðga á hruninu en stjórn-
enda og eigenda hinna tveggja stóru
bankanna. Mörgum finnst miður að
þrátt fyrir að þeir Björgólfsfeðgar beri
á endanum ábyrgð á líklega stærsta
klúðrinu í íslenska efnahagshruninu,
Icesave-reikningunum, sé minna
um þá fjallað en aðra lykilmenn í ís-
lensku viðskiptalífi: „Þeir eru nátt-
úrulega með stærsta bömmerinn á
bakinu sem er Icesave,“ segir einn
viðmælenda DV. Ekki er hins veg-
ar vitað til þess að eftirlitsaðilar eða
ákæruvaldið skoði málefni tengd Ic-
esave á þessu stigi.
Upplýsingafulltrúi skilanefndar
Landsbankans, Páll Benediktsson,
sagði hins vegar í viðtali við DV að nú
þegar hefði skilanefndin sent nokkur
mál tengd Landsbankanum til rann-
sóknar hjá Fjármálaeftirlitinu og sum
þeirra hefðu ratað áfram í hendur sér-
staks saksóknara. Ekki er hins veg-
ar vitað hvaða mál um ræðir, ef und-
an er skilið Imon-málið svokallaða,
og hvort eða hvernig Björgólfur Thor
tengist þeim málum sem send hafa
verið áfram. Björgólfur Thor segir í
svari við fyrirspurn DV um þetta atriði
að hann viti ekki hvaða mál þetta séu.
„Nákvæm“ skoðun
á Björgólfi Thor
Ýmsar ástæður eru fyrir því að minna
hefur verið rætt um þátt þeirra feðga
en annarra. Meðal annars má þar
nefna að skilanefnd Landsbank-
ans hefur ekki notað gögn úr endur-
skoðendarannsóknum á bankanum
í dómsmálum líkt og í tilfelli tveggja
stefna sem Glitnir hefur sent frá sér
gegn eigendum og stjórnendum
bankans. Björgólfsfeðgar eru held-
ur ekki til rannsóknar hjá ákæru-
valdi svo vitað sé, líkt og stjórnendur
Kaupþings. Minna er auk þess vitað
um aðkomu þeirra feðga að stjórn
Landsbankans en til dæmis um að-
komu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar
að Glitni. Upplýsingarnar sem fram
koma í skýrslu alþjóðlega rannsókn-
arfyrirtækisins Kroll benda ótvírætt
til að Jón Ásgeir hafi verið skugga-
stjórnandi í Glitni á árunum 2007
og 2008 og í reynd stýrt bankanum í
gegnum forstjóra hans, Lárus Weld-
ing.
Jón Ásgeir var, þrátt fyrir þetta,
ekki skilgreindur sem tengdur aðili
hjá Glitni þrátt fyrir að vera aðaleig-
andi bankans. Sömu sögu er að segja
um Björgólf Thor sem ekki sat í stjórn
bankans, líkt og faðir hans sem var
með skrifstofu í höfuðstöðvum bank-
ans í Austurstræti, og var ekki starfs-
maður bankans. Björgólfur Thor var
hins vegar skilgreindur sem tengdur
aðili hjá Straumi þar sem hann var
stjórnarformaður.
Skilanefnd Landsbankans er hins
vegar með slíka skýrslu um starfsemi
Landsbankans í vinnslu og er það
endurskoðendafyrirtækið Deloitte í
London sem vinnur hana. Skýrslan
mun ná til nokkurra mánaða tíma-
bils fyrir íslenska efnahagshrunið og
mun meðal annars verða reynt að
svara þeirri spurningu með hvaða
hætti eigendur bankans, meðal ann-
ars Björgólfur Thor, komu að starf-
semi Landsbankans, lánveitingum
út úr honum til félaga sem hann átti
og öðru slíku. Heimildir DV herma
að meðal annars sé um að ræða „ná-
kvæma skoðun á málefnum Björgólfs
Thors“ hjá Landsbankanum.
Uppgjöri Björgólfs er því hvergi
nærri lokið í neinum skilningi þess
orðs þó að málefni hans hafi ekki far-
ið hátt í umræðunni upp á síðkast-
ið. Kannski er þessi þögn því lognið
á undan storminum sem koma skal.
Fordæmdur í skýrslunni
Björgólfur Thor er fordæmdur í
skýrslu rannsóknarnefndar Alþing-
is ásamt föður hans, Björgólfi Guð-
mundssyni, vegna þess hvernig þeir
stýrðu Landsbankanum á meðan
þeir áttu hann og hvernig þeir létu
bankann lána sér og sínum miklu
meira en þeir máttu lögum sam-
kvæmt. Í niðurstöðukafla skýrslunn-
ar kemur fram að við fall Landsbank-
ans hafi Björgólfur Thor Björgólfsson
og tengd félög verið stærstu skuldarar
bankans og Björgólfur faðir hans ver-
ið sá þriðji stærsti en samtals námu
skuldbindingar þeirra við bankann
meira en 200 milljörðum króna. Þetta
var meira en nam öllu eigin fé Lands-
bankasamstæðunnar.
Eins er Björgólfur Thor gagn-
rýndur harkalega í skýrslunni vegna
aðkomu hans að þeim björgunar-
aðgerðum sem fóru í gang hjá hinu
opinbera og helstu framámönnum
íslensks viðskiptalífs eftir að fyrir lá
að Glitnir væri fallinn í lok septemb-
er 2008.
Í skýrslunni er til dæmis vitnað í
skýrslutöku af Árna Mathiesen, fyrr-
verandi fjármálaráðherra, þar sem
hann ræðir um samskipti ríkisstjórn-
arinnar við eigendur og stjórnend-
ur bankanna í aðdraganda hruns-
ins haustið 2008. Upp höfðu komið
hugmyndir um að Landsbankinn og
Kaupþing tækju Glitni yfir til að reyna
að bjarga íslenska fjármálakerfinu.
Árni fór ekki fögrum orðum um
Björgólf í skýrslunni þar sem ver-
ið var að ræða um aðkomu hans að
þessum sameiningartilraunum sem
meðal annars fóru fram í Ráðherra-
bústaðnum við Tjarnargötu. „Og
verstur var Björgólfur [Thor Björ-
gólfsson] [...] og hann var að ljúga
að hinum líka og þeir komu svo bara
um kvöldið og sögðu: Það er ekkert
að marka það sem þessi maður seg-
ir. Þeir voru að reyna að finna leið til
að sameina Kaupþing og Landsbank-
ann til þess að þeir gætu staðið þetta
og Björgólfur sagði bara: Við reddum
þessu og við reddum þessu,“ sagði
Árni en af þessum orðum ráðherrans
fyrrverandi má draga þá ályktun að
Björgólfur hafi ekki verið heiðarlegur
þessa örlagaríku daga.
DV hafði samband við Árna
Mathiesen til að fá hann til að fjalla
nánar um þessi samskipti sín við
Björgólf Thor en hann vildi ekki fara
nánar út í þau.
Lygarnar staðfestar
Lygar Björgólfs í aðdraganda banka-
hrunsins eru staðfestar af öðrum sem
tóku þátt í viðræðunum í aðdraganda
bankahrunsins þann 4. og 5. október
2008, meðal annars Hreiðari Má Sig-
urðssyni, forstjóra Kaupþings á Ís-
landi, og Sigurði Einarssyni, stjórnar-
formanni bankans.
Um lygar Björgólfs segir Hreiðar í
skýrslunni, og vísar til þess að Björ-
gólfur Thor laug því að þeim Kaup-
þingsmönnum að búið væri að ganga
frá því við ríkisstjórnina að Lands-
bankinn og Kaupþing tækju hönd-
um saman við að reyna að bjarga
íslenska fjármálakerfinu: „[...] það
var logið að okkur. Og við hringjum
í hann [Björgólf Thor Björgólfsson]
fyrir fundinn á sunnudeginum, hvort
það sé búið að leysa þessi mál, aug-
ljóslega því vorum að keyra þessa
UPPGJÖR BJÖRGÓLFS
Ma.kr. Jan. 2007 Okt. 2008 BreyTiNg BreyTiNg í %
Landsbankinn 58,2 141,5 83,3 143%
Kaupþing 0,0 0,0 0,0 0
Glitnir 0,0 0,0 0,0 0
Straumur 15,2 28,9 13,8 91%
Spron 0,0 0,0 0,0 0
Sparisjóðabankinn 0,0 0,0 0,0 0
Samtals í milljörðum 73,4 170,4 97,0 132%
áhættuskuldbindingar
Áhættuskuldbindingar Björgólfs Thors Björgólfssonar í íslenska fjármálakerfinu.
Björgólfur Thor Björgólfsson á í allsherjaruppgjöri í lífi sínu þess dagana. Hann hef-
ur beðið mikinn álitshnekki eftir hrunið og stendur í skuldauppgjöri við lánardrottna
sína. Endurskoðendaskýrsla Deloitte mun væntanlega svara því hver aðkoma Björgólfs
var að lánveitingum frá Landsbankanum til hans og félaga hans en sjálfur segist hann
ekki hafa verið skuggastjórnandi í bankanum. Ýmislegt bendir þó til að hann hafi stýrt
bankastjórum Landsbankans.
hugmynd að bjarga bæði Lands-
bankanum og okkur, og hann stað-
festi það við Sigurð og ég hlusta á það
símtal: Það er í lagi, við erum búnir
að redda þessu,“ sagði Hreiðar Már í
skýrslunni og vitnaði þar til samtals
við Björgólf sem átti sér stað laugar-
daginn 4. október.
Sigurður staðfesti við skýrslutök-
ur að símtalið við Björgólf hefði átt
sér stað og að Björgólfur hefði sann-
fært þá um að búið væri að finna lausn
sem bjargað gæti báðum bönkunum.
„Svo náði ég nú í Björgólf Thor, sem
greinilega – þótt hann þykist ekki með
markaskrána að gera var nú greini-
lega allt í öllu – og hann sannfærir
mig um það að Landsbankinn sé bú-
inn að leysa úr sínum verstu málum.
Og ég verð náttúrulega mjög glaður
við og við förum um morguninn og
hittum ráðherrana og allan þennan
flokk þarna í Ráðherrabústaðnum,“
sagði Sigurður en í lok tilvitnunarinn-
ar er hann að vísa til fundar sem þeir
áttu með ríkisstjórninni þar sem rætt
var um hvernig hægt væri að bjarga
Landsbankanum og Kaupþingi frá
sömu örlögum og Glitnir hlaut.
Og verstur var Björgólfur
[Thor Björgólfsson].
Þeir eru náttúr-lega með stærsta
bömmerinn á bakinu
sem er Icesave.
Lygar Björgólfs Í aðdraganda hrunsins gerðist Björgólfur Thor sekur um lygar í viðræð-
um um hvort og hvernig væri hægt að bjarga Landsbankanum og Kaupþingi. Þetta kom
bæði fram í máli Árna Mathiesen og Kaupþingsmannanna Sigurðar og Hreiðars Más við
skýrslutökur hjá rannsóknarnefndinni.
iNgi F. viLhJáLMSSON
fréttastjóri skrifar: ingi@dv.is