Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2010, Síða 33
nærmynd 4. júní 2010 föstudagur 31
UPPGJÖR BJÖRGÓLFS
Ma.kr. Jan. 2007 Okt. 2008 Breyting Breyting í %
Landsbankinn 58,2 141,5 83,3 143%
Kaupþing 0,0 0,0 0,0 0
Glitnir 0,0 0,0 0,0 0
Straumur 15,2 28,9 13,8 91%
Spron 0,0 0,0 0,0 0
Sparisjóðabankinn 0,0 0,0 0,0 0
Samtals í milljörðum 73,4 170,4 97,0 132%
áhættuskuldbindingar
Áhættuskuldbindingar Björgólfs Thors Björgólfssonar í íslenska fjármálakerfinu.
Af þessum orðum Sigurðar að
dæma var jafnframt ljóst að það var
Björgólfur sem öllu réð í Landsbank-
anum þegar þarna var komið sögu.
Björgólfur segist hafa setið þessa
fundi vegna þess að faðir hans hafi
ekki verið staddur á Íslandi þessa
daga. Hann segir að eðlilegt hafi ver-
ið að fulltrúi stærsta hluthafa bank-
ans tæki þátt í viðræðunum en að
eftir á að hyggja sjái hann eftir því að
hafa tekið þátt í þessum viðræðum.
reynt að fegra stöðu
Landsbankans
Daginn eftir samtal Sigurðar og
Björg ólfs, sunnudaginn 5. október
2008, funduðu Kaupþingsmenn með
ráðherrum úr ríkisstjórninni en um
þann fund segir Sigurður í skýrsl-
unni: „Og við förum að útlista þess-
ar hugmyndir um að það væri best
að Landsbankinn og Kaupþing geri
þetta í sameiningu, þ.e. taka yfir Glitni
og bjarga þessu kerfi. Og við sjáum að
það kemur furðusvipur á ráðherrana.
Og þá er okkur ljóst að Landsbank-
inn hefur sagt þeim eitthvað annað,
þeir höfðu þá sagt okkur ósatt kvöldið
áður. Svo koma þeir inn bankastjór-
arnir og Björg ólfur Thor. Og ég fer
eitthvað að spjalla við þá í anddyrinu,
á ganginum. Og Halldór Jón fer að
vera með einhverjar ægilegar vanga-
veltur um að þetta sé allt búið o.s.frv.
Þá kemur Björgólfur Thor og rífur í
hann inn í herbergi og vill greinilega
ekki að við náum að tala saman. Mér
fannst þetta allt mjög undarlegt...
Og þá gerum [við] okkur grein fyrir
því að Björgólfur Thor hafði verið að
segja mér ósatt.“ En svo virðist sem
Björgólfur Thor hafi, jafnvel á þess-
um tíma, verið með það á prjónunum
að reyna að fá Glitni fyrir lítið til að
reyna að bjarga Landsbankanum líka
og því hafi hann logið og leikið tveim-
ur skjöldum.
Svo virðist sem Björgólfur hafi
viljað haga máli sínu þannig á þess-
um fundum að ríkisstjórnin teldi að
staða Landsbankans væri ásættanleg
og því væri möguleiki fyrir bankann
að taka yfir Glitni því hann virðist
hafa komið í veg fyrir að báðir banka-
stjórar Landsbankans töluðu um
skoðanir sínar á stöðu bankans við
utanaðkomandi aðila. Skýrsla Össur-
ar Skarphéðinssonar hjá rannsókn-
arnefnd Alþingis staðfestir hvernig
Björgólfur kom í veg fyrir að Sigurjón
tjáði sig um stöðu bankans og hvern-
ig Björgólfur hugsaði sér gott til glóð-
arinnar í því upplausnarástandi sem
upp var komið í íslensku viðskiptalífi.
Um þetta segir Össur: „[Landsbanka-
menn] [k]omu að kynna okkur eitt-
hvað, frábært tilboð. Og hann [Björ-
gólfur Thor Björgólfsson] sat þarna í
sínum flottu fötum, ofsalegur „seller“,
að selja eitthvað sem gekk út á það að
þeir áttu að fá Glitni ókeypis og fá alla
skapaða hluti og síðan allan gjaldeyr-
isforðann og eitthvert „guarantee“ til
viðbótar. Og Halldór Kristjánsson sat
þarna svona eins og laminn hund-
ur og tók ekki mikið undir þetta. Svo
var þessi fundur búinn, Sigurjón var
þarna, það voru snúðar á borðunum,
skornir í tvennt, stórir snúðar. Sigur-
jón er nú munnstór maður og mikill
og þegar þeir voru farnir út og hann
var einn eftir þá tók hann svona hálf-
an snúð, tróð honum upp í andlitið á
sér og skaut undan snúðnum þessari
setningu: Ég hef ekki trú á þessu, ég
hef ekki trú á þessu. Þá kom svona
hönd með gullúri og kippti honum
út,“ en Össur var þarna væntanlega
að vísa til handar Björgólfs Thors.
Hvað það var sem Sigurjón hafði
ekki trú á liggur ekki fyllilega ljóst fyr-
ir en eitt svar gæti verið að hann hafi
ekki haft trú á því að Landsbankinn
gæti lifað af og annað að hann hafi
ekki haft trú á samstarfinu við Kaup-
þing. Hvort svo sem var virðist það
ekki hafa þjónað hagsmunum Björ-
gólfs Thors að bankastjórarnir lýstu
þessum skoðunum yfir og því kom
hann í veg fyrir að þeir gætu tjáð sig
um þær við ráðherrana eða þá Kaup-
þingsmenn.
DV spurði Björgólf Thor um þessa
atburði í bankahruninu en hann sagð-
ist þurfa lengri tíma til að greina þessa
atburði til hlítar en jafnframt að til
stæði að fara yfir þau atriði í skýrsl-
unni þar sem rætt er um hann.
Hvað gerði Björgólfur thor?
Frásögnin af aðkomu Björgólfs Thors
að viðræðunum um framtíð íslenska
bankakerfisins getur hugsanlega sýnt
fram á að hluta til hver aðkoma hans
var að stjórn Landsbankans á þeim
árum sem hann átti bankann því svo
virðist sem hann hafi bókstaflega
handstýrt bankastjórunum tveimur á
fundunum í kringum fall bankakerf-
isins. Einn heimildarmanna DV segir
um þetta: „Ég held að Björgólfur Thor
hafi verið skuggastjórnandi í Straumi
og Landsbankanum. Endurheimtur
kröfuhafa Straums eru hins vegar það
háar [um 50 prósent, innsk. blaða-
manns] og því eru þeir ekkert mikið
að rugga þeim báti,“ en með Straums-
umræðunni á hann við að það þjóni
ekki hagsmunum kröfuhafa fjárfest-
ingabankans að eyða peningum í
dýra rannsókn á starfsemi hans líkt og
skilanefnd Landsbankans og Glitnis
gera.
En um þetta atriði ber heimildum
DV reyndar ekki fyllilega saman. Björ-
gólfur Thor segir í svari sínu við fyr-
irspurn DV um þetta atriði að hann
hafi ekki haft afskipti af lánveitingum
til hans frá Landsbankanum og að
lánveitingar til hans hafi hlotið sömu
meðferð og lán til annarra stórra við-
skiptavina bankans. Hann hafi því
ekki verið skuggastjórnandi bankans.
Þrátt fyrir þetta var Björgólfur stærsti
skuldari bankans en virðist samkvæmt
þessu svari ekki hafa fengið þessa fyr-
irgreiðslu vegna þess að hann hafi átt
bankann heldur hafi aðrar og mál-
efnalegri ástæður legið þar að baki.
Tekið skal fram að í skýrslu rann-
sóknarnefndar Alþingis er fjallað um
að lánveitingar til Björgólfs frá Lands-
bankanum hafi ekki þurft umfjöllun í
stjórn bankans þar sem hann hafi ekki
verið skilgreindur sem tengdur aðili í
Landsbankanum. Því var hægt að af-
greiða lán til Björgólfs Thors án þess
að fara í gegnum stjórn bankans sem
Björgólfur faðir hans stýrði. Þetta at-
riði getur hugsanlega styrkt þann
möguleika að Björgólfur hafi látið af-
greiða lán til sín með viðræðum beint
við starfsmenn bankans.
Hvort svo sem Björgólfur Thor var
skuggastjórnandi bankans eða ekki
liggur alveg ljóst fyrir að hann kom
ekki oft í höfuðstöðvar Landsbanka
Íslands. Starfsmaður bankans sem
vann þar í nokkur ár segist aðeins
hafa séð Björgólf einu sinni í bankan-
um en það var í kringum bankahrun-
ið. „Vikuna fyrir hrun var Björgólfur
Thor í bankanum. Þetta var í fyrsta
skipti sem hann sást í bankanum. Ég
sá hann nokkrum sinnum á banka-
stjóraganginum þar sem hann var að
tala í símann,“ segir starfsmaðurinn
fyrrverandi en eins og gefur að skilja
þarf þetta ekki að þýða að Björgólfur
hafi ekki sagt stjórnendum bankans
hvað þeir ættu að gera, meðal annars
hvernig þeir ættu að ráðstafa fjármun-
um bankans.
Þetta er ein af spurningunum sem
Deloitte mun svara í skýrslu sinni
um starfsemi Landsbankans en sam-
kvæmt heimildum DV liggur það þó
fyrir að ekki hafa fundist tölvupóst-
ar með beinum skipunum frá Björ-
gólfi til bankastjóranna líkt og í tilfelli
Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, skugga-
stjórnanda Glitnis. Ef Björgólfur hefur
handstýrt Landsbankanum í gegnum
leppa er því líklegt að hann hafi gert
það með öðrum hætti og eftir öðrum
leiðum.
Ég held að Björg- ólfur Thor Björg-
ólfsson hafi verið
skuggastjórnandi í Lands-
bankanum og Straumi.
eignir í eigu aflandsfélaga Björgólfur
segist eiga félög á aflandseyjum sem aftur
eigi bankareikninga með innistæðum í
öðrum löndum. Hann segist ekki reyna að
leyna neinu með aflandsfélögunum og segir
það viðurkennt viðskiptaform.
MynD vB