Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2010, Page 35

Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2010, Page 35
viðtal 4. júní 2010 föstudagur 35 „ÉG RÉÐ EKKI VIÐ HRAÐANN“ Björgólfur í áByrgðum Björgólfur Thor segist vera í per- sónulegum ábyrgðum fyrir hluta þeirra skulda sem hann og félög hans eiga útistandandi. Hann segir að þess vegna verði hann að greiða þessar skuldir. Björgólfur var tíundi stærsti skuldarinn í íslenska bankakerfinu. mynd vB hélt utan í háskólanám fyrir næstum aldarfjórðungi. Ég hef oft komið um jólin og verið einn mánuð að sumri og ég mun áreiðanlega halda slíkum heimsóknum áfram, enda á ég marga ættingja og vini á Íslandi. Ég hef verið mjög metnaðarfullur. En ég áttaði mig á því, líklega 2007 eða 2008, að mesti óvinur minn væri hraðinn í lífi mínu. Ég réð ekki við hraðann og hann var orðinn svo mik- ill að mig var farið að skorta yfirsýn. Það fór að hafa áhrif á dómgreind- ina. Nú er ég búinn að hægja á og ég stefni ekki á sama stað og ég var á. Ég ætla mér ekki að verða umsvifamikill í íslensku atvinnulífi aftur.“ DV: Hvernig hefur þér liðið í kjölfar hrunsins? Hefur þú verið niðurdreg- inn? Hefur uppgjörið við hrunið sett mark sitt á þig og fjölskyldu þína? Hvað finnst þér um umræðuna um hrunið heima á Íslandi? BTB: „Ég eins og margir aðrir hef þurft að takast á við margskonar erfiðleika vegna hrunsins sem hefur haft veruleg áhrif á mig, fjölskylduna mína, vini og samstarfsfólk. Þetta hefur tekið á og stundum verið erfitt. En ég eins og aðrir er að reyna að læra af þessu. Að svo stöddu tel ég ekki rétt að alhæfa um umræðuna um hrunið á Íslandi. Ég get hins veg- ar sagt það að ég hef saknað þess að sjá ekki meiri viðleitni til þess að bera saman Ísland og íslenska banka við önnur lönd og aðra banka bæði fyrir og eftir hrun. Mér finnst ég vera að læra einna mest af því.“ DV: Hvernig líður föður þínum í kjöl- far hrunsins? Hefur hrikt í ykkar sam- bandi eftir það? BTB: „Faðir minn er eins og margir að glíma við erfið mál. Við höfum alltaf haldið góðu sambandi jafnt í blíðu og stríðu og þar hefur ekki orð- ið breyting á.“ DV: Hvernig verðu deginum um þessar mundir? Hvað gerir þú? Getur þú talið upp það helsta sem þú gerir? BTB: „Ég mæti til vinnu á skrif- stofuna á morgnana og er þar fram undir kvöld. Starfsdagurinn fer í að gera upp mín mál eins og margoft hefur komið fram. Þar er fjölmarga hnúta að hnýta - langir fundir með samstarfsmönnum þar sem leitað er lausna og leiða og enn lengri fundir með lögfræðingum og öðrum fulltrú- um banka. Einstaka sinnum kemst maður frá til annarra verkefna eins og að svara þessum spurningum.“ ingi@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.