Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2010, Blaðsíða 38
Þórarinn
Þórarinsson
Skólastjóri Alýðuskólans á Eiðum
f. 5.6. 1904, d. 2.8. 1985
Þórarinn var sonur Þórarins Þór-
arinssonar, prests á Valþjófsstað í
Fljótsdal, og k.h., Ragnheiðar Jóns-
dóttur húsfreyju.
Þórarinn lauk gagnfræðaprófi frá
Gagnfræðaskólanum á Akureyri,
stúdentsprófi frá Menntaskólanum
í Reykjavík 1924, embættisprófi í
guðfræði við Háskóla Íslands 1928,
stundaði framhaldsnám í uppeldis-
fræði, trúarsálfræði og helgisiðafræði
við háskólann í Marburg 1929-30 og í
kennimannlegri guðfræði í Herborn
1930. Þá kynnti hann sér æskulýðs-
og íþróttastarfsemi í Berlín í Þýska-
landi árið 1936 og kynnti sér danska
lýðháskóla veturinn 1959-60.
Þórarinn hóf kennslustörf við Al-
þýðuskólann á Eiðum árið1930 og
var skólastjóri skólans í tæpa þrjá
áratugi á árunum 1938-65. Þá var
hann formaður skólanefndarinnar
um langt árabil. Hann þótti mikill
skólamaður enda vel liðinn af nem-
endum sínum og kennurum.
Þórarinn var formaður Menningar-
samtaka Héraðsbúa frá stofnun sam-
takanna og um árabil, var fulltrúi á
Kirkjuþingum og í Kirkjuráði, sat í
stjórn Skógræktarfélags Austurlands
um langt skeið og var lengi formað-
ur þess.
Fyrri kona Þórarins var Helga Guð-
ríður Björgvinsdóttir sem lést árið
1937.
Seinni kona hans var Sigrún Ingi-
björg Sigþórsdóttir.
38 föStudAgur 4. júní 2010 hElgArblAð
Jón fæddist í Vorsabæ og ólst þar
upp. Hann stundaði nám við Hér-
aðsskólann á Laugarvatni 1939-41
og við bréfaskóla SÍS.
Jón og Emelía, kona hans, stofn-
uðu nýbýlið Vorsabæ II og stunduðu
þar hefðbundinn búskap og græn-
metisrækt, s.s hvítkál, rófur og kart-
öflur. Þá var Jón mikill áhugamaður
um skógrækt og stundaði hana fram
í andlátið.
Jón var oddviti Skeiðahrepps
1950-90, gjaldkeri Afréttarmálafé-
lags Flóa og Skeiða 1963-2006, sat
um skeið í stjórn Ungmennafélags
Skeiðamanna, sat í oddvitanefnd
Laugaráshéraðs frá 1950 og formað-
ur nefndarinnar 1958-90 og gjald-
keri 1990-2000. Hann var sýslu-
nefndarmaður og stjórnarformaður
og rekstrarstjóri læknamiðstöðvar í
Laugarási frá stofnun 1971 og síðar
heilsugæslustöðvar þar, til 1990, ritari
í stjórn Samtaka sunnlenzkra sveita-
félaga frá stofnun 1969-80, umboðs-
maður skattstjóra þar til það embætti
var lagt niður, fulltrúi í stjórn Lands-
sambands kanínubænda og fulltrúa-
ráði Landssambands kartöflubænda
og sat í stjórnum Fínullar hf., Ylein-
inga hf. og Jarðefnaiðnaðar hf.,
Jón var frá unga aldri mikill áhuga-
maður um ljósmyndun og myndaði
sögu Skeiðahrepps frá því fyrir síð-
ari heimstyrjöldina. Oddvitanefnd
Laugaráshéraðs og Afréttamálafélag
Flóa og Skeiða gaf út ljósmyndabók-
ina Aldahvörf á Skeiðum á 70 ára af-
mæli Jóns. Þá tók hann saman að ósk
Ungmennafélagsins bók um örnefni
á Skeiðum, Jarðabók Skeiðahrepps,
sem gefin var út árið 2008.
Ljósmyndir Jóns sem tengjast
sögu Skeiðahrepps og atvinnuþró-
un í landinu hafa auk þess birst víða
og þykir Jón hafa náð að fanga at-
burði og atvik sem oft og tíðum þykja
hversdagleg, en verða þó merkilegar
heimildir um fyrri tíma..
Fjölskylda
Jón kvæntist 24.6. 1949, Emelíu Krist-
björnsdóttur, f. 13.1. 1926, frá Birnu-
stöðum á Skeiðum. Foreldrar hennar
voru Kristbjörn Hafliðason, f. 1888,
d. 1968, bóndi á Birnustöðum og
k.h., Valgerður Jónsdóttir f. 1892, d.
1957, húsfreyja.
Börn Jóns og Emelíu eru Valgerð-
ur, f. 8.5. 1950, textílkennari í Reykja-
vík, sonur hennar og Jóhanns G. Jó-
hannssonar er Jón Yngvi Jóhannsson
bókmenntafræðingur f. 12.5. 1972,
kvæntur Sigþrúði Gunnarsdóttur rit-
stjóra og eru börn þeirra Valgerður, f.
28.9. 1993, nemi við MH, Silja, f. 10.3.
1998, og Steinunn, f. 13.9. 1999.
Eiríkur Jónsson, f. 8.10. 1953,
stuðlastjóri hjá Íslenskum getraun-
um og hestaljósmyndari, maki Hulda
Nóadóttir starfsmaður á Læknasetr-
inu en börn þeirra eru Emelía Guð-
rún efnafræðingur, f. 17.7. 1976, maki
hennar er Auður Magnúsdóttir líf-
efnafræðingur og eiga þær Önnu Eir
Emelíudóttur, f. 2.3. 2006, og Maggý
Nóu, Emelíudóttur, f. 13.2. 2009;
Haukur Brynjar, f. 22.5. 1980, pípu-
lagningamaður.
Björn, f. 21.9. 1955, bóndi í Vor-
sabæ II, maki Stefanía Sigurðar-
dóttir bóndi en þeirra börn eru
Margrét, f. 1.5. 1986 og er sonur
hennar og Sæþórs Maríusar Sæ-
þórssonar Birnir Snær, f. 6.1. 2009;
Jón Emil, f. 3.4. 1991, nemi í FSU,
og Sigurbjörg Bára, f. 12.5. 1985.
Ingveldur, f. 30.10.1962, nemi í
bókasafns- og upplýsingafræði við
HÍ, maki Guðmundur Ásmunds-
son skólastjóri en þeirra börn eru
Birgir, f. 27.10. 1985, læknisfræði-
nemi við HÍ; Berglind, f. 20.11.
1987; Davíð, f. 27.11. 1991, raf-
virkjanemi við FSU; Hilmar, f. 23.8.
1999.
Systkini Jóns: Ragna, f. 13.8.
1917, d. 3.12. 1998, maki Hermann
Bæringsson, látinn; Sigursteinn, f.
14.5. 1919, d. 18.12. 1934; Axel, f.
11.2. 1923, d. 2.4. 2006, rafvélvirki,
maki Guðbjörg Eyjólfsdóttir, nú
látin; óskírður drengur, f. andvana
12.6. 1925; Helga, f. 17.10. 1928,
bóndi í Vorsabæ; Friðsemd, f. 23.4.
1932, maki Þórkell Björgvinsson,
nú látinn; Sigríður Þóra, f. 29.8.
1936, maki Ágúst Sigurðsson.
Foreldrar Jóns voru Eiríkur Jóns-
son, f. 1891, d. 1963, bóndi og odd-
viti í Vorsabæ og k.h., Kristrún
Þorsteinsdóttir, f. 1894, d. 1966, hús-
freyja.
Ætt
Eiríkur var sonur Jóns, b. í Vorsabæ
Einarssonar, b. á Syðri-Brúnavöllum
Eggertssonar.
Móðir Eiríks var Helga Ragnhild-
ur, systir Vigdísar í Miðdal, ömmu
Guðmundar frá Miðdal, föður Errós,
en Vigdís var einnig langamma Vig-
dísar Finnbogadóttur. Helga Ragn-
hildur var dóttir Eiríks, b. í Vorsabæ,
bróður Margrétar, langömmu Sigríð-
ar, móður Vigdísar Finnbogadóttur.
Eiríkur var sonur Hafliða, hins auðga
á Birnustöðum Þorkelssonar. Móð-
ir Helgu Ragnhildar var Ingveldur,
systir Ófeigs á Fjalli, afa Tryggva út-
gerðarmanns, afa Trygga Pálsson-
ar, fyrrv. bankastjóra. Ingveldur var
dóttir Ófeigs, ríka á Fjalli og ættföður
Fjallsættar Vigfússonar. Móðir Ing-
veldar var Ingunn Eiríksdóttir, dbrm.
og ættföður Reykjaættar Vigfússonar.
Kristrún var dóttir Þorsteins,
smiðs á Sæbóli Teitssonar, á Ein-
arsstöðum á Eyrarbakka Helga-
sonar. Móðir Þorsteins var Guðrún
Sigurðardóttir, b. á Hrauni í Ölfusi
Þorgrímssonar, b. í Ranakoti Bergs-
sonar, í Brattsholti og ættföður Berg-
sættar Sturlaugssonar. Móðir Krist-
rúnar var Sigríður Eyjólfsdóttir, b. í
Grímslæk, Eyjólfssonar.
minning
Jón Eiríksson
bóndi í VorSAbæ ii, SkEiðA- og gnúpVErjAhrEppi
merkir
Íslendingar
Einar fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp. Hann lauk gagnfræðaprófi
1964, var eitt ár við nám í London
School of Foreign Trade og stundaði
síðan nám í tölvu- og kerfisfræði.
Einar var kerfisfræðingur hjá IBM
á árunum 1968-83, þar af þrjú ár í
Noregi 1977-78, starfaði síðan við
Útvegsbankann í tvö ár, var kerfis-
fræðingur hjá Skrifstofuvélum hf. í
Reykjavík 1983-84 og kerfisfræðingur
hjá Frjálsri fjölmiðlun og DV 1984-
90.
Einar gerðist kaupmaður og
heildsali, ásamt konu sinni, árið
1990. Þau stofnuðu síðan kvenfata-
verslunina Feminin Fashion, árið
2002, en hún er starfrækt í Bæjarlind
í Kópavogi.
Einar gekk í Frímúrararegluna
1976 og hafði öðlast 10. gráðu.
Fjölskylda
Einar kvæntist 25.9. 1971, Krist-
ínu S. Kvaran, f. 5.1. 1946, d. 28.10.
2007, alþm., dagskrárgerðarmanni
og kaupmanni. Foreldrar henn-
ar voru Stefán Guðmundsson, 30.7.
1912, d. 27.8. 1975, innheimtumað-
ur í Reykjavík, og k.h., Guðrún Bene-
diktsdóttir, f. 21.3. 1909, d. 22.5. 1974,
húsmóðir.
Börn Einars og Kristínar eru Bert-
ha Guðrún, f. 21.7. 1964, dóttir Krist-
ínar frá fyrra hjónabandi en ættleidd
af Einari, en maður hennar er Jón
Ólafsson, f. 12.7. 1963 og eru börn
þeirra Rakel, f. 23.1. 1990, Karen, f.
29.7. 1991, Aldís, f. 5.4. 1994, og Óð-
inn, f. 28.9. 1995 ; Ragna Elíza, f. 29.1.
1974, gift Agli Erlendssyni, f. 12.4.
1971, og eru börn þeirra Eydís, f.
3.12. 1998, Einar, f. 24.6. 2004, og Ey-
þór Gísli, f. 1.10. 2008; Thelma Krist-
ín, f. 19.9. 1984, gift Ingvari B. Jóns-
syni, f. 30.6. 1977, og er sonur þeirra
Hafþór Valur, f. 15.11. 2008.
Systkini Einars: Dr. Guðrún Kvar-
an, f. 21.7. 1943, prófessor við HÍ, gift
dr. Jakobi Ingvarssyni, f. 23.11. 1945;
Elínborg Valdís Kvaran, f. 5.12. 1944,
d. í ágúst 1945; Vilhjálmur B. Kvar-
an, f. 18.6. 1946, búsettur í Garða-
bæ, kvæntur Helgu Pálu Elíasdótt-
ur, f. 24.5. 1948; Böðvar B. Kvaran,
f. 27.11. 1949, húsgagnasmiður í
Garðabæ, kvæntur Ástu Árnadóttur,
f. 16.10. 1949; Hjörleifur B. Kvaran, f.
3.3. 1951, forstjóri Orkuveitu Reykja-
víkur, kvæntur Önnu Kristínu Ólafs-
dóttur, f. 26.3. 1966; Gísli B. Kvaran,
f. 9.12. 1952, múrarameistari á Akra-
nesi, kvæntur Önnu Alfreðsdóttur, f.
26.3. 1951.
Foreldrar Einars voru Böðvar
Kvaran, f. 17.3. 1919, d. 16.9. 2002, og
k.h., Guðrún V. Kvaran, f. 15.3. 1921,
d. 15.3. 2008, húsmóðir.
Ætt
Böðvar var sonur Einars E. Kvaran,
aðalbókara Útvegsbankans, bróður
Ragnars, föður Ævars Kvaran leikara,
föður Gunnars sellóleikara. Einar var
sonur Einars H. Kvaran, skálds og rit-
höfundar, bróður Sigurðar, læknis og
ritstjóra, afa Ásdísar Kvaran lögfræð-
ings.
Móðir Böðvars var Elínborg, systir
Haraldar, útgerðarmanns á Akranesi.
Elínborg var dóttir Böðvars, kaup-
manns á Akranesi Þorvaldssonar, pr.
á Stað Böðvarssonar, prófasts í Gufu-
dal, bróður Þuríðar, langömmu Vig-
dísar Finnbogadóttur. Systir Böðvars
var Sigríður, móðir Kristínar, lang-
ömmu Matthíasar Johannessen,
skálds.
Guðrún, móðir Einars, var dóttir Vil-
hjálms, sjómanns í Reykjavík Þor-
steinssonar. Móðir Guðrúnar var
Ólafía Gísladóttir.
minning
Einar B. Kvaran
kErfiSfræðingur og hEildSAli
Fæddur. 20.10. 1921 - Dáinn. 28.5. 2010
Fæddur. 9.11. 1947 - Dáinn. 23.5. 2010
komdu í áskrift!
512 70 80
dv.is/askrift