Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2010, Blaðsíða 42
Edith og FrEddyEdith Jesse Thompson og Frederick Edward
Francis Bywaters voru breskt par sem tekið var af lífi á Englandi í janúar árið 1923.
Skötuhjúin höfðu sér það til saka unnið að hafa fyrirkomið eiginmanni Edith,
Percy. Fyrir misskilning talaði Edith sig nánast í snöruna. Málið vakti mikla athygli
á sínum tíma. Lesið um Edith og Frederick í næsta helgarblaði DV.
Morðinginn
Frederick Bailey Deeming var Breti sem framdi morð sín í Ástralíu. Hann var uppi á síðari hluta nítjándu
aldar. Sextán ára að aldri strauk Frederick á sjóinn og í kjölfarið hófst langur glæpaferill.
Talið var að Frederick Bailey
Deeming, sem fæddist árið 1842
á Englandi, hefði átt í einstaklega
sterku sambandi við móður sína
því eftir lát hennar 1874 var hann
niðurbrotinn og vart mönnum
sinnandi í nokkuð langan tíma.
Sextán ára að aldri strauk
Deeming á sjóinn og í einni sjó-
ferðinni fékk hann alvarlega
heilahimnubólgu og var það mat
margra að hann hefði aldrei náð
sér að fullu eftir það. Haft var á orði
að Deeming ætti til að hegða sér
fáránlega og segja að sú hegðun
hefði verið samkvæmt fyrirmælum
móður hans sálugu.
Þrátt fyrir andlegan óstöðug-
leika tókst Deeming að ná sér í
konu, „dæmigerða velska stúlku“,
Marie, en þau gengu í hjónaband
á Englandi í febrúar 1881. Ári síðar
fluttu hjónakornin til Ástralíu.
Óljós ferill Deemings
Margt er á huldu um athafnir
Frede ricks Bailey Deeming hin
næstu ár. Hann starfaði víða í Ástr-
alíu, meðal annarra staða í Mel-
bourne og Sydney. Í Sydney var
hann ákærður og sakfelldur fyr-
ir þjófnað á vinnustað sínum og
dæmdur til sex vikna fangelsisvist-
ar. Árið 1887 var hann ákærður fyr-
ir svik en lét sig hverfa áður en til
réttarhalda kom.
Allan tímann hafði Marie stað-
ið við hlið hans og árið 1886 höfðu
þau eignast tvær dætur. Þess má
geta að Alfred, bróðir Fredericks,
hafði kvænst systur Marie, og 1888
fréttu Alfred og þriðji bróðirinn,
Walter, að Frederick og fjölskylda
hans væru á leið heim til Englands
„með álitlegan auð“ í farteskinu.
En áður en til Englands kom
drap fjölskyldan niður fæti í Höfða-
borg í Suður-Afríku þar sem þau
sennilega dvöldu í um eitt ár og
eignuðust sitt þriðja barn. Áður en
langt um leið hafði Frederick get-
ið sér orð sem hinn versti svika-
hrappur og hann sá sitt óvænna
og sendi fjölskylduna til Englands.
Innan tíðar fylgdi hann í kjölfarið.
En Frederick fór ekki til fjölskyldu
sinnar heldur leigði sér húsnæði í
bænum Beverley skammt frá Hull
undir nafninu Harry Lawson.
Tvíkvæni Fredericks
Í Beverley gerði „Harry“ hosur sín-
ar grænar fyrir Helenu Matheson,
21 árs dóttur konunnar sem leigði
honum, og gengu þau í hjónaband
í febrúar 1890. Eftir eins mánaðar
hveitibrauðsdaga hvarf Frederick á
braut og hafði með sér allar gjafir
sem hann hafði gefið Helenu. Talið
var að fjölskylda Fredericks hefði
komist á snoðir um tvíkvænið.
Vitað er að hann var í einhverju
sambandi við Marie og börn sín,
sem þá voru orðin fjögur, eftir að
hann hvarf úr faðmi Helenar.
Hann lét Marie fá nokkur
hundruð pund og tilkynnti henni
að hann væri á förum til Suður-
Ameríku. En áður hugðist hann
svindla á skartgripasala einum í
Hull. Við komuna til Montevideo í
Úrúgvæ var Frederick handtekinn
og framseldur til Englands þar sem
hann var ákærður fyrir svik. Hann
fékk þá níu mánaða dóm.
Þegar Frederick losnaði úr
grjótinu kom hann sér fyrir á hóteli
í Rainhill á Merseysvæðinu undir
nafninu Albert Williams.
Morð um jól
Dularfull kona sem heimsótti „Al-
bert“ á hótelið var að öllum líkind-
um Marie, en gaf sig út fyrir að vera
systir hans. Deeming tók á leigu
Dinham-villuna, hús í Rainhill, og
oft og tíðum mátti sjá þar konu og
börn á stjái sem talið var að væru
systir hans og börn hennar í heim-
sókn.
Vart var Frederick fluttur inn
í Dinham-villuna fyrr en hann
kvartaði yfir lekum vatnsleiðslum
og sagði að endurnýja þyrfti eld-
húsgólfin.
Á meðan Frederick bjó í Rain-
hill gekk hann með grasið í skón-
um á eftir Emily Lydiu Mather,
dóttur ekkju í nágrenninu. Emily
og Frederick, undir nafninu Al-
bert Williams, gengu í það heilaga
í september 1891.
Tveimur mánuðum síðar fóru
Emily og Frederick til Ástralíu með
skipinu Keiser Wilhelm II og stigu
á land í Melbourne 15. desem-
ber 1891. Frederick leigði hús við
Andrewstræti í Windsor, úthverfi
Melbourne.
Um jólaleytið myrti Frede-
rick Emily og gróf lík hennar und-
ir steinhellunum fyrir framan ar-
ininn í einu svefnherbergjanna.
Síðan greiddi hann eins mánaðar
leigu fyrir fram og hvarf á braut.
Lögreglan finnur slóð
Í mars 1892 kvartaði væntanleg-
ur leigjandi hússins í Windsor
yfir megnum óþef í einu svefn-
herbergjanna og þegar eigand-
inn athugaði málið og lyfti upp
hellunum við arininn mætti hon-
um bæði ófögur sjón og yfirgengi-
leg rotnunarlykt. Lík Emily Math-
er var fundið og hafði hún verið
skorin á háls.
Vísbendingar í húsinu leiddu
lögregluna að Keiser Wilhelm II
og aðrir farþegar mundu vel eftir
„herra Williams“ enda var Freder-
ick ekki þekktur fyrir að láta lítið
fyrir sér fara og höfðu margir far-
þegar fundið til ógeðs í návist hans
þótt hann hefði sýnt eiginkonu
sinni ástúð. Emily hafði einnig
orðið tíðrætt um fjölskyldu sína í
Rainhill á Englandi og lögreglan
var búin að finna slóð sem hægt
var að rekja. Lýsingu á „Williams“
var nú dreift um Ástralíu.
Í upphafi rannsóknar kom í ljós
að maður sem svaraði til lýsingar-
innar hafði selt ýmsa muni, senni-
lega brúðkaupsgjafir, í janúar
1892. þá bjó hann á hóteli í Mel-
bourne undir nafninu Duncan.
Swanston barón í Sydney
Einnig kom í ljós að hann hafði
sent móður Emily hjartnæmt bréf
eftir að hann myrti Emily. Frede-
rick hafði aukinheldur sett sig í
samband við hjónabandsmiðlun
með það fyrir augum að kynnast
konum með hjónaband í huga, og
svindlað á skartgripasala í borg-
inni.
En Frederick dvaldi ekki lengi í
Melbourne eftir morðið heldur fór
til Sydney og kallaði sig Swanston
barón.
Á leiðinni til Sydney og þang-
að kominn kynntist hann Kate
Rounsfell og sagði við hana að
hún myndi aldrei iðrast þess að
ganga í hjónaband með honum.
Til að hnykkja á orðum sínum gaf
hann Kate fallega gripi sem hann
hafði stolið frá skartgripasala í
Melbourne.
Kate lét undan þrýstingi Frede-
ricks og eftir að hún hafði sam-
þykkt að koma í kjölfar hans til
Vestur-Ástralíu skildi leiðir þeirra.
En net lögreglunnar var að
þrengjast og þann 12. mars 1892
var Frederick handtekinn í South-
ern Cross. Í fyrstu neitaði hann að
hann væri Frederick Deeming, en
í fórum hans fundust nokkrar eig-
ur Emily. Um svipað leyti var tíð-
inda að vænta af morðum í Rain-
hill á Englandi.
Fimm lík undir eldhúsgólfi
Vegna umfjöllunar um morðið á
Emily Mather í Ástralíu ákvað lög-
reglan á Englandi að kíkja nán-
ar á Dinham-villuna í Rainhill.
Lögreglan fann fimm lík undir
nýuppteknu eldhúsgólfinu. Marie
Deeming, Marie yngri, 7 ára, Sid-
ney, 5 ára, og Leala, átján mánaða,
höfðu allar verið skornar á háls, en
Bertha, 9 ára, hafði verið kyrkt.
Morðin höfðu að öllum líkind-
um verið framin í kringum 26. júlí
1891, eða á sama tíma og Frede-
rick, sem Albert Williams, hafði
gert hosur sínar grænar fyrir Emily
Mather.
Frederick Bailey Deeming
reyndi að bera við geðveiki og
sagði meðal annars að heimsókn-
ir látinnar móður hans hefðu verið
hvatinn að ódæðum hans. Frede-
rick hafði ekki erindi sem erfiði
og það tók kviðdóm rétt rúman
klukkutíma að komast að niður-
stöðu. Frederick var sakfelldur fyrir
morðið á Emily Mather og dæmd-
ur til dauða. Hann var hengdur
þann 23. maí 1892.
UMSJón: koLBEinn þorSTEinSSon, kolbeinn@dv.is
42 Föstudagur 4. júní 2010 sakamál
Um jólaleytið myrti Frede-
rick Emily og gróf lík
hennar undir stein-
hellunum fyrir framan
arininn í einu svefn-
herbergjanna.
Frederick Bailey Deeming Gekk undir mörgum nöfnum um ævina.
með mörgu nöfnin