Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2010, Blaðsíða 44
44 föstudagur 4. júní 2010
NafN og aldur? „Þórunn Erna Clausen, 34 ára.“
atviNNa? „Leikkona.“
Hjúskaparstaða? „Gift Sigurjóni Brink tónlistar-
manni.“
fjöldi barNa? „Fjögur í heildina, Róbert Hrafn 2
ára, Haukur Örn 5 ára, Kristín María 9 ára og Aron
15 ára.“
Hefur þú átt gæludýr? „Já, ég á hest og svo á ég
svolítið mikið í hundinum hennar mömmu, henni
Krummu. Annars er ég nefnilega með ofnæmi bæði
fyrir hundum og köttum, frekar óheppilegt þar sem
ég er mikill dýravinur.“
Hvaða tóNleika fórst þú á síðast? „Ég fór síð-
ast á „kveðjutónleikana“ hennar Selmu Björns á
Rósenberg þar sem fullt af frábæru tónlistarfólki
kom fram.“
Hefur þú komist í kast við lögiN? „Bara pínu.“
Hver er uppáHaldsflíkiN þíN? „Ég er ekki mikið
fyrir að taka ástfóstri við hluti, frekar fólk.“
Hefur þú farið í megruN? „Já, allt of oft, svo
gengur það yfirleitt ekkert langt hjá mér því ég er
bara frekar ánægð með mig eins og ég er.“
Hefur þú tekið þátt í skipulögðum mótmæl-
um? „Nei, ég held bara ekki.“
trúir þú á framHaldslíf? „Já.“
Hvaða lag skammast þú þíN mest fyrir að
Hafa Haldið upp á? „Ég hélt einu sinni mikið upp
á Blame It On The Rain með Milli Vanilli, það var
spilað í bakgrunninnum þegar ég átti fyrsta koss-
inn minn. Mjög fyndið! Ég hélt auðvitað lengi upp
á það og hlustaði á það í tíma og ótíma, en það var
áður en maður vissi að þeir voru að mæma. En ég
skammast mín samt ekkert fyrir það, mér finnst
þetta ennþá mjög fyndið lag.“
Hvaða lag kveikir í þér? „Cry To Me með Solo-
mon Burke og svo er auðvitað You Can Leave Your
Hat On með Joe Cocker alltaf klassískt!“
til Hvers Hlakkar þú NúNa? „Ég hlakka til að
eyða tíma með börnunum mínum eftir vinnutörn
vetrarins. Var að frumsýna einleikinn Ferðasaga
Guðríðar um borð í víkingaskipinu Íslendingi í
Reykjanesbæ og er að sýna það þessa dagana,
hlakka líka til þess.“
Hvaða myNd getur þú Horft á aftur og aft-
ur? „Margar, t.d. gamlar söng- eða dansmyndir
eins og Hair, The Sound Of Music og Dirty Dancing.
Nýlega horfði ég aftur á My Best Friends Wedding
og komst að því að ég kann hana utan að, kannski
frekar sorglegt!“
afrek vikuNNar? „Að hafa kennt 5 ára syni mín-
um að hjóla á tvíhjóli, ég er svo stolt af honum!“
Hefur þú látið spá fyrir þér? „Já, já, þó nokkr-
um sinnum. Finnst það alltaf jafn skemmtilegt.“
viltu að íslaNd gaNgi í evrópusambaNdið?
„Nei.“
Hvaða ísleNska ráðamaNN muNdir þú vilja
Hella fullaN og fara á trúNó með? „Ég veit
bara einfaldlega ekki hvort ég myndi nenna því! En
ef ég yrði að velja einhvern þá myndi það kannski
helst vera Jón Gnarr.“
Hvaða fræga eiNstakliNg myNdir þú Helst
vilja Hitta og af Hverju? „Það eru nú margir, t.d.
Bono úr U2, hef alltaf dýrkað hann og væri til í að
hitta hann og spjalla um tónlist, leiklist og hjálpar-
störf. Svo væri ég alveg til í að fá hann til að syngja
fyrir mig eina, það væri algjör draumur!“
Hefur þú ort ljóð? „Já, oft. Finnst ferlega gam-
an að yrkja ljóð og líka að þýða söngtexta yfir á ís-
lensku, elska það.“
Nýlegt prakkarastrik? „Nýlegt? Úpps, þarf
greinilega að fara að fremja fleiri prakkarastrik,
man ekki eftir neinu nýlegu í augnablikinu.“
Hvaða fræga eiNstakliNgi líkist þú mest?
„Bridget Jones, svo var mér nýlega líkt við Angelu
Bassett sem lék Tinu Turner í What’s Love Got To
Do With It, veit ekki hvort það er eitthvað til í því.“
ertu með eiNHverja leyNda Hæfileika? „Er
með fáránlega langa tungu! Nei, það telst nú
kannski ekki sem hæfileiki. Ég er góð í sviðsbardög-
um og öllum spilum, t.d. Trivial Pursuit, enda er ég
brjálæðislega mikil keppnismanneskja.“
á að leyfa öNNur vímuefNi eN áfeNgi? „Nei.“
Hver er uppáHaldsstaðuriNN þiNN? „Erlendis
verð ég að segja bærinn Montreux í Sviss. Á Íslandi
á ég marga uppáhaldsstaði, t.d. Landmannalaugar
og Stakkholtsgjá.“
Hvað er það síðasta sem þú gerir áður eN þú
ferð að sofa? „Klæða mig úr og bursta tennurn-
ar.“
Hver er leið íslaNds út úr kreppuNNi? „Ja, ef
ég vissi það þá væri ég nú örugglega í stjórnmálum!
En það þarf að koma atvinnulífinu aftur í gang, t.d.
með því að auka verkefni, skapa góða fjárfestinga-
kosti og gera fyrirtækjum kleift að halda starfsemi
áfram. Með núverandi aðgerðarleysi og auknum
álögum á einstaklinga og fyrirtæki gerist róðurinn
enn erfiðari. Einn helsti óvinur okkar er atvinnu-
leysið. Hvernig á fólk að geta staðið í skilum ef það
hefur ekki vinnu?“
Þórunn Erna Clausen leikur þessa dagana í einleiknum Ferða-
sögu Guðríðar sem sýndur er í Víkingaheimum í Reykjanes-
bæ. Hún segist hafa komist pínu í kast við lögin auk þess að
vera með fáránlega langa tungu.
milli vaNilli
í bakgruNNi
www.birkiaska.is
Birkilauf- Betulic
Birkilauf hefur góð áhrif á bæði vökvajafnvægi
líkamans og húð, örvar starfsemi nýrna og
þvagfæra. Hraðar efnaskiptum og losar vatn
úr líkamanum, dregur úr bólgum og afeitrar
líkamann (detox).
Umbo›s- og sölua›ili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
Vali› fæ›ubótarefni ársins 2002 í Finnlandi
Minnistöflur
OXYTARM
Endurnærir og hreinsar ristilinn
Allir dásama OXYTARM
Í boði eru 60-150 töflu skammtar
DETOX
30days&
Betri apótekin og Maður lifandi www.sologheilsa.is.
Losnið við hættulega kviðfitu og
komið maganum í lag með því að
nota náttúrulyfin Oxytarm og
30 days saman -120 töflu skammtur -
Jónsmessuhátíð Útivistar
í spennandi umhverfi
Nánari upplýsingar á utivist.is
Laugavegi 178 - Sími 582 1000 - utivist.is
komdu í áskrift!
512 70 80
dv.is/askrift