Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2010, Qupperneq 48
48 föstudagur 4. júní 2010 útlit
E-labEl
í Topshop
á íslandi
Hönnunarmerkið E-label ætti að vera
orðið öllum tískuþyrstum Íslending-
um kunnugt. Í hönnun E-label er lögð
mikil áhersla á góð snið sem henta
flestum konun óháð líkamslögun
þeirra. Merkið hefur slegið í gegn á Ís-
landi og er að festa rætur víða, meðal
annars í Bretlandi. Nú er hægt að nálg-
ast línu E-label í Topshop á Íslandi.
Merkið hefur verið til sölu í Topshop á
Oxford street síðan síðasta haust og að
sögn Hebu Hallgrímsdóttur, annars
eigenda merkisins, gengur salan þar
mjög vel. „Línan selst mjög vel í Top-
shop úti. Það voru sex merki tekin inn
á sama tíma og við en við erum eina
merkið sem var haldið þar inni. Það
er rosa samkeppni þarna inni en okk-
ur gengur mjög vel þar og línan selst
vel. Við verðum þarna áfram meðan
svona vel gengur og allir eru ánægðir,“
segir Heba.
Eldfjallalína E-label
Opnunarpartí var haldið í gærkvöld í
Topshop Kringlunni til að fagna komu
E-label í búðina. Þar var ný lína sem
Harpa Einarsdóttir fatahönnuður
hannaði fyrir E-label frumsýnd. Lín-
an sem Harpa hannaði heitir Volca-
no og er undir áhrifum frá eldgosinu
í Eyjafjallajökli. Á flíkurnar er stafrænt
prentað eftir ljósmyndum af eldgos-
inu sem Harpa vann. Línan inniheld-
ur tvo kjóla með mismunandi prentun
og líka herrabol. Línan verður fáanleg
í Top shop Kringlunni og Smáralind og
netverslun E-label í enda mánaðarins.
„Við verðum með fullt fullt af fínum
vörum, bæði Volcano-línuna og sum-
arlínuna okkar í Topshop,“ segir Heba.
Nýir hönnuðir
Ásgrímur Már Friðriksson hefur ver-
ið aðalhönnuður E-label hingað til.
Hann hefur nú stigið til hliðar og nýir
hönnuðir tekið við keflinu. Það eru
fatahönnuðurnir Harpa Einarsdóttir
sem hefur gert það gott með hönnun
sinni og Erna Bergmann. Þær munu
hanna næstu haustlínu merkisins.
Eygló Lárusdóttir hannar svo vorlínu
merkisins ásamt Hörpu. Þetta eru allt
reyndir hönnuðir sem hafa gert það
gott með eigin hönnun svo gaman
verður að fylgjast með afrakstrinum.
Útrás
Að sögn Hebu er merkið í stöðugri út-
rás og eru þær stöllur, Heba og Ásta
Kristjánsdóttir, á leið í frekari land-
vinninga. „Við erum að skoða einn
nýjan markað. Við erum að hugsa
um að reyna að fara inn á Þýska-
landsmarkað í haust. Það eru alla-
vega þrjár stórar verslanir sem við
erum að skoða að selja í. Þetta er mjög
stór markaður.“ segir Heba en tekur
þó fram að þær fari ekki fram í neinu
offorsi: „Við erum alltaf að stækka við
okkur og færa út kvíarnar en við ger-
um það bara hægt og rólega. Bara á
okkar hraða. Við verðum náttúrlega
að ráða við þetta,“ segir Heba bjartsýn
á gott gengi E-label erlendis.
viktoria@dv.is
Heba Hallgrímsdóttir
Annar eigenda E-label.
Milliliðalaus verzlun ætlar að setja upp næsta Pop-Up markað á laugardag:
Útimarkaður í Sirkusportinu
Fjölbreyttur hópur hönnuða tek-
ur þátt í Pop-Up að þessu sinni. Ása
Ninna hannar fatnað fyrir börn og
fullorðna undir merkinu Pardus.
Edda Skúladóttir verður að selja
áprentaðar silkiflíkur fyrir döm-
ur sem hún hannar undir merkinu
Fluga. Silja Hrund verður með kven-
fatnað frá SHE. Þá verður Elva Dögg
með hálsmenin sín en hún verð-
ur einnig að selja flíkur undir merk-
inu Eccentric Romantic & Elva. Inga
Björk sem hefur verið að hanna
skartgripi undir merkinu IBA verður
einnig með kvenfatnað, handlitaðar
hrásilkiflíkur.
Nýir polo-bolir frá A.C.Bullion
Stöllurnar Íris og Ragnheiður verða
líka á Pop-Up með vörur frá Varius,
en þær hafa verið að gera skart, fylgi-
hluti og heimilisvörur. Fjaðrir, plexí-
gler og krummi eru þeirra helsti efni-
viður. Þá mun Aaron kynna nýjungar
frá A.C.Bullion en hann hannar axla-
bönd, töskur og herraskyrtur. Á laug-
ardaginn ætlar hann svo að kynna
pólóboli sem hann var að hanna fyrir
herra. Loks verður Þórey Björk, sem
er jafnframt einn af aðstandendum
markaðarins, með fylgihluti frá Eight
of Hearts. Vetrarlínan hennar verður
á útsölu þar sem hún þarf að rýma
fyrir nýrri línu sem hún ætlar svo að
kynna á næsta Pop-Up markaði sem
haldinn verður á Jónsvöku dagana
26. og 27. júní.
Munið eftir seðlum
Markaðurinn fer fram í Sirkusport-
inu hjá Hemma og Valda. Hann hefst
klukkan tólf á hádegi og lýkur klukk-
an 18. Aðstandendur markaðsins
lofa að vera í sumarskapi enda allt-
af stuð og stemning á Pop-Up. Þeir
vilja samt benda fólki á að taka með
sér seðla þar sem engir posar eru á
svæðinu. ingibjorg@dv.is
Tískubloggið
DV mælir með Ynjunet.is.
Skemmileg síða þar sem finna
má myndir af götutískunni í
Reykjavík, skemmtileg viðtöl,
tískuumfjallanir, uppskriftir og
allt milli himins og jarðar.
Urban Outfitters
Stráhattar eru heitir í sumar
Cameron Diaz með stráhatt
Stráhattar
í sumar
Stráhattar eru það allra heitasta í
sumar. Stórir sem smáir, allt dugar,
stráið er inn. Þeir geta verið bæði
rómantískir og rokkaðir, allt eft-
ir stærð, áferð og lit. Margar búðir
selja stráhatta um þessar mund-
ir og sniðugt er að kíkja í vintage-
búðir þar sem hægt er að finna alls
kyns útgáfur af stráhöttum. Þeir
eru ekki bara flottir heldur verja
þeir mann líka fyrir sterkum geisl-
um sólarinnar.
Vintage-hattur
Stórir sem smáir