Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2010, Síða 50
Hjólið Hleður símann Yfir sumartímann verður reiðhjólið fyrir
marga aðal fararskjótinn og þá er vert að benda á þessa sjálfbæru leið til
að hlaða farsímann meðan pedalarnir eru stignir. Nokia-fyrirtækið mun
setja á markað þetta skemmtilega hleðslutæki seinna á árinu en með
10 mínútna hjólreiðartúr fær síminn hleðslu sem samsvarar 28 mínútna
samtali. Hleðslutækinu fylgja stýrisfestingar og kapall til að tengja við
símann og ef síminn býr yfir leiðsögukerfi er hér komin skemmtileg
lausn til að ferðast um framandi slóðir með sjálfbært rafkerfi!
Sú áhersla sem Kínverjar hafa lagt á í
framþróun tækni og vísinda undan-
farna tvo áratugi hefur meðal annars
skilað sér í þróun ofurtölva þar í landi
en slíkar tölvur eru notaðar við ýmsa
vísindalega og verkfræðilega útreikn-
inga, til dæmis við gerð veðurlíkana
og í bílahönnun. Evrópubúar, Japanir
og Bandaríkjamenn hafa til þessa átt
öflugustu tölvur þessarar gerðar en
nú hefur ný kínversk ofurtölva skotist
upp í annað sætið samkvæmt síðustu
mælingum en á sex mánaða fresti er
birtur listi yfir 500 öflugustu tölvur í
heiminum.
The Dawning Nebulae, eins og
tölvan kallast, getur annað 1,27 Peta-
floppum (1000 milljón milljón reikni-
aðgerðir á sekúndu = 1 Petaflop).
Tölvan er þó ekki að öllu leyti kínversk
að uppruna því hlutar hennar koma
frá fyrirtækjunum Intel og Nvidia en
síðar á þessu ári verður vélbúnað-
urinn uppfærður með kínverskum
íhlutum og örgjörvum en markmiðið
er að hún skjótist þá upp í fyrsta sæti
listans. Öflugasta tölvan í heiminum
í dag, Cray Jaguar, er staðsett í Tenn-
essee í Bandaríkjunum og mælist
með 1,72 Petaflop. Bandaríkjamenn
eru með metnaðarfulla áætlun varð-
andi smíði ofurtölva en samkvæmt
henni verður búið að smíða þúsund
sinnum hraðvirkari tölvu eftir tíu ár.
Kínversk ofurtölva í öðru sæti yfir hraðvirkustu tölvur heimsins:
Ætla sér fyrsta sÆtið
rafbÆkur
á einu sniði
Auknar vinsældir rafbóka hafa getið
af sér nokkur bókarsnið sem ekki
eru samhæfð milli þess vélbúnaðar
sem í boði er í dag. Þannig er bók
sem keypt er á Amazon fyrir
Kindle-lestölvuna ekki opnanleg á
öðrum lestölvum nema með
sérstöku Kindle-forriti. Fram-
kvæmdastjóri Penguin-bókaútgáf-
unnar sagði í viðtali á dögunum að
það væri heitasta ósk fyrirtækisins
að fundinn væri opinn og
sameiginlegur staðall fyrir rafbækur
þannig að almenningur gæti keypt
lestölvu án þess að hafa áhyggjur af
því hvort tölvan gæti opnað bók frá
tilteknu fyrirtæki eða þær bækur
sem notandinn ætti þegar í safni
sínu.
tvÆr milljónir
ipad seldar
Þrátt fyrir að Apple hafi þurft að
fresta sölu iPad-tölvunnar á
alþjóðamarkaði hefur fyrirtækið nú
selt um tvær milljónir slíkra tölva en
aðeins eru tæplega tveir mánuðir
síðan iPad kom á markað vestanhafs.
iPad kom loks á markað í níu
löndum fyrir viku síðan en fleiri lönd
bætast síðan við í næsta mánuði.
Markaðsfræðingar telja að Bretland
og Frakkland verði helstu sölusvæði
iPad utan Bandaríkjanna og áætla að
á aðra milljón tölva seljist þar fyrir
árslok.
flaggskip
samsung
Samsung setti Galaxy S snjallsímann
á Evrópumarkað í vikunni en síminn
er einn sá flottasti af nýjum símum
fyrirtækisins. Galaxy S er búinn 1Ghz
örgjörva og keyrir á Android-kerfinu
en meðal annarra eiginleika símans
er 4 tommu WVGA Super Amoled
skjár, GSM/GPRS/EDGE/3G símkerfi,
5 megapixla myndavél, HD-mynd-
skeiðsafspilun, Blátönn, WiFi, USB 2
og 8/16GB geymslurými en síminn
er einnig með aukarauf fyrir
minniskort upp að 32GB.
UMSjóN: Páll SVANSSoN, palli@dv.is
Það má segja að Android-stýrikerf-
ið frá Google hafi nánast yfirtekið
snjallsímamarkaðinn undanfarið
ár ef litið er framhjá iPhone-kerfi
Apple-fyrirtækisins. Android, ólíkt
iPhone-stýrikerfinu, er að auki
frítt og opið kerfi sem vélbúnaðar-
framleiðendur hafa tekið opnum
örmum. Google virðist þó aldrei
hafa ætlað Android að verða ein-
hverskonar valmöguleiki fyrir fis-
og smátölvur en fyrirtækið upp-
lýsti í vikunni að það myndi koma
Chrome OS á markað í haust, stýri-
kerfi sem er að stórum hluta byggt
á Linux-afbrigðinu Ubuntu, en út-
lit og viðmót er síðan fengið frá
Chrome-netvafranum.
Chrome OS
Chrome OS, líkt og Android, verð-
ur frítt stýrikerfi, ætlað fis- og
smátölvum, en Google mun ríða
á vaðið í haust með því að setja á
markað eigin tölvu sem keyrir á
kerfinu. Chrome OS verður frá-
brugðið þeim stýrikerfum sem
við þekkjum því Chrome-vafrinn
gegnir þar lykilhlutverki í öllum
aðgerðum og veflægur hugbún-
aður kemur að mestu leyti í stað
hefðbundinna forrita. Stærsti höf-
uðverkur Google þessa dagana er
að finna viðunandi lausn fyrir not-
endur til að nálgast hugbúnað fyrir
kerfið en samkvæmt heimildum er
verið að setja á stofn sérstaka vef-
verslun fyrir tilvonandi Chrome OS
notendur.
Bein samkeppni
Ef viðtökur Chrome OS verða góðar
hefur Google fest sig rækilega í sessi
á stýrikerfamarkaðinum en vinsæld-
ir fis- og smátölva eru miklar þessa
dagana og flestir ef ekki allir vél-
búnaðarframleiðendur horfa nú til
vinsælda iPad-tölvunnar frá Apple.
Frítt stýrikerfi sem hentaði slíkum
tölvum yrði tekið opnum örmum og
þar með væri Google komið í beina
samkeppni við Microsoft á þessum
markaði. palli@dv.is
50 föstudagur 4. júní 2010
Síðla hausts mun Chrome OS koma fram á sjónarsviðið en þetta nýja stýrikerfi frá
Google er ætlað fis- og smátölvum sem njóta mikilla vinsælda þessa dagana.
CHrome os
frá google
Crey Jaguar Heldur enn
fyrsta sætinu sem hraðvirk-
asta ofurtölva heimsins.