Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2010, Blaðsíða 53
8
4. júní 2010 föstudagur 53
Abedi Pele Gana
Atvinnumannaferill: 1986-2000. Spilaði með: Chamois Niort FC,
Marseille, Lille, Lyon, Torino, 180 Munchen.
n Abidi Pele var á sínum tíma kosinn knattspyrnumaður Afríku í
þrígang og var á lista Pele yfir 125 bestu leikmenn sögunnar sem
opinberaður var árið 2004. Pele var gífurlega öflugur leikmaður og
fyrirliði. Hann lék mestmegnis í Frakklandi, þar á meðal með Marseille
en hann var mikilvægur hlekkur í Marseille-liðinu sem vann Meistara-
deildina árið 1993. Gana var þó ekki með jafnöflugt landslið og við
þekkjum í dag og tókst honum því aldrei að leika á HM, ekki frekar en
annar Ganamaður á hans tíma, Tony Yeboah.
7 6
543
2 1
iAn Rush Wales
Atvinnumannaferill: 1978-2000. Spilaði með: Chester, Liverpool,
Juventus, Leeds, Newcastle, Wrexham, Sidney Olympic.
n Eins gott og gaman það er fyrir unga fótboltadrengi að fæðast á Bret-
landseyjum er það alltaf lotterí hvaða þjóðerni þú berð. Sértu Walesverji
eða Norður-Íri ferðu líklega aldrei á HM, sama hversu góður þú ert. Ian
Rush er einn af þeim óheppnu. Hann var fæddur markvarðarhrellir eins
og sannaðist best á árum hans hjá Liverpool. Fyrst skoraði hann 139 mörk
í 224 leikjum með Liverpool frá 1980-87 og svo önnur 90 í 245 leikjum
1988-1996 með stuttu stoppi hjá Juventus á milli. Hann eins og aðrir góðir
Walesverjar lék þó aldrei á HM. Til að hugga sig getur hann þó líklega vel
við unað fimm enska meistaratitla og sigur í Evrópukeppni Meistaraliða.
eRic cAntonA Frakkland
Atvinnumannaferill: 1983-1997. Spilaði með: Auxerre, Marseille,
Bordeaux, Montpellier, Nimes, Leeds, Manchester United.
n Þrátt fyrir að hafa verið potturinn og pannan í sterku liði Manchester
United á tíunda áratugnum lék Eric Cantona aldrei á HM. Hann fékk
sína fyrstu landsleiki seint á níunda áratugnum en fór í fýlu við franska
knattspyrnusambandið rétt fyrir HM 1990 og missti af þeirri keppni. Hann
var kominn aftur í franska landsliðið í undankeppninni fyrir HM í Bandaríkj-
unum árið 1994 en Frakklandi mistókst að komast inn á mótið. Cantona
hætti svo skyndilega í knattspyrnu árið 1997, ári fyrir HM í Frakklandi árið
1998. Cantona var valinn besti erlendi leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar
á tíunda áratugnum.
RyAn GiGGs Wales
Atvinnumannaferill: 1987-?. Spilar með: Manchester United.
n Ein flottasta fyrirmynd ungra knattspyrnumanna í mörg ár hlýtur
að vera Ryan Giggs. Langleikjahæsti leikmaður Manchester United,
leikmaður sem hefur unnið ensku úrvalsdeildina ellefu sinnum og Meist-
aradeildina tvisvar. Hann hefur verið lykilmaður hjá Manchester United
í tæplega tuttugu ár en alltaf þegar kemur að stórkeppnum er hann í
fríi. Hann er nefnilega Walesverji. Faðir hans er reyndar Englendingur en
Giggs ólst upp með móður sinni og ákvað að hengja sig á velsku grein
ættartrésins. Englendingar vilja meina að með hann í liðinu hefði liðið
klárlega unnið stórkeppni síðustu 16 árin en það varð og verður aldrei.
GeoRGe WeAh líbería
Atvinnumannaferill: 1985-2003. Spilaði með: AS Monaco,
PSG, AC Milan, Chelsea, Man. City, Marseille, Al-Jazire.
(Sex önnur lið í Afríku á fyrstu árum ferilsins.)
n Það er ótrúlegt að hugsa til þess að einn besti knattspyrnumaður
sögunnar komi frá Líberíu. Land sem ekki er þekktast fyrir glæstan ár-
angur á knattspyrnuvellinum. Weah var aldrei nálægt því að leika á HM
þrátt fyrir ótrúlegan feril. Hann var valinn besti leikmaður heims árið
1995 og sama ár fékk hann gullboltann fyrir frábært tímabil sitt með
AC Milan á Ítalíu. Almennt er talið að á HM 1994 vantaði einfaldlega
einn albesta leikmann heims á mótið.
beRnd schusteR Þýskaland
Atvinnumannaferill: 1978-1997. Spilaði með: FC Köln, FC Barcelona,
Real Madrid, Atletico Madrid, Bayer Leverkusen, Pumas.
n Schuster var valinn næstbesti leikmaður Evrópukeppninnar árð 1980
þegar Þjóðverjar tryggðu sér titilinn. Hann hætti þó á dramatískan hátt
að leika með landsliðinu aðeins 24 ára gamall eftir að hafa margoft
sinnast við þýska knattspyrnusambandið. Hann ákvað eitt sinn að fara
heim að sjá son sinn fæðast í stað þess að spila landsleik en það varð að
þvílíkum skandal sem var á forsíðum allra blaða. Með þeirri ákvörðun
brenndi hann allar brýr að baki sér og átti aldrei afturkvæmt í þýska
landsliðið sem átti eftir að vinna HM og EM áður en ferli Schuster lauk.
GeoRGe best norður-írland
Atvinnumannaferill: 1963-1981. Spilaði með: Manchester United, Stockport, Cork,
Fulham, Los Angeles Galaxy, Fort Lauderdale Strikers, Hibernian, San Jose Earthquakes.
n Fyrsta alvöru rokkstjarna knattspyrnunnar var George Best. Ekta barn Bítlahreyfing-
arnnar sem elskaði að djamma og mælti þau frægu orð: „Ég eyddi mestum peningum
mínum í vín, sportbíla og konur, öðru eyddi ég bara í vitleysu.“ Best var þó hæfileikaríkasti
leikmaður sinnar kynslóðar og gat gert hluti með boltann sem fékk fullorðna karlmenn til
þess að gráta. En að vera fæddur í Norður-Írlandi er fótboltabölvun. Best lék aldrei á HM
þrátt fyrir að hafa verið nokkuð nálægt því að koma landi sínu einn síns liðs inn á keppnina
á Ítalíu árið 1968.
AlfRedo di stefAno arGentína/kólumbía/spánn
Atvinnumannaferill: 1943-1966. Spilaði með: River Plate, Millonarios, Real Madrid, Espanyol.
n Pele hefur ávallt sagt að Di Stefano hafi verið betri en Maradona. Hvort sem það sé satt hlýtur - miðað við þau orð - að vera
skrýtið að hann hafi aldrei leikið á HM. Ástæður þessa magnaða leikmanns sem var einn sá allra besti á sínum tíma eru þó
töluvert flóknari en hinna sem taldir hafa verið hér upp. Di Stefano er fæddur Argentínumaður og hefði maður nú haldið að
það eitt ætti að tryggja mönnum leik eða leiki á HM. Fyrsta keppnin sem hann hefði getað tekið þátt í var HM í Braslíu 1950
en það ár tók Argentína ekki þátt. Eftir það varð hann kólumbískur ríkisborgari og komst ekki á HM 1954. Árið 1956 varð
hann spænskur ríkisborgari en Spáni mistókst að tryggja sér farseðilinn til Svíþjóðar árið 1958. Di Stefano var svo potturinn
og pannan í spænska liðinu sem komst á HM 1962 en hann meiddist rétt fyrir mótið, spilaði ekki leik á því og átti aldrei
möguleika á því að komast á HM aftur.
sumir ÞurFa að
hoRfA
Að spila á HM er draumur allra knattspyrnumanna. Margir frábærir
leikmenn hafa þó aldrei fengið tækifæri til þess að leika á þessum
stærsta íþróttaviðburði heims aðeins vegna þess hvar þeir fæddust.
DV telur hér upp þá átta bestu sem aldrei léku fyrir þjóð sína á HM. á hm