Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2010, Qupperneq 62
Myndbandið um Ísland á ins-
piredbyiceland.com hefur farið
eins og eldur í sinu um verald-
arvefinn. Á síðunni sjálfri má
sjá frásagnir erlendra gesta sem
hafa komið hingað til lands en
einn þeirra er danska kvik-
myndastjarnan Viggo Mortensen
sem lék meðal annars í mynd-
unum um Hringadróttinssögu.
Viggo sparar ekkert til í einlægu
myndbandi þar sem hann lofar
Ísland í hástert. „Mest keyrði ég
um allt og gekk í alls konar veðri.
Ég finn fyrir sterkri tengingu
við Ísland, ekki bara vegna þess
hversu fallegt það er. Mér leið vel
á Íslandi og leið eins og ég hefði
komið þangað áður. Það var ekki
einn staður á öllu landinu sem
mér leið ekki vel á,“ segir Viggo
meðal annars.
bomba með
byssuleyfi
Bátaáhugamaður frá Flateyri, Úlfar
Önundarson, hefur smíðað skemmti-
ferðaskipið Titanic í hlutföllunum
1:100 en hvert einasta smáatriði er
á skipinu sem er smíðað eftir alvöru
teikningum skipsins. „Þetta er bara
skipið sem sást í bíómyndinni,“ seg-
ir Úlfar léttur. Líkanið er rétt tæpir 270
cm að lengd en Úlfar byrjaði að smíða
það í nóvember 2008 og lauk því fyrir
um mánuði.
Úlfar vann hörðum höndum að
því að búa til mold fyrir Flateyringa
þegar DV sló á þráðinn vestur. Hann
var eðlilega krafinn um útskýringar á
þessu þrekvirki. „Þetta byrjaði á því að
Jón Samberg vinur minn hér las grein
um Finna sem ætlaði að smíða skipið
í fullri stærð og reka sem hótel. Hann
sagði þá að ég ætti bara að vera á und-
an.“
Úlfar fór þá að safna efniviði en
skipið er að mestu gert úr timbri og
kopar. „Eftir að ég fékk teikningarnar
hófst ég handa og það gekk rosalega
vel. Þetta var smíðað nokkuð samfleytt
allan tímann. Einu vandræðin var að fá
fólkið um borð í réttum hlutföllum en
það tókst,“ segir Úlfar en skipið verður
sett á flot í Lóninu á Flateyri á sunnu-
daginn ásamt fleiri bátum sem hann og
félagar hans hafa smíðað.
Aðspurður hvort annað verk sé í bí-
gerð svarar Úlfar: „Ég er að smíða Hval
9 núna í hlutföllunum 1:42. Ég er síð-
an að spá síðan í að smíða tvö fræg-
ustu orustuskip sögunnar, Bizmarck og
Hood, ef ég fæ einhvern með mér. Það
er samt tveggja ára plan.“ tomas@dv.is
Viggo lof-
ar Ísland
Kræfur bátaáhugamaður á flateyri:
AlexAndrA HelgA:
PopUp-markaðirnir hafa verið að
slá í gegn en markaðurinn breyt-
ist í útimarkað á laugardaginn.
Þá ætla íslenskir hönnuðir að
sýna og selja sumarlegar vörur og
þannig skapa pláss fyrir nýjar og
spennandi línur. Á meðal hönn-
uða sem taka þátt að þessu sinni
eru Ása Ninna sem hannar undir
merkinu Pardus, Inga Björk með
merkið IBA, Þórey Björk með
Eight of Hearts, Aaron sem hann-
ar undir merkinu A.C. Bullion og
Silja Hrund sem hannar undir
merkinu sínu She. Markaður-
inn verður haldinn í portinu hjá
Hemma og Valda.
Íslenskir
hönnuðir
með úti-
markað
62 föstudagur 4. júní 2010 fólkið
s Íðaði titanic
Átján mánaða vinna Úlfar Önundar-
son byrjaði að smíða Titanic í nóvember
2008. mynd PÁll Önundarson
alexandra Helga Ívarsdóttir, ungfrú Ísland árið 2008, er komin með byssu-
leyfi. alexandra helga segist alltaf hafa haft áhuga á byssum og veiðum og
stefnir í veiðitúr með pabba sínum um leið og hún hefur lokið veiðileyfinu.
„Ég hef haft áhuga á skotveiði
frá því ég var lítil stelpa en pabbi
minn hefur alltaf verið mik-
ill veiðimaður,“ segir Alexandra
Helga Ívarsdóttir sem var kjör-
in fegurðardrottning Íslands árið
2008. Alexandra Helga hefur náð
sér í byssuleyfi og stefnir á að taka
veiðileyfið í sumar svo hún geti
farið með pabba sínum á veiðar.
„Þangað til ætla ég bara að leika
mér uppi á skotveiðisvæðinu. Þeg-
ar ég verð komin með veiðileyf-
ið fer ég svo á veiðar með pabba,“
segir hún. Aðspurð segist hún ekki
stefna á byssukaup á næstunni.
Pabbi hennar eigi nóg af byssum
svo hún fái bara lánað hjá honum.
Hún segist enn fremur borða bráð-
ina svo það sé aldrei að vita nema
það verði hún sem veiði gæs og
rjúpu í jólamatinn í ár.
Alexandra segist ekki hingað
til hafa farið á veiðar með pabba
sínum en að hann veiði allar leyfi-
legar tegundir og hafi einnig veitt
bæði á Grænlandi og í Afríku. „Ég
hef ekki farið í veiðitúr ennþá því
ég hef ekki verið með leyfi en ég
hef alveg skotið úr byssu,“ segir
hún og bætir aðspurð við að högg-
ið sem fylgi sé alveg þolanlegt.
Hún viðurkennir að vinkonurn-
ar og vinahópurinn hafi átt erfitt
með að trúa þessu uppátæki henn-
ar. „Það eru allir voða hissa á þessu
og finnst ég ekki alveg týpíska
stelpan í þetta. En ég held að ég sé
það einmitt. Allavega hef ég alltaf
haft áhugann,“ segir hún og jánkar
því að hún sé líklega eina íslenska
fegurðardrottningin sem hafi leyfi
til að skjóta úr byssu. „Ég giska á að
ég sé sú eina. Allavega hef ég ekki
heyrt af neinni annarri,“ segir hún
brosandi.
indiana@dv.is
Það eru allir voða hissa á þessu
og finnst ég ekki alveg
týpíska stelpan í þetta.
En ég held að ég sé það
einmitt.
Glæsileg Alexandra Helga er
mjög líklega fallegasti Íslend-
ingurinn með byssuleyfi.