Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2010, Qupperneq 12
12 fréttir 15. október 2010 Föstudagur
25% afsláttur
af hvítum háglans innréttingum
Sérhæfum okkur
í innréttingum
fyrir heimili á
lágmarksverði
Íslenska tölvuleikjafyrirtækið CCP
skilaði hagnaði upp á nærri 6,2
milljónir dollara, um 750 milljón-
ir króna, í fyrra. Þetta kemur fram
í ársreikningi félagsins, sem með-
al annars býður upp á nettölvu-
leikinn Eve Online, fyrir árið 2009.
Ársreikningnum var skilað til árs-
reikningaskrár ríkisskattstjóra 3.
október síðastliðinn. Ekkert í árs-
reikningi fyrirtækisins bendir til
annars en að það sé rekið með
miklum sóma.
Björgólfur Thor Björgólfsson
fjárfestir er stærsti hluthafi CCP
í gegnum eignarhaldsfélagið NP
ehf. með rúmlega 30 prósenta
eignarhlut. Eignarhaldsfélagið
Teno Investments í Lúxemborg
kemur næst á eftir með tæplega
24 prósenta eignarhlut og einn af
upphaflegum stofnendum CCP,
Sigurður Reynir Harðarson, á rúm
10 prósent. Aðrir ótilgreindir hlut-
hafar deila svo með sér 35,5 pró-
senta hlut.
Formaður stjórnar CCP er Vil-
hjálmur Þorsteinsson fjárfestir en
meðal annarra stjórnarmanna má
nefna viðskiptafélaga Björgólfs
Thors, Birgi Ragnarsson. Í árs-
reikningnum segir að stjórn CCP
hafi ákveðið að greiða ekki út arð
til hluthafa fyrir árið 2009.
100 starfsmenn til viðbótar
Í ársreikningnum kemur fram að
á árinu 2009 hafi starfsemi CCP
aukist talsvert: 34 prósenta aukn-
ing varð á áskrifendafjölda Eve
Online víða um heim á árinu – í
apríl síðastliðnum voru áskrifend-
urnir orðnir 320 þúsund. Á sama
tíma fjölgaði starfsmönnum CCP
á skrifstofum fyrirtækisins í Reyka-
vík, Newcastle, Sjanghæ og Atlanta
úr 353 í 451.
Í ársreikningnum kemur fram
að mesta salan á áskriftum Eve On-
line hafi verið í Norður-Ameríku
en samtals nam sala á áskriftum
á Eve Online rúmlega 26 milljón-
um dollara, rúmlega 3,2 milljörð-
um króna, á árinu í þessum heims-
hluta. Í Evrópu nam salan tæpum
25 milljónum dollara, um 3,1 millj-
arði króna. Salan í Asíu og öðrum
hlutum heimsins nam svo samtals
um 4,3 milljónum dollara, rúmum
530 milljónum króna.
Ljóst er því af þessum tölum í
ársreikningnum að CCP sótti tölu-
vert í sig veðrið á árinu: Salan á
vörum fyrirtækisins jókst og bætt
var við starfsfólki. Í ársreikningn-
um segir líka orðrétt: „Eve Online
stækkaði áfram á árinu 2009, og
fjölgaði áskrifendum um 34 pró-
sent á árinu [...] Áskrifendafjöld-
inn er orðinn meiri en allur íbúa-
fjöldi Íslands. Og þrátt fyrir að vera
einungis sjö ára gamall var Eve val-
inn leikur ársins af PC Gamer, en
slíkt er einstakt í tölvubransanum.“
Eigið fé hærra en skuldir
Eiginfjárstaða CCP er sömuleiðis
góð, hún nam tæpum 44 milljón-
um dollara í árslok 2009. Á móti
þessu eigin fé eru skuldir upp á um
30 milljónir króna.
CCP virðist því koma afar vel
undan kreppunni enda spilar það
stórt hlutverk í góðum rekstri fyrir-
tækisins að mikill meirihluti við-
skiptavina er sóttur út fyrir land-
steinana, til Bandaríkjanna og
Evrópu aðallega.
Ársreikningur tölvuleikjaframleiðand-
ans CCP sýnir afar sterka stöðu fyrir-
tækisins. Eiginfjárstaðan er góð í sam-
anburði við skuldir. Fyrirtækið bætti
við sig um 100 starfsmönnum á árinu
2009 og áskrifendum Eve fjölgaði.
ingi f. vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar: ingi@dv.is
Eve Online stækkaði áfram
á árinu 2009, og fjölg-
aði áskrifendum um 34
prósent á árinu.
stærsti hluthafinn BjörgólfurThor
Björgólfssonfjárfestirerstærstihluthafi
CCPígegnumeignarhaldsfélagiðNP
ehf.
FLEIRI KAUPA EVE
EN búA á ísLANdI