Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2010, Side 19
FÖSTUDAGUR 15. október 2010 FRÉTTIR 19
um S-hópsins var Þórólfur Gíslason,
kaupfélagsstjóri Kaupfélags Skagfirð-
inga. Annar var Helgi S. Guðmunds-
son og Ólafur Ólafsson í Samskipum
var ekki langt undan frekar en Finnur
Ingólfsson.
Deilt um vanhæfi Halldórs
Árið 2005, í forsætisráðherratíð Hall-
dórs Ásgrímssonar, var hæfi hans til
þess að fjalla um sölu á hlut ríkisins
í Búnaðarbankanum til S-hópsins
véfengt í fjárlaganefnd. Halldór undi
ásökunum illa og úr varð að Ríkisend-
urskoðun undir stjórn Sigurðar Þórð-
arsonar skoðaði málið sérstaklega
fyrir fjárlaganend Alþingis.
Á það hafði verð bent að Skinney-
Þinganes, fyrirtæki í eigu fjölskyldu
Halldórs – eins og rakið er hér að
framan – átti helmingshlut í Hesteyri
hf. á móti Kaupfélagi Skagfirðinga.
Hesteyri var einn stærsti hluthafinn í
Keri hf. sem stofnaði félagið Eglu hf.
ásamt þýskum banka, Hauck & Auf-
häuser Privatbankiers KGaA. Í gegn-
um Eglu hf. eignaðist Ker og þýski
bankinn liðlega 70 prósent í Búnað-
arbankanum. Aðrir í hópi kaupenda
voru VÍS, Samvinnulífeyrissjóður-
inn og Eignarhaldsfélagið Samvinnu-
tryggingar, en milljarðaeignir þess
voru síðar fluttar yfir í Gift.
Með þessum hætti ófust Hesteyri
og Skinney-Þinganes inn í kaupin á
Búnaðarbankanum og þótti ýmsum
því ekki óeðlilegt að upp kæmi spurn-
ing um vanhæfi Halldórs.
Í minnisblaði ríkisendurskoðanda
um málið var eignarhlutur Halldórs í
Skinney-Þinganesi tíundaður. Haust-
ið 2002 var talið að Halldór ætti lið-
lega 1,3 prósenta hlut í sjávarútvegs-
risanum á Hornafirði. Samanlagður
hlutur fjölskyldunnar í félaginu var þá
áætlaður – með beinum og óbeinum
hætti – um 27 prósent. Á þessum tíma
sátu Ingólfur og Katrín, systkini Hall-
dórs, í stjórn Skinneyjar-Þinganess
og Aðalsteinn, frændi hans, var fram-
kvæmdastjóri. Þau höfðu því mikið
um það að segja að félagið keypti árið
2002 helmingshlut í Hesteyri.
Slapp fyrir horn
Athugasemdir ríkisendurskoðanda
voru af ýmsum toga og snéru til dæm-
is að því að lögformleg staða ráðherra-
nefndar og framkvæmdanefndar um
einkavæðingu væri óljós. Hann taldi
Hesteyri ekki vera beinan kaupanda
að hlut ríkisins í Búnaðarbankanum
og hagsmunir Halldórs og systkina
hans taldi hann vera smávægilega.
Svo virðist sem Sigurður hafi einnig
tekið það gilt að Halldór hafi ekkert
vitað um kaup Skinneyjar-Þinganess í
Hesteyri eða viðskipti Hesteyrar með
bréf í Keri hf. og VÍS. Loks taldi hann
að málið heyrði stjórnskipunarlega
undir viðskiptaráðherra sem á þess-
um tíma var Valgerður Sverrisdótt-
ir, flokkssystir Halldórs. „Að mati rík-
isendurskoðunar er með hliðsjón af
því sem að ofan er rakið mjög óvarlegt
að staðhæfa að málið varði Halldór
eða venslamenn hans svo verulega
að hætt hafi verið við að ómálefna-
leg sjónarmið hafi haft áhrif á afstöðu
hans þegar fjallað var um málið á
vettvangi ráðherranefndarinnar og að
hann hafi af þeim sökum verið van-
hæfur til setu í henni,“ segir í minnis-
blaði ríkisendurskoðunar.
Málið ekki dautt
Stjórnarandstöðu VG, Samfylkingar-
innar og Frjálslynda flokksins þótti
niðurstaða Sigurðar Þórðarsonar rýr
og bað hún lögfræðingana Björn L.
Bergsson, nú settan ríkissaksóknara í
málum sem tengjast bankahruninu,
og Sif Konráðsdóttur um að vinna
álitsgerð um minnisblað ríkisendur-
skoðanda.
Enginn vafi var í huga Björns og
Sifjar að Halldór tók þátt í meðferð
málsins sem varaformaður í ráðherra-
nefndinni, en hún fjallaði á þessum
tíma um einkavæðingu bankanna.
Hér ber þess að geta að upphaf-
lega gaf S-hópurinn rangar upplýs-
ingar um eignarhald á Hesteyri og
sagði félagið algerlega í eigu Kaup-
félags Skagfirðinga. Þetta reyndist
rangt. Um minnisblað ríkisendur-
skoðanda og þetta atriði meðal ann-
ars sögðu Björn og Sif orðrétt: „Óháð
rangri upplýsingagjöf S-hópsins um
aðild Skinneyjar-Þinganess hf. að
Hesteyri ehf. og óháð upplýsing-
um frá Halldóri Ásgrímssyni um að
honum hafi verið ókunnugt um að-
ild ættingja sinna að nefndu félagi
teljum við að Ríkisendurskoðun hafi
mátt vita af þeirri aðild vegna ítar-
legrar fjölmiðlaumfjöllunar haustið
2002.“
Í þessu sambandi má nefna um-
fjöllun Frjálsrar verslunar þar sem
bent var á að Hesteyri hefði hagnast
um 700 milljónir króna á því að selja
hlut sinn í Keri hf.
Björn og Sif töldu eins og áður
segir ljóst að Halldór hefði tek-
ið þátt í undirbúningi og meðferð
sölunnar í stjórnsýslulegu tilliti og
reynt hefði á hæfi hans frá lokum
júnímánaðar 2002 fram í miðjan
janúar 2003.
Því fór hann á fund Halldórs?
Orðrétt segir einnig í álitsgerð Björns
og Sifjar: „Við mat á fjárhagslegum
hagsmunum Halldórs og ættingja
hans ber að okkar mati að líta til
helmings eignarhlutar Hesteyrar ehf.
í Keri hf. frá 16. ágúst 2002 til 19. nóv-
ember 2002. Af þeim eignarhlut átti
fjölskyldan að minnsta kosti 36%. Á
þessu tímabili fór fram val á S-hópn-
um sem kaupanda og samningagerð
við hann.
Björn og Sif voru ósammála ríkis-
endurskoðanda um hagsmunamatið
og töldu að við mat á hæfi Halldórs
hefði átt að líta til hagsmuna einstakl-
inga sem í hlut áttu fremur en að líta
til hlutfalls hagsmunanna af heildar-
viðskiptunum.
Loks segir orðrétt: „Ef Ríkisendur-
skoðun hefði ætlað að gera heildar-
úttekt sýnist einboðið að skoða hefði
þurft tengsl Halldórs Ásgrímssonar
við einstaklinga sem voru í forsvari
fyrir S-hópinn.“
Það er til marks um áhyggjur Hall-
dórs vegna athugana á mögulegu
vanhæfi hans að hann kallaði Sigurð
Þórðarson ríkisendurskoðanda á sinn
fund í forsætisráðuneytinu áður en
hann fór til fundar við fjárlaganefnd
Alþingis vegna málsins. Þetta lagð-
ist þungt í marga þingmenn, ekki síst
vegna þess að Ríkisendurskoðun er
efirlitsstofnun Alþingis en ekki for-
sætisráðherra eða ríkisstjórnar hans.
Þá eru einnig heimildir fyrir því
að Sigurði hafi fyrir fjárlaganefnd-
inni verið ókunnugt um setu systkina
Halldórs og ættmenna í fleiri fyrir-
tækjum sem tengdust Skinney-Þinga-
nesi eignatengslum.
SKULDIR KVÓTAKÓNGA GUFA UPP
Valdamikill kaupfélagsstjóri Þórólfur
Gíslason var í innsta hring S-hópsins og
virkur í fjármálaráði Framsóknarflokksins
í valdatíð Halldórs. Kaupfélag Skagfirð-
inga á enn hlut í Skinney-Þinganesi í
gegnum Skarðsfjörur ehf.
Athafnamaður í Sviss Ólafur Ólafsson
tengdist S-hópnum og síðar Kaupþingi
líkt og aðrir í hópnum. Eru þeir enn með
tengsl og völd inn í bankana?
Úr stjórnmálum í kaupsýslu Finnur
Ingólfsson stóð nærri kaupum S-hópsins
á Búnaðarbankanum, meðal annars í
gegnum VÍS.
Forsætisráðherrann fyrrverandi Fjölskylda
Halldórs Ásgrímssonar á drjúgan hlut í Skinn-
ey-Þinganesi. Fyrirtækið var í eignatengslum
við S-hópinn sem keypti Búnaðarbankann.
Margir töldu Halldór vanhæfan til að fjalla um
einkavæðingu bankans.