Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2010, Qupperneq 24
24 ERLENT 15. október 2010 FÖSTUDAGUR
Hátíðarstemning ríkir í Síle í dag
eftir vel heppnaðar björgunarað-
gerðir. Fólk um allan heim sat límt
við sjónvarps- og tölvuskjái og
fylgdist með þegar námumennirn-
ir voru hífðir upp í björgunarhylk-
inu „Fénix 2“ og fengu að hitta sína
nánustu í fyrsta skipti síðan í byrjun
ágúst. Mennirnir eyddu næstum 70
dögum í prísundinni en San José-
náman, sem hafði haft orð á sér fyr-
ir vafasöm öryggisskilyrði, féll sam-
an þann 5. ágúst. Aldrei áður hafa
menn náð að halda lífi í svo lang-
an tíma neðanjarðar, en fyrra metið
átti sér stað árið 2009 þegar 3 námu-
menn sátu sem fastast í 25 daga í
samanfallinni kolanámu í Guiz-
hou í Kína. Þótt ótrúlegt megi virð-
ast eru námumennirnir við góða
heilsu eftir hinar miklu raunir, einn
er með væga lungnabólgu auk þess
sem tannskemmdir eru áberandi
– en tannburstar eru greinilega af
skornum skammti á 700 metra dýpi.
Þá eru allir sem einn með sveppa-
sýkingu í húðinni og munu námu-
mennirnir einnig þurfa tíma til að
venjast dagsbirtu á nýjan leik, en
talið er að allir muni ná sér að fullu
innan fárra daga.
Heillandi persónuleikar
Eftir að Sebastian Piñera, forseti
Síle, faðmaði að sér námumenn-
ina fékk heimsbyggðin að fræð-
ast ögn um hvern og einn þeirra.
Auðvelt er að ímynda sér að Holly-
wood-kvikmynd sé í burðarliðn-
um í kjölfar atburðarásar síðustu
10 vikna enda mikið um tilfinning-
ar, spennu og jafnvel smá grín. Hér
verða taldir upp þeir námumenn
sem þeir Clooney, Pitt eða Damon
munu keppast um að leika. Ber fyrst
að nefna Luis Urzúa, vaktstjórann
sem kom síðastur upp úr námunni.
Samtal Urzúa og Piñera við það til-
efni vakti athygli og voru hlutar
þess fyrirsagnir fjölmiðla um allan
heim. Urzúa, óhreinn og órakaður,
með hvítan öryggishjálm á höfðinu
og síleska fánann á öxlinni sagði:
„Herra forseti, ég fel þér nú að taka
yfir vaktina og vona innilega, að
þetta muni aldrei endurtaka sig.“
Forsetinn svaraði að bragði, með
miklum létti og fögnuði: „Herra
Urzúa, vakt þinni er lokið!“
Urzúa þessi, sem er 54 ára, er
að öðrum ólöstuðum talin hetjan
í hópnum. Barði hann mönnum
sínum von í brjóst fyrstu 17 dag-
ana í rústunum þegar sambandið
við umheiminn var ekkert. Hann
var fyrstur að átta sig á aðstæðun-
um eftir að göngin féllu saman og
hélt í víðtæka skoðunarleiðangra
til að búa til kort af göngunum, en
þau reyndust ómetanleg við björg-
unaraðgerðirnar. Hann skipulagði
svefnaðstöðu, salernisaðstöðu og
vinnusvæði en hann taldi mikilvægt
að mennirnir héldu sig við efnið til
að halda sönsum. Hann stjórnaði
björgunaraðgerðunum neðanjarð-
ar í samstarfi við sérfræðinga sem
sendir voru niður og þótti einkar
viðeigandi að hann skyldi hafa ver-
ið síðastur upp á yfirborðið.
Önnur hetja í hópnum er hinn 63
ára gamli Mario Gómez, sem varð
andlegur leiðtogi námumannanna.
Útbjó hann kapellu á afviknum
stað í námunni, sem þótti einkar
vel búin miðað við aðstæður. Skart-
aði hún líkneskjum af dýrlingum og
veitti mönnunum ómælda hjálp og
afdrep til að fara með bænir. Síðar
tók Gómez að starfa með prestum
og geðlæknum sem voru staddir á
yfirborðinu og fékk hann þar dýr-
mæta leiðsögn í þeirri sálarhjálp
sem nauðsynleg þótti.
Síðast skal nefna Yonni Barrios,
sem var útnefndur sjúkraliði námu-
mannanna. Reyndist hann bæði
hetja og skúrkur í heimspressunni,
en saga hans er óneitanlega grát-
brosleg. Hafði Barrios ætíð langað
til að verða læknir og var því sjálf-
kjörinn sem sjúkraliðinn í hópnum,
en hann hafði að eigin sögn lesið sér
til um starfið. Hann stóð sig framar
vonum að sögn lækna. Hann skráði
reglulega hjá sér líkamlegt ásig-
komulag námumannanna og brást
við þegar nauðsyn þurfti í samráði
við lækna ofanjarðar. Hann sá um
alla lyfjagjöf og tók einnig að sér
að bólusetja alla í hópnum við stíf-
krampa og barnaveiki. Ljóst er því
að framganga Barrios var hetju-
leg neðanjarðar, en ofanjarðar lifði
hann tvöföldu lífi. Þegar björgun-
araðgerðir áttu að hefjast var eig-
inkona Barrios til 28 ára, Martina
Salinas, vitanlega viðstödd. Henni
til mikillar undrunar var þangað
mætt önnur kona, sem vildi ólm
hitta Barrios. Var þar komin Su-
sana Valenzuela, hjákona Barrios
til fjölda ára. Málalok urðu þau að
Martina fór í fússi og sagðist ekkert
kæra sig um að bjóða eiginmann
sinn velkominn. Fréttir bárust einn-
ig af því að Barrios sjálfur væri ekk-
ert spenntur fyrir því að snúa aftur
á yfirborðið. Þegar upp var kom-
ið faðmaði Valenzuela hann að sér
og kyssti hann sem mest hún mátti.
Barrios virtist ekki hrifinn.
Mennirnir hafa breyst,
Síle hefur breyst
Er allir námumennirnir voru
komnir upp á yfirborðið tóku þeir
til við að syngja þjóðsöng Síle og
mannfjöldinn í kring tók undir.
Það var tilfinningaþrungin stund
en Síle-búar hafa þurft að ganga
í gegnum miklar hremmingar á
þessu ári. Efnahagskreppa, jarð-
skjálfti og flóðbylgja í kjölfarið eru
meðal þeirra áskorana sem Piñera
hefur þurft að kljást við á sínu fyrsta
ári í embætti forseta. Hið glæsi-
lega björgunarafrek er því vonandi
undanfari bjartari tíma í Síle. „Rétt
eins og mennirnir [í námunni] hafa
breyst, hefur Síle breyst,“ sagði for-
setinn eftir að þjóðsöngurinn hafði
verið sunginn.
Talið er að björgunaraðgerðirn-
ar hafi kostað á bilinu 10–20 miljón-
ir dollara en þriðjungur upphæð-
arinnar var greiddur með frjálsum
framlögum fyrirtækja og einstakl-
inga. Afgangurinn féll á ríkið, en
Piñera sagði fjármununum vel var-
ið: „Aðgerðirnar voru hvers einasta
peseta virði.“ Flestir, ef ekki allir, í
Síle taka undir með forsetanum. En
hann hefur þó þurft að þola tals-
verða gagnrýni fyrir að styðja ekki
nóg við bakið á því fólki sem varð
verst úti í kjölfar jarðskjálftans sem
skók Síle í febrúar. Neyðarhúsnæði
hafði verið lofað á svæðum þar
sem eyðileggingin var hvað mest,
en margir hafa verið sviknir. Gagn-
rýnendur forsetans hafa bent á að
velgengni björgunaðgerðanna hafi
verið eins og himnasending fyrir
hann. Athyglin beinist ekki leng-
ur að fórnarlömbum jarðskjálftans
sem virðist grafinn og gleymdur. Á
meðan brosir Piñera framan í ljós-
myndara heimspressunar og boðar
nýja tíma. Forsetinn er hins vegar
ekki öfundsverður af hlutverki sínu
sem leiðtogi lands sem hefur þurft
að þola miklar hremmingar. Góðu
fréttirnar eru þær að nú er spáð
liðlega 5 prósenta hagvexti í Síle á
þessu ári og liðlega 6 prósenta á því
næsta. Síle-búar geta vonandi horft
björtum augum fram á veginn.
HÁTÍÐ Í SÍLE
Á innan við sólarhring tókst að bjarga öll-
um 33 námumönnunum sem fastir voru á
670 metra dýpi í 70 daga í San José-nám-
unni í norðurhluta Síle. Námumennirnir
hafa heillað fólk um allan heim en talið er
að meira en milljarður manna hafi fylgst
með björgunaraðgerðunum. Sebastian
Piñera, forseti Síle, faðmaði að sér námu-
mennina með tár í augunum er þeir voru
hífðir upp einn af öðrum. „Stærsta stund
í sögu Síle,“ fullyrðir forsetinn.
BJÖRN TEITSSON
blaðamaður skrifar: bjorn@dv.is
Er allir námu-mennirnir voru
komnir upp á yfirborð-
ið tóku þeir til við að
syngja þjóðsöng Síle og
mannfjöldinn í kring tók
undir. Það var tilfinn-
ingaþrungin stund.
Yonni Barrios Fagnar mannfjöldanum
við komu á sjúkrahús Eiginkona hans
fagnaði honum hins vegar ekki.
Mario Gómez
Aldursforseti
hópsins og
andlegur
leiðtogi hans.
Hetjan og forsetinn Luiz Urzúa, hetja námumannanna, og Sebastian Piñera, forseti
Síle, syngja þjóðsönginn á tilfinningaþrunginni stundu Í kjölfarið sagði Piñera að
björgunarafrekið væri tákn um að betri tíð sé framundan.