Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2010, Page 34

Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2010, Page 34
34 viðtal 15. október 2010 föstudagur er líka mjög erfitt. Ég hef aldrei skammast mín fyrir að segja það að stundum langar mig bara að fara að heiman í smá tíma og fá frí frá skyld- um mínum, börnum og eiginkonu. Í raun skil ég ekki foreldra sem taka sér aldrei frí. Því að um leið og ég tek mér frí frá skyldum mínum tek ég mér frí frá sjálfum mér. Þegar ég get ver- ið einhvers staðar einn að skrifa losna ég und- an sjálfum mér. Þyngsta byrðin sem ég ber er ég sjálfur. Ég óttast ekkert eins mikið og mig sjálfan. Því reyni ég alltaf að taka ákvarðanir út frá hjart- anu í stað þess að hlusta á hausinn á mér. Ég óttast að taka rangar ákvarðanir undir álagi, bregðast vitlaust við áreiti, vera vanþroska, ófullkominn. Ég óttast vanmátt minn. Mín til- finning fyrir lífinu er sú að mesta glíman sem ég tekst á við er glíman við sjálfan mig. Ég þarf heila mannsævi til að kynnast sjálfum mér.“ Fer í taugarnar á Fólki Hann hallar sér aftur og segir að hann sé lík- lega á réttri leið fyrst hann sé að fást við hugð- arefni sín. „Að skrifa. Í hjarta mínu er ég kenn- ari, ég finn það. Beint og óbeint kem ég mínu á framfæri. Fyrir vikið fer ég í taugarnar á mörg- um. Ég hef alveg fundið fyrir því,“ segir hann og brosir æðrulaus. „Ég vann í tóbaksvörnum í átta ár og sagði alltaf sannleikann. Ég var alltaf alvarlegur þegar ég kom fram í fjölmiðlum þar sem ég var að tala um alvarleg mál. Þannig að fólk sem þekkir mig ekki heldur að ég sé mjög al- varleg týpa. En ég er léttur og skemmtilegur,“ segir hann sannfærandi og hlær létt. Hann heldur áfram á alvarlegri nótum: „Ég varð að vera alvarlegur og ákveðinn, jafnvel grimmur, til þess að ná ákveðnum hlutum í gegn. Þess vegna hef ég forðast að tala um tóbak síðan ég hætti,“ segir hann og leggur áherslu á orð sín. „Á sama tíma og ég var fúli gæinn í tób- aksvörnum var ég að reyna að selja bækur sem rithöfundur. Ég vann gegn sjálfum mér. En ég ákvað að taka þessa afstöðu vegna þess að það var göfugt málefni að sinna tókbaksvörnum. Ég sagði satt. Það er ekki alltaf gott að heyra sannleikann. Stór hluti þjóðarinnar reykti og fannst ég pirrandi. Um jólin var ég svo mætt- ur til þessa fólks að bjóða bækurnar mínar til sölu. Meðvitað vann ég gegn sjálfum mér. En ef ég ætti að velta mér upp úr því hvað fólki finnst um mig væri ég ekki í góðum mál- um. Ég er með mig á hreinu og lifi fallegu lífi. Annað skiptir ekki máli. Ég hef ekkert gert af mér og held því mínu kúli. Það væri kannski annað ef ég hefði brotið af mér. En ég er að vanda mig við að lifa og ég er að gera góð verk. Mér finnst ég skrifa góðar bækur og halda góða fyrirlestra. Kannski hljómar það hroka- fullt en ég geri þetta af ástríðu og veit að ég snerti fólk. Ég hef enga afsökun til þess að láta mér líða illa. Það er undir sjálfum mér komið og engum öðrum.“ Mesta niðurlægingin Honum hefur tekist að yfirfæra sína helstu bresti í styrkleika. Óþolinmæðina nýtir hann sem drifkraft. Mótlætið eflir hann. „Erfiðleik- ar eru nærandi. Þeir krefjast þess að ég reyni meira á mig og sanni það fyrir sjálfum mér að ég geti þetta. Mér finnst gott að berjast, því þá veit ég að ég mun uppskera.“ Nánast daglega hleypur hann á vegg. „Kannski vegna þess að ég þrái einhverja al- heimsvisku, meiri þroska og hef löngun til að vera kominn lengra en ég er.“ Á sínum tíma þurfti hann að berjast fyr- ir sæti í landsliðinu, þar sem hann var alltaf varamaður. Hann var líka fimm ár í Mennta- skólanum í Reykjavík en ekki fjögur eins og flestir. Þar þurfti hann að berjast fyrir betri einkunnum. „Mesta niðurlæging lífsins var að fara aftur í fjórða bekk í MR þegar vinir mínir fóru allir í fimmta bekk. Engu að síður tókst ég á við það í stað þess að hætta í skóla. Og í stóra samhenginu skiptir það engu máli. Ég hafði ekki verið nógu duglegur að læra árið áður. Punktur. Þetta þýddi ekkert annað.“ FordóMar gegn Fegurð Síðast en ekki síst þurfti hann að berjast fyr- ir ákveðinni viðurkenningu sem rithöfundur. Það tókst. Íslensku barnabókaverðlaunin var hann að fá í annað skiptið með bókinni Ertu Guð afi? Áður fékk hann þau árið 1997 með bókinni Það býr margt í myrkrinu. „Mér þykir mjög vænt um þessi verðlaun af því að hand- ritin voru send inn undir dulnefni. Mér þyk- ir mikið merkilegra að vinna til verðlauna án þess að minn stimpill sé á handritinu en að bókin sé dæmd út frá mér. Minn karakter er alltaf tekinn með í spilið. Ég hef alveg fengið að heyra það að af því að ég er íþróttamaður, of myndarlegur, of dugleg- ur og svo framvegis sé ég ekki tekinn alvarlega sem rithöfundur. Vandamálið er kannski bara það að í vanlíðan hefur fólk fordóma. Í van- líðan öfundar fólk aðra. Þegar fólk nýtur ekki velgengni sjálft öfundar það þá sem njóta vel- gengni. Það vill vera í þeirra sporum. Flestir vilja toga þá sem skara fram úr niður í með- almennskuna. Ég ber alltaf virðingu fyrir fólki sem fer nýj- ar leiðir, þorir og lætur deigan ekki síga þrátt fyrir skakkaföll. Vegna þess að það krefst hug- rekkis að stíga út úr rútínunni og hætta að fylgja fjöldanum. Það er rosalega þægilegt að vera alltaf í sama starfinu og fylgja rútínunni, eiga sér draum en gera ekkert í því að láta hann rætast. Ég legg mig sérstaklega fram um að elta drauminn minn.“ stendur einn í líFinu Hann vill þó ekkert frekar vera titlaður rit- höfundur en íþróttamaður, fjölskyldumaður, eiginmaður eða faðir. „Ég vil ekki vera sett- ur í bás. Ég veit ekkert hvað gerist í mínu lífi á næsta ári. Kannski koma ný tækifæri og ég legg annað á hilluna. Tækifærin virðast vera endalaus ef ég er opinn og jákvæður og treysti lífinu. Ég þekki fjölda fólks sem situr fast árum saman af því að það þorir ekki að sleppa tök- unum fyrr en það hefur fundið eitthvað ann- að. Mín reynsla er sú að ef ég sleppi tökunum skapast tækifærin. Það er eins og lífið sjái um mig af því að ég treysti því.“ Engum öðrum treystir hann til þess að koma sér áfram. „Ég hef áttað mig á því að ég stend einn í lífinu. Börn, maki, systkini, for- eldrar og vinir mínir eru allir uppteknir af sínu lífi og á fullu að gera sitt. Ef ég ætla mér eitt- hvað verð ég að treysta á sjálfan mig og engan annan. Þegar upp er staðið stend ég einn. Þeg- ar ég mun sem gamall maður líta um öxl veit ég að það sem ég hef afrekað var aðeins undir sjálfum mér komið. Ég segi það óhikað. Ef mig langar til þess að gera eitthvað verð ég að gera það sjálfur. Ég treysti ekki á hjálp annarra.“ Besta geðlyFið Sjálfsöryggið er nú samt ekkert alltaf í há- marki. „Ég er líka lélegur í því að selja sjálfan mig. Draumastaðan væri að geta skrifað bæk- ur og komið þeim út án þess að þurfa að fylgja þeim eftir með viðtölum og þess háttar. Mér liði betur uppi í sveit að vinna að næstu bók. Ég kann ekkert sérstaklega vel við mig í svið- sljósinu.“ Hann dæsir. „Eftir að ég varð eldri og vonandi þroskaðri togar kyrrðin og einveran meira í mig. Þegar ég skrifaði mína fyrstu bók þrítugur fannst mér bölvanlegt að þurfa að lesa upp úr henni. Ég bara gat það ekki. Ég var feiminn og mér fannst það óþægilegt, þetta var mitt verk, mín orð. Ég þurfti að taka mér tak til að gera það en ákvað að ef þetta ætti fyrir mér að liggja yrði ég bara að gera það. Þetta er fylgi- fiskur þess að gefa út bók og ég verð bara að gjöra svo vel að takast á við það. Ég hef ekkert að fela. En sjálfsöryggið kemur og fer. Á meðan ég fer á æfingar og hugsa vel um sjálfan mig er ég öruggur en þegar ég er undir miklu álagi og næ ekki að æfa í nokkra daga missi ég sjálfs- öryggið. Endorfín er besta geðlyfið. Það að púla, svitna og finna fyrir þessari þreytu. Þeg- ar ég næ að fara í líkamsrækt í hádeginu og hreinsa rykið úr hausnum á mér er dagurinn mikið betri. Heilsurækt er algjörlega vanmet- in geðrækt. Miðað við þær tilraunir sem ég hef gert á sjálfum mér væri sálarlíf þjóðarinnar miklu betra ef allir stunduðu heilsurækt ann- an hvern dag. Ég trúi því að á meðan ég lifi heilbrigðu lífi sé sálin jákvæð og skemmtileg.“ Fyrri líF og andlegar verur Hugrekkið til að feta sig áfram á ókunnugri slóð fann hann í gamalli sál. „Ég er ekkert hérna í fyrsta skipti. Ég er búinn að lifa svo mörg líf. Ég var í París fyrir 200 árum. Ég var örugglega í Atlantis líka. Ég hef upplifað alls kyns hluti í gegnum aldirnar sem gefa mér hugrekki til að þora að standa með sjálfum mér og fara eigin leiðir. Ekki það að ég sé að gera neitt merkilegra en aðrir. Ég er bara að fylgja minni leið og gera það sem mig langar til. Mér finnst sorglegt að horfa upp á fólk sem er mér nákomið sitja fast í sama farinu þegar það langar til að gera svo margt annað.“ Draumarnir eru hans næring. Þess vegna elskar hann næturnar. „Þegar ég sef fer ég í svaka ferðalag. Sem dæmi þá dreymdi mig fyrir hruninu. Í nokkur ár var mig sífellt að dreyma Reykjavík hrynja. Eldgos gaus í miðri borg og ég sá hús og bíla hrynja ofan í sprung- ur og eldgos. Ég stóð hjá og hugsaði: „Vá. Það deyr enginn.“ Oft velti ég því fyrir mér hvað væri verið að reyna að segja mér en ég gat aldrei túlkað þennan draum fyrr en hrun- ið skall á. Þá rann það upp fyrir mér. Ég er kannski ekki nógu vel tengdur til þess að geta túlkað draumana mína. En af því að mig dreymir alltaf eitthvað hlakka ég alltaf til að fara upp í rúm. Guðirn- ir og þessar andlegu verur nálgast mig á nótt- unni og ég nærist á því. Svo skilar það sér í bókunum mínum og framkomu minni.“ Hann hikar: „Ég tala kannski eins og ég sé skrýtinn,“ segir hann vandræðalegur en heldur áfram: „Ég hef mikinn áhuga á þessu. Það er ástæða fyrir því að ég er hér.“ guð í hjarta hvers og eins Afi hans var prestur og Þorgrímur ólst upp í kristinni trú. Hann trúir enn á Guð þótt hann sé ekki kirkjurækinn og sé í raun nokk sama hvaðan gott kemur. „Ég trúi því að Guð sé í hjarta hvers og eins. Guð er hluti af okkur öllum, ef við viljum. Hvar og hvenær sem er get ég lokað augunum og hugsað fallega. Ár- angurinn er ekkert síðri en ef ég færi í kirkju. Ég þarf ekki að fara í kirkju til að biðja bænir og trúarbrögð skipta ekki máli. Þetta er bara spurning um afstöðu til lífsins. Ef ég tek já- kvæða og fallega afstöðu til lífsins og lifi sam- kvæmt því er ég í góðri trú. Okkur opnast fleiri leiðir ef við trúum og treystum.“ Á hverju kvöldi sest hann á rúmgafl sonar- ins og fer með Faðir vorið. Eins fer hann reglu- lega í Landakotskirkju og kveikir á kerti fyrir fólk sem þarfnast stuðnings. „Það er gefandi að gefa. En það er ekki smart að tala um það.“ huglaus stúdent Hann heldur fyrirlestra um heilbrigt líf, það að setja sér markmið, koma fallega fram og heið- arleika. Sömuleiðis reynir hann að lifa sam- kvæmt því. „Ég vanda mig við að lifa. Ég hef til dæmis aldrei drukkið áfengi því ég vil hafa fullkomna sjálfstjórn. En það þýðir ekki að ég lifi fullkomnu lífi eða taki alltaf réttar ákvarð- anir. Eða að ég sé betri maður en aðrir. Alls ekki. Ég var til dæmis svo huglaus að fara ekki út í nám eftir stúdentspróf. Ef ég sé eftir ein- hverju þá er það það. En mér finnst líklegt að ég eigi það eftir. Að þegar krakkarnir fari að heiman setjist ég að á suðrænum slóðum og skrifi á veturna en komi heim á sumrin. Ef ég horfi enn lengra fram í tímann sé ég mig fyr- ir mér níræðan í ruggustól á heimili mínu að tala við ungt fólk sem heldur í höndina á mér. Þannig er mín framtíðarsýn. Að ég sem gamall maður gefi af mér til þeirra sem yngri eru. Ég held að það muni rætast.“ Frelsið Fylgir skáldsögunuM Allt í einu hallar hann sér aftur og brosir sínu breiðasta. Þegar hann er spurður hvað valdi er svarið einfalt: „Lífið er skemmtilegt.“ Hann bætir því við að hann fái oft þessa spurningu, af hverju brosir þú svona? „Ég veit það ekki. Mér líður bara þannig. Fyrir vikið er ég oft bjánalegur. Ég hef ekki þessa sjálfstjórn. Ég er bara eins og ég er.“ Ef við hugum aftur að framtíðarsýn hans þá er hún nokkuð skýr. „Ég veit nokkurn veginn hvað liggur fyrir mér að gera á næstu árum og áratugum en ég held að ég eigi ekki að tala um það heldur láta verkin tala. Ég vona samt að ég muni skrifa alla ævi, það er bara spurning hvað ég mun skrifa.“ Hingað til hefur hann fyrst og fremst helg- að sig barna- og unglingasögum en skáld- sagnaformið heillar. „Frelsið er meira ef ég skrifa skáldsögu. Þá er ég alveg hömlulaus. Ég upplifði mikið frelsi þegar ég skrifaði Allt hold er hey, sem er mín eina skáldsaga til þessa. Í raun er það sú bók sem ég hef fengið hvað sterkust viðbrögð við án þess að mikið hafi farið fyrir henni. Í mörg ár hef ég teiknað upp skáldsögur og ég finn að þær eru alveg að fara að detta inn. Reyndar var það líka mjög frels- andi að skrifa Hvernig gerir þú konuna þína hamingjusama?“ kaFar inn í sálir Fólks Fólkið í kringum hann og þeir sem verða á vegi hans eru honum endalaus uppspretta hugmynda. „Ómeðvitað rannsaka ég fólk þeg- ar ég tala við það. Ég er alltaf að leita að týp- um, setningum, hreyfingum. Ég held að allir rithöfundar geri það. Mér þykir líka vænt um það þegar fólk treystir mér fyrir sínum per- sónulegu málum. Sem rithöfundi er það mér mikilvægt að komast inn í sálir fólks.“ Öllu erfiðara þykir honum þó að komast inn í sína eigin sál. „Ég er alltaf að reyna að komast lengra og kafa dýpra en það er hægara sagt en gert. Eina leiðin til að komast þangað er með því að eiga kyrrðarstund, draga and- ann djúpt og hugleiða. Aðeins þannig hefur mér tekist að komast á það stig að ég sé frjáls. Þegar ég flýg út úr líkamanum og losna við sjálfan mig. Líkt og þegar ég er að skrifa og flæðið er svo mikið að ég get ekki stoppað. Á meðan er ég ekki til.“  ingibjorg@dv.is Ég hef upplifað alls kyns hluti í gegnum aldirn- ar sem gefa mér hugrekki til að þora að standa með sjálfum mér og fara eigin leiðir. Af því að mig dreymir alltaf eitthvað hlakka ég alltaf til að fara upp í rúm. Guðirnir og þessar andlegu verur nálgast mig á nóttunni og ég nærist á því. drauMurinn Er að geta lifað af ritstörfum og þurfa ekki að taka að sér önnur verkefni sem taka frá honum dýrmætan tíma og úthald. Hann er nú í fullri vinnu og baslar við að ná endum saman.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.