Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2010, Síða 38
38 ættfræði umsjón: kjartan gunnar kjartansson kjartan@dv.is 15. október 2010 föstudagur
70 ára á sunnudag
Páll Vilhjálmsson
blaðamaður
Páll fæddist í Reykjavík en ólst upp
í Keflavík. Hann var í Barnaskóla
Keflavíkur, Fjölbrautaskóla Suður-
nesja, lauk þaðan stúdentsprófi 1982,
stundaði nám í sögu og heimspeki
við Háskóla Íslands og lauk þaðan
BA-prófi 1986, lauk cand.mag–prófi
í blaðamennsku frá Norsk Journalist
Høgskole í Osló 1988 og MA-prófi í
fjölmiðlafræði frá University of Minn-
esota í Bandaríkjunum 1993.
Páll var blaðamaður á DV 1988–89,
blamaður á Pressunni 1989–90, blaða-
maður og ritstjóri á Vikublaðinu 1992–
96, ritstjóri við Helgarpóstinn 1996–97,
kennari við Seljaskóla 1998, sviðstjóri
hjá Rannís 1998–2010 og kennari við
Fjölbrautaskólann í Garðabæ frá 2008.
Páll er einn af stofnendum Heims-
sýnar, hreyfingar sjálfstæðissinna í
Evrópumálum, hefur setið í stjórn
Heimssýnar frá upphafi og verið í
hlutastarfi sem framkvæmdastjóri á
þessu ári. Hann var einn af stofnend-
um Samfylkingarinnar og fyrsti for-
maður samfylkingarfélags Seltirninga
áður en hann sagði sig úr flokknum.
Fjölskylda
Eiginkona Páls er Guðbjörg R. Guð-
mundsdóttir, f. 6.2. 1961, samskipta-
fulltrúi Grundar. Hún er dóttir séra
Guðmundar Ólafssonar, sem er látinn,
sóknarprests í Neskirkju, og Ingibjarg-
ar Hannesdóttur kennara.
Börn Páls og Guðbjargar eru Guð-
mundur Óskar, f. 31.3. 1984, háskóla-
nemi í Danmörku; Vigdís Ingibjörg, f.
14.3. 1990, háskólanemi í Reykjavík;
Inga Þóra, f. 26.7. 2001.
Systkini Páls eru Hanna Björg Vil-
hjálmsdóttir, f. 27.8. 1963, kennari,
búsett í Reykjavík; Garðar Vilhjálms-
son, f. 25.12. 1966, kennari, búsettur í
Kópavogi; Inga María Vilhjálmsdótt-
ir, f. 1.3. 1971, félagsráðgjafi, búsett í
Reykjavík.
Foreldrar Páls eru Vilhjálmur
Grímsson, f. 3.8. 1942, fyrrv. bæjar-
tæknifræðingur í Keflavík, og Vigdís
Pálsdóttir, f. 27.11. 1943, húsmóðir.
Ætt
Vilhjálmur er sonur Gríms Eysturoy,
kafara í Reykjavík, bróður Absalons,
forstjóra í Þórshöfn í Færeyjum og for-
manns Meistarafélags Færeyja er kom
í veg fyrir að breskir togarar, sem höfðu
gerst brotlegir í íslenskri landhelgi,
fengju afgreiðslu í Færeyjum og stóð
fyrir söfnun í Þórshöfn vegna Vest-
mannaeyjagossins, en kona hans var
Gertrud Jörgensen, systir Francizku,
konu Gunnars Gunnarssonar skálds,
og systur Önnu, konu Einars Jónsson-
ar myndhöggvara.
Grímur var sonur Guttorms Eystur-
oy, snikkara í Þórshöfn en bræður hans
voru nafnkunnir smiðir og uppfinn-
ingamenn. Guttormur var sonur Abs-
alons, þm. á færeyska Lögþinginu og
kóngsb. á Tröllanesi á Karlsey, forystu-
manns í sjálfstæðisbaráttu Færeyinga
Guttormssonar, b. í Viðey í Færeyjum
Absalonssonar, b. og galdramanns
í Múla í Borðey Guttormssonar, b. í
Múla Johannessonar, b. í Nolsö Gutt-
ormssonar, óðalsb. í Gjogve í Aust-
ureyu Rasmussonar, Guttormssonar,
kóngsb. á Eyri á Austurey Rasmusson-
ar, kóngsb. á Borðey Guttormssonar,
kóngsb. í Múla Rasmussonar, óðalsb.
í Haraldssundi í Kúney Magnússonar,
hálshöggvinn í Kaupmannahöfn 1589,
lögmanns í Færeyjum og herforingja í
danska og hollenska sjóhernum, þjóð-
hetju Færeyinga fyrir að rjúfa einok-
unarverslun Dana. Magnús var sonur
Heina hafreka, lögmanns í Færeyjum,
sem var talinn ættfaðir Hafsteinsætt-
arinnar. Móðir Magnúsar var Herborg
Arnbjörnsdóttir, b. á Tjörnesi á Hörða-
landi í Noregi. Móðir Guttorms Eys-
turoyu var Johanna María Eysturoy frá
Viðey í Færeyjum. Sara Maria var dótt-
ir Johns Johansen, b. á Skansen í Ála-
sundi í Noregi, og Gerdu Johansen.
Móðir Vilhjálms var Ingibjörg
Mörk, dóttir Mortan Mörk, skipstjóra
í Þórshöfn, og Magdalenu Brekkman.
Meðal bræðra Vigdísar voru Sigs-
teinn, hreppstjóri á Blikastöðum, og
Þorsteinn, kaupfélagsstjóri Kaupfélags
Árnesinga. Vigdís er dóttir Páls sem
lengst af starfaði hjá Flugfélagi Íslands
Þorsteinssonar, frá Tungu í Fáskrúðs-
firði.
Móðir Vigdísar var Jóhanna Sím-
onardóttir, kaupmanns í Reykjavík
Jónssonar, b. á Læk í Ölfusi Símon-
arsonar, b. á Læk Einarssonar. Móð-
ir Jóns var Hólmfríður Magnúsdóttir.
Móðir Símonar kaupmanns var Sig-
ríður Guðmunsdóttir. Móðir Jóhönnu
var Ása Jóhannsdóttir.
50 ára á föstudag
Örn fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp og á Seltjarnarnesinu.
Hann lauk stúdentsprófi frá VÍ
1961 og kandídatsprófi í við-
skiptafræði frá HÍ 1966.
Örn var fulltrúi í fjármála-
ráðuneytinu frá 1966, var skip-
aður deildarstjóri í Fjárlaga- og
hagsýslustofnun fjármálaráðu-
neytisins frá 1970, skrifstofu-
stjóri þar 1974–77, starfsmaður
bókaútgáfunnar Arnar og Örlygs
hf. 1977–78, skrifstofustjóri hjá
Landsvirkjun 1978–93 og er
framkvæmdastjóri fjármálasviðs
Landsvirkjunar 1994–2002. Hann
var síðan staðgengill forstjóra
Landsvirkjunar 2002–2007 er
hann lét af störfum fyrir aldurs
sakir.
Örn var annar stofnandi bóka-
útgáfunnar Ferðahandbóka sf.
1964 og Arnar og Örlygs hf. 1966
en hætti þátttöku í rekstrinum
1978. Örn sat í stjórn Vöku, fé-
lags lýðræðissinnaðra stúdenta
1961–63, var varaformaður Vöku
1962–63, ritstjóri Vökublaðsins
1962–63, ritari í stjórn Félags við-
skiptafræðinema 1963–64, rit-
stjóri Hagmála, sat í stúdentaráði
HÍ 1964–65, í stjórn Félags starfs-
manna stjórnarráðsins 1969–73
og formaður 1972–73, sat í stjórn
Bókasafns Seltjarnarness 1978–
94, var gjaldkeri Samtaka psori-
asis- og exemsjúklinga 1980–86,
gjaldkeri handknattleiksdeildar
Gróttu 1982–83, sat í aðalstjórn
íþróttafélagsins Gróttu 19820–
86, og sat í ýmsum nefndum og
stjórnum á vegum fjármálaráðu-
neytisins og fjárlaga- og hag-
sýslustofnunar á árunum 1966–
77.
Fjölskylda
Örn kvæntist 15.6. 1963 Ragn-
heiði Þorgeirsdóttur, f. 30.5. 1942,
fyrrv. bankastarfsmanni. Foreldr-
ar Ragnheiðar: Þorgeir Jónsson,
bóndi í Gufunesi, og k.h., Guð-
ný Guðlaugsdóttir húsfreyja sem
bæði eru látin.
Börn Arnar og Ragnheiðar eru
Soffía Arnardóttir, f. 13.11. 1963,
fjármálastjóri, búsett á Seltjarn-
arnesi en sonur hennar er Gunn-
ar Örn Blöndal, f. 17.8. 1991 en
sambýlismaður Soffíu er Brynj-
ólfur Eyvindsson lögmaður; Örn
Marinó Arnarson, f. 16.10. 1967,
kvikmyndagerðarmaður í Reykja-
vík en kona hans er Herborg
Árnadóttir skrifstofumaður og
eru börn þeirra Birta Sif, f. 2.11.
1994, Árni Steinn, f. 13.3. 1997,
og Ari Marinó, f. 28.12. 2003; Þór
Arnarson, f. 1.1. 1972, flugmað-
ur í Maastricht en kona hans er
Ingibjörg Dungal húsmóðir og
eru börn þeirra Áslaug María,
f. 12.5. 2000, Ragnheiður Ósk, f.
31.3. 2002, og Haraldur Örn, f.
29.4. 2007; Hörður, f. 8.1. 1980,
viðskiptafræðingur í Helsingør í
Danmörku en kona hans er Nina
Ruth Knudsen, MA í hönnun og
eru börn þeirra Isabella Sophia,
f. 16.9. 2006, og Luka Snebjörn
Steen, f. 10.12. 2008.
Hálfbróðir Arnar, sammæðra,
var Gunnar Wedholm Steindórs-
son, f. 17.11. 1922, d. 7.3. 2000,
sýslufulltrúi og tollvörður á Eski-
firði og á Seltjarnarnesi.
Foreldrar Arnar voru Mar-
inó Jónsson, f. 4.11. 1906, d. 6.2.
1974, forstjóri í Reykjavík, og
k.h., Andrea Soffía Wedholm, f.
5.7. 1901, d. 15.8. 1966, húsmóð-
ir, hárgreiðslukona og verslunar-
maður.
Ætt
Marinó var sonur Jóns, pr. í Otra-
dal Árnasonar, dbrm. á Þverá í
Hallárdal Jónssonar, b. á Helga-
vatni í Vatnsdal Ólafssonar, afa
Ólafs Friðrikssonar, verkalýðs-
leiðtoga og langafa Ólafs, föður
Gunnars Ragnars, fyrrv. forstjóra
á Akureyri. Móðir Jóns Árna-
sonar var Svanlaug Björnsdóttir,
hreppstjóra á Þverá Þorláksson-
ar.
Móðir Marinós var Jóhanna
Pálsdóttir, hreppstjóra í Stapadal
Símonarsonar og Sigríðar Jóns-
dóttur, hreppstjóra á Dynjanda
Bjarnasonar. Móðir Sigríðar var
Kristín Bárðardóttir, b. á Eyri
Guðmundssonar, hreppstjóra
í Neðri-Arnardal Bárðarsonar,
ættföður Arnardalsættar Illuga-
sonar.
Andrea Soffía Wedholm var
dóttir Viggós Wedholms, versl-
unarmanns á Ísafirði Jónsson-
ar Wedholms, veitingamanns á
Ísafirði Jónssonar, b. í Litlu-Ávík,
er var í varðliði Jörundar hunda-
dagakonungs Jónssonar.
Móðir Soffíu var Friðrikka
Haraldsdóttir, verslunarmanns
á Ísafirði Magnússonar, verslun-
arstjóra í Ólafsvík Ásgeirssonar,
prófasts í Holti í Önundarfirði
Jónssonar, bróður Þórdísar, móð-
ur Jóns forseta. Móðir Magnús-
ar var Rannveig Matthíasdótt-
ir, stúdents í Vigur Þórðarsonar,
ættföður Vigurættar Ólafsson-
ar, ættföður Eyrarættar Jónsson-
ar. Móðir Friðrikku var Sigríð-
ur Markúsdóttir, b. á Nauteyri
Torfasonar, sjómanns á Snæfjöll-
um Ásgrímssonar, hreppstjóra
í Arnardal Bárðarsonar, bróður
Guðmundar í Arnardal. Móðir
Sigríðar var Arnfríður Ólafsdótt-
ir, b. á Stakkabergi Þorbergsson-
ar, pr. á Eyri í Skutulsfirði ættföð-
ur Thorbergsættar Einarssonar.
Örn Marinósson
fyrrv. staðgengill forstjóra landsvirkjunar
Karl Helmut
Brückner Kortsson
fyrrv. héraðsdýralæknir og ræðismaður
Karl fæddist í Crimmitschau í Sax-
landi í Þýskalandi og ólst þar upp í
foreldrahúsum en Karl var á tíunda
árinu er hann missti föður sinn. Karl
lauk stúdentsprófi frá latínuskólan-
um í Þýringaskógi 1935 og stundaði
síðan dýralækningar við Dýralækn-
ingaháskólann í Hannover þar sem
hann útskrifaðist með doktorspróf
vorið 1940.
Karl var yfirdýralæknir í þýska
hernum þar sem hann starfaði á
austurvígstöðvunum en þaðan
komst hann við illan leik í stríðslok.
Eftir stríðið var Karl borgardýra-
læknir í Flensborg í eitt ár en þau
hjónin fluttu síðan suður á bóginn
til Hollenbek, skammt frá Lübeck,
þar sem hann starfaði sem sjálf-
stæður dýralæknir. Þar skipulagði
Karl hjálparstarf en mikill straumur
flóttafólks lá um héraðið frá sovéska
hernámssvæðinu.
Karl flutti til Íslands árið 1950.
Hann var settur héraðsdýralæknir í
Rangárvallaumdæmi með aðsetur á
Hellu og gegndi því starfi um langt
árabil eða þar til hann hætti fyrir ald-
urs sakir.
Karl var gerður að ræðismanni
Sambandslýðveldisins Þýskalands
á Suðurlandi árið 1954 og það sama
haust beitti hann sér fyrir stofnun
Þýsk-íslenska vinafélagsins á Suð-
urlandi samkvæmt ósk Adenauers,
þáverandi kanslara. Karl var formað-
ur þess félags í þrjátíu og fimm ár en
hann hefur unnið ómetanlegt starf í
þágu samskipta landanna.
Karli var veittur heiðurskross I. fl.
þýska sambandslýðveldisins 1971 og
riddarakross hinnar íslensku fálka-
orðu 1986. Þá var hann sæmdur gull-
merki Dýralæknaháskólans í Hann-
over árið 1990.
Karl hefur skrifað ævisögu sína,
Dýralæknir í stíði og friði, útg. af
Skjaldborg árið 1994. Hann er skáld-
mæltur og hefur ort talsvert um ára-
bil, bæði á íslensku og þýsku.
Fjölskylda
Karl kvæntist 1945 Carmen Marie
Róbertsdóttur, f. Thonby 1914, d.
1994, frá Nice í Suður-Frakklandi,
hjúkrunarfræðingi.
Börn Karls og Carmen Marie:
Hans, f. 4.2. 1946, verkfræðingur í
bílasmíði, búsettur í Þýskalandi;
Harald, f. 25.3. 1947, jarðolíufræð-
ingur, búsettur í Texas í Bandaríkj-
unum; Helgi, f. 6.11. 1950, umboðs-
maður Saudi-Arabíu-flugfélagsins,
búsettur í Þýskalandi; Kristjana, f.
24.11. 1951, hótelfræðingur og starfs-
maður við Lyngás, búsett í Reykjavík.
Eiginkona Karls er Antje Brück-
ner, f. Lorenz 6.1. 1944, hjúkrunar-
fræðingur og húsmóðir.
Karl er elstur fjögurra bræðra.
Bræður hans: Hans Jochen er féll á
austurvígstöðvunum 1945; Harald
er lést úr lömunarveiki í bernsku;
Heinz, læknir og fyrrv. vísindaráð-
gjafi hjá svissneska lyfjafyrirtæk-
inu Sandoz, búsettur í Bergedorf við
Hamborg.
95 ára á sunnudag