Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2010, Page 44
Hjörtur Júlíus Hjartarson er íþróttafréttamaður hjá
RÚV. Hann segir afrek vikunnar að hafa tekist að finna
jákvæða punkta við þriðja tapleik Íslands í röð í undan-
keppni EM. Hjörtur Júlíus er tveggja dætra faðir og er
á leiðinni í fæðingarorlof.
44 HIN HLIÐIN 15. október 2010 FÖSTUDAGUR
Nafn og aldur?
„Hjörtur Júlíus Hjartarson, 36 (eftir 15 daga).“
Atvinna?
„Íþróttafréttamaður hjá RÚV.“
Hjúskaparstaða?
„Í sambúð.“
Fjöldi barna?
„Tvær stelpur. Önnur hálffullorðin og hin svo til glæný.“
Hefur þú átt gæludýr?
„Já, nokkra ketti. Sá síðasti var keyrður niður á Sæbrautinni
fyrir nokkrum mánuðum. Mikil sorg.“
Hvaða tónleika fórst þú á síðast?
„Ég fór á frábæra útgáfutónleika hjá vini mínum, Orra
Harðarsyni. Annars er ég á kafi í Airwaves þessa dagana.“
Hefur þú komist í kast við lögin?
„Já, ég hef þurft að kastast á við lögin.“
Hver er uppáhaldsflíkin þín og af hverju?
„ÍA-treyjan...“
Hefur þú farið í megrun?
„Þar sem ég er enn að rembast eitthvað við það að vera í
fótbolta þarf ég víst að hugsa um aukakílóin. Það er slatti af
þeim og því leita ég stöðugt leiða til að farga þeim.“
Hefur þú tekið þátt í skipulögðum mótmælum?
„Já.“
Trúir þú á framhaldslíf?
„Stundum, stundum ekki.“
Hvaða lag skammast þú þín mest fyrir að hafa haldið
upp á?
„Það þótti auðvitað afar mikilvægt á mínum yngri árum að
vera með „réttan“ tónlistarsmekk. Þá laumaðist maður til
að hlusta á hitt og þetta, þjakaður af samviskubiti yfir eigin
ósvalleika. Hef síðar komist yfir þessa komplexa.“
Hvaða lag kveikir í þér?
„Flest það sem Stevie Wonder gaf út á áttunda áratugnum
ýtir við mér. Annars eru að sjálfsögðu ákveðin lög tengd
stað og stund sem hreyfa við manni líka.“
Til hvers hlakkar þú núna?
„Ég hlakka til að halda áfram í feðraorlofinu mínu næstu tvo
mánuðina. Nýt mín óskaplega vel í þessu hlutverki.“
Hvaða mynd getur þú horft á aftur og aftur?
„Flestar myndir með Will Ferrell.“
Afrek vikunnar?
„Heldur tíðindalítið hjá mér og lillu. Kannski að hafa tekist
að finna jákvæða punkta við þriðja tapleik Íslands í röð í
undankeppni EM á þriðjudaginn. Það er ákveðið afrek.“
Hefur þú látið spá fyrir þér?
„Já, ekkert af því rættist.“
Spilar þú á hljóðfæri?
„Nei, því miður. Var í skólahljómsveit Akraness fyrir aldar-
fjórðungi eða svo. Spilaði þar á kornett en var látinn hætta
vegna skorts á hæfileikum.“
Viltu að Ísland gangi í Evrópusambandið?
„Nei, ekki sem stendur allavega.“
Hvað er mikilvægast í lífinu?
„Stelpurnar mínar, þeirra heilsa og hamingja. Hitt kemur í
kjölfarið.“
Hvaða íslenska ráðamann myndir þú vilja hella
fullan og fara á trúnó með?
„Ég fæ mér stundum bjór með Kalla í Baggalút. Það er alltaf
mjög skemmtilegt. Er hann er ekki ráðamaður?“
Hvaða fræga einstakling myndir þú helst vilja hitta
og af hverju?
„Obama, Mandela, veit ekki. Kannski bara George Bush
yngri. Kannski er hann bara misskilinn snillingur. Svo segir
Dabbi allavega.“
Hefur þú ort ljóð?
„Já, í barnaskóla. Ekkert til útflutnings.“
Nýlegt prakkarastrik?
„Það var smá fantaskapur. Get ekki sagt frá því hér.“
Hvaða fræga einstaklingi líkist þú mest?
„Veit ekki. Einhverjum litlum, búttuðum.“
Ertu með einhverja leynda hæfileika?
„Nei, ég nýti alla mína hæfileika til hins ýtrasta og dugir það
þó tæplega.“
Á að leyfa önnur vímuefni en áfengi?
„Nei.“
Hver er uppáhaldsstaðurinn þinn?
„Ég er mikill Kani í mér eftir námsárin mín þar og nýt mín
hvergi betur.“
Hvað er það síðasta sem þú gerir áður en þú ferð að
sofa?
„Ég les nokkrar blaðsíður áður en ég dett út.“
Hver er leið Íslands út úr kreppunni?
„Bara taka Óla Þórðar á þetta, berjast, berjast, berjast!“
komdu í áskrift!
512 70 80
dv.is/askrift
frjálst, óháð dagblað
M
Y
N
D
IR
E
G
G
ER
T
JÓ
H
A
N
N
ES
SO
N
Látinn hætta í
skólahljómsveit
www.birkiaska.is
Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði
vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar
starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar
efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum,
dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox).
Birkilaufstöflur
www.birkiaska.is
Minnistöflur
Bætir skammtímaminnið. Nýtist
fólki sem er undir álagi og fæst
við flókin verkefni. Hentar vel
fyrir eldri borgara, lesblinda og
nemendur í prófum. Dregur úr
streitu, eykur ró og bætir skap.