Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.2011, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.2011, Síða 6
6 | Fréttir 28.-30. janúar 2010 Helgarblað Þorsteinn seldi Vífilfell sjálfur „Hann seldi þetta sjálfur en það var gert með vitund okkar,“ segir Iða Brá Benediktsdóttir, upplýsinga- fulltrúi Arion banka, aðspurð um hvort bankinn hafi eitthvað komið að söluferlinu á Vífilfelli til spænska drykkjarvöruframleiðandans Co- bega. Hún segir einu aðkomu bank- ans að sölunni hafa verið þá að sam- þykkja hana. Þorsteinn M. Jónsson, sem oftast er kenndur við kók, hafi skuldað bankanum og gert sínar ráðstafanir til þess að greiða skuld- irnar, en salan til Cobega hafi verið hluti af þeim ráðstöfunum. Ljóst er af þessu að Þorsteinn gerðist milligöngumaður í sölu Ar- ion banka á Vífilfelli til spænska fyrirtækisins. Ástæðan fyrir þessu kann að vera sú að Þorsteinn er sjálfur – ekki fyrirtæki hans Vífil- fell – með samninga um átöppun- arleyfi og framleiðslu á Coca-Cola við höfuðstöðvar fyrirtækisins. Ef Arion banki hefði leyst Vífilfell til sín hefðu samningar um fram- leiðslu á Coca-Cola ekki fylgt með Vífilfelli heldur hefði Þorsteinn sjálfur haldið áfram utan um þessa samninga. Hann hefði því, tækni- lega séð, getað byrjað að framleiða Coca-Cola í einhverju öðru fyrir- tæki en Vífilfelli. Þorsteinn var því með afar góða samningsstöðu í málinu því bankinn hefði þurft að afskrifa umtalsverðar fjárhæðir ef hann hefði þurft að leysa Vífilfell til sín án framleiðsluleyfisins fyrir Co- ca-Cola. Eins og komið hefur fram í frétt- um var gengið frá sölu Vífilfells til Cobega í síðustu viku. Kaupverð- ið er trúnaðarmál en fram kemur í tilkynningu bankans að greiðsl- an komi að öllu leyti til lækkunar á skuldum eignarhaldsfélaga Þor- steins við Arion. Búið er að skrifa undir kaupsamning en eftir stendur að ganga frá ákveðnum fyrirvörum sem tilgreindir eru í kaupsamningi. Reiknað er með að því verði lokið í febrúar segir í tilkynningu. Kynntust Cobega í gegnum Þorstein „Hann gerir samninginn og aðkoma okkar er sú sem veðhafa að sam- þykkja,“ segir Iða og tekur fram að Vífilfell hafi ekki verið sett í söluferli af Arion banka. Bankinn hafi ekki haft frumkvæði að því viðskiptasam- bandi sem komið er á á milli bank- ans og Cobega í kjölfar þess að fyrir- tækið tók yfir Vífilfell og skuldir þess. Aðspurð hvenær og hvernig bankinn hefði heyrt af fyrirtækinu Cobega segir Iða að hún telji að það hafi ver- ið í gegnum Þorstein sjálfan fyrir ekki löngu síðan. Heildarskuldir félaga í eigu Þor- steins við Arion banka námu 10,9 milljörðum króna. Bankinn hefur til- kynnt að samkomulag hafi verið gert við Þorstein og félög sem tengjast honum um uppgjör skulda. Grund- völlur samkomulagsins við Arion banka er sala eignarhaldsfélaga í eigu Þorsteins, Sólstafa og Neanu, á öllu hlutafé í Vífilfelli. Uppgjör á skuldum aðalatriði Aðspurð um mögulega „baksamn- inga“ sem Þorsteinn og eigandi Co- bega gætu hafa gert sín á milli á bak við tjöldin segir Iða slíkt í rauninni ekki koma bankanum við. „Hann átti fyrirtækið, við vorum með veð í því, hann seldi það og við feng- um peningana okkar til baka – við fengum allt andvirðið.“ Hún segir að ekki hafi verið um neinar afskriftir á skuldum fyrirtækja í eigu Þorsteins að ræða og því hafi uppgjör hans á skuldum við Arion banka verið það sem skipti bankann hvað helst máli. Hún segir Arion banka telja Cobega vera „mjög traustan kaupanda.“ Fyrir fjárhagslega endurskipu- lagningu voru heildarskuldir Sól- stafa og Neanu við Arion banka um 6,4 milljarðar króna og heildarskuld- ir Vífilfells við bankann voru um 4,5 milljarðar. Samtals 10,9 milljarðar. Samkomulagið nú felur í sér fulln- aðaruppgjör á skuldum Sólstafa og Neanu við Arion banka og að heild- arskuldir Vífilfells verði um 2 millj- arðar og þar af 1,4 milljarðar við Ar- ion banka. Þorsteinn á einnig hlut í fjárfestingarfélaginu Materia Invest og er í persónulegri ábyrgð fyrir 240 milljónum af skuldum félagsins við Arion banka. Hluti af samkomulag- inu nú er uppgjör þessara persónu- legu ábyrgða. Samþykkt af aðalstöðvum Viðskiptablaðið sagði frá því árið 2009 að Vífilfell yrði tæpast tekið af Þorsteini, þrátt fyrir að það kreppti að hjá honum, því hann nyti enn stuðnings aðalstöðva Coca-Cola í Atlanta í Bandaríkjunum. Blaðið sagði þetta dæmi um óvænta fyrir- stöðu sem íslensku bankarnir hefðu lent í við yfirtöku skuldsettra fyr- irtækja því erlendir framleiðend- ur hefðu í sumum tilvikum ákvæði í samningum sínum hér á landi um að þeir verði að samþykkja alla nýja rekstraraðila. Nú er svo komið að framleiðandi Coca-Cola á Spáni hef- ur eignast fyrirtækið, en líklegt verð- ur að teljast að þau viðskipti hafi ver- ið samþykkt af aðalstöðvunum. Cobega, sem er stærsti fram- leiðandi Coca-Cola drykkjarins á Spáni, er hluti af spænsku fyrir- tækjasamstæðunni Cobega Group en hún samanstendur af Equatori- al Coca-Cola Bottling Company og minni fyrirtækjum sem ekki tengj- ast framleiðslu og dreifingu á Coca- Cola.  Samstæðan starfar í 14 lönd- um og framleiðir Coca-Cola á yfir 20 stöðum. n Þorsteinn M. Jónsson seldi Vífilfell sjálfur til spænska fyrirtækisins Cobega n Upplýsingafulltrúi Arion banka segir einu aðkomu bankans hafa verið þá að samþykkja söluna n Uppgjör skulda Þorsteins við Arion banka var það eina sem skipti bankann máli„Hann átti fyrir- tækið, við vorum með veð í því, hann seldi það og við fengum pen- ingana okkar til baka – við fengum allt andvirðið. Jón Bjarki Magnússon blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is Seldi sjálfur Þorsteinn M. Jónsson eða Steini í kók seldi Vífilfell án aðkomu Arion banka til spænska fyrirtækisins Cobega. Félag í eigu stjórnenda Milestone sem fjárfesti í Glitni 2008: Bréfberi Glitnis skuldar 12 milljarða Eignarhaldsfélagið Rákungur skuld- ar gamla Glitni nærri tólf milljarða króna vegna láns sem bankinn veitti félaginu til að kaupa 2 prósenta hlut í honum á fyrri hluta árs 2008. Þetta kemur fram í ársreikningi félagsins fyrir árið 2009 sem skilað var til árs- reikningaskrár ríkisskattstjóra í lok síðasta árs. Félagið er í eigu eignarhaldsfélaga sem eru í eigu fyrrverandi forstjóra, aðstoðarforstjóra og starfsmanns eignarhaldsfélagsins Milestone: Guð- mundar Ólasonar, Jóhannesar Sig- urðssonar og Arnars Guðmundsson- ar. Rákungur var tólfti stærsti hluthafi Glitnis við fall bankans í október 2008 með 2 prósenta eignarhluta. Þriðji stærsti hluthafi Glitnis var eignar- haldsfélagið Þáttur International með nærri sex prósenta eignarhluta. Það félag var í eigu Karls og Steingríms Wernerssona, eigenda Milestone. Í viðtali við DV í janúar í fyrra sagði Guðmundur Ólason að hugmyndin að fjárfestingu Rákungs í Glitni hefði komið frá bankanum sjálfum: „Það kemur upp þessi hugmynd af hálfu bankans. Bréfin voru komin niður í ágætis verð, fjármögnunin á þessu var tryggð og við ákváðum að taka því.“ Rákungur var því eins konar bréfberi fyrir Glitni, líkt og ýmis önnur félög eins og til dæmis Stím. Í rannsóknarskýrslu Alþingis kem- ur fram að lánveiting eins og sú sem Rákungur fékk, þar sem Glitnir lánaði fyrir bréfum í sjálfum sér með veði í bréfunum, hafi veikt viðskiptabank- ana. Félagið á að greiða rúma 11 millj- arða af skuldum sínum á þessu ári en á móti kemur að eina eign félags- ins, hlutabréfin í Glitni, varð verð- laus árið 2008. Félagið getur því ekki greitt skuldina. Í skýrslu endurskoð- anda Rákungs er tekið fram að vafi leiki á um rekstrarhæfi félagsins. Lík- lega verður Rákungur því settur í þrot á endanum. ingi@dv.is Glitnir átti frumkvæðið Guðmundur Ólason sagði í viðtali við DV í fyrra að Glitnir hefði átt frumkvæði að viðskiptum Rákungs með bréf í bankanum árið 2008. Greiðsluaðlögun tafðist vegna handbolta: „Þetta er bara kjaftshögg“ „Ég ætla rétt að vona að þessi lög- maður sem mér er skipaður hafi ekki fleiri íþróttaáhugamál því þá heyri ég örugglega ekkert meira í henni,“ segir Erla Ellertsdóttir sem varð hvumsa þegar hún fékk tölvupóst frá skipuð- um umsjónarmanni sínum vegna greiðsluaðlögunar hjá umboðsmanni skuldara. Í tölvupóstinum frá umsjónar- manninum, Guðrúnu Hólmsteins- dóttur héraðsdómslögmanni, stóð meðal annars: „Fyrirgefið að ég hef ekki haft samband fyrr en núna, búið að vera mjög mikið að gera í ýmsum verkefnum og hef reynt að skipta mér á milli verk- efna eins og ég get. Síðan hefur hand- boltinn aðeins sett í strik í reikning- inn (þ.e. að ég hef verið að horfa á hann í staðinn fyrir að vinna).“ Tölvupóstur- inn barst Erlu á mánudaginn, tíu dög- um síðar en talað var um. „Þetta bara þurfti að komast út í þjóðfélagið, það var ekkert öðruvísi. Hvort þetta komi til með að eyði- leggja okkar mál eða hvað, það verður bara að hafa það en ég held þetta geti ekki sokkið mikið dýpra,“ segir Erla aðspurð hvers vegna hún hafi viljað gera mál sitt opinbert. „Þetta er bara kjaftshögg í andlitið að fá þetta,“ bætir hún við. Raunir fjölskyldunnar hafa ver- ið miklar en Erla sjálf er óvinnufær vegna vinnuslyss. Þau hjón eiga fjög- ur börn, þar af eitt langveikt og hús þeirra var selt á uppboði síðastlið- ið haust. Erlu finnst því grátlegt að lögmaðurinn geti leyft sér að koma svona fram við þau. Guðrún viðurkenndi í samtali við DV að þetta hefðu ekki verð rétt vinnubrögð hjá sér. Hún baðst vel- virðingar og sagðist bara hafa viljað vera hreinskilin. Umboðsmaður skuldara hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna málsins og segir vinnubrögð umsjónarmannsins með öllu óásætt- anleg. Embættið hefur haft samand við báða aðila vegna málsins og Guð- rún hefur verið boðuð á fund þar sem staða hennar sem umsjónarmanns verður tekin til skoðunar. solrun@.is HM í handbolta Réðust á tvo lögregluþjóna Sex karlmenn af erlendum uppruna voru dæmdir í fangelsi í Hæstarétti á fimmtudag fyrir fólskulega og til- efnislausa árás á tvo lögreglumenn í október 2008. Lögreglumennirnir höfðu verið kvaddir á vettvang að húsi í Reykja- vík til að stöðva hávaðasamt sam- kvæmi þar sem árásarmennirnir voru staddir. Þegar búið var að rýma húsnæðið veittist einn árásarmann- anna að einum lögreglumannin- um sem hugðist handtaka hann í kjölfarið. Það voru árásarmaðurinn og félagar hans ekki reiðubúnir að sætta sig við og réðst hópurinn að lögreglumönnunum svo þeir hlutu talsverða áverka af. Þrír mannanna voru dæmdir í níu mánaða fangelsi, tveir í sex mán- aða fangelsi og einn í sjö mánaða.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.