Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.2011, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.2011, Síða 8
8 | Fréttir 28.–30. janúar 2011 Helgarblað Nokkur íslensk útgerðarfyrirtæki hafa leitað til lögmanna með það fyrir augum að stefna Landsbanka Íslands vegna afleiðuviðskipta sem þau áttu í við bankann á árunum fyr- ir hrun, samkvæmt heimildum DV. Meðal annnars er um að ræða út- gerðarfyrirtæki á Reykjanesskagan- um og á Snæfellsnesi. Útgerðarfyrirtækin telja að Landsbankinn hafi gefið þeim vill- andi upplýsingar um stöðu krónunn- ar sem haft hafi þau áhrif að þau tóku stöðu með henni í gjaldeyrisviðskipt- um sínum, þ.e.a.s. gerðu ráð fyrir því að verðgildi hennar myndi hækka. Á sama tíma var bankinn sjálfur með afleiðusamninga sem byggðu á stöðu gegn krónunni, það er að verð- gildi krónunnar myndi lækka. Ef mat Landsbankans hefði reynst rétt varðandi spána um verðgildi krónunnar hefði bankinn því bæði varið sig gagnvart lækkun henn- ar með eigin afleiðusamningum og eins hagnast á samningunum sem gerðir voru við útgerðarfyrirtækin sem sumir hverjir byggðu á því að krónan myndi hækka um 2–3 pró- sent. Með lækkun krónunnar töpuðu útgerðarfyrirtækin sem tóku stöðu með krónunni í afleiðusamningum sínum hins vegar háum fjárhæðum, milljónum eða jafnvel milljörðum króna. Telja sig hafa verið narraða Inntakið í hugsanlegum málaferlum útgerðarfyrirtækjanna er að Lands- bankinn hafi gefið villandi upplýs- ingar um væntanlega stöðu krón- unnar, upplýsingar sem voru í reynd andstæðar við þær upplýsingar sem bankinn taldi réttar. Á grundvelli þessara ráðlegginga gengu útgerðar- fyrirtækin til þessara viðskipta. „Ég hef átt margar andvökunæt- ur út af þessu; mér finnst ég hafa ver- ið blekktur. Það er smám saman að koma meira og meira í ljós að þetta var allt saman ein allsherjar svika- mylla,“ segir útgerðarmaður sem DV ræddi við. Sjávartútvegsfyrirtæki hans tapaði gríðarlegum fjárhæð- um á afleiðusamningum við Lands- bankann. „Eftir því sem meira kemur upp á yfirborðið því ljósara verður að þetta var allt meira eða minna fallít árið 2007 eða jafnvel fyrr. Bankarnir virð- ast svo hafa reynt að verja stöðu sína með því að gera svona samninga,“ segir útgerðarmaðurinn. Þessu sjón- armiði til stuðnings má benda á að á fundi slitastjórnar og skilanefnd- ar Landsbankans með kröfuhöfum bankans í byrjun desember að bank- inn hafi verið kominn langt undir lögbundið eiginfjárhlutfall talsvert löngu áður en íslenska bankahrun- ið skall á í október 2008. Komist er að svipaðri niðurstöðu í skýrslu sem norskt rannsóknarfyrirtæki vann fyr- ir embætti sérstaks saksóknara um starfsemi Landsbankans. Landsbankinn varði sig Inntakið í þessar hugsun er það að þeir samningar bankans við við- skiptavini hans sem byggðu á því að gengi krónunnar myndi haldast sterkt hafi verið aðferð hjá Lands- bankanum við að tryggja sig gegn lækkun krónunnar. Bankinn var gerður upp í krónum en þurfti að standa skil á skuldbindingum sín- um gagnvart erlendum aðilum í er- lendum myntum. Ef útlán til við- skipta bankans voru eingöngu í krónum á meðan afborganir til lán- ardrottna voru í erlendum myntum var því ljóst að bankinn myndi tapa fjármunum með lækkun krónunnar. Með því að lána í auknum mæli í er- lendum myntum og taka stöðu gegn krónunni var bankinn því að verja sjálfan sig fyrir þessari lækkun gjald- miðilsins. Hugsanlegt er að líta megi á auknar lánveitingar til almennings í erlendum myntum, meðal annars vegna fasteigna- eða bílakaupa, sem lið í þessum vörnum gegn falli krón- unnar. Veðjað gegn krónu og viðskiptavinum bankans DV hefur áður fjallað um sambærileg mál í tengslum við minnisblað sem Heiðar Már Guðjónsson, starfsmaður Björgólfs Thors Björgólfssonar, kynnti fyrir stjórn Landsbankans snemma árs 2006. Forsendan sem Heiðar Már gekk út frá í umræddu minnisblaði var sú að hátt gengi krónunnar væri dæmt til að lækka umtalsvert. Heið- ar orðaði þetta þannig að leiðrétting á gengi krónunnar væri „óhjákvæmi- leg“. Bæði Landsbankinn og Samson, móðurfélag Landsbankans, virð- ast hafa tekið stöðu gagnvart krón- unni sem byggði á þeirri hugmynd að hún myndi lækka. Þetta átti við um Landsbankann árið 2007. Þá tap- aði stærsti eigandi bankans, Sam- son, eignarhaldsfélag Björgólfsfeðga, rúmum 15 milljörðum króna á geng- isvörnum. Eigendur Samsonar töldu að gengi krónunnar myndi lækka meira en raunin varð og veðjuðu á þessa lækkun með afleiðusamning- um. Krónan hélst hins vegar sterkari en talið var. Þetta var vont fyrir Sam- son á þeim tíma en gott fyrir alla þá „Þetta var svikamylla“ n Útgerðarfyrirtæki kanna réttarstöðu sína vegna afleiðusamninga sem gerðir voru við Landsbankann n Mörg útgerðarfyrirtæki töpuðu gríðarlegum fjárhæðum á afleiðusamn- ingum sem byggðu á áframhaldandi sterku gengi krónunnar n Útgerðarmaður segist telja að hann hafi verið blekktur n Á sama tíma tók Landsbankinn stöðu gegn krónunni Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is Töpuðu 15 milljörðum Eignarhaldsfélag Björgólfsfeðga, Samson, tapaði rúmum 15 milljörðum króna á gjaldeyrisvörnum árið 2007. Á sama tíma voru gerðir samningar um að lána fólki í erlendum myntum sem og afleiðusamningar við útgerðarfyrirtæki þar sem gert var ráð fyrir hækkun krónunnar. Stöðvuðu kannabisræktun Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í iðnaðar- húsnæði í Háaleitishverfi í gær. Við húsleit á staðnum fundust 44 kanna- bisplöntur á ýmsum stigum ræktunar, að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni. Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn í þágu rannsóknar- innar og játaði hann aðild sína að málinu. Fyrr í vikunni stöðvaði lögreglan kannabisræktun í fjölbýlishúsi í vestubæ Reykjavíkur. Við húsleit þar fundust rúmlega 100 kannabisplönt- ur á ýmsum stigum ræktunar. Þá lagði lögreglan hald á tæplega 250 grömm af kannabisefnum. Karlmaður á fer- tugsaldri var yfirheyrður í þágu rann- sóknarinnar. Lögreglan segir fyrrnefndar að- gerðir vera lið í því að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna og minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á fram- færi upplýsingum um fíkniefnamál.  Hafa áhyggjur af réttindum barna Heimili og skóli, landssamtök for- eldra, hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem þess er krafist að ríkið og sveit- arfélög hafi raunverulegt samráð við foreldra barna í grunnskólum áður en gripið verði til frekari niðurskurðar. Nú blasir við að skera þurfi niður í grunnskólum víða um land. Samtök- in hafa áhyggjur af þessari stöðu og krefjast þess að yfirvöld gangi ekki á lögbundin réttindi skólabarna. Þor- gerður Diðriksdóttir, formaður kenn- arafélags Reykjavíkur, benti, í fréttum RÚV á fimmtudag, foreldrum á að vera vakandi gagnvart því hvort og þá hvernig kennsla barna yrði skert á næsta ári. „Heimili og skóli, landsamtök foreldra, krefjast þess að ríkisstjórn og sveitarfélög landsins tryggi gæði skólastarfs á öllum skólastigum á landinu og gangi ekki á lögbundin réttindi skólabarna nú þegar skera á niður útgjöld hins opinbera. Enn fremur er kallað eftir raunverulegu samráði við foreldra áður en ákvarð- anir um breytingar á skólastarfi verða teknar,“ segir í tilkynningu frá Heimil- um og skóla. Jóel kominn með vegabréf Búið er að gefa út vegabréf fyrir Jóel Færseth Einarsson, litla drenginn sem verið hefur fastur á Indlandi ásamt foreldrum sínum frá því í desember. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 á fimmtudag kom fram að líklega komi fjölskyldan heim til Íslands á næstu dögum. Jóel fékk íslenskan ríkisborgararétt fyrir jólin en indversk staðgöngumóðir gekk með hann. Heimkoma þeirra hefur hingað til strandað á útgáfu vegabréfs fyrir Jóel og lagalegri óvissu um hver færi með forræði hans. Heimildir Stöðvar 2 herma að sendiráðunautur frá íslenska sendiráðinu í Nýju-Delí hafi hald- ið í dag til Shennaí, þar sem Helga og Einar hafa dvalist undanfarið, í því skyni að afhenda þeim vega- bréf Jóels. Óstaðfest er hvort ind- versk stjórnvöld hafi gefið ákveðin svör varðandi forræðið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.