Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.2011, Síða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.2011, Síða 13
Fréttir | 13Helgarblað 28.–30. janúar 2011 FYRIR HVAÐ STANDA ÞEIR? hæfi Sigríðar Benediktsdóttur, kenn- ara við hagfræðideild Yale-háskóla, til setu í rannsóknarnefndinni. Jónas Fr. Jónsson, fyrrverandi forstjóri FME, hafði kvartað til rannsóknarnefndar- innar vegna ummæla Sigríðar í skóla- blaði Yale um bankahrunið á Íslandi. Forsætisnefnd Alþingis fól rannsókn- arnefndinni sjálfri að ráða fram úr hæfismálinu, en upphaflega naut Sig- ríður ekki stuðnings Páls samkvæmt heimildum DV. Páll er sérfróður um hæfismál og varð niðurstaðan að Sig- ríður hélt sæti sínu í nefndinni. Mál- ið vakti umtalsverða athygli og var um það fjallað í fjölmiðlum. Páll tók þátt í að semja frumvörp til stjórnsýslulaga og upplýsingalaga og var lengi formaður kærunefndar um upplýsingamál. Hann hefur tekið þátt í margvíslegri annarri lagasmíð. Hann fór árum saman fyrir kærunefnd um upplýsingamál. Hann var settur um- boðsmaður Alþingis í tíu málum á árunum 1997–1999. Þegar litið er til tímans frá því Páll fór að taka að sér áberandi opinber verkefni er að sjá sem hann hafi átt frama sinn að miklu leyti undir ráðuneytum Davíðs Odds- sonar. Garðar Gíslason Garðar settist í Hæstarétt fyrir nítj- án árum, þegar hann var fjöru- tíu og sjö ára að aldri. Hann hefur setið lengst þeirra dómara sem nú skipa Hæstarétt. Árið 1998, þeg- ar Garðar hafði setið í Hæstarétti í sex ár, gagnrýndi hann harkalega þá hæstaréttarlögmenn sem gagn- rýndu dóma Hæstaréttar. Í grein sem hann skrifaði í tímarit laga- nema við Háskóla Íslands sagði hann að þegar lögmenn gagnrýndu Hæstarétt yfirgæfu „… þeir það siðaða samfélag sem lögmenn og dómarar leitast við að halda uppi. Þá hætta lögmenn að móta réttinn, hætta að hafa áhrif, hætta að vera þjónar réttar og sannleika. Mikil- vægi þessara siðareglna lögmanna er því meira en margan grunar.“ Jón Steinar Gunnlaugsson sem í dag er meðdómari Garðars í Hæstarétti taldi Garðar beina orðum sínum til sín og skrifaði grein í Morgunblað- ið til að svara Garðari undir heitinu „Um málefnalega gagnrýni á ómál- efnalega dóma“. Garðar var skipaður dómari í Hæstarétt í stjórnartíð Þorsteins Pálssonar, þáverandi dómsmála- ráðherra Sjálfstæðisflokks. Eimreiðarhópurinn – Valdamenn í 30 ár Myndin er tekin á áttunda áratugnum og sýnir 12 meðlimi Eimreiðarhópsins, sem gerðist sérstakur boðberi frjálshyggjunnar innan Sjálfstæðisflokksins. Hópurinn var kenndur við samnefnt tímarit en það boðaði hugmyndafræði frjálshyggjunnar. Allir urðu Eimreiðar- menn seinna meir áhrifamenn í íslensku þjóðlífi. Þrír þeirra áttu eftir að verða formenn Sjálfstæðisflokksins og forsætisráðherrar, þeir Þorsteinn Pálsson, Davíð Oddsson og Geir H. Haarde. Saman mynduðu Eimreiðarhópurinn og aðrir áhrifamenn Sjálfstæðisflokksins valdavef í 300 þúsund manna þjóðfélagi sem hvíldi á stoðum stærstu einkafyrirtækj- anna í landinu og höfðu afgerandi og ráðandi tök á framkvæmdavaldi, dómsvaldi og lög- gjafarvaldi með ákveðnum undantekningum. Undir merkjum frjálshyggjunnar var losað um opinbert eftirlit, meðal annars fjármálaeftirlit, en það er talið eiga þátt í kerfishruni fjármálakerfisins fyrir tveimur og hálfu ári. Á síðari árum hefur Sjálfstæðisflokkurinn reynt að manna dómskerfið með flokkssystkinum, félögum eða ættingjum. Á myndinni eru í neðri röð frá vinstri Baldur Guðlaugsson fyrrverandi ráðuneytisstjóri, Magnús Gunnarsson athafnamaður og fyrrverandi forystumaður í röðum atvinnu- rekenda, Þór Whitehead sagnfræðiprófessor, Geir H. Haarde fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins og forsætisráðherra, Kjartan Gunnarsson framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins í 25 ár og fyrrverandi bankaráðsmaður í Landsbankanum, Davíð Oddsson fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins, forsætisráðherra, seðlabanka- stjóri og núverandi ritstjóri Morgunblaðsins, Þorsteinn Pálsson fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins, forsætis-, dóms- og sjávarútvegsráðherra, sendiherra og ritstjóri, Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttardómari, Gunnlaugur Claessen hæstaréttardómari og Hannes Hólmsteinn Gissurarson. Í efri röð eru Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson fyrrverandi borgarstjóri og Brynjólfur Bjarnason fyrrverandi forstjóri Granda, Símans og Skipta.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.