Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.2011, Síða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.2011, Síða 24
24 | Umræða 28.–30. janúar 2011 Helgarblað E ftir ákvörðun Hæstaréttar er stjórnlagaþingið kom- ið í uppnám. Enn er það þó verðugt verkefni að taka grundvallarlög íslenska lýðveldisins til endurskoðunar. Þegar núverandi stjórnarskrá tók gildi við lýðveld- istökuna árið 1944 álitu flestir að hún yrði aðeins til bráðabirgða, eða þar til Íslendingar fengju ráðrúm til að setja sér sína eigin stjórnarskrá. Þannig skrifuðu til að mynda þeir Gylfi Þ. Gíslason og Ólafur Jóhannesson í Helgafell árið 1945 og menn á borð við Bjarna Benediktsson og Gunn- ar Thoroddsen tóku í sama streng. Fyrir utan nauðsynlegar breytingar á hlutverki þjóðhöfðingjans byggði lýðveldisstjórnarskráin að mestu á fullveldisstjórnarskránni frá árinu 1920 sem að stofni til hvíldi á þeirri stjórnarskrá sem Danir settu Íslend- ingum árið 1874 – sem aftur byggði á dönsku grundvallarlögunum frá ár- inu 1866. Vanhæfni Alþingis Á liðnum áratugum hefur Alþingi skipað hverja stjórnarskrárnefnd- ina á fætur annarri en allt hefur komið fyrir ekki. Fjöldi mislukkaðra tilrauna til að endurskoða stjórnar- skrána er til vitnis um að alþingis- menn hafi af augljósum ástæðum of mikilla persónlegra hagsmuna að gæta til að ráða við málið. Svo vel sé. Ég skal nefna dæmi. Um miðj- an tíunda áratuginn sat ég í nefnd á vegum forsætisráðuneytsins sem átti að endurskoða kosningalög- in. Ég var kornungur háskólastúd- ent en flestir samnefndarmanna minna voru stútungskarlar á þingi og viðleitni þeirra var undantekn- ingarlítið að reikna fyrst sjálfa sig út áður en afstaða var tekin til hverr- ar tillögu fyrir sig. Á endanum náðu þingmennirnir ekki saman um annað en að festa flakkarann svo- kallaða í Reykjavík. Að öðru leyti kafnaði málið ofan í koki þingsins. Sem sannfærði mig um að þing- menn ættu hvergi að koma nærri við endurskoðun stjórnarskrárinn- ar. Stjórnlagaþingið var einstakt tækifæri til að leggja nýjan sátta- grunn undir íslenskt samfélag með heildstæðri endurskoðun stjórnar- skrárinnar. Auk þess að skýra stöðu þjóðhöfðingjans, tryggja eignar- hald fólksins í landinu á sameig- inlegum auðlindum og koma á faglegri skipun hæstaréttardóm- ara (sem ég ræði ekki nánar í þess- ari grein) hef ég lagt áherslu á sex grundvallaratriði sem mér finnst ástæða til að ræða sérstaklega. Aðskilnaður framkvæmda- og löggjafarvalds Mikilvægt er orðið að skilja betur á milli löggjafar- og framkvæmdavalds. Ein leið til þess væri að kjósa ríkis- stjórnina beinni kosningu, annað- hvort í heild sinni eða þá forsætisráð- herrann einan sem myndi velja með sér aðra ráðherra. Í því sambandi eru margar útfærslur mögulegar. En mestu skiptir að styrkja löggjafarhlut- verk Alþingis sem smám saman hef- ur koðnað niður undir oki ríkisstjórn- arinnar. Lengst af var Alþingi meginvett- vangur íslenskra stjórnmála en lög- gjafarþingið kom inn í landið langt á undan framkvæmdavaldinu. Á síðari árum hefur valdið hins vegar streymt frá þinginu til ríkisstjórnar sem að- eins hefur óbeint lýðræðislegt um- boð, í gegnum þingið – sem þó er undir járnhæl leiðtoga stjórnarflokk- anna hverju sinni. Með því að kjósa forsætisráðherra beinni kosningu væri hægt að koma beinu lýðræðis- legu taumhaldi á ríkisstjórnina. Öfugt við hina formlegu tilhög- un sem segir að þingið velji og hafi taumhald á framkvæmdavaldinu hefur reyndin orðin þveröfug, nú ráða ráðherrar öllu sem máli skipt- ir á Alþingi. Lagafrumvörp streyma í stríðum straumum frá ráðuneytum til Alþingis og svokölluð þingmanna- frumvörp fá sjaldnast afgreiðslu. Þau eru bara einhvers konar krúsidúllu- verkefni á meðan öll alvöru lagasetn- ing er undirbúin og unnin í stjórnar- ráðinu. Með því að kjósa framkvæmda- valdið sérstaklega frelsum við alþing- ismenn um leið undan þeim þrýstingi að metnaður allra stjórnmálamanna hljóti ávallt að standa til þess að verða ráðherra. Og þeim þrúgandi ónotum að það lýsi einhvers konar metnað- arleysi að vilja aðeins vera alþingis- maður. Þingmennska og ráðherra- dómur eru eðlisólík störf og því kann það að henta sumum stjórnmála- mönnum mun betur að einbeita sér að þingstörfum í stað þess að vera sífellt með augun á ráðherrastóln- um. Flestar táknmyndir á þingi end- urspegla þá stéttskiptingu sem er á milli ráðherra og óbreyttra þing- manna: ráðherrar eru hæstvirtir en þingmenn aðeins háttvirtir. Ráðherr- anum er ekið í glæsibifreið að fram- hlið þingsins en þingmenn leggja eig- in bíl fyrir aftan húsið. Aðeins myndir af ráðherrum prýða veggi Alþingis. Svona mætti áfram telja. Því er ansi brýnt að losa þingið loksins undan oki ráðherranna og koma löggjafarstarfinu aftur í hend- ur þingmanna – án afskipta ráð- herra sem eiga að sjá um framkvæmd þeirra laga sem Alþingi samþykkir en ekki að stýra lagasetningarvinn- unni. Þingmennska á að vera dyggð- ugt starf og hver stjórnmálamaður á að vera fullsæmdur af því að sækjast fremur eftir þingmennsku en ráð- herradómi. Aukið persónukjör Spennandi væri að opna fyrir per- sónukjör í einhverri mynd. Ýmsar út- færslur koma til greina í þeim efnum. En vandinn sem við er að etja er eink- um sá að völd hafa smám saman, en jafnt og þétt, safnast að stjórnmála- flokkunum, sér í lagi að fjórflokknum sem öllu ræður í íslenskum stjórn- málum. Stjórnmálaflokkarnir ráða enn framboðslistum, hvort heldur er með handröðun innmúraðra á lista eða í mislokuðum prófkjörum, en kjósandinn getur lítil áhrif haft á mönnun listans sem hann merkir við í kjörklefanum. Aðeins er hægt að beita útstrikun, semsé með nei- kvæðri aðgerð, en mikill fjöldi kjós- enda þarf að gera sömu breytingu til að útstrikunin hafi einhver áhrif. Kannski væri öllu nær að kjós- endur gætu haft áhrif á röðun fram- bjóðenda með persónukjöri í ein- hverri mynd, áhrifin birtast þá með jákvæðum hætti sem flestum er held ég betur að skapi. Persónukjör í kjörklefanum myndi líka brjóta upp það tangar- hald sem stjórnmálaflokkarnir hafa á frambjóðendum sínum. Að vísu er útfærsla á slíku engan vegin einföld og viss hætta á að aukið lýðskrum fylgdi persónukjöri. Vilmundur Gylfason og félagar í Bandalagi jafn- aðarmanna sáu fyrir sér að kjósend- ur gætu jafnvel valið frambjóðendur þvert á framboðslista í kjörklefanum. En hér þarf semsé að vanda mjög til verks Fleiri þjóðaratkvæðagreiðslur Tíðar þjóðaratkvæðagreiðslur eru að vísu engin töfralausn í þeirri stjórn- málakreppu sem nú er í landinu en rannsóknir sýna að almenningur er yfirleitt mun íhaldssamari og tregari til breytinga en kjörnir fulltrúar sem hafa (samkvæmt kenningunni) tíma til að setja sig inn í flókin mál. Fólk sem er í fullri vinnu við allt annað en að fylgjast með fínni blæ- brigðum þjóðmálaumræðunnar hef- ur auðvitað mun takmarkaðri mögu- leika á að setja sig inn í málin. Því er það nánast náttúrulegt varnarvið- bragð þeirra sem standa fyrir utan hringiðu stjórnmálanna að sporna fremur við breytingum heldur en að styðja framsækin mál. Í Sviss, þar sem um það bil helm- ingur allra þjóðaratkvæðagreiðslna í heiminum fer fram, hefur reynst örð- ugra að ná fram ýmsum framfara- málum. Til að mynda fengu konur ekki kosningarétt í Sviss fyrr en á átt- unda áratugnum því karlarnir kusu alltaf gegn því þegar málið var lagt fyrir þá í þjóðaratkvæðagreiðslu. Þjóðaratkvæðagreiðslur eru því vandmeðfarnar og geta ef slælega er að málum staðið gert illt verra. Eigi að síður tel ég rétt að opna fyrir þjóðaratkvæðagreiðslur í ákveðnum vel skilgreindum tilvikum sem mikil- vægt er að útfæra með skilmerkileg- um hætti. Málskotsrétturinn er nú í hönd- um forseta eins og Íslendingar fengu að kynnast í kosningunni um Ic- esave-samkomulagið. Hugsanlega mætti færa málskotsréttinn til þjóð- arinnar þannig að beiðni tiltekins hlutfalls kjósenda dugi til að kalla fram þjóðaratkvæðagreiðslu um mikilvæg mál. Þá mætti einnig hugsa sér að tiltekinn minnihluti þing- manna gæti einnig farið fram á þjóð- aratkvæðagreiðslur. Slíkt vald myndi jafnvel stuðla að ábyrgari umræðum á þingi – eins og stjórnmálafræðingar hafa greint að orðið hafi í Danmörku með tilkomu þessa réttar. Afnám kjördæmaskiptingar Að minni hyggju ætti einnig að út- færa leiðir til þess að afnema kjör- dæmaskiptinguna. Kjördæmaskipt- ingin hefur að sumu leyti eitrað stjórnmálalífið hér á landi og við- haldið aðskilnaði milli landsbyggð- ar og höfuðborgarsvæðis. Jafnvel alið á sundrung. Ég skil þó afar vel ótta margra úti á landi við að vald fær- ist til Reykjavíkur með afnámi kjör- dæmaskiptingarinnar en svo þarf þó alls ekki að verða. Ekki ef rétt er á málum haldið. Til að gæta að trúverðugleika og ná sem víðastri skýrskotun til kjós- enda yrði það eftir sem áður hag- ur framboðsins að bjóða upp á sem fjölbreyttastan lista, svo sem hvað viðvíkur búsetu, kyni, aldri og þess háttar. Borgaraleg réttindi Enn fremur væri gráupplagt að útbúa sérstaka borgaralega réttindaskrá, sem sé til viðbótar við hefðbundin mannréttindaákvæði. Góð stjórnar- skrá á að vera skýr, skorinorð og auð- skiljanleg öllum læsum mönnum. Framsæknustu stjórnarskrár heims, eins og til að mynda sú þýska og suð- urafríska, byrja á almennri yfirlýs- ingu um grunngildi, til að mynda um virkt lýðræði og þess háttar og svo kemur ítarlegur kafli um mannrétt- indi áður en stjórnskipan ríkisins er lýst. En auk hefðbundinna mannrétt- indaákvæða væri einnig hægt að vísa í mun víðfemari skrá um borg- aralegt réttindi, svo sem um sann- gjarna meðferð mála hjá hinu op- inbera. Leita má fyrirmynda í Bill of Rights í Bandaríkjunum og Chart- er of Fundamental Rights í Evrópu. Slík skrá þyrfti ekki endilega að vera formlegur hluti stjórnarskrárinn- ar heldur hugsanlega sér plagg sem stjórnarskráin vísar í og eykur þar með gildi þess umfram venjuleg lög. Lækkun kosningaaldurs Við heildræna endurskoðun á stjórn- arskrá þarf að líta til allra þátta, ekki aðeins til þeirra augljósustu og um- töluðustu í kjölfar hrunsins. Því myndi ég líka vilja taka til umræðu að lækka kosningaaldurinn í sextán ár. Þetta er mér að vísu ekkert sértakt baráttumál en myndi áreiðanlega auka áhuga ungs fólks á stjórnmál- um og hvetja ungmenni almennt til þátttöku í þjóðmálaumræðunni. Boltinn hjá Alþingi Frá lýðveldistökunni hafa aðeins smávægilegar breytingar verið gerð- ar á hinni danskættuðu stjórnarskrá, sér í lagi á kjördæmakerfinu. Alþingi hefur reynst ófært um að takast á við verkefnið. Með ákvörðuninni um að kjósa sérstakt stjórnlagaþing hyllti loksins undir að við Íslend- ingar fengjum tækifæri til að semja eigin stjórnarskrá. Á okkar eigin for- sendum. En nú er sú vegferð semsé komin í uppnám með nýföllnu áliti Hæstaréttar. Málið er aftur komið til kasta Alþingis (og fjórflokksins) sem þarf að ákveða framhaldið. Kjallari Eiríkur Bergmann„Þingmennska á að vera dyggðugt starf og hver stjórnmálamaður á að vera fullsæmdur af því að sækjast fremur eftir þingmennsku en ráðherradómi. Það sem ég vildi gera

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.