Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.2011, Qupperneq 40
40 | Lífsstíll 28.–30. janúar 2011 Helgarblað
Ævintýralegir
skartgripir
Skartgripir úr smiðju hinnar norsku Bjargar eru
sannkallaðir dýrgripir. Hún leitar í ævintýri og
norska náttúru þegar hún hannar gripina en áður en
hún gerðist gullsmiður starfaði hún við fatahönnun.
Lína hennar fyrir vorið 2011 geymir grófa gripi sem
vísa í sjóræningja, bein og eilífa og ástríðufulla ást.
Á heimasíðu hennar má líti þessa fögru gripi augum
en heimasíðan er töff og þar er einnig hægt að
panta þá: bjorgjewellery.com/2010.
Hárpúður í hárið
Uppsett og úfið hár í anda sjötta áratugarins er
ekki einfaldasta greiðslan til að henda upp áður
en farið er út á lífið. Leikurinn verður þó mun ein-
faldari ef notað er hárpúður í rótina til
að gefa hárinu lyftingu. Hár púðrið
má til að mynda fá frá Aveda
og Schwarzkopf. Púðrið hentar
líka vel þeim sem eru með þunnt
og líflaust hár og vilja gefa því
lyftingu án þess að nota hársprey
eða froðu sem gerir hárið stíft og
enn líflausara en áður.
Tvist á
franskar
neglur
Skemmtileg aðferð við
að lakka neglurnar:
Þú þarft: Grunn + glært lakk (Mavala),
tvær tegundir af naglalakki og hringlaga
límmiða (fást í ritfangaverslunum).
Skref 1: Klipptu límmiðana í tvennt.
Skref 2: Berðu grunn á neglurnar.
Skref 4: Þegar lakkið hefur þornað,
settu límmiðana á neglurnar
Skref 5: Berðu annan lit á neglurnar,
venjulega dugar ein umferð.
Skref 6: Taktu límmiðina af og
lakkaðu yfir með glæru lakki.
S
ólveig Ragna og Gunnhild-
ur Edda hanna föt und-
ir merkinu Shadow Creat-
ures þar sem þær leika sér
að myrkr inu á Íslandi og mýtum og
sögum sem í því kvikna.
Sólveig er menntaður arkitekt
og útskrifaðist sem slíkur frá Arki-
tektaskólanum í Árósum vorið
2009. Gunnhildur Edda útskrifað-
ist sem fatahönnuður frá Listahá-
skólanum vorið 2008. Þær höfðu
alltaf hug á því að vinna saman
og vorið 2010 þróuðu þær sam-
eiginlega línu sína undir heitinu
Shadow Crea tures. „Okkur lang-
aði virkilega til að vinna að verk-
efni saman og ákváðum að láta til
skarar skríða. Verkefnið þróaðist
mjög eðlilega áfram enda erum við
rosalega samstilltar og með líkan
smekk.“
Hluti ímyndar merkisins felst
í sterkum grafískum myndum
og leik að mynstrum, efnum og
skuggum og náttúrulegum efn-
um. Þær efndu til samstarfs við
grafíkteymið Marandros í fyrstu
línu sinni, sem er myndað af graf-
ísku hönnuðunum, Kötlu Rós og
Ragnari Má. Þau hafa teiknað fyr-
ir þær skrímsli og skuggaverur og
hannað fyrir þær lógó þeirra. „Við
erum ánægðar með samstarfið
sem hefur gefið vel af sér. Móra-
slána vorum við að fá í hús en það
er svolítið síðan hún var tilbúin til
framleiðslu. Treflar með áprenti úr
lokaverkefni Kötlu Rós í Listahá-
skólanum eru líka afrakstur þessa
samstarfs.“
Sólveig Ragna segir þær syst-
ur fá innblástur sinn úr náttúr-
unni og íslensku myrkri. „Það er
myrkur á Íslandi nánast allan árs-
ins hring og við vildum vinna með
það á jákvæðan hátt. Við notumst
við náttúruleg efni sem flæða, svo
sem silki. Innblástur okkar mætti
í raun segja að sé silkikennd áferð
skugganna.“
Þær systur hafa nú lagt loka-
hönd á næstu línu og eru að senda
hana til framleiðslu. „Við erum
svolítið á haus þessa dagana því
við tökum þátt í Copenhagen
Vision í næstu viku og höfum ver-
ið að útbúa kynningarefni, nýjar
skuggamyndir.“
Í byrjun mars kynna þær svo
nýja línu sína á Reykjavík Fas-
hion Festival en þær vinna hörð-
um höndum að því núna að koma
henni í framleiðslu í tæka tíð. „Það
er mikið að gera hjá okkur núna og
við keppumst við að hafa línuna
okkar ásamt kynningarefni tilbúna
fyrir RFF. Þetta eru álagspunktar
allra fatahönnuða og spennandi
og skemmtilegur tími líka.“
Flíkur úr línunni Shadow Crea-
tures fást í Kiosk á Laugavegi 33 og
áhugasamir geta kynnt sér síðustu
línu þeirra á heimasíðu þeirra,
shadowcreatures.com.
kristjana@dv.is
„ Innblástur okkar
mætti í raun segja
að væri silkikennd áferð
skugganna.
Silkimjúkar verur leynast í íslensku myrkri:
Skuggalegar systur
Blettatígur og
spangólandi úlfur
Sólveig Ragna og
Gunnhildur Edda
hanna föt undir
merkinu Shadow
Creatures.
Mögnuð
Móra-slá
Móra-slá úr línu
þeirra systra.
Skrímslið teikn-
aði grafíski
hönnuðurinn
Katla Rós.
Birna í ham
Fallegur kjóll
fyrir birnur
sem vakna úr
vetrarhýði.
Vængjuð skepna Fallegur
svartur samfestingur úr silki.
Falleg slá
Tignarleg slá
sem minnir á
fuglsvængi.
Á leiðinni til Köben Systurnar taka
þátt í Copenhagen Vision sem fer fram
í byrjun febrúar.