Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.2011, Side 53
Endurnærir og hreinsar ristilinn
allir dásama OXYTARM
Í boði eru 60-150 töflu skammtar
30+
Betr i apotekin og Maður l i fandi www.sologhei lsa. is
OXYTARM
Sól og
heilsa ehf
=
Losnið við hættulega
kviðfitu og komið maganum
í lag með því að nota náttúrulyfin
Oxytarm og 30 days saman120 töflu skammtur
days
detox
www.birkiaska.is
Minnistöflur
Bætir skammtímaminnið. Nýtist
fólki sem er undir álagi og fæst
við flókin verkefni. Hentar vel
fyrir eldri borgara, lesblinda og
nemendur í prófum. Dregur úr
streitu, eykur ró og bætir skap.
www.birkiaska.is
Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði
vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar
starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar
efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum,
dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox).
Birkilaufstöflur
Fólk | 53Helgarblað 28.–30. janúar 2011
Stærsta
stund
ferilsins
Natalie Portman er þakklát:
Þ etta er ótrúlegur he
iður og ég
er svo þakklát fyrir viðurkenn-
ingu Akademíunnar,“ voru við-
brögð leikkonunnar Natalie Portman
við því að hún væri í hópi þeirra leik-
kvenna sem tilnefndar eru til Óskars-
verðlaunanna að þessu sinni. Port-
man er tilnefnd sem besta leikkona
í aðalhlutverki fyrir leik sinn í mynd-
inni Black Swan en Portman segir
þetta stærstu stund ferils síns.
„Að gera Black Swan er nú þeg-
ar orðin mest gefandi reynsla sem
ég hef fengið á mínum ferli. Ástríð-
an í myndinni fullkomnar samband
áhorfandans og listamannsins,“
bætti Portman við en hún þakkaði
leikstjóra sínum, Darren Aronofsky,
sérstaklega fyrir. Hann hefur áður
gert myndir eins og Requiem for a
Dream og The Wrestler.
Spekingum þykir líklegt að Port-
man hreppi Óskarinn en þetta er í
annað sinn sem hún er tilnefnd. Hún
var tilnefnd fyrir leik í aukahlutverki í
myndinni Closer árið 2004.
Keypti úr fyrir
21 milljón
Kim Kardashian veður í peningum:
K im Kardashian segist hafa eytt tuttugu og einni milljón króna, hundrað og fimmtán þúsund bandaríkjadölum, í eitt úr. Hún segir að það sé það dýrasta sem hún hafi keypt sér. Þetta sagði
hún í viðtali við Piers Morgan í þættinum Piers Morgan Tonight sem
sýndur var á CNN á fimmtudag. Kim var þar í viðtali ásamt systur sinni
Kourtney.
Í viðtalinu sagðist hún einnig gefa árlega milljónir Bandaríkjadala
til góðgerðarmála en segist ekki vera til í að styrkja hvað sem
er. Hún verði að hafa ástríðu fyrir málefninu og vita að
peningarnir sem hún gefi komi raunverulega að góð-
um notum.
Systir hennar, Kourtney, sagðist ekki gefa hluta
launa sinna en sagði: „Ég ætla að gera það hér eft-
ir,“ og hló eftir að systir hennar sagði frá framlagi
sínu til góðgerðamála. Kim segist í viðtalinu
ekki vera viss um hversu mikinn pening hún
eigi en segist geta leyft sér ýmislegt.
Góð og rík Þó að Kim borgi tíund til
góðgerðamála á hún nóg eftir fyrir
sjálfa sig.
Natalie Portman
Ekki bara glæsileg.