Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2011, Blaðsíða 8
8 | Fréttir 11.–13. febrúar 2011 Helgarblað
Þingfesting í máli lögreglustjórans á
höfuðborgarsvæðinu gegn Lárusi Páli
Birgissyni sjúkraliða fór fram þriðju-
daginn 8. febrúar, en Lárus hefur tek-
ið til þess bragðs að verja sig sjálfur.
Lárus var handtekinn eftir að hann
neitaði að hlíta fyrirmælum lögreglu
um að færa sig af gangstétt fyrir fram-
an bandaríska sendiráðið að Laufás-
vegi og yfir á gangstétt hinum megin
við götuna. Engin ógn stafaði af veru
Lárusar á gangstéttinni.
Lárus sem var meðal annars sak-
aður um að mótmæla á gangstétt-
inni fyrir utan sendiráðið fór fram á
það fyrir dómi að hann fengi að sjá
sönnunargögn sem staðfestu að um
mótmæli hefði verið að ræða. Í kjöl-
farið féll saksóknari frá orðalaginu en
sagði meint brot engu að síður snúa
að broti á lögreglulögum. Lögreglu-
menn sem handtóku Lárus tjáðu
honum að hann væri inni á „örygg-
issvæði“ sendiráðs Bandaríkjanna
samkvæmt upplýsingum frá sendi-
ráðsstarfsmönnum. Lárus Páll segir
engin gögn hafa komið fram í málinu
sem staðfesti að gangstéttin – sem til-
heyrir Reykjavíkurborg – sé inni á sér-
stöku öryggissvæði.
Brot á lögreglulögum
Lárus Páll telur að lögreglan hafi
með fyrirmælunum – og síðar hand-
tökunni – skert tjáninga- og ferða-
frelsi hans. Hann hefur einu sinni
verið dæmdur í héraðsdómi fyrir
sams konar brot, en í október 2009
neitaði hann að hlíta fyrirmælum
um að færa sig af þessari sömu gang-
stétt. Þess má geta að gangstétt-
in fyrir framan sendiráðið er utan
lóðarmarka þess, þrátt fyrir að stórt
blómaker afmarki svæðið.
Árið 2004 var gerður samningur
til eins árs þar sem borgin samþykkti
að bandaríska sendiráðið fengi að
setja upp blómakerin, en samkvæmt
upplýsingum DV, hefur sá samning-
ur aldrei verið endurnýjaður. Karl
Sigurðsson, fomaður umhverfis- og
samgönguráðs, sagði í samtali við
DV í nóvember að svæðið væri í eigu
borgarinnar. „Ég veit ekki betur en að
þetta sé almenn gangstétt og ég skil
ekkert í því að sendiráðið eða nokkur
geti gripið sér það vald í hendur að
handtaka fólk sem stendur á þess-
ari gangstétt. Þannig að þetta er hið
undarlegasta mál,“ sagði Karl.
Stjórnarskrárbundinn réttur
Ljósmyndari DV var viðstaddur
handtökuna í nóvember. Eins og
sjá má á þeim myndum sem hann
tók þann dag, stóð Lárus fyrir utan
sendiráðið með skilti með áletrun-
inni „elskum friðinn.“ Við handtök-
una vísaði hann sem fyrr í 73. grein
stjórnarskrár lýðveldisins Íslands
en þar segir meðal annars: „Hver
maður á rétt á að láta í ljós hugsanir
sínar, en ábyrgjast verður hann þær
fyrir dómi. Ritskoðun og aðrar sam-
bærilegar tálmanir á tjáningarfrelsi
má aldrei í lög leiða.“
Lárus hefur áður sagt að aðgerð-
ir hans við sendiráðið séu ekki mót-
mæli, einungis hafi hann verið að
viðhafa fullyrðingu – í þessu tilviki
að hvetja til góðra verka – og slíkt
eigi honum að vera frjálst samkvæmt
stjórnarskránni. Í 73. grein stjórnar-
skrárinnar segir jafnframt: „Tjáning-
arfrelsi má aðeins setja skorður með
lögum í þágu allsherjarreglu eða ör-
yggis ríkisins, til verndar heilsu eða
siðgæði manna eða vegna réttinda
eða mannorðs annarra, enda teljist
þær nauðsynlegar og samrýmist lýð-
ræðishefðum.“
Segir ákæru illa rökstudda
Á vefsíðunni rvk9.org kemur fram
að Lárus hafi krafist þess fyrir dómi
að fá upplýsingar um það hvernig
hann hefði raskað allsherjarreglu
með því að standa á gangstéttinni
fyrir utan sendiráðið. Arngrímur Ís-
berg, héraðsdómari, hafnaði þeirri
spurningu og áréttaði að ákæruat-
riðin snúi að því að hann hafi ekki
gegnt fyrirmælum lögreglunnar.
Lárus spurði hvaða áhrif það hefði
ef fyrirmæli og handtaka lögreglu
þennan tiltekna dag hefðu ver-
ið ólögleg. Dómari sagðist gera ráð
fyrir að ef sú væri raunin yrði Lárus
sýknaður.
Lárus neitaði jafnframt að lýsa
sig sekan eða saklausan fyrir dómi
á þeim forsendum að honum væri
það ófært þar sem ákæran væri svo
illa rökstudd að ómögulegt væri að
skilja efnisatriði hennar. „Það eru öll
lög sem segja mér að ég megi vera
þarna. Þetta er utan lóðarmarka
sendiráðsins, þetta er á almanna-
færi og skilgreint þannig í lögum.
Þetta er opið svæði þannig að hver
sem er má labba þarna framhjá,“
sagði Lárus í samtali við DV í nóv-
ember. Málið verður næst tekið fyrir
þann 10. mars.
Jón Bjarki Magnússon
blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is
n Sjúkraliðinn Lárus Páll ákærður í annað sinn fyrir að hlíta ekki
skipunum lögreglu n Tjáði sig við sendiráð, á gangstétt í eigu borg-
arinnar n Sagður hafa verið inni á sérstöku öryggissvæði
HVATTI TIL FRIÐAR OG
ÁKÆRÐUR – AFTUR
Friðarhvetjandi Á skiltinu sem Lárus kallaði ábendingarskilti var hvatt til friðar.
„Lárus Páll telur
að lögreglan hafi
með fyrirmælunum – og
síðar handtökunni – skert
tjáninga- og ferðafrelsi
hans.
Handtekinn og kærður
Lárus hefur einu sinni verið
dæmdur fyrir sams konar
atvik en nú ætlar hann að
verja sig sjálfur.
Tilraun til vopnaðs ráns og fleira:
Síbrotamað-
ur fyrir dóm
Ríkissaksóknari hefur höfðað mál
á hendur 34 ára síbrotamanni fyrir
tilraun til vopnaðs ráns í versluninni
Háteigskjörum í nóvember 2009.
Maðurinn fór inn í verslunina vopn-
aður hnífi með 22 sentímetra löngu
blaði sem hann notaði til að ógna
starfsmanni.
Samkvæmt ákæruskjali öskr-
aði maðurinn: „Þetta er rán, þetta
er rán!“ en starfsmaðurinn náði að
stöðva manninn og króa hann af
inni í versluninni uns lögregla kom
á vettvang.
Maðurinn er einnig ákærður fyrir
önnur brot. Meðal annars fyrir að
stela sex pökkum af rakvélablöð-
um að verðmæti 17 þúsund króna
í verslun Hagkaups í Garðabæ.
Fyrir að brjótast inn í veitingastað í
Hraunbæ í Reykjavík og stela fjórum
áfengisflöskum og fyrir að brjótast
inn í bókaforlagið Bjart í Reykjavík
og stela þaðan 350 þúsund króna
Apple-tölvuskjá. Öll þessi þjófnað-
arbrot voru framin í apríl og maí í
fyrra.
Að lokum er maðurinn ákærður
fyrir að hafa dælt eldsneyti á bifreið
á bensínstöð Skeljungs og ekið á
brott án þess að borga.
Hinn ákærði á að baki talsverð-
an sakaferil og hefur frá árinu 1996
hlotið að minnsta kosti 10 refsidóma
fyrir margvísleg brot. Árið 2002 var
hann til dæmis dæmdur í þriggja
ára fangelsi fyrir tvö hættuleg rán og
tvær ránstilraunir en í þeim brotum
réðst hann meðal annars á konu
og roskinn karlmann, ógnaði fólki
með oddhvössum hlut, sög, brotinni
flösku og blóðugri sprautunál en
hann er smitaður af lifrarbólgu C.
Honum var veitt reynslulausn eftir
2 ár og var síðan aftur, árið 2004,
dæmdur í 15 mánaða fangelsi fyrir
þjófnað, svo eitthvað sé nefnt.